Morgunblaðið - 28.04.2004, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 47
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert trygg/ur og áreiðan-
leg/ur en átt það til að vera
þrjóskur/ur og ósveigjanleg/
ur. Þetta veldur að þú hættir
sjaldnast við nokkuð sem þú
tekur þér fyrir hendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gefur andlegum málefnum
mikinn gaum þessa dagana.
Þig langar meðal annars til að
finna barnstrúna þína á ný.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt hugsanlega hljóta að-
stoð frá manneskju sem hefur
listræna hæfileika í dag. Þessi
einstaklingur gæti aðstoðað
þig í atvinnuleit, gefið þér gjöf
eða veitt þér ráðleggingar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú dáist að fólki sem er auð-
ugra og fastara fyrir en þú,
því er hugsanlegt að þú stofnir
til sambands við eldri mann-
eskju, jafnvel yfirmann þinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt eiga líflegar og
skemmtilegar samræður við
aðra í dag. Heimspekilegar
vangaveltur og trú annarra
vekja áhuga þinn. Það er því
hugsanlegt að þær opni augu
þín á einhvern hátt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú telur þig hafa öðlast meiri
styrk að undanförnu. Þú hefur
gert það upp við þig hvað þú
vilt gera, nú er komið að því að
hrinda því í framkvæmd.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Náinn vinur eða vinnufélagi er
ekki sammála því sem yfir-
maður þinn segir við þig. Þú
verður að gera það upp við þig
á hvern þú ætlar að hlusta.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er mikilvægt fyrir þig að
hafa hreint í kringum þig og
skipulag á hlutunum því um-
hverfið hefur mikil áhrif á þig.
Þú verður ánægðari eftir að
þú hefur tekið til og þrifið
heima hjá þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Rómantík og saklaust daður
munu hugsanlega setja svip
sinn á daginn. Þú munt örugg-
lega vekja athygli einhvers.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hvort sem þú skreytir, endur-
nýjar eða betrumbætir eitt-
hvað á heimili þínu í dag mun
það bera góðan árangur. Þú
verður þó að leggja talsvert á
þig til að ná markmiði þínu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn í dag er kjörinn til
þess að taka ákvarðanir varð-
andi fjármál eða viðskipti.
Láttu slag standa því þú munt
hugsanlega hagnast á aðgerð-
um þínum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samræður við vini þína ættu
að verða líflegar. Það er hætt
við að nútímaleg viðhorf þín
hneyskli einhverja og verði til
þess að þeir reyni að telja þig
ofan af hugmyndum þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Dagurinn í dag getur orðið
mjög árangursríkur fyrir þig,
sérstaklega í tengslum við við-
skipti, viðræður eða einhvers
konar framkvæmdir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Frances Drake
LÓAN
(gömul saga)
Einn um haust í húmi bar
hal að kletta sprungu,
úti kalt þá orðið var,
öngvir fuglar sungu.
Sá hann lóur sitja þar
sjö í kletta sprungu,
lauf í nefi lítið var
og lá þeim undir tungu.
Og hann sá að sváfu þær
svefnamóki þungu,
læddist inn og einni nær
inn í kletta sprungu.
Vorið eftir enn hann bar
einn að kletta sprungu,
visin laufblöð lágu þar,
lóur úti sungu.
- - -
Gísli Brynjúlfsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 28.
apríl, er níræð Sigríður Þ.
Engilbertsdóttir, Móabarði
2, Hafnarfirði. Hún dvelur
á hjúkrunarheimilinu Sól-
vangi, Hafnarfirði.
90 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 28.
apríl, er níræður Skúli Hall-
dórsson, tónskáld, Bakka-
stíg 1, Reykjavík. Hann
verður að heiman á afmælis-
daginn.
