Morgunblaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, mat-
araðstoð kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín, kl. 13.30
leshringur í fundar-
salnum. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–12 gler-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 13–16.30
brids/vist, kl. 13–16
glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við bað og hár-
greiðsla, kl. 10 leikfimi,
kl. 14.30 bankinn, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan opin,
kl. 10–13 opin verslun-
in, kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Postulínsmál-
un, námskeið og leir-
mótun, námskeið kl.
9–16.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Opnun vor-
sýningar í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli.
Opið kl. 13–19. Kl.
14.30 kynning á starfi
eldri borgara á vegum
félagsstarfs, kirkju og
félags eldri borgara.
Garðakórinn syngur.
Kaffisala á vegum
kirkjunnar kl. 14–17.
Kvennaleikfimi kl. 9.30,
10.20 og 11.15, brids í
Garðabergi kl. 13.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl. 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Kl. 10 myndmennt og
málun, kl. 11 línudans,
kl. 13 myndmennt, mál-
un, glerskurður og
pílukast.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Síðdegisdans kl. 14.30–
16.30, húsið opnað kl.
14. Guðmundur Hauk-
ur leikur fyrir dansi,
kaffi og vöfflur. Söng-
fél. FEB, kóræfing kl.
17. Söngvaka kl. 20.30,
umsjón Sigurbjörg
Hólmgrímsdóttir.
Gerðuberg, félags-
starf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10.30 gamlir leikir og
dansar, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
13.30 kóræfing. Á
morgun kl. 13.15 kyn-
slóðir saman í Breið-
holti, félagsvist í sam-
starfi við Hólabrekku-
skóla.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
og kl. 13 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 16.15 tré-
skurður, kl. 17. bobb.
Kl. 15.15 söngur, Guð-
rún Lilja mætir með
gítarinn.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 11 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
hárgreiðsla, fótaaðgerð
og banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl.
9–10 og kl. 10–11 jóga,
kl. 10.30 samverustund,
kl. 15–18 myndlist.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðjudaga til föstu-
daga.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun fimmtudag,
pútt á Korpúlfsstöðum
kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl. 10
sund, kl. 10–11.30
ganga, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 myndmennt,
kl. 12.15–14.30 versl-
unarferð, kl. 13–14
spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður.
Vitatorg. Kl 8.45
smiðja, kl. 9 fótaað-
gerðir, kl. 10 búta-
saumur og hárgreiðsla,
bókband, kl. 13 föndur
og kóræfing, kl. 12.30
verslunarferð.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramikk, tau-
málun, föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Hafnargönguhópur-
inn. Kvöldganga kl. 20
miðvikudaga. Lagt af
stað frá horni Hafnar-
húsins norðanmegin.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12,
kl. 19.30 félagsvist.
ITC-deildin Melkorka,
fundur í kvöld í
Borgartúni 22 kl. 20.
Í dag er miðvikudagur 28. apríl,
119. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Ver þú ekki of réttlátur og
sýn þig ekki frábærlega vitran –
hví vilt þú tortíma sjálfum þér?
(Pd. 7, 16.)
Brynjólfur Stefánssongagnrýnir landbún-
aðarráðherra á Deiglunni
fyrir að fresta því enn á
ný að afnema opinbera
verðlagningu á mjólk og
segir rök hans fyrir
þeirri ákvörðun ekki
standast. „Athyglisverð-
ust var þó sú röksemdar-
færsla að þar sem stór-
kostlegur aðstöðumunur
væri á milli lítilla kaup-
manna og stórverslana
væri þetta fyrirkomulag
síðasta haldreipið, blá-
þráðurinn, sem kæmi í
veg fyrir endalok kaup-
mannsins á horninu.
Stóru verslanirnar gætu
kúgað birgja í verðlagn-
ingu á almennri matvöru,
þvingað þá til að lækka
verð í heildsölu og þannig
fengið lægra verð en al-
mennum kaupmönnum
býðst. Opinber verðlagn-
ing á mjólk tryggði hins
vegar jafna aðstöðu
stórra og smárra kaup-
manna og héldi þannig
lífi í kaupmanninum á
horninu. Með því væri
tryggt að fjölbreytni ríkti
á matvörumarkaði og
lágt vöruverð neytendum
til hagsbóta.“
Brynjólfur bendir á aðsamkeppnisráð hafi
tvisvar beint þeim til-
mælum til landbúnaðar-
ráðuneytissins að gera
heildsöluálagningu á
mjólkurvörum frjálsa og
spyr hvort ráðherrann
trúi því í raun og veru að
opinber verðlagning
tryggi fjölbreytni al-
mennt eða bara varðandi
mjólk – að sumar kýr séu
heilagari en aðrar. „Von-
andi gera þó flestir sér
grein fyrir því að neyt-
endur greiða ómeðvitað
fyrir þennan „fjölbreyti-
leika“ og mjólkurfram-
leiðsla hrærist í þeim
vanda að starfa ekki í
eðlilegu samkeppnis-
umhverfi með tilheyrandi
aðhaldi og metnaði. Eins
ber það vott um forræð-
ishyggju á háu stigi þeg-
ar stjórnmálamenn vilja
vinna að því að halda líf-
inu í kaupmanninum á
horninu og tryggja þann-
ig aukið val neytenda. Af
hverju ekki að leyfa fólki
að taka þessa ákvörðun
sjálft. Bónus eða kaup-
maðurinn á horninu hlýt-
ur að vera ákvörðun sem
okkur er treystandi fyrir.
