Morgunblaðið - 28.04.2004, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 27
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í maí á hreint ótrúlegum
kjörum og tryggt þér síðustu sætin til Benidorm, þessa vinsæla áfanga-
staðar. Sumarið er komið á Spáni og hér getur þú notið lífsins við frá-
bærar aðstæður og nýtur traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann. Þú bókar ferðina og
3 dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir í fríinu.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Benidorm
19. maí
frá kr. 29.995
Verð kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug,
gisting, skattar. Staðgreiðsluverð, vikuferð.
19. maí. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Almennt verð kr. 31.500.
Verð kr. 39.950
M.v. 2 í íbúð/stúdíó, flug, gisting, skattar.
19. maí. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Almennt verð, kr. 41.950.
Val um 1 eða 2 vikur.
Á HÁDEGISTÓNLEIKUM Hafn-
arborgar kl. 12 á morgun fær Ant-
onía Hevesi til sín fiðluleikarann
Zsigmond Lázár.
Það er ekki bara tónlistin sem
sameinar þessa tvo listamenn,
heldur fléttast rætur þeirra einnig
saman. Antonia, sem er píanóleik-
ari og listrænn stjórnandi hádeg-
istónleikanna, er frá Ungverjalandi
þar sem hún stundaði nám í kór-
stjórn auk náms í söng- og hljóm-
fræði. Hún stundaði orgelnám í
Austurríki hjá prófessor Otto
Bruckner frá árinu 1990 en fluttist
til Íslands árið 1992 og hefur kom-
ið mikið við sögu í tónlistarlífinu
hér. Hún starfar nú sem orgel- og
píanóleikari í Hafnarfjarðarkirkju
og var auk þess í hlutastarfi sem
æfingapíanisti við Íslensku óper-
una í vetur.
Tónlist tengd uppruna
Zsigmond kemur einnig frá Ung-
verjalandi, fæddist þar árið 1964.
„Zsigmond á sér fjölbreyttari ræt-
ur en ég,“ segir Antonía, „afi hans
var hálfur Rúmeni og hann er einn-
ig af gyðingaættum.“
Hún segir að þau hafi ákveðið að
flytja á tónleikunum þjóðlega tón-
list sem tengist uppruna þeirra
beggja, ungverska, rúmenska, gyð-
inglega og austurríska. „Við byrj-
um tónleikana á hinum kunna 5.
ungverska dansi eftir Brahms og
þar sem ég á líka sterkar rætur í
Austurríki, flytjum við aust-
urrískan dans, konsertpolkann La
Canari eftir F. Poliakin. Næst á
dagskrá er ungverskur þjóðdans
sem heitir Csárdás, eftir Ítalann V.
Monti. Svo flytjum við hefðbundið
klezmerlag sem leikið er við brúð-
kaup, Fihren Di Makhetonim
Aheim. Við ljúkum tónleikunum
með ofsalega fjörugu og stór-
skemmtilegu þjóðlagi frá Rúmen-
íu.“
Zsigmond býr nú og starfar á
Stöðvarfirði þar sem hann er org-
anisti, kórstjóri og tónlistarkenn-
ari. Hann er víðförull tónlist-
armaður en er hingað kominn til
að njóta kyrrðar frá skarkala
heimsins. „Hann er hér að sækjast
eftir friði til að æfa og semja tón-
list. Þegar ég hringdi í hann og
sagði að nú væri friðurinn úti og
tími til kominn að kynna sig fyrir
Íslendingum brást hann vel við.
Hann er mjög fær tónlistarmaður
og tónsvið hans er breitt. Hann
hefur verið starfandi tónlist-
armaður frá 18 ára aldri og leikið
á fiðlu með djass- og klezmer-
hljómsveitum auk þjóðtónlist-
arhópa. Jafnframt þessu hefur
hann spilað á hljómborð í funk-
hljómsveit og unnið með nútíma-
tónlistarmönnum,“ segir Antonía.
