Morgunblaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 50
ÍÞRÓTTIR 50 MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT Pálmar Pétusson, Valur 16/1 (þar af 6 þar sem boltinn fór til mótherja): 7 (2) langskot, 3 (1) eft- ir hraðaupphlaup, 2 (1) eftir gegn- umbrot, 2 (2) af línu, 1 úr horni, 1 vítakast. Ólafur Gíslason, ÍR 13 (þar af 7 þar sem boltinn fór til mótherja): 5 (3) langskot, 3 (2) eftir gegnum- brot, 2 eftir hraðaupphlaup, 2 (2) úr horni, 1 af línu. Hreiðar L. Guðmundsson, ÍR 1 (boltinn fór til mótherja): Eitt (1) langskot. Birkir Ívar Guðmundsson, Haukar, 23/4 (þar af 9 til mót- herja), 6 (2) langskot, 4 (1) horn, 6 (4) af línu, 2 eftir hraðaupphlaup, 1(1) gegnumbrot, 4 (1) víti. Hafþór Einarsson, KA 6 (þar af 2 til mótherja), 3 úr horni, 1 (1) gegnumbrot, 1 víti. Stefán Guðnason, KA, 9/1 (þar af 3 til mótherja), 2 (1) langskot, 1 úr horni, 2 (1) hraðaupphlaup. 2 (1) gegnumbrot, 1 víti. HANDKNATTLEIKUR Haukar – KA 36:30 Ásvellir, Hafnarfirði, undanúrslit karla, fyrsti leikur, þriðjudaginn 27. apríl 2004. Gangur leiksins: 2:0, 4:1, 7:2, 9:3, 10:8, 15:10, 19:13, 19:15, 20:15, 21:19, 25:22, 28:25, 30:28, 33:28, 36:30. Mörk Hauka: Þórir Ólafsson 8, Ásgeir Örn Hallgrímsson 5, Halldór Ingólfsson 5, Ali- aksandr Shamkuts 4, Þorkell Magnússon 4, Andri Stefan 3, Jón Karl Björnsson 3/2, Ro- bertas Pauzuolis 2, Vignir Svavarsson 2. Utan vallar: 16 mínútur (Vignir Svavarsson fékk rautt spjald vegna þriggja brottvísana þegar 16 mínútur voru eftir og Páll Ólafs- son þjálfari fékk að líta rauða spjaldið fyrir mótmæli á lokamínútunni). Mörk KA: Andrius Stelmokas 8/2, Arnór Atlason 8/4, Sævar Árnason 4, Jónatan Magnússon 4, Einar Logi Friðjónsson 3, Bjartur Máni Sigurðsson 2, Þorvaldur Þor- valdsson 1. Utan vallar: 14 mínútur (Jónatan Magnús- son rautt spjald vegna þriggja brottvísana þegar ein og hálf mínúta var eftir). Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elí- asson. Of stórt verkefni fyrir þá. Áhorfendur: Um 1100. Valur – ÍR 29:25 Hlíðarendi, Reykjavík: Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 4:4, 6:4, 6:7, 9:10, 10:11, 12:12, 15:12, 15:14, 17:14, 18:17, 20:17, 22:19, 22:22, 24:24, 27:24, 29:25. Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 9/6, Hjalti Þór Pálmason 5, Bjarki Sigurðsson 4, Hjalti Gylfason 4, Heimir Örn Árnason 3, Freyr Brynjarsson 2, Atli Rúnar Steinþórsson 2. Utan vallar: 14 mínútur. Mörk ÍR: Einar Hólmgeirsson 11/2, Ingi- mundur Ingimundarson 5, Sturla Ásgeirs- son 5, Hannes Jón Jónsson 2, Fannar Örn Þorbjörnsson 2. Utan vallar: 12 mínútur (þar af Júlíus Jón- asson þrívegis og því rautt spjald). Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Gerðu mistök í gríðarlega erfiðum leik, en stóðu sig með prýði. Áhorfendur: Tæplega 700. ÍBV – FH 33:28 Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum, undan- úrslit kvenna, fyrsti leikur, þriðjudaginn 27. apríl 2004. Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 3:4, 5:4, 7:5, 9:5, 11:5, 12:7, 14:8, 16:9, 18:9, 19:10, 19:11, 19:13, 20:15, 21:16, 23:17, 24:19, 26:20, 27:22, 29:23, 29:25, 31:26, 32:27, 33:28 Mörk ÍBV: Anna Yakova 8/3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 7, Birgit Engl 6, Sylvia Strass 5, Alla Gorkorian 3, Þórsteina Sig- urbjörnsdóttir 1, Anja Nielsen 1, Edda Eggertsdóttir 1, Nína K. Björnsdóttir 1. Varin skot: Julia Gunimorova 23 (þar af 1 aftur til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk FH: Gunnur Sveinsdóttir 8, Þórdís Brynjólfsdóttir 7/1, Dröfn Sæmundsdóttir 5/3, Björk Ægisdóttir 4, Sigrún Gilsdóttir 2, Jóna Heimisdóttir 1, Guðrún Hólmgeirs- dóttir. Varin skot: Jolanta Slapiekene 8 (þar af 1 aftur til mótherja). Kristín Guðjónsdóttir 5/1. