Morgunblaðið - 28.04.2004, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
The Scheme for Full Employment eftir
Magnus Mills. Perennial gefur út 2004.
256 síðna kilja. Fæst í Máli og menn-
ingu.
ÍSLENDINGUM er Magnus
Mills að góðu kunnur, enda hafa
bækur eftir hann komið út á íslensku
og sjálfur hefur
hann komið tvíveg-
is hingað til lands,
síðast á bók-
menntahátíð fyrir
fjórum árum.
Mills sló í gegn
með bókinni The
Restraints of
Beasts, sem kom út
á íslensku sem
Taumhald á skepnum, fyrir sex ár-
um. Sú bók, líkt og fleiri bækur hans
reyndar ef ekki allar, er dæmisaga,
meira í hana spunnið en sést á yf-
irborðinu. Svo er og með þá sem hér
er gerð að umtalsefni, The Scheme
for Full Employment. Hún segir frá
átaki til að útrýma atvinnuleysi í
Bretlandi.
Sögumaður er bílstjóri sem starf-
ar við útkeyrslu í átakinu. Söguþráð-
urinn er í senn ósennilegur í meira
lagi, en þó undarlega sannfærandi.
Sumir hafa líkt bókinni við þáttaröð-
ina The Office og þá ekki síst fyrir
háðið sem felst í frásögninni, en
gamansemi Mills er ekki eins beisk
og hjá Ricky Gervais, hann hefur
meiri samúð með mannskepnunni.
Báðir eiga það þó sammerkt að frá-
sögnin er sérdeilis bresk, oft svo
bresk að manni finnst ólíklegt að
annað eins geti átt sér stað nema þar
í landi. Ekki fer og milli mála að
Mills er að sækja sitthvað í eigin
reynslu en hann starfaði lengi sem
stætóbílstjóri.
Eins og bílstjórinn lýsir starfinu í
áætluninni miklu er lífið dásamlegt,
alltaf nóg að gera en samt enginn asi.
Smám saman fer þó að halla undan
fæti, ekki síst þegar rísa krytur með-
al bílstjóranna – milli þeirra sem
vilja vinna átta tíma á dag og ekki
mínútu minna, og hinna sem vilja
festa það í samninga að þeir fái að
fara fyrr heim á hverjum degi en
ekki bara þegar lítið er að gera.
Af tillitssemi við væntanlega les-
endur er ekki rétt að fara meira út í
söguþráðinn eða segja meira um það
í hverju starfið felst en það er snilld-
arhugmynd sem verður smám sam-
an ljós eftir því sem líður á lesturinn.
Það fer þó ekki á milli mála hvert
stefnir allt frá upphafi, svo góð hug-
mynd hlaut að enda í ógöngum. Ekki
er bara að menn vilja færa sig upp á
skaftið, heldur hefur hver sína sýn á
hvernig haga eigi hlutunum og eng-
inn getur á sér setið, nema hvað.
Magnus Mills hefur nokkuð sér-
stakan stíl, gegnsæjan og áreynslu-
lausan, en virkar dauflegur á köflum.
Honum er lagið að flétta saman hinu
ótrúlega og hinu sanna eins og getið
er, nær að gægjast inn í mannshjart-
að með dæmisögum líkt og sögð er í
The Scheme for Full Employment
og draga í raun fram hve mann-
skepnan er ófullkomin.
Árni Matthíasson
Áætlunin mikla
Bækur
Market Forces eftir Richard Morgan.
Gollancz gefur út 2004. 386 síður innb.
RICHARD Morgan vakti tals-
verða athygli fyrir fyrstu bók sína,
Altered Carbon, kraftmikla vísinda-
skáldsögu sem var
bráðfrumleg og
gríðarlega spenn-
andi. Framhald
hennar var Broken
Angels, en nýút-
komin þriðja bók
hans, Market Forc-
es, gerist í annars
konar heimi þó að
hann eigi margt
sameiginleg með þeim heimi sem
birtist í hinum bókunum tveim.