Víðförull tónlistarmaður
Sem fiðluleikari hefur hann spil-
að í flestum löndum Evrópu, auk
Bandaríkjanna, Kanada, Japans og
Egyptalands. Árið 1994 sigraði
Zsigmond í kammertónsmíða-
keppninni í Szeged í Ungverja-
landi. Meðal verka hans má finna
kammermúsík, kórtónlist, verk fyr-
ir sinfóníuhljómsveit sem og djass-
tónlist og verk fyrir big band-
hljómsveitir. Árið 2003 varð hann
þess heiðurs aðnjótandi að vera
gerður að meðlimi í Félagi ung-
verskra tónsmiða.
„Þjóðlagatónlistin er honum í
blóð borin og ég hlakka afskaplega
til þessara tónleika og veit að þetta
verður alveg sérstök upplifun,“
segir Antonía.
Aðgangur að Hádegistónleikum
Hafnarborgar er ókeypis.
Sérstök upplifun
Morgunblaðið/Sverrir
Antonía Hevesi og Zsigmund Lázár
við flygil Hafnarborgar.
Í REYKJAVÍK og nágrenni má sjá
umhverfislist nemendahóps frá
Listaháskóla Íslands sem hann vinn-
ur að fram á fimmtudag. Listamenn-
irnir eru níu og vinna í ýmsa miðla.
Kennari á námskeiðinu er Bryndís
Snæbjörnsdóttir.
Bjarki Bragason hefur und-
anfarnar vikur unnið með sjúkra- og
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
m.a. hefur Bjarki með aðstoð
slökkviliðsins staðið fyrir því að upp-
lýsa æfingaturn slökkviliðsins við
Skógarhlíð. Sjá má upplýstan turn-
inn á hverju kvöldi út þessa viku.
Í dag mun Gabriele Porta vinna
lítið verk við húsahorn á Berg-
þórugötu. Kristjan Zaklynsky hefur
komið upp draugaskiltum víðs vegar
um borgina á stöðum er sögusagnir
herma að þessar verur ráði eða hafi
ráðið ríkjum. Guðný Hrund Sigurð-
ardóttir ætlar að vinna verk á
Laugaveginum sem kallast „spor“.
Hún mun merkja á sérstakan hátt
ákveðna leið niður Laugaveginn,
Bankastræti og Austurstræti.
Hye Joung Park hefur unnið 12
póstverk sem send verða með
ákveðnu millibili til útnefndra Ís-
lendinga. Hey efnir til gjörnings
sem kallast „Grid of Perfection“ í
pósthúsinu í Austurstræti. María
Antal verður með hljóðverk í Kringl-
unni. Þessi verk eru unnin með hljóð
sem María hefur tekið upp á nokkr-
um stöðum í borginni og sett saman
á sinn hátt. María hefur unnið þessi
verk í samvinnu við forstöðumenn
Kringlunar og munu verkin verða
flutt í hátalarakerfi hennar í fullri
mynd á fyrirfram ákveðnum degi í
maímánuði. Í dag verður útvarpað
stuttri kynningu á verki hennar um
hátalarakerfi Kringlunnar.
Anna María verður með hljóðverk
sem staðsett verður í Öskjuhlíðinni,
suðvestur af Perlunni. Á fimmtudag
má sjá verk Arngríms Borgþórs-
sonar sem hann hefur teiknað í und-
irgöngum við Reykjavíkurveg (niður
af Arnarneshæð, Hafnarfjarð-
armegin). Innblástur hans kemur
frá vaxtarmunstri ákveðins gróðurs.
Karl Bergmann Ómarsson er með
innsetningu í Hljómskálagarði, en
hann hefur átt í „erótísku“ sambandi
við staðinn.
Umhverfislista-
verk í borginni
PÍANÓLEIKARINN og tón-
skáldið Snorri Sigfús Birgisson og
óperusöngvarinn Ólafur Kjartan
Sigurðarson fluttu verk eftir Snorra
Sigfús á hádegistónleikum í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 14. apr-
íl. Fyrst flutti Snorri Sigfús tvö pí-
anóverk, Árstíðirnar (1984) og
Portrett nr. 1 (1997).