TIL að byrja með ætti les-
andinn að skyggja á hendur
AV og íhuga vinningshorfur
í sex hjörtum suðurs.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠5432
♥54
♦Á54
♣ÁD83
Vestur Austur
♠KDG96 ♠1087
♥8 ♥9732
♦KG1073 ♦862
♣K7 ♣G109
Suður
♠Á
♥ÁKDG106
♦D9
♣6542
Horfurnar eru ekki góðar
– að minnsta kosti einn tap-
slagur á lauf og annar yfir-
vofandi á tígul. En nú skul-
um við koma sögnum inn í
myndina:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
2 hjörtu * Dobl Pass 4 hjörtu
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Innákoma vesturs á
tveimur hjörtum er Mich-
aels, sýnir minnst 5-5 skipt-
ingu í spaða og láglit. Með
þá vitneskju að vopni og
svolítilli bjartsýni er hægt
að teikna upp góða áætlun.
Útspilið er spaðakóngur.
Hvernig á að vinna slemm-
una?
Sagnhafi verður að gefa
sér að vestur sé með lauf-
kóng annan og eitt hjarta,
því annars er engin von.
Spilamennskan miðast við
það. Hann spilar strax laufi
og svínar drottningunni.
Fer síðan heim á tromp og
spilar aftur laufi og dúkkar
kóng vesturs (austur má
ekki komast inn til að spila
tígli). Vestur spilar spaða,
sem suður trompar og af-
trompar austur. Hann hend-
ir einum tígli úr borði og
einu laufi. Svo fer hann inn í
borð á laufás til að trompa
spaða. Þá er hann staddur
heima í þessari stöðu:
Norður
♠5
♥--
♦Á5
♣--
Vestur Austur
♠D ♠--
♥-- ♥--
♦KG ♦862
♣-- ♣--
Suður
♠--
♥--
♦D9
♣6
Hann spilar laufsexu og
þvingar vestur með hæsta
spaða og tígulkóng.
Til að ná þessari stöðu
upp varð að huga að ýmsu:
Það þurfti að stinga spaða
tvisvar til að einangra valdið
á litnum við vestur og frí-
spila laufið án þess að aust-
ur kæmist inn. Til að ná síð-
ara markmiðinu varð að
spila laufinu heimafrá (og
dúkka kónginn ef vestur
hefði sett hann strax). Enn-
fremur mátti ekki spila
trompi nema einu sinni í
byrjun til að gefa vestri ekki
tækifæri til að henda lauf-
kóng!
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. e3 O-O 5. Rf3 d5 6. a3
Be7 7. b4 Rbd7 8. c5 c6 9.
Bd3 b6 10. O-O a5 11. Bb2
Ba6 12. Bxa6 Hxa6 13. b5
cxb5 14. c6 Rb8 15. Re5 b4
16. Rb5 Re8 17. a4 f6 18.
Hc1 Rc7 19. Rd3 Ha8 20.
Rf4 Rba6 21. e4 Bd6 22. e5
fxe5 23. dxe5 Bc5 24. Dg4
De7 25. Rd6 Rb8 26. Rd3
Rca6 27. c7 Rd7 28. c8=D
Haxc8 29. Rxc8 Hxc8 30.
Kh1 Hf8 31. f4 Rc7 32. f5
Hxf5 33. Hxf5 exf5
34. Dxf5 Re6 35. Df3
d4 36. Hf1 Rdf8 37.
Dd5 Dd7
Viktor Kortsnoj
(2579), hinn síungi
73 ára skákjöfur,
hafði hvítt í stöðunni
gegn ísraelska stór-
meistaranum Vitaly
Golod (2552) á at-
skákmóti sem lauk
fyrir skömmu í
Beer-Sheva í Ísrael
en sá gamli varð
hlutskarpastur í því.
38. Hxf8+! og svart-
ur lagði niður vopnin enda
drottningin fallin eftir 38...
Bxf8 39. Dxd7.
Lokastaða mótsins varð
þessi:
1. Viktor Kortsnoj (2579)
8 vinninga af 11 mögu-
legum. 2.-3. Semen Dvoirys
(2612) og Sergey Erenburg
(2513) 7 v. 4. Michael Roiz
(2563) 6½ v. 5. Alon Green-
feld (2551) 6 v. 6. Alexander
Huzman (2589) 5½ v. 7. Alik
Vydeslaver (2448) 5 v. 8.-9.