Market Forces segir frá ungum
Breta á uppleið, Chris Faulkner, sem
ráðinn er til fyrirtækis sem stundar
vopnasölu í æðra veldi, semur við
stjórnvöld um að tryggja völd þeirra
gegn prósentu af þjóðartekjum eða
kemur uppreisnaröflum til valda upp
á sömu býtti ef því er að skipta. Sam-
keppnin er eðlilega hörð, svo hörð
reyndar að þegar tvö fyrrirtæki bítast
um sama samninginn kemur jafnan til
átaka milli útsendara þeirra, sölu-
mannanna, og þeir fá samninginn sem
ná að drepa keppinautana.
Heimurinn sem Morgan lýsir er
upp fullur af ofbeldi og ömurleika.
Bilið á milli ríkra og fátækra er orðið
svo mikið að hinir fyrrnefndu búa í
vellystingum praktuglega en fátæk-
lingarnir í helvíti, sjúkir og þjáðir, of-
urseldir glæpagengjum og gríðar-
legri mengun.
Bilið á milli lífs og dauða er aftur á
móti lítið, það þarf ekki mikið til að
menn verði vegnir, til að mynda af
samstarfsmönnum sínum, en til siðs
er er að stjórnendur komist áfram
innan fyrirtækja með því að drepa
þann sem er næst fyrir ofan viðkom-
andi í metorðastiganum.
Morðtólin eru yfirleitt bílar, eftir
áskorun mætast menn á hraðbraut-
unum og gera það sem þarf til að
drepa andstæðinginn eftir ströngum
reglum. Ég las reyndar fyrir þremur
áratugum eða svo smásögu sem sagði
frá álíka, en í henni lenti miðaldra
ökumaður óforvarandis í átökum við
ökuþrjót í heimi þar sem slíkt var
stundað á vegum úti. Hugmyndin er
góð engu að síður og útfærsla hennar
skemmtileg hjá Morgan – ekki svo
órökrétt í ljósi þróunar umferðar-
menningar.
Market Forces fjallar um það hvert
græðgin leiðir menn og þjóðfélög,
hvert stefnir ef ágóðavonin ræður öllu
og mannslífið er metið eftir fjárgildi
þess. Ekki er ástandið eins um allan
heim, sérstaklega slæmt (eða gott eft-
ir því hvaða skoðun menn hafa á
„ósýnilegu höndinni“) í Bretlandi og
Bandaríkjunum en á Norðurlöndun-
um virðist fólk búa að mestu leyti
áþekkt því sem er í dag, velferðakerfi
og friðsæld.
Morgan er snjall penni, kann að
skrifa spennandi og skemmtilegan
texta, og Market Forces er góð af-
þreying með smábroddi. Hugsanlega
mun ofbeldið standa í einhverjum, til
að mynda lemur söguhetjan mann til
bana í bókinni og ýmsir aðrir láta lífið
voveiflega. Bókinni lýkur svo að lík-
legt verður að teljast að Morgan eigi
eftir að skrifa framhald, þó það séu í
sjálfu sér fáir endar lausir.
Árni Matthíasson
Ósýnilegi hnefinn
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Fi 29/4 kl 20
Fö 30/4 kl 20,
Lau 1/5 kl 15 - ATH: 1. MAÍ TILBOÐ
Lau 1/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 7/5 kl 20 - UPPSELT,
Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT
Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 14/5 kl 20, - UPPSELT,
Lau 15/5 kl 20, Su 23/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20, Lau
29/5 kl 20, Fö 4/6 kl 20, Lau 5/6 kl 20
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams
Fö 30/4 kl 20
SÍÐASTA AUKASÝNING
Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst
PARIS AT NIGHT - KABARETT eftir ljóðum
Jacques Prévert - Í samvinnu við Á SENUNNI
Í kvöld kl 20:15 - UPPSELT - Síðasta sýning
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 2/5 kl 14,
Su 9/5 kl 14,
Su 16/5 kl 14,
Su 23/5 kl 14
Síðustu sýningar
GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Frumsýning fi 6/5 kl 20 - UPPSELT
Fi 13/5 kl 20,
Su 16/5 kl 20
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Su 2/5 kl 20
Fáar sýningar eftir
KLASSISKI LISTDANSSKÓLINN
Í kvöld kl 18 - Nemendasýning
Miðasala í síma 555-2222
theater@vortex.is
Fim. 29. apríl kl 21
Fös. 30. apríl kl 21
síðustu sýningar
Fantagott stykki...frábær skemmtun
sem snerti margan strenginn
-Ómar Garðarsson Eyjafréttir
eftir Jón Atla Jónsson
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Richard Strauss ::: Metamorphosen
Ludwig van Beethoven ::: Sinfónía nr. 9
FIMMTUDAGINN 29. APRÍL KL. 19:30 UPPSELT
FÖSTUDAGINN 30. APRÍL KL. 19:30 UPPSELT
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Söngvarar ::: Elín Ósk Óskarsdóttir, Alina Dubik, Kolbeinn Ketilsson
og Kristinn Sigmundsson ásamt Óperukórnum í Reykjavík
Kórstjóri ::: Garðar Cortes
Rauð #6
Samverustund Vinafélagsins í Sunnusal Hótels Sögu á fimmtudagskvöld kl. 18.00.