Sú stærðarhagkvæmnisem hlýst af því að
reka stórar verslanir á að
sjálfsögðu að koma neyt-
endum til góða. Ef ein-
stakir kaupmenn geta
þvingað verð niður í
heildsölu er ástæðan
væntanlega sú að þeim
býðst svipuð vara annars-
staðar á samkeppnishæfu
verði. Svo lengi sem allir
hafa jafnan aðgang að
markaði er eðlilegt að
menn keppist við að fá
sem mest gæði fyrir
minnst verð. Mjólkur-
framleiðsla á Íslandi býr
nú þegar við ágætis sam-
keppnisforskot því að litl-
ar líkur eru á því að er-
lendir aðilar flytji ný-
mjólk til landsins. Hins
vegar myndu minni höft á
innflutningi á annarskon-
ar mjólkurvöru hafa það í
för með sér að verð lækk-
aði og úrval ykist.“
STAKSTEINAR
Heilagar kýr
Víkverji skrifar...
Tvíhöfða grínistarnir SigurjónKjartansson og Jón Gnarr hafa
sameinast á ný og fara mikinn á öld-
um ljósvakans um þessar mundir á
útvarpsstöðinni Skonrokki. Víkverji
verður að viðurkenna að hann hefur
átt svolítið erfitt með að skilja vin-
sældir Tvíhöfðapilta, þó að vissulega
hafi stundum mátt brosa að þessum
svarta húmor sem þeir gera út á. En
nýlega gerði Víkverji sér betur grein
fyrir að piltarnir væru bara nokkuð
fyndnir eftir allt saman. Einn morg-
uninn var stillt á Skonrokk í bílnum
og mátti heyra símtal við mann frá
útlöndum. Höfðu Tvíhöfðapiltar þá
slegið á þráðinn til sendanda ,,Níg-
eríubréfs“, þar sem viðtakandi er
beðinn um að leggja til bankareikn-
ing með fagurgala um að þar verði
lagðir inn vænir peningar, oftast
gegn gjaldi. Þeir bulluðu einhverja
vitleysu um tíma en síðan báðu þeir
manninn að drepa fyrir sig mann að
nafni Kunta Kinte. Víkverji man
ekki betur en að þetta hafi verið
fræg persóna í vinsælum sjónvarps-
þáttum á RÚV fyrir margt löngu.
En viðmælandinn kom Tvíhöfða
þægilega á óvart þegar hann sagðist
vera reiðubúinn að drepa Kunta
Kinte ef hann fengi þúsund dollara
fyrir! Þarna má segja að glæpa-
mennskan í kringum þetta peninga-
þvætti hafi verið afhjúpuð – á lítilli
útvarpsstöð norður undir heim-
skautsbaug.
x x x
Yfir í öðruvísi húmor og ekki einssvartan. Víkverji brá sér á fjöl-
skylduleikritið Dýrin í Hálsaskógi í
Þjóðleikhúsinu um helgina og
skemmti sér konunglega líkt og aðr-
ir gestir á svipuðu reki. Eftir hlé
greip þó undarleg tilfinning Vík-
verja þar sem honum fannst hann
allt í einu vera staddur í hringiðu
stjórnmálanna og umræðna um fjöl-
miðlafrumvarp. Ástæðan var inn-
koma Arnar Árnasonar í hlutverki
bangsapabba, foringjans í skóginum
sem önnur dýr líta upp til af virð-
ingu. Raddbeiting og tilburðir Arnar
voru þannig að Víkverja fannst for-
sætisráðherra vera mættur á sviðið,
ekki síst þegar hann las dagblaðið í
Hálsaskógi, Laufblaðið, og kvartaði
yfir útburði þess. Aðeins hárkolluna
vantaði upp á hjá Erni og kannski
hér sé hugmynd að handriti fyrir
Spaugstofuna í lokaþætti vetrarins
um næstu helgi. Þegar bangsapabbi
var kominn til sögunnar í leikritinu
komst það ferli af alvöru í gang að
setja lög um að öll dýrin í skóginum
ættu að vera vinir og mættu ekki éta
hvert annað. Síðan endaði leikritið á
því að lagasetningu var fagnað og
bangsamamma, sem allt eins gæti
verið framsóknarmaddaman í með-
förum Spaugstofunnar, minnti dýrin
á að bangsapabbi ætti líka afmæli. Í
fagnaðarlátum dýranna á sviðinu,
þar sem bangsapabbi sat makinda-
lega í ruggustól á meðan sungið var
honum til heiðurs og blöðrum sleppt
á loft, fannst Víkverja sem runninn
væri upp 15. september.