Árstíðirnar eru í fjórum þáttum
Sumar – Haust – Vetur – Vor, þar
sem hver árstíð hefur sinn eigin kar-
akter. Portrett nr. 1 hlýtur eins og
nafnið bendir til að vera persónuleg
lýsing tónskáldsins á ákveðinni per-
sónu og er að ýmsu leyti mun þrosk-
aðra verk en Árstíðirnar en um leið
einnig svo ólíkt í karakter, kannski
dálítið einhæft á kafla en með fal-
legan ómblíðan enda. Snorri lék
þessi verk sín mjög hnitmiðað með
fallegum blæbrigðum.
Vier Rübenerlieder fyrir baritón
og píanó er samið árin 2002 og 2003.
Tuvia Rübner (f. 1924) yrkir ljóð sín
á hebresku og þýsku. Ólafur söng
ljóðin á þýsku. Það fyrsta Du bist
(Þú ert) var frumflutt í desember
2003 í Freiburg í Þýskalandi en hin
þrjú voru frum-
flutt hér. Hin
þrjú ljóðin eru
Komm doch
(Komdu), Wie ein
Baum (Eins og
tré) og Da die
Wörter blind sind
(Þegar orðin eru
blind). Það þarf
ekki að fjölyrða
mikið um lögin,
þau falla einstak-
lega vel að textan-
um og túlka inni-
haldið vel. Þau
eru mjög krefj-
andi fyrir söngv-
arann sem hefur
lítinn sem engan
stuðning frá pí-
anóinu og stund-
um jafnvel hið
gagnstæða. Túlk-
un Ólafs Kjartans
var hrein snilld
og heildarflutn-
ingurinn mjög
áhrifamikill.
Prokofíef, Ber-
stein og Bartók
Á háskólatón-
leikunum í Nor-
ræna húsinu mið-
vikudaginn 21.
apríl leiddu þau
Tómas Guðni Eggertsson píanóleik-
ari, Dimitri Þór Ashkenazy klarin-
ettleikari og Sif M. Tulinius fiðlu-
leikari saman hesta sína og eins og
við var að búast varð úr hin glæsi-
legasta tónveisla. Dimitri Þór hefur
ekki leikið mikið opinberlega hér á
landi og er það synd því hann er
hreinn snillingur á hljóðfærið og það
vissu þeir sem fylltu sal Norræna
hússins til að hlýða á leik þeirra þre-
menninganna.
Tónleikarnir hófust á Fimm mel-
ódíum op. 35 eftir Sergej Prokofiev
(1891-1953) sem upphaflega voru
samin 1920 fyrir söngrödd með pí-
anóleik en tónskáldið umritaði síðan
1925 fyrir fiðlu og píanó. Erfitt er að
ímynda sér mannsröddina reyna við
þetta verk, svo krefjandi sem það er
fyrir fiðluna.
Annað verkið var Sónata fyrir
klarinett og píanó op. 1 (1941-2) eftir
Leonard Bernstein (1918-1990). Í
sónötunni blandast áhrif frá djassi
og suður-amerískri tónlist hinni
venjubundu vestrænu hefð. Síðast
var Contrasts fyrir fiðlu, klarinett
og píanó (1938) eftir Béla Bartók
(1881-1945). Tríóið er samið í tveim-
ur þáttum fyrir Benny Goodman
sem frumflutti það ásamt Szigeti og
Endre Petri 1939, síðan bætti
Bartok við einum þætti og mun það
hafa verið flutt þannig fyrst 1940.
Bartok mun hafa hugsað sér tvær
fiðlur þar sem önnur er stillt í Gis,-
D,-A,-Es (scordatura). Þessi stilling
setur heldur betur svip á verkið sem
er einnig undir greinilegum áhrifum
þjóðlaga- og/eða sígaunatónlistar
þar sem notaðir eru aðrir tónskalar
en í hefðbundinni tónlist þannig að
allt virðist fljótandi í „bláum“ tónum
sem einnig eru ráðandi í djasstón-
listinni.
Allir hljóðfæraleikararnir fóru á
kostum á þessum tónleikum þar sem
öll verkin voru heldur betur í erf-
iðari kantinum og bera þess vott að
vera samin fyrir snillinga. Tómas
sýndi hæfni sína við píanóið. Sif
sýndi snilld sína á fiðlunni í fyrra
verkinu ekki síður en því síðara.