Fyrirlestur Árna Heimis Ingólfssonar um tónleikana hefst. kl. 18.30.
9. SINFÓNÍA BEETHOVENS
Dáðasta tónverk allra tíma
loftkastalinn@simnet.is
miðasalan opin kl. 16-19
Fös. 30. apríl kl. 20 laus sæti
„Frábært-drepfyndin-átakanlegt“
Ekki við hæfi barna -
SÍÐASTA SÝNING
Laus sæti
Laus sæti
Fös. 30. apríl örfá sæti
Lau. 8. maí
Fös. 14. maí
SÍÐUSTU SÝNINGAR
NICOLAS CAGE ætlar að giftast 19
ára gamalli gengilbeinu. Hann er
tvífráskilinn, var áður giftur Lisu
Marie Presley og
Patriciu Arq-
uette en hefur nú
beðið um hönd
hinnar ungu
Alice Kim eftir
tveggja mánaða
samband. Cage,
sem er fertugur,
féll fyrir gengil-
beinunni á Val-
entínusardag þegar hún þjónaði
honum og vinum hans á sushi-
veitingastað í Los Angeles. Hann
varð svo hrifinn af henni að hann
bauð henni með sér á Óskars-
verðlaunaafhendinguna áður en
málsverðurinn var á enda. Vinir
hans segja parið ákaflega ástfangið
og hamingjusamt …
BROOKE SHIELDS, sem á tæplega
ársgamla telpu, er að skrifa bók um
fæðingarþunglyndi. Áætlað er að
bókin „Og svo
fór að rigna“
verði gefin út
næsta vor.
„Með því að deila
reynslu minni
með lesendum
vonast ég til þess
að varpa ljósi á
raunverulegt en
oft dulið eða
hunsað vandamál sem hefur áhrif á
konur af öllum þjóðfélagsstigum í
mismiklu mæli,“ segir í yfirlýsingu
sem leikkonan, 38 ára, sendi frá sér
í gær.
„Ég vonast líka til þess að með því
að vera heiðarleg varðandi óttann,
áfallið og skömmina sem ég fann til,
muni ég hjálpa öðrum til að forðast
þá gryfju sem fæðingarþunglyndi
er og auka stuðning samfélagsins.“
Shields, sem er gift rithöfundinum
og framleiðandanum Chris Henchy,
ól stúlku í maí sl. Brooke heitir
réttu nafni Rowan Francis Shields
og hóf fyrirsætustörf sem smábarn
og lék síðan í myndum á borð við
„Pretty Baby“, „Bláa lónið“ (e. The
Blue Lagoon) og „Endless Love“.
Þá lék hún aðalhlutverkið í sjón-
varpsþáttunum „Suddenly Susan“
en gerð þeirra þátta var hætt árið
2000 …
FÓLK Ífréttum
KLINK OG BANK
Annað Tímakvöldið verður haldið í
fundarherbergi Klink og Bank í kvöld
kl. 21. Í þetta sinn er um svokallað
Tímabíó að ræða en sýnd verður
heimildarmyndin
Scratch frá árinu
2001, sem tekur
fyrir plötuklór,
plötuspilaralist og
þróun í þessum
efnum. Myndin
var m.a. tilnefnd
til verðlauna á
Sundance-
kvikmyndahátíðinni 2001. Á eftir
myndinni ræðir Gísli Galdur plötu-
snúður um þessa sérstöku gerð tón-
listarsköpunar og gefur sýnidæmi.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Fréttasíminn
904 1100