Dimitry Tyomkin (2503) og
Boris Avrukh (2620) 4½ v.
10.-12. Vitaly Golod (2552),
Ilya Khmelniker (2458) og
Mark Tseitlin (2455) 4 v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 28.
apríl, er sextug Valgerður
Valgarðsdóttir, djákni og
hjúkrunarfræðingur. Val-
gerður er erlendis á afmæl-
isdaginn.
KIRKJUSTARF
Opið hús á
Prestastefnu
Í DAG; miðvikudaginn 28. apríl,
verður opið hús á Prestastefnu Ís-
lands í Grafarvogskirkju. Yfirskrift
samverunnar verður „Ég get sung-
ið af gleði.“ Þar munu Kór Grafar-
vogskirkju og Unglingakór kirkj-
unnar syngja nýja sálma. Ómar
Ragnarsson fréttamaður mun flytja
hugvekju. Séra Vigfús þór Árnason
sóknarprestur mun leiða samkom-
una, en tónlistinni stjórna Hörður
Bragason organisti og Oddný Þor-
steinsdóttir kórstjóri. Á fiðlu verð-
ur Hjörleifur Valsson og Birgir
Bragason leikur á bassa. Kvöldkaffi
veður í boði héraðsnefndar Reykja-
víkurprófastsdæmis eystra í umsjá
Safnaðarfélags Grafarvogskirkju.
Þar mun Sigurður Skagfjörð
syngja. Allir eru velkomnir.
Fræðslukvöld um
1. og 2. Pétursbréf
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
gengst fyrir fræðslukvöldi um tvö
af ritum Nýja testamentisins, 1. og
2. Pétursbréf, fimmtudaginn 29.
apríl kl. 20-21:45 í húsi KFUM og
KFUK, á horni Sunnuvegar og
Holtavegar í Reykjavík.
Fjallað verður um þessi tvö rit,
höfund, tilurð þeirra og helstu
áherslur með það fyrir augum að
auðvelda fólki lestur þeirra. Fræð-
ari kvöldsins verður Leifur Sig-
urðsson kristniboði.
Frælsukvöldið er liður í þriggja
ára áætlun Biblíuskólans, „Þekktu
Biblíuna betur“, sem felst m.a. í
mánaðarlegum fræðslukvöldum.
Aðgangur að fræðslukvöldinu er
ókeypis og öllum opinn hvort sem
fólk hefur sótt þau áður eða ekki.
Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13–
16.30. Spilað, föndrað, helgistund og gáta.
Gestur Þorvaldur Halldórsson. Þeir sem
óska eftir að láta sækja sig fyrir samveru-
stundirnar láti kirkjuverði vita í síma
553 8500.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt-
ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr-
irbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl.
14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug-
leiðing, altarisganga, léttur morgunverður.
Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–
12. Fræðsla: Samskipti við börn fyrstu ævi-
árin og málþroski þeirra. Guðrún Bjarna-
dóttir, sálfræðingur. Samverustund fyrir 6
ára kl. 14.30. Samverustund fyrir 7–9 ára
kl. 15.30. Samverustund fyrir 10–12 ára
kl. 17. Tólf sporin – andlegt ferðalag, kl. 20.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12.
Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 Kyrrðarstund
og bænagjörð með orgelleik og sálmasöng.
Kl. 12.30 Súpa og brauð (kr. 300). Kl. 13–
16 opið hús eldri borgara. Söngur, tekið í
spil, upplestur, föndur, spjall, kaffisopi o.fl.
Allir eldri borgarar velkomnir. Þeir sem ekki
komast á eigin vegum geta hringt í kirkjuna
og óskað eftir því að verða sóttir. Síminn er
520 1300.
Laugarneskirkja. Gönguhópurinn Sólar-
megin leggur af stað frá kirkjudyrum kl.
