Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 29
Barnið og tíminn
er eftir Ian McEw-
an. Þýðandi er
Árni Óskarsson.
Höfuðpersóna
verksins er Steph-
an Lewis, vinsæll
barnabókahöf-
undur. Líf hans líð-
ur áfram í venju-
bundnum hægagangi þar til einn
morgun er þriggja ára dóttur hans
rænt.
Ian McEwan er í hópi allra fremstu
núlifandi rithöfunda Bretlands. Áður
hefur Bjartur gefið út eftir hann skáld-
sögurnar Friðþægingu, Amsterdam og
Eilífa ást. Fyrir þessa sögu fékk
McEwan hin virtu Whitbread-verðlaun.
Útgefandi er Bókaútgáfan Bjartur.
Prentun verksins var í höndum Odda
hf., kápuhönnun annaðist Ásta S.
Guðbjartsdóttir. Verð: 1.980 kr.
Skáldsaga
Sendiferðin er
smásagnasafn
eftir bandaríska
rithöfundinn Ray-
mond Carver. Þýð-
andi er Óskar Árni
Óskarsson.
Þegar Raymond
Carver lést árið
1988, aðeins
fimmtugur að aldri, hafði hann á
skömmum tíma skipað sér í hóp
fremstu smásagnahöfunda samtím-
ans. Sendiferðin hefur að geyma þær
sjö smásögur sem Carver lét eftir sig
þegar hann lést.
Líkt og í fyrri verkum sínum bregður
Carver upp myndleiftrum úr lífi hvers-
dagsfólks í Bandaríkjunum, atvikum
sem láta lítið yfir sér en skilja þó eftir
sig djúp spor.
Útgefandi er Bókaútgáfan Bjartur.
Prentun verksins var í höndum Odda
hf., kápuhönnun annaðist Ásta S.
Guðbjartsdóttir. Verð: 1.980 kr.
FYRRI hluti alþjóðlegu myndlist-
arsýningarinnar Fantasy Island
verður opnaður á Skriðuklaustri, í
dag kl. 15. Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, opn-
ar sýninguna að viðstöddum nokkr-
um listamannanna og gestum.
Á Skriðuklaustri verður sýnd
hugmyndavinna átta innlendra og
erlendra listamanna sem hafa síð-
ustu mánuði unnið að þróun lista-
verka sem komið verður fyrir á
stórsýningu í Hallormsstaðarskógi
og á Eiðum í júní.
Listamennirnir sem sýna hafa
allir verið áberandi á vettvangi
samtímalistar undanfarin ár og eru
margir hverjir heimsþekktir fyrir
sín verk. Sýnendurnir átta eru:
Atelier van Lieshout (Hollandi),
Paul McCarthy (Bandaríkjunum),
Jason Rhoades (Bandaríkjunum),
Katrín Sigurðardóttir, Elin Wikstr-
öm (Svíþjóð), Björn Roth, Þorvald-
ur Þorsteinsson og Hannes Lár-
usson.
Sýningin er liður í dagskrá
Listahátíðar í Reykjavík, en að
henni standa: Gunnarsstofnun,
Skógræktin á Hallormsstað, en
Þór Þorfinnsson skógarvörður í
Hallormsstaðaskógi átti frum-
kvæðið að gerð sýningarinnar, og
Eiðar ehf. Sýningarstjóri er Hann-
es Lárusson en Hekla Dögg Jóns-
dóttir hefur umsjón með fram-
kvæmd sýningarinnar.
Myndlistarmennirnir Paul
McCarthy og Jason Rhoades hafa
undanfarið unnið að nýju verki,
sem nefnist Macy’s og hið hol-
lenska Atelier van Lieshout, hópur
myndlistarmanna sem kenndir eru
við Joep van Lieshout, verður
einnig með nýtt verk á sýningunni
sem unnið er úr efniviði úr skóg-
inum.
„Það er afar sjaldgæft að erlend-
ir listamenn af þessari stærð-
argráðu komi hingað til að vinna
hérna ný verk sem eru unnin af
metnaði sérstaklega fyrir sýningu
hérlendis,“ segir Hannes í samtali
við Morgunblaðið.
