Morgunblaðið - 28.04.2004, Page 51

Morgunblaðið - 28.04.2004, Page 51
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 51 GRÉTAR Rafn Steinsson, knatt- spyrnumaður úr ÍA, verður við æf- ingar hjá svissneska liðinu FC Zü- rich næstu dagana en Grétar hélt til Sviss frá Þýskalandi í fyrradag þar sem Skagamenn voru í æfingaferð. Grétar er ekki samningsbundinn ÍA og getur því gert samning við erlent lið ef svo ber undir en hann hefur þó gert samkomulag um að spila með ÍA leiki hann hér á landi í sumar. Grétar er 22 ára gamall miðju- og sóknarmaður sem á að baki 11 leiki með 21-árs landsliði Íslands og einn- leik með A-landsliðinu sem var gegn Brasilíumönnum ytra fyrir tveimur árum þar sem Grétar skoraði eina mark Íslands í 6:1 tapi. Hann er ný- kominn á ferðina aftur eftir kross- bandaslit sem hann varð fyrir í leik gegn Þrótti á Íslandsmótinu í lok júlí í fyrra. Tilboð á leiðinni til Haraldar? Þar með eru tveir íslenskir knatt- spyrnumenn til skoðunar hjá Zürich þessa dagana en Keflvíkingurinn Haraldur Freyr Guðmundsson hefur dvalið við æfingar hjá liðinu síðan á mánudag en Haraldur er samnings- bundinn Keflavík út tímabilið. „Þeir hafa verið mjög ánægðir með mig á æfingunum og í dag (í gær) var ég sendur í læknisskoðun þar sem ég var skoðaður hátt og lágt. Ég á því frekar von á að ég fái tilboð og vissu- lega myndi ég skoða það með opnum huga,“ sagði Haraldur við Morg- unblaðið í gær en hann verður hjá Zürich fram á mánudag. Grétar Rafn til skoðunar hjá Zürich BIRKIR Ívar Guðmundsson gat leyft sér að brosa út í annað eftir sigurinn gegn KA í gær en Birkir átti frábær- an leik í markinu og varði til að mynda fjögur vítaköst. „Við vorum vel á tánum og það var gott að ná þessu forskoti í byrjun. KA-menn gáfust hins vegar aldrei upp og þeir gerðu harða atlögu að okkur á kafla í fyrri hálfleik og í byrjun þess síðari en við héldum sem betur fer haus og unnum góðan sigur,“ sagði Birkir Ívar við Morgunblaðið. Birkir var ánægður með eigin frammistöðu, sem og liðsheild- arinnar. Ofmetnumst ekki „Ég fann mig afar vel og það er alltaf gaman að spila gegn KA. Ég var með fína vörn fyrir framan mig og það hjálpaði mér auðvitað mjög mikið. Við ofmetnumst ekkert við þennan sigur. Við getum spilað bet- ur og ég tel okkur eiga enn svolítið inni. Við erum samt á réttri leið og erum vel einbeittir. Það verður örugglega háspennuleikur fyrir norðan á fimmudaginn en við ætlum að endurtaka leikinn frá því í fyrra þegar við tókum KA-mennina í tveimur leikjum. Það er engin laun- ung á því að við ætlum okkur alla leið en ég geri ekki ráð fyrir öðru en KA-menn mæti kolbrjálaðir til leiks gegn okkur. Ég tel Hauka og KA vera tvö bestu liðin, með fullri virðingu fyrir hinum liðunum, þann- ig að ég tel okkur eiga góða mögu- leika á að halda titlinum,“ sagði Birkir Ívar.  SKAGAMENN hafa gert samning við kanadíska sóknarmanninn Alen Marcina um að hann leiki með liðinu í sumar. Marcina hefur verið til reynslu hjá Akurnesingum og eftir æfingaferð liðsins til Bochum var ákveðið að semja við hann. Marcina er 25 ára gamall og hefur undanfarin ár leikið með Ottawa Wizards í Kan- ada.  ALAN Smith, framherji Leeds United, telur afar líklegt að hann yf- irgefi herbúðir Leeds United í sumar og svo gæti farið að hann gengi í raðir spænska liðsins Valencia. Forráða- menn félagsins hafa lengi haft auga- stað á Smith en hann heillaði þá þegar Leeds og Valencia áttust við í Meist- aradeildinni fyrir þremur árum.  