Morgunblaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 34
UMRÆÐAN
34 MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
M
aður sem stund-
um má taka
mark á sagði ein-
hvern tíma: „Ég
er að verða sold-
ið skeptískur á þetta krítíska
attitjút.“ Það væri ef til vill oftar
hægt að taka mark á blessuðum
manninum ef hann kynni að
haga orðum sínum á íslensku, en
setninguna hér að framan mætti
kannski þýða sem svo: „Ég er að
verða efins um gildi gagnrýnnar
hugsunar.“
Orð þessa vafasama efasemda-
manns eru þar að auki undarleg
í ljósi þess, að oft er haft á því
orð að það skorti einmitt á gagn-
rýna hugsun í umræðunni á Ís-
landi. Menn eru sagðir slá fram
órökstuddum fullyrðingum og
éta hugs-
unarlaust upp
eftir öðrum
einhverja
hleypidóma
sem væru
þeir einfald-
lega staðreyndir og ekki þurfi
frekar vitnanna við. Að ekki sé
nú minnst á þegar menn vísi í
fullyrðingar yfirvalda eða „al-
mannaróm“ til að staðfesta eigin
orð.
En er það alveg rétt að skort-
ur sé á gagnrýnni afstöðu í „um-
ræðunni“? Er ekki þvert á móti
ástæða til að ætla, ef nánar er að
gáð og hlustað um stund á um-
ræðuna, að gagnrýnin hugsun
vaði uppi í íslensku samfélagi
sem aldrei fyrr, allsendis aga-
laust? (Út af fyrir sig kæmi það
víst engum á óvart að skorti aga
í því sem Íslendingar gera.)
Áður en lengra er haldið er
rétt að staldra við – kannski í
anda hinar sönnu gagnrýnu
hugsunar – og spyrja hvað gagn-
rýnin hugsun sé eiginlega. Og þá
vill svo til, að vel ber í veiði. Fyr-
ir tæpum tuttugu árum spurði
Páll Skúlason, heimspekingur og
núverandi rektor Háskóla Ís-
lands, að því í útvarpserindi
hvort hægt væri að kenna gagn-
rýna hugsun. (Fyrirlesturinn
birtist síðar í bókinni Pælingar,
sem kom út 1987.) Þar segir
Páll: „Gagnrýnin hugsun er fyrst
og fremst fólgin í viðleitni til að
rannsaka hlutina, láta engar til-
hneigingar, langanir eða tilfinn-
ingar hlaupa með sig í gönur.“
Þetta hljómar skynsamlega og
varla getur efasemdamaðurinn
sem vitnað var í hérna í upphafi
hafa verið að andmæla því að
farið sé eftir þessum orðum
Páls? Kannski var efasemdamað-
urinn öllu heldur að finna að því
hversu hætt virðist við því að
svokölluð gagnrýnin hugsun
breytist í lamandi hugsun. Það
gerist þegar menn leggja upp
með gagnrýna hugsun en missa
hana úr böndunum, ef svo má
segja, og hún breytist í einhvers-
konar allsherjarneikvæðni og
sjálfkrafa höfnun á orðum við-
mælandans.
Gagnrýnin hugsun fer úr
böndunum vegna þess að litið er
á viðmælandann sem andstæðing
og „samræða“ við hann breytist í
kappræðu. Fyrsta viðbragðið við
öllu sem hann segir er að hafna
því. Menn gleyma sér og verða
heitir eins og í leik – samræðan
verður að íþróttakappleik þar
sem öllu skiptir að leggja and-
stæðinginn að velli. (Þess vegna
eru skipulagðar kappræður eins
og kenndar eru og stundaðar í
íslenskum framhaldsskólum stór-
kostlega vafasamar). Þetta er
einmitt megineinkenni allrar op-
inberrar „umræðu“ og kannski
þess vegna sem svo oft er erfitt
að fá botn í hana og sjá hvort
hún eigi sér eitthvert markmið
annað en sjálfa sig.