Staðið til um nokkurt skeið
Hannes valdi saman listamenn-
ina á sýninguna, en naut aðstoðar
Heklu Daggar Jónsdóttur mynd-
listarmanns við ýmis framkvæmda-
atriði. Hekla hefur um nokkurra
ára skeið unnið fyrir Jason Rhodes
við gerð verka og uppsetningu sýn-
inga, og átti hún stóran þátt í að fá
Rhodes og Paul McCarthy hingað
til lands. „Það hefur reyndar verið
inni í myndinni um nokkurra ára
skeið að McCarthy sýndi hér á
landi, en ekki orðið af því fyrr en
nú. Það hefur mætt mikið á Heklu
og Jason að leggja þetta verkefni
þannig upp fyrir hann að hann
tæki þátt í þessu.“
Að sögn Heklu hafa þeir
McCarthy og Rhodes unnið sam-
vinnuverkefni síðan árið 1997, en
Rhodes var á sínum tíma nemandi
McCarthy. „Þeir eiga vel saman í
lundarfari og samvinnu og hafa
svipaðar áherslur í vinnubrögðum,“
segir hún.
Atelier van Lieshout tekur hins
vegar þátt í sýningunni vegna
tengsla Hannesar Lárussonar við
forystuaðila hópsins, Joep van
Lieshout, sem hélt sýningu í gall-
eríi Hannesar fyrir nokkrum árum.
„Það stóð alltaf til síðan þá að að
hann sýndi aftur á Íslandi og ég
gekk því í málið að fá þau til að
taka þátt í sýningunni núna,“ segir
Hannes.
Alþjóðleg
myndlist
á Skriðu-
klaustri
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Bandaríski myndlistarmaðurinn Jason Rhoades skoðar aðstæður á Hall-
ormstað ásamt Heklu Dögg Jónsdóttur og Þór Þorfinnssyni skógarverði.
Íslenska óperan kl. 20 Gyða Val-
týsdóttir sellóleikari heldur út-
skriftartónleika frá Listaháskóla
Íslands. Á efnis-
skránni er Áróra og
Úrverk, samin af
Gyðu sjálfri, Fratres
eftir Arvo Pärt, són-
ata op. 40 eftir Shos-
takovich, allemande
úr 6. svítu eftir Bach,
From Jewish Life eft-
ir Ernest Bloch í út-
setningu Daníels Bjarnasonar og
Solitaire eftir Hafliða Hall-
grímsson. Aðalkennari Gyðu við
LHÍ hefur verið Gunnar Kvaran. Í
fyrravor lék hún Shostakovich
sellókonsert nr. 1 í Es-dúr með
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Félagsheimili Seltjarnarness kl.
14 Sig K. Árnason opnar sýningu á
verkum sínum. Um er að ræða yf-
irlitssýningu frá 40 ára ferli hans.
Sýningin stendur til 6. júní.
ASH gallerí í Lundi Varmahlíð kl.
14 Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
opnar Svipi, sem er 11. einkasýning
hennar en hún hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga hér- og erlendis.
Hún er starfandi myndlistarkona á
Akureyri og rekur listagalleríið
Gallerí + , ásamt eiginmanni sínum
Joris Rademaker.
Sýningin stendur til 19. júní. Opið
daglega kl. 10–18.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Gyða
Valtýsdóttir
FYRIRLESTRI franska arkitekts-
ins Dominique Perrault, sem vera
átti í Listasafni Reykjavíkur – Hafn-
arhúsi í dag, er frestað um óákveðinn
tíma.
Fyrirlestur
fellur niður
Blue Lagoon
hvítasunnuhelgina
Spa-meðferðir og nudd má bóka í síma 420 8800 • Opið alla daga frá 9.00–21.00 • www.bluelagoon.com
Gestir heilsulindar geta einnig notið þess að fá endurnærandi
axlarnudd undir Blue Lagoon fossi, farið í eimbað, sauna og
gengið í gegnum frískandi vatnsúða.
Spa-dagar fara fram helgina 28.–31. maí
í Bláa Lóninu – heilsulind.
• 15% afsláttur af 30 mínútna slökunarnuddi og kísilnuddi
• allir þeir sem panta spa-meðferð og nudd fá baðsloppa
til afnota meðan á heimsókn stendur
• kynningar og tilboð á Blue Lagoon húðvörum
• spa-matseðill á veitingastað
spa-dagar