SÁ kylfingur sem sigrar á Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer í sumar mun fá rúmar 95 millj. kr. í sinn hlut en skipuleggjend- ur mótsins hafa fundið leiðir til þess að hækka verðlaunaféð á mótinu um- talsvert. Fyrir ári síðan fékk sigur- vegarinn um 83 millj. kr. Alls mun verðlaunaféð verða um 530 millj. kr. en í fyrra var verðlaunaféð um 460 millj. kr. Sá sem verður í öðru sæti á mótinu, sem hefst 15. júlí, fær 57 millj. kr. og þriðja sætið gefur 36 millj. kr.  BANDARÍSKIR fjölmiðlar segja að forsvarsmenn NBA-liðsins Los Ang- eles Lakers hafi ekki samið við Phil Jackson, þjálfara liðsins, á ný til þess að sýna Kobe Bryant, aðalstjörnu liðsins, að þeir muni taka Bryant fram yfir Jackson en þeir hafa ekki náð að vinna vel saman undanfarna mánuði. Bryant hefur verið orðaður við flest lið í NBA-deildinni og margir telja að hann vilji leika með öðru liði á næstu leiktíð.  DANNY Ainge, framkvæmdastjóri NBA-liðsins Boston Celtic, hefur haft samband við þjálfarann Paul West- phal sem stýrði Phoenix Suns á árum áður og kom liðinu í úrslit árið 1993. Westphal er þjálfari hjá háskólaliðinu Pepperdine og er sagður vera áhuga- samur um að taka við Boston Celtic. Ainge hefur einnig rætt við Jeff Hornacek, fyrrum leikmann Phoenix Suns, Philadelphia 76’ers og Utah Jazz. Hornacek er 41 árs og hefur aldrei þjálfað frá því að hann hætti að leika árið 2000.  PETER Dawson, formaður Royal & Ancient golfklúbbsins, segir að R&A muni ekki standa í vegi fyrir því að konur taki þátt í Opna breska meistaramótinu í golfi í nánustu fram- tíð. Dawson segir við BBC að það muni koma að því að konur tryggi sér þátttökurétt á mótinu með einhverj- um hætti og mun R&A taka jákvætt á því máli þegar að því kemur. Dawson segir að sænski kylfingurinn Annika Sörenstam og bandaríski unglingur- inn Michelle Wie séu líklegastar til þess að ná alla leið á þessu sviði. FÓLK Afar kraftmikil byrjun Hauk-anna gerði líklega útslagið í rimmu Íslands og bikarmeistar- anna í gær. Haukar hófu leikinn með látum. Þeir komust í 7:2 og 9:3 og þenn- an mun náðu norð- anmenn aldrei að brúa þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir af og til í leiknum. KA-menn virtust hálf sof- andi í byrjun og vel einbeittir leik- menn Hauka færðu sér það vel í nyt og þá sérstaklega Ásgeir Örn Hallgrímsson og Þórir Ólafsson. Þeir skoruðu grimmt úr hraðaupp- hlaupum og hægri vængur Hauka- liðsins var KA-mönnum afar erf- iður allan tímann. KA-menn léku framliggjandi vörn sem Haukar áttu auðvelt með að gata en hinum megin spiluðu Haukar sína hefð- bundnu 6:0 vörn. Þeim gekk vel að halda Andriusi Stelmokas niðri í fyrri hálfleik og annað aðalvopn KA-liðsins, Arnór Atlason, átti erf- itt uppdráttar. Haukar héldu KA-mönnum í hæfilegri fjarlægð frá sér. Þeir höfðu 3–5 mörk yfir nær allan fyrri hálfleikinn en í byrjun síðari hálf- leiks komu KA-menn mjög grimm- ir til leiks. Þeir minnkuðu muninn niður í tvö og virtust líklegir til að sauma enn frekar að Haukunum en Birkir Ívar Guðmundsson mark- vörður og gamli refurinn Halldór Ingólfsson sáu til þess að Hauk- arnir héldu undirtökunum. Birkir Ívar varði mark sitt meistaralega og þó svo að Stelmokas væri Hauk- unum skeinuhættur á línunni, en hann hélt sínum mönnum á floti langtímum saman í síðari hálfleik, þá varði Birkir nokkrum sinnum frá Litháanum úr dauðafærum og í sókninni tók Halldór af skarið um leið og KA tók Ásgeir Örn fastari tökum. Halldór var afar drjúgur á kafla í síðari hálfleik og sýndi hvers hann er megnugur. Haukar þurftu að stokka upp