Og þetta er líka megin-
einkenni allrar pólitískrar um-
ræðu á Íslandi – og víðar – og
ástæðan fyrir því að hún er jafn
lamandi og tilgangslaus og raun
ber vitni, nema maður sé í eðli
sínu íþróttamaður og líti á öll
mannleg samskipti sem íþrótta-
kappleik. En þetta – að líta jafn-
an á viðmælandann sem and-
stæðing sem þurfi að sigra –
hefur í rauninni lítið með gagn-
rýna hugsun að gera, eins og
Páll benti á: „Tilhneiging manna
til að finna að skoðunum og
verkum annarra og jafnvel sín-
um eigin á í sjálfu sér ekkert
skylt við gagnrýna hugsun.“
Ef þetta er rétt hjá Páli má ef
til vill til sanns vegar færa að
það skorti á gagnrýna hugsun í
„umræðunni“, þótt ekki skorti
þar á meinta gagnrýna hugsun
sem farið hefur úr böndunum og
breyst í lamandi hugsun.
En hvers vegna skyldi vera
svona hætt við því að gagnrýna
hugsunin, sem menn leggja upp
með í góðri trú, fari úr bönd-
unum? Líklega er skýringin sú,
að það gleymist að gagnrýnin
hugsun þarf sjálf á gagnrýni að
halda. Ekki svo að skilja að mað-
ur eigi sífellt að draga eigin orð í
efa (slíkt myndi líklega fljótt
gera mann eitthvað undarlegan),
heldur þarf maður að gefa öðr-
um færi á að gagnrýna mann.
Þetta gengur auðvitað alveg
þvert á grundvallarreglur kapp-
ræðunnar og er ef til vill þess
vegna eitur í beinum mikilla
íþróttamanna.
Og það er líklega alveg borin
von að þetta geti nokkurn tíma
orðið alsiða í stjórnmálaumræðu,
vegna þess að lykillinn að svona
sjálfsgagnrýni er fólginn í því
sem annar heimspekingur, Þjóð-
verjinn Hans-Georg Gadamer,
kallaði „hæfileikann til að hlusta
á [viðmælandann] í þeirri trú, að
hann kunni að hafa rétt fyrir
sér“. Stjórnmálamaður sem tæki
upp á því að samsinna orðum
pólitísks andstæðings væri eins
og fótboltamaður sem viljandi
skoraði sjálfsmark.
Kannski finnst einhverjum
þetta hljóma eins og rass-
vasaheimspeki af ódýrustu og
flötustu gerð, ættuð úr smiðju
mjúka og skilningsríka mannsins
sem er löngu orðinn úreltur. En
því má ekki gleyma að ef þessi
krafa á að skila einhverjum ár-
angri verður hún að vera algild.
Það er að segja, það verða allir
að gera hana til sjálfra sín, og
þar af leiðandi má maður ætlast
til þess að viðmælandinn geri
hana til sín og sé tilbúinn til að
hlusta á mann og taka mark á
því sem maður hefur að segja.
Það mætti kannski kalla þetta
„uppreisn mjúka mannsins“.
Lamandi
hugsun
Lykillinn að sjálfsgagnrýni er fólginn í
því sem heimspekingurinn Hans-Georg
Gadamer kallaði „hæfileikann til að
hlusta á [viðmælandann] í þeirri trú,
að hann kunni að hafa rétt fyrir sér“.
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
kga@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ tekur í gær,
þriðjudag, afstöðu til fjölmiðlafrum-
varps Davíðs Odds-
sonar. Morgunblaðið
styður frumvarpið –
þrátt fyrir þær tak-
markanir sem það leið-
ir af sér í rekstri fjöl-
miðla í framtíðinni,
þrátt fyrir að þar sé
gerð einstök atlaga að
einu fjölmiðlafyr-
irtæki, Norðurljósum
hf., þrátt fyrir aft-
urvirkni sem sennilega
samrýmist ekki stjórn-
arskránni, þrátt fyrir
að markmið frum-
varpsins viðist vera að sinna duttl-
ungum eins valdsmanns í stað þess
að fara almennar leiðir sem bent er á
bæði í frægri skýrslu fjölmiðla-
nefndarinnar og í þingsályktun-
artillögu okkar Samfylkingarmanna:
Gagnsæi í eignarhaldi og rekstri, að-
gerðir til að tryggja sjálfstæði rit-
stjórnar.
Það er auðvitað fullur og sjálf-
sagður réttur Morgunblaðsins að
styðja þetta frumvarp Davíðs Odds-
sonar og ríkisstjórnar
hans. Enda hefur
Morgunblaðið allajafna
stutt frumvörp Davíðs
Oddssonar og rík-
isstjórna hans.