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Brynjar Einarsson og Arnar Kristinsson. Áhorfendur: Um 140. KNATTSPYRNA Deildabikar kvenna Efri deild: Valur – Stjarnan........................................6:1 KR – Breiðablik .........................................4:0 Greta Mjöll Samúelsdóttir 2, Inga Lára Jónsdóttir, Erna Björk Sigurðardóttir. BLAK Úrslit karla, annar leikur: HK – Stjarnan ............................................0:3 (25:18, 25:23, 25:18) ALFREÐ Gíslason, þjálfari hand- knattleiksliðsins Magdeburg, stjórnar liði Norðaustur-Þýska- lands í hinum árlega stjörnuleik í þýska handknattleiknum sem fram fer í Braunschweig 25. maí. Enginn Íslendingur var valinn í liðin tvö að þessu sinni og aðeins einn af læri- sveinum Alfreðs frá Magdeburg, Stefan Kretzschmar, tekur þátt í leiknum. Alls eru fimm leikmenn frá Lemgo í liðinu sem Alfreð stjórnar, og fjórir eru frá Flens- burg. Þess má geta að fimm efstu lið deildarinnar, Flensburg, Magde- burg, Lemgo, Kiel og Hamburg eru öll frá Norðausturhluta Þýska- lands. Liðið er þannig skipað: Jan Holpert, Joachin Boldsen, Sören Stryger og Lars-Krogh Jeppesen frá Flensburg, Henning Fritz og Christian Zeitz frá Kiel, Florian Kehrmann, Christian Schwarzer, Volker Zerbe, Markus Baur og Daniel Stephan frá Lemgo, Stefan Kretzschmar frá Magdeburg, Tor- sten Jansen frá Hamburg og Dim- itri Kouzelev frá Minden. Þrír frá Gummersbach Lið Suðvestursins: Alexander Mierzwa, Andreas Rastner og Kyung-Shin Yoon frá Gummers- bach, Carsten Lichtlein og Heiko Grimm frá Grosswallstadt, Alex Geerken og Björn Monnberg frá Wetzlar, Jens Tiedtke, Jan-Henrik Behrends og Jan-Olaf Immel frá Wallau, Mark Schmetz frá Essen og Bruno Souza frá Göppingen. Alfreð Gíslason stjórnar í þýska stjörnuleiknum KEFLVÍKINGAR hafa sett stefn- una á að karlalið þeirra í körfunni taki þátt í bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik, líkt og liðið gerði með góðum árangri í vetur. Hrann- ar Hólm, formaður körfuknattleiks- deildar Keflavíkur, segir það svo til öruggt að af þessu verði, en aðal- fundur verður hjá deildinni snemma í næsta mánuði og það verður verk nýrrar stjórnar að ákveða framhaldið. Keflavík lék gegn liðum frá Portúgal og Frakklandi á síðustu leiktíð í bikarkeppni Evrópu. Hrannar sagði einnig að fyrir- hugað væri að fara með kvennaliðið í einhverja keppni í Evrópu, þó ólíklegt væri að það yrði Evrópu- keppnin. Meistararnir stórhuga Leikmenn ÍBV röðuðu inn mörkumog þegar flautað var til leikhlés var munurinn níu mörk. Gestirnir komu þó mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og um miðbik hálfleiksins höfðu þær náð að minnka muninn niður í fjögur mörk. Lengra komust þær þó ekki og öruggur sigur Eyjastúlkna í höfn. ÍBV-liðið spilaði feikilega vel í fyrri hálfleik, og þá sérstaklega Anna Yak- ova og Guðbjörg Guðmannsdóttir sem skoruðu sín fimm mörkin hvor og voru báðar með afbragðsnýtingu. Maður leiksins var þó Julia í mark- inu sem varði 23 skot og sýndi það að þar fer einn besti markvörður deild- arinnar. Hjá gestunum átti Gunnur Sveinsdóttir frábæran leik í síðari hálfleik, skoraði sex mörk úr jafn- mörgum tilraunum en Þórdís Brynj- ólfsdóttir átti líka ágæta spretti en fór þó illa að ráði sínu þrívegis ein á móti markverði ÍBV í hraðaupphlaupi. Erfitt að bíða í þrjár vikur „Við erum búin að vera í fríi í þrjár vikur út af Evrópukeppninni hjá þeim og fyrir utan það að þær eru með mjög gott lið þá segir það sig sjálft að það er erfitt fyrir hin liðin að halda sér í formi á meðan,“ sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari FH, ósáttur í leikslok. „Við vorum lengi í gang, það er erfitt ferðalag að koma hingað og þær hreinlega keyra yfir okkur í fyrri hálfleik.“ Sigurður sagði að liðið hefði spilað af eðlilegri getu í síðari hálfleik sem endaði 14:18 FH í vil. „Við spil- uðum hreinlega langt undir getu í fyrri hálfleik og það þýðir ekkert ann- að en að spila af fullum krafti gegn ÍBV ef maður ætlar að eiga mögu- leika. Nú er það bara leikur á fimmtu- daginn og það eru vonandi tveir leikir eftir.