Morgunblaðið/Ásdís
Tvíhöfði.
LÁRÉTT
1 slökun, 8 gamalt, 9
nuddið, 10 elska, 11
ávinningur, 13 ójafnan,
15 sjór,18 ófullkomið, 21
rándýr, 22 heitis, 23 bak
við, 24 notfærsla.
LÓÐRÉTT
2 ný, 3 málar, 4 titts, 5
grafið, 6 styrkja, 7 nýver-
ið, 12 klaufdýrs, 14 bein,
15 óslétta, 16 afbiðja, 17
viljugan, 18 fast við, 19
kærleikurinn, 20 þyngd-
areining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hamra, 4 bjóða, 7 perla, 8 rjómi, 9 röð, 11 rask,
13 átan, 14 yggla, 15 skán, 17 regn, 20 ára, 22 álits, 23
nadds, 24 annir, 25 aurar.
Lóðrétt: 1 hopar, 2 marks, 3 afar, 4 barð, 5 ómótt, 6 as-
inn, 10 öggur, 12 kyn, 13 áar, 15 skána, 16 ásinn, 18 eld-
ur, 19 nasar, 20 ásar, 21 anda.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Í VELVAKANDA 23. apríl
er spurt af hverju hætt hafi
verið að þýða bækur Mar-
git Sandemo um Ríki ljóss-
ins.
Þar sem ég þýddi þær 13
bækur sem út komu í
flokknum, er mér málið
skylt. Ég hætti einfaldlega
að þýða þegar enginn var
lengur til að gefa út. Útgáf-
an varð gjaldþrota.
Hins vegar á ég þær sjö
sem eftir eru og skal með
ánægju þýða þær ef ein-
hver vill gefa þær út.
Snjólaug Bragadóttir.
Frábær dýrabúð
ÉG er búin að fara nokkr-
um sinnum og versla í
Dýrabúðinni á Grensás-
vegi, m.a. fékk ég þar tvo
hamstra. Mér finnst alveg
frábær þjónusta þar því ég
hef fengið að skipta dýrum
og fá önnur. Séstaklega vil
ég þakka Berglindi og
Unni.
María Árnadóttir,
11 ára.
Glæsileg söngsýning
ÉG fór á sýningu hjá Nýja
tónlistarskólanum sem
starfar í Ými í Skógarhlíð.
Þar voru ungir söngvarar
með glæsilega sýningu
undir stjórn Guðbjörns
Guðbjörnssonar. Ég hvet
tónlistaráhugafólk að fara
og sjá og heyra unga söngv-
ara.
Áheyrandi.
Tapað/fundið
Kassabíll horfinn
SUMARBÚÐIRNAR í
Vatnaskógi voru með sum-
arhátíð á sumardaginn
fyrsta í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg á móts
við Langholtsskóla. Hátíð-
in gekk vel, en kassabíll
hvarf af staðnum. Kassabíl-
ar þessir eru vinsæl leik-
tæki í sumarbúðunum og
eru auðþekkjanlegir, sá
sem hvarf er hvítur á lit og
sömu tegundar og sá á
myndinni. Finnandi vin-
samlega hafið samband í
síma 899 7746.
Videóspóla í óskilum
VIDEÓSPÓLA (merkt
kafbátur) og tvær hvítar
rúllur í poka eru í óskilum í
miðasölunni á Hlemmi.
Einnig eru nokkur gler-
augu í óskilum á sama stað.
Lyklakippa týndist
LYKLAKIPPA með 7 lykl-
um týndist í sl. viku, líklega
á Seltjarnarnesi eða í Vest-
urbæ. Finnandi hringi í
síma 552- 3257.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
TVEIR kettlingar, högnar,
8 vikna, fást gefins. Upp-
lýsingar í síma 565 0143,
899 0041 og 698 1811.
Kettlingar fást gefins
SJÖ vikna orientalblandað-
ir kettlingar, 2 læður og 1
fress, óska eftir framtíðar-
heimili. Eru kassavanir og
kattþrifnir. Uppl. í síma
692 7487.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Ríki ljóssins –
svar