Á hinn bóginn er það
út í hött hjá höfundi rit-
stjórnargreinarinnar
að halda því fram að
Morgunblaðið hafi
„enga viðskiptalega
hagsmuni af þessu
frumvarpi“. Frumvarp-
inu er beinlínis ætlað
að veikja báða helstu
keppinauta Morgunblaðsins á dag-
blaðamarkaði, Fréttablaðið og DV.
Þess má minnast að Árvakur hf. ætl-
aði fyrir nokkrum mánuðum að eign-
ast síðarnefnda blaðið – var það af
hugsjónaástæðum eða vegna við-
skiptahagsmuna? Samsteypan
Norðurljós, sem auðvitað er ásamt
RÚV einn helsti keppinautur Morg-
unblaðsins á auglýsingamarkaði –
henni á að skipta upp með afleið-
ingum sem enginn sér nú fyrir.
Mannsbragur hefði verið að því að
leiðarahöfundur Morgunblaðsins
viðurkenndi það fullum fetum að
blaðið og útgáfufélag þess hefur ein-
mitt mikla viðskiptahagsmuni af því
hvernig þessu frumvarpi reiðir af.
Þá hefðum við betur getað trúað því
að ritstjórnargreinin væri skrifuð
með ein saman þjóðfélagsleg sjón-
armið fyrir augum.
Afstaða ritstjóra og
hagsmunir fjölmiðils
Mörður Árnason
skrifar um fjölmiðla ’Frumvarpinu er bein-línis ætlað að veikja
báða helstu keppinauta
Morgunblaðsins á dag-
blaðamarkaði, Frétta-
blaðið og DV.‘
Mörður Árnason
Höfundur er alþingismaður.
Í MORGUNBLAÐINU 5. apríl
sl. er grein eftir hæstvirtan forseta
Alþingis Halldór Blöndal. Í grein-
inni segir hann frá að hann og átta
þingmenn úr ýmsum
flokkum hafi lagt
fram tillögu til þings-
ályktunar. Halldóri og
félögum hans finnst
stórsnjallt að leggja
hálendisveg frá
Blönduósi til Reykja-
víkur. Þar er áætlað
að leggja veginn um
Stórasand um Arn-
arvatnsheiði og hann
komi niður Hvítársíðu
í Borgarfirði. Sam-
kvæmt því sem sagt
er í greininni er veg-
urinn 72 kílómetrar og þar af 10
kílómetrar í yfir 700 metra hæð.
Ef þessi vegur verður lagður stytt-
ist leiðin á milli Akureyrar og
Reykjavíkur um 42 km. Mikið af
veginum liggur í um 400–600
metra hæð. Mælt er með að þeir
sem vilja kynna sér þennan mál-
flutning Halldórs Blöndals lesi
grein í Morgunblaðinu frá 5. apríl
sl. og ritstjóragrein í sama blaði
frá 6. apríl sl. Halldór setur í grein
sinni fram ýmsar kostnaðartölur
en ekki allar. Það vakna margar
spurningar, eins og hvaða
skemmdir verða á landinu þegar
búið er að ryðja fyrir vegi. Það má
spyrja hvað kostar að halda vegi í
svona mikilli hæð opnum að vetri.
Hvað er veturinn langur í þessari
hæð, norðan Langjökuls? Einnig
má spyrja hvaða veðurfarskann-
anir hafa verið gerðar á þessu
landsvæði. Er hugsanlegt að í
hvassviðri verði mikill sandbylur á
Stórasandi? Allur þessi vegarkafli
er sagður um 70 kílómetrar og
áætlað að hann kosti 2,4 milljarða.
Er ekki skynsamlegra að nota
þessa fjárhæð til lagfæringar á
þjóðvegi nr 1, þeim vegi sem
þræðir þéttbýlisstaðina norðvest-
anlands?
Það var grein í Morgunblaðinu
1. apríl sl. sem er samantekt á ráð-
stefnu sem Vátryggingarfélag Ís-
lands hélt og nefndi „Úti að aka“.
Fyrirsögn greinarinnar er „Mikill
hraði og óöruggt umhverfi vega
hættulegast“. Þessi fyrirsögn á vel
við veginn sem liggur um Norð-
vesturland og reyndar
víðar.