“ Aðalsteinn ánægður með Önnu Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, var að vonum ánægður með sitt lið í lokin. „Stelpurnar voru einbeittar og tilbúnar í verkefnið í fyrri hálfleik og við náðum góðum fimmtán mín- útna kafla og það var nóg í dag. Julia er varði vel og við náðum að keyra hraðaupphlaup á þær. Þetta gekk upp í dag.“ Aðalsteinn hrósaði Önnu Yak- ovu sérstaklega fyrir sinn leik. „Hún er með yfir áttatíu prósent nýtingu í skotunum og klárar þau mjög vel. Hún á hrós skilið fyrir frábæran leik. Það er stutt í næsta leik sem verður í Hafnarfirði á fimmtudaginn en við höfum gert þetta áður og vitum út í hvað við erum að fara. Ég náði að hvíla ákveðna leikmenn seinni hluta leiksins hér í dag og það var mikil- vægt.“ Ef ÍBV leggur FH að velli á fimmtudag mun liðið mæta Val í úr- slitum Íslandsmótsins en Valur hafði betur gegn Stjörnunni í undanúrslit- um um sl. helgi. Gantimurovu var frábær í markinu ÍSLANDSMEISTARALIÐ ÍBV var nokkuð sannfærandi í fyrstu við- ureign liðsins gegn FH í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknatt- leik kvenna í gær þar sem að Eyjaliðið hafði betur, 33:28, en staðan í hálfleik var 19:10. Það voru þó gestirnir sem byrjuðu betur á fyrstu mínútunum en þegar staðan var jöfn, 5:5, sneru heimamenn leikn- um sér í vil, þökk sé frábærri markvörslu Juliu Gantimurovu og vel útfærðum hraðaupphlaupum. Sigursveinn Þórðarson skrifar Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Alla Gorkorian, leikmaður ÍBV, skorar eitt af mörkum sínum gegn FH í gær í Eyjum. Þannig vörðu þeir KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla: Efri deild, 8-liða úrslit: Boginn: KA - FH ...................................19.15 Leiknisvöllur: ÍA - Fylkir..........................20 Neðri deild C: Hellissandur: Víkingur Ó. - Afturelding ..19 Í KVÖLD   < ! 2 %? ! : $DD( :!  <E 8E ,A   F             ,A   F /" 6< 69 , ;7 :5     * ( A ( " 64 64  ;9 :5     :                  STJARNAN úr Garðabæ varð í gær Íslandsmeistari í blaki karla en liðið lagði HK öðru sinn í úrslitum Ís- landsmótsins í gær. Leikur liðanna stóð yfir í klukkustund og vann Stjarnan allar þrjár hrinurnar. Fyrri leikur liðanna endaði með sigri Stjörnunnar, 3:1, en HK hefur ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn frá árinu 1995. Stjarnan varði þar með titilinn sem liðið vann í fyrsta sinn í sögu félags- ins í fyrra en að auki varð félagið bik- armeistari og sigraði einnig í deild- arkeppninni. Þrefaldur sigur hjá Stjörnumönnum í ár sem er glæsi- legur árangur. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, af- henti Stjörnumönnum Íslandsmeist- arabikarinn í leikslok í Hagaskóla þar sem HK lék heimaleiki sína í vet- ur. „Þetta hefur verið magnaður vetur og liðið náð að sýna allar sínar bestu hliðar í mótum ársins,“ sagði Vignir Hlöðversson fyrirliði og þjálfari Stjörnunnar í gær. „Ég er sérstak- lega ánægður með hve margir komu að fylgjast með úrslitaleikjunum og þessi vetur gefur okkur byr undir báða vængi hvað framhaldið varðar. Næsta verkefni félagsins verður að endurvekja starfið hjá yngri flokkum félagsins og ég tel að framtíðin sé björt þar sem nýtt íþróttahús er að rísa í Garðabænum,“ sagði Vignir en hann lék um tíma með HK eftir að hafa alist upp í herbúðum Stjörnunn- ar. „Það var eðlilegt framhald á þeim tíma að fara í HK en svo er ekki í dag.“ Vignir sagði að leikmenn liðs- ins myndu fara í óvissuferð um næstu helgi til þess að fagna titlinum, enda ærin ástæða til þess að gera sér glað- an dag. „HK er með gott lið sem var erfitt að leggja að velli og ég vil þakka leikmönnum fyrir rimmuna að þessu sinni. Ég á alveg eins von á því að þessi lið mætist á ný að ári í úrslit- um.“ Stjarnan landaði þrennunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.