Dimitri Þór sýndi svo ekki verður
um villst að hann er hreinn snill-
ingur á klarinettið og samleikurinn
og flutningurinn á Bartók var hreint
stórglæsilegur.
Áhrifamikill
flutningur
TÓNLIST
Norræna húsið
PÍANÓ- OG SÖNGTÓNLEIKAR
Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari og
Ólafur Kjartan Sigurðarson óperusöngv-
ari flytja lög eftir Snorra Sigfús Birgisson.
Miðvikudagurinn 14. apríl 2004 kl.
12.30.
Norræna húsið
KAMMERTÓNLEIKAR
Dimitri Þór Ashkenazy á klarinett, Sif M.
Tulinius á fiðlu og Tómas Guðni Eggerts-
son á píanó. Verk eftir Prokofief, Bern-
stein og Bartók. Miðvikudagurinn 21.
apríl 2004 kl. 12.30.
Jón Ólafur Sigurðsson
Dimitri Þór
Ashkenazy
Snorri Sigfús
Birgisson
Ólafur K.
Sigurðarson
STÓR hópur grunnskólanema í Ísa-
fjarðarbæ heldur tónleika undir yf-
irskriftinni „Vorvindar glaðir II“ í
Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar kl. 20 í kvöld. Nemendurnir,
sem flestir eru á mið- eða framhalds-
stigi leika á ýmis hljóðfæri fjöl-
breytta tónlist af léttara taginu í
bland við klassísk tónskáld á borð við
Bach, Mozart, Schumann og Chopin.
Vorið úr Árstíðunum
Viðamesta verkið á efnisskránni
er Vorið úr Árstíðunum eftir Vivaldi,
þar sem Halldór Sveinsson leikur að-
aleinleikshlutverkið með strengja-
sveit skólans.
„Vorið“ í
Hömrum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
hafa tvær aukasýningar á
leikritinu Eldað með Elvis í
Samkomuhúsinu á Akureyri.
Leikritið var sýnt sex sinnum
nyrðra fyrir skemmstu og
komust færri að en vildu. Nú
hefur tekist að bæta við
tveimur allra síðustu auka-
sýningum á Akureyri föstu-
daginn 21. og laugardaginn
22. maí kl. 20. Þeir sem voru
skráðir á biðlista hafa for-
gang en sala hefst í dag á
öðrum miðum. Leikstjóri er
Magnús Geir Þórðarson en í
helstu hlutverkum eru Álfrún
Örnólfsdóttir, Friðrik Frið-
riksson, Halldóra Björnsdótt-
ir og Steinn Ármann Magn-
ússon.
Sýningin hefur verið sýnd í
Loftkastalanum frá áramót-
um, en hún er samstarfsverk-
efni Menningarfélagsins Ei-
lífs og Leikfélags Akureyrar.
Elvis aft-
ur norður
Skorrdæla er gef-
in út í minningu
Sveins Skorra
Höskuldssonar,
prófessors í ís-
lenskum bók-
menntum við Há-
skóla Íslands. Í
Skorrdælu eru
sextán greinar og
eitt þýtt ljóð eftir sautján höfunda.
Greinarnar eru um íslenskt mál, bók-
menntir og menningu.
Sveinn Skorri fæddist í Suður-
Þingeyjarsýslu 19. apríl árið 1930
en flutti ungur að Vatnshorni í
Skorradal og ólst þar upp. Hann
lauk meistaraprófi í íslenskum fræð-
um frá Háskóla Íslands en lagði síð-
ar stund á enskar bókmenntir og
danskar, almenna bókmenntafræði
og skáldskaparfræði við háskóla í
Kanada, Danmörku og Svíþjóð.
Hann varð lektor við Háskóla Íslands
1968 en prófessor 1970 og vann
óslitið við skólann til ársins 2000.
Sveinn Skorri lést 7. september árið
2002.
Ritstjórar voru Bergljót Soffía
Kristjánsdóttir og Matthías Viðar
Sæmundsson.
Útgefandi og dreifing: Háskóla-
útgáfan. Bókin er 233 bls., kilja.
Verð: 3.900 kr.
Minningarrit