10.30 alla miðvikudagsmorgna. Í kvöld
verður hin árlega gistinótt unglinga í safn-
aðarheimilinu. Upplýsingar á skrifstofu í
síma 588 9422.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdóttir.
Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr.
Helgi Hróbjartsson. Í kjölfar messunnar
verður borin fram einföld máltíð gegn vægu
gjaldi. 7 ára starf kl. 14.30. Sögur, söngur,
leikir og föndur.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í hádeg-
inu kl. 12. Altarisganga. Léttur hádegis-
verður eftir stundina. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík. Í hádegi er fólki boð-
ið til bænastunda í kapellu safnaðarins á
annarri hæð í safnaðarheimilinu. Sérstök
áhersla er lögð á bæn og íhugun, en einnig
flutt tónlist og textar til íhugunar. Koma má
bænarefnum á framfæri áður en bæna-
stund hefst.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í hádeg-
inu. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið hús í
safnaðarheimilinu. Þorvaldur Halldórsson
kemur í heimsókn fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.
Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn
kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl.
17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl.
12. Fyrirbænir og altarisganga. Boðið er
upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Prestar safnaðarins
þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður Braga-
son. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi 9–12
ára í Grafarvogskirkju kl. 17.30–18.30.
Kirkjukrakkar í Rimaskóla kl. 17.30–18.30
fyrir 7–9 ára. TTT (tíu til tólf ára) í Rimaskóla
kl. 18.30–19.30. Æskulýðsfélag í Engja-
skóla kl. 20–22 fyrir 8.–9. bekk.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT
(10–12 ára) starf kl. 17. Opinn sporafund-
ur Tólf sporanna kl. 20.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkj-
unni í síma 567 0110. SELA eldri deild kl.
20–22.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12
með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn
og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðar-
heimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrðar-
stund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgelleikur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegis-
verður kl. 12.30 í Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá
sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í
erli dagsins til að öðlast ró í huga og frið í
hjarta. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til
sóknarprests eða kirkjuvarðar. Boðið er
upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu að
kyrrðarstund lokinni. Opið hús fyrir eldri
borgara í dag kl. 13. Verið velkomin í viku-
legar samverur í safnaðarheimili kirkjunnar
í spil, spjall, góðar kaffiveitingar og fleira.
Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur
kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar
eru frá kl. 10–12. Þar koma saman for-
eldrar ungra barna á Álftanesi með börnin
og njóta þess að hittast og kynnast öðrum
foreldrum sem eru að fást við það sama,
uppeldi og umönnun ungra barna. Opið hús
eldri borgara er síðan frá kl. 13–16. Dag-
skráin verður fjölbreytt en umfram allt eru
þetta notalegar samverustundir í hlýlegu
umhverfi.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í Lága-
fellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum. 17.30 TTT,
yngri og eldri, í Landakirkju. Sr. Fjölnir Ás-
björnsson og leiðtogarnir. Kl. 18.30 Kaffi-
húsamessuhópur, æfing fyrir ferð á Suð-
urnes og í Garðabæ. Safnaðarheimili
Landakirkju. Kl. 20 opið hús í KFUM&K-
heimilinu hjá Æskulýðsfélagi Landakirkju
og KFUM&K. Esther Bergsdóttir æskulýðs-
fulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtog-
arnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Fríkirkjan Kefas. Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Samvera, lofgjörð,
fræðsla og lestur orðsins. Nánari upplýs-
ingar á www.kefas.is.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20. Hvað er að fylgja
Jesú? Lúk. 9:21–27. Ræðumaður Kjartan
Jónsson.Mikil lofgjörð. Kaffiveitingar eftir
samkomuna. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10–
12. Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börn-
in.
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarkirkju verður
haldinn í safnaðarheimilinu strax að lokinni
guðsþjónustu sunnudaginn 2. maí. Venju-
lega aðalfundarstörf.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12.
Orgeltónar, sakramenti, fyrirbænir, léttar
veitingar á vægu verði í safnaðarsal.
Safnaðarstarf