í vörn sinni þegar Vignir Svavarsson fauk út af fyrir fullt og allt vegna þriggja brottvísana en fjarvera hans varð einungis til að þjappa Haukunum saman. Þeir héldu fengnum hlut og gott betur og þó svo að sex marka sigur væri í stærra lagi miðað við gang leiksins var sigur Haukanna öruggur og fyllilega verðskuldaður. Birkir Ívar átti frábæran leik í markinu og erfitt verður að ganga fram hjá honum þegar landsliðs- hópurinn verður valinn fyrir ólympíuleikana. Hann varði 23 skot, þar af fjögur vítaköst og mörg dauðafæri KA-manna. Þórir Ólafsson átti sömuleiðis skínandi leik og líkt og Birkir hlýtur hann að koma til greina í landsliðshóp- inn. Ásgeir Örn og Halldór voru feikilega drjúgir og það má eig- inlega segja að hvergi hafi verið veikan hlekk að finna í afar sterkri og samhentri liðsheild hjá Hauk- um. Slæmur leikkafli KA-manna í byrjun leiks varð þeim dýrkeyptur og eftir það voru þeir skrefinu á eftir Haukunum allan tímann. Arnór Atlason og Stelmokas voru sem fyrr í aðalhlutverkum hjá KA-liðinu sem var óvenju dauft miðað við mikilvægi leiksins. Arn- ór og Stelmokas hafa þó oftast leikið betur en skotnýting þeirra var frekar slök. Vörn KA-manna var ekki upp á marga fiska og ef þeim á að takast að komast á Ás- velli á nýjan leik verða þeir að bæta hana til muna, sem og mark- vörsluna, og lykilmenn liðsins, þeir Arnór, Stelmokas og Jónatan, verða að skila betri leik en þeir gerðu í gær. „Það var afar erfitt að koma til baka eftir að hafa lent sex mörkum undir. Við reyndum og reyndum og vorum nokkrum sinnum býsna ná- lægt því en það sem skildi þá á milli var markvarslan. Okkar menn náðu sér ekki á strik á meðan Birkir Ívar lokaði markinu á köfl- um,“ sagði Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA við Morgunblaðið eftir leikinn. „Við áttum ekki skilið að vinna þar sem við gerðum okkur seka um allt of mikið af grundvallarmistök- um. Við misnotuðum sæg af dauðafærum, þar af fjögur víti, og það gengur aldrei upp gegn liði eins og Haukum. Það eru ekki flóknir hlutir sem við þurfum að laga fyrir fimmtudaginn því það var mesta furða hvað við náðum að hanga inni í leiknum þrátt fyrir öll mistökin. Við erum beygðir en ekki brotnir og mætum dýrvitlausir í leikinn á fimmtudaginn,“ sagði Jó- hannes. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ásgeir Örn Hallgrímsson spilaði vel fyrir Hauka gegn KA á Ásvöllum í gær og hér er hann skrefinu á undan Jónatani Magnússyni, fyrirliða KA. Öflug byrjun Hauka gerði gæfumuninn HAUKARNIR héldu áfram að bjóða upp á markaveislu í úrslita- keppninni í handknattleik þegar þeir lögðu KA-menn að velli á Ás- völlum. Haukar sigruðu Eyjamenn tvívegis í 8-liða úrslitunum, 41:39 og 39:35, og úrslitin gegn KA-mönnum í gær voru á svipuðum nótum. 36:30 urðu lokatölur í Firðinum í leik þar sem Íslandsmeist- ararnir höfðu undirtökin allan tímann. Guðmundur Hilmarsson skrifar Fann mig afar vel TVEIR serbneskir knatt- spyrnumenn eru væntanlegir til Grindvíkinga og leika með þeim í úrvalsdeildinni í sumar. Þeir eru báðir miðjumenn, Slavisa Kaplanovic er 26 ára, uppalinn hjá OFK Belgrad en leikur nú með BSK Borca í 2. deild, og Aleksandar Petkovic er 23 ára, uppalinn hjá Partiz- an Belgrad en leikur nú með Vostovak Belgrad í 2. deild. Þeir léku báðir með liðum sín- um gegn Grindvíkingum í æf- ingaferð þeirra til Serbíu fyrir páskana. Á vef Grindvíkinga kemur fram að þeir séu vænt- anlegir til landsins innan skamms. Serbar í Grindavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.