Eins og Halldór
Blöndal segir á einum
stað í grein sinni:
„Óhjákvæmilegt er að
árétta, að á síðustu
árum hefur veginum
milli Akureyrar og
Reykjavíkur verið lítið
sinnt. Hann er bein-
línis hættulegur á
löngum köflum eins
og í Norðurárdal í
Skagafirði og um
Stafholtstungur. Það
er Guðs mildi, að ekki hefur stór-
slys hlotist af.“ Þetta er vægt til
orða tekið hjá þingforsetanum
vegna þess að allur vegurinn frá
Reykjavík til Akureyrar er meira
og minna stórhættulegur, þó að
hættan sé kaflaskipt. Það er svo í
dag að hver sá sem ekur í bifreið
um þennan veg er í lífshættu hvert
sinn er hann mætir bifreið, sér-
staklega ef bifreiðin er flutn-
ingabíll, stór rúta eða stór fjalla-
jeppi, þá er nánast ekki pláss fyrir
annað farartæki vegna þess hve
víða á leiðinni vegurinn er mjór. Í
raun þyrfti að tvöfalda veginn alla
leið á þann hátt að hægt sé að að-
skilja akreinarnar svo bifreiðar
lendi síður saman. Það kemur
fram í grein VÍS að flest dauðaslys
verða í dreifbýli. Væri ekki rétt að
lagfæra umræddan veg svo frekar
megi forðast stórslys?
Það er mikil villa að ætla að
færa þjóðveginn upp á hálendið frá
öllum byggðum og telja fólki trú
um að það sé hagkvæmt. Hvaða
gagn hafa Vestfirðingar af þessum
vegi, hvort sem þeir velja Bröttu-
brekku eða eru á leið til Ísafjarðar
og kauptúnanna þar í kring? Eða
það fólk sem býr á Hólmavík og
annars staðar í Strandasýslu? Það
er engu líkara en hæstvirtur for-
seti Alþingis og hans meðreið-
arsveinar setji einungis stefnuna á
Akureyri. Og ekki nóg með það.
Það á að taka vegatoll af hugs-
anlegum háfjallavegi. Þar segir
Halldór í millifyrirsögn: „Nýtum
kosti einkaframkvæmda og
veggjalda“. Það má einnig spyrja:
Hvar er ásetningurinn um jafna
byggð landsins þegar aðeins er
hugsað um einkaveg Reykjavík-
Akureyri? Það má einnig íhuga
hvað kostar það mörg mannslíf ef
ekkert er gert við þjóðveg nr. 1,
sem er tæpast ökufær fyrir tví-
stefnuakstur á alltof mörgum stöð-
um. Ef þeir milljarðar sem áætl-
aðir eru í Háfjallabraut væru
settir í þjóðveg nr. 1, Reykjavík-
Akureyri, mætti lagfæra marga
slæma staði. Það er ljóst að þjóð-
vegurinn sem tengir saman byggð-
arlögin á Norðvesturlandi verður
að vera í góðu lagi. Á meðan
ástand vegarins er svona lélegt er
æskilegt að lækka leyfðan há-
markshraða í t.d. 80 km.
Áskorun
Af því tilefni hvað þjóðvegur nr. 1,
Reykjavík-Akureyri, er lélegur
skora ég á hæstvirtan forseta Al-
þingis, Halldór Blöndal, og aðra
háttvirta flutningsmenn að breyta
tillögu sinni til þingsályktunar um
Norðurveg. Tillagan verði svo orð-
uð: Tillaga til þingsályktunar þess
efnis að vegagerðinni verði falið að
undirbúa og hrinda í framkvæmd
nauðsynlegum lagfæringum á
þjóðvegi nr. 1, Reykjavík-
Akureyri, og leitast verði við að
halda akreinum aðskildum.
Reykjavík – Akureyri,
þjóðvegur nr. 1
Sigurður Magnússon skrifar
um hálendisveginn ’Er ekki skynsamlegraað nota þessa fjárhæð til
lagfæringar á þjóðvegi
nr. 1, þeim vegi sem
þræðir þéttbýlisstaðina
norðvestanlands?‘
Sigurður Magnússon
Höfundur er fv. yfirrafmagns-
eftirlitsmaður.
VEÐUR mbl.ismbl.is
STJÖRNUSPÁ