Morgunblaðið - 04.06.2004, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 45
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ÓSKAST KEYPT
Skrifstofubúnaður
og húsgögn
Félagasamtök óska eftir vel með förnum skrif-
stofubúnaði, skrifborðum, stólum, skápum
og símkerfi, auk borða og stóla fyrir um hund-
rað manna fundarsal.
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „Húsgögn", fyrir 9. júní.
KENNSLA NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Suðurgötu 1,
Sauðárkróki, fimmtudaginn 10. júní 2004, kl. 14.00, á neðan-
greindum eignum:
Austurgata 4, Hofsósi, þingl. eign Lúðvíks Bjarnasonar.
Gerðarbeiðandi er Sveitarfélagið Skagafjörður.
Austurgata 6, Hofsósi, þingl. eign Lúðvíks Bjarnasonar.
Gerðarbeiðendur eru Vátryggingafélag Íslands hf. og Sveitarfélagið
Skagafjörður.
Ás 2, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Einars Vals Valgarðs-
sonar. Gerðarbeiðandi er Landsbanki Íslands hf.
Fornós 10, Sauðárkróki, 50% hl., þingl. eign Sigurðar Sigfúsar Eiríks-
sonar. Gerðarbeiðendur eru sýslumaðurinn á Sauðárkróki og
Séreignalífeyrissjóðurinn.
Kárastígur 5, Hofsósi, 50% hl., þingl. eign Óðins Más Kristjánssonar.
Gerðarbeiðendur eru Landsbanki Íslands hf. og Og-Fjarskipti ehf.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
3. júní 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð sem hér
segir:
Birkimelur, 5, 50% hl., Varmahlíð, þingl. eign Lindu Bjargar Reynis-
dóttur, verður háð á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. júní 2004
kl. 15.00. Gerðarbeiðendur eru Sparisjóður vélstjóra og Greiðslu-
miðlun hf.-Visa Ísland.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
3. júní 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálf-
ri, sem hér segir
Vanefndaruppboð:
Aðalgata 19, íb. 0101, þingl. eig. Agnar Árnason, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður sjómanna, miðvikudaginn 9. júní
2004 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði,
2. júní 2004.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Smiðjuvegi 36, Kópavogi,
11. júní 2004 kl. 10:00:
14 pönnur, 120x120 cm, 6 reykgrindur, blástur -unit, brennari, pönnu-
rekki og reykingarofn.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
3. júní 2004.
Þuríður B. Sigurjónsdóttir, ftr.
ÞJÓNUSTA
Þak- og gluggaviðgerðir
Geri föst tilboð. Hröð og vönduð þjónusta.
Förum einnig út á land.
Sigurjón Hákonarson, sími 847 1374.
Styrkur
Samgönguráðuneytið óskar eftir umsóknum í
styrki af óráðstöfuðum hluta fjárlagaliðarins Vetr-
arsamgangna og vöruflutningar 10 - 190 - 112.
Vetrarsamgöngur og vöruflutningar eru sér-
stakur liður á fjárlögum sem ætlaður er til
stuðnings við sveitarfélög þar sem svo háttar
til að sveitarfélagið eða hluti þess býr við erfið-
ar og kostnaðarsamar samgöngur og ekki er
veitt fullnægjandi samgönguþjónusta af hálfu
stofnana ríkisins.
Styrkir verða einungis veittir þeim sveitarfélög-
um sem senda rökstuddar umsóknir um þá.
Umsóknir skulu berast samgönguráðuneytinu
fyrir 8. júlí 2004.
Styrkir verða hvorki veittir til reksturs sérleyfa
á landi, sjó eða í lofti né til stofnkostnaðar
vegna kaupa á tækjum og búnaði.
Umsóknir berist samgönguráðuneytinu merkt-
ar Rúnari Guðjónssyni.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Seljavegur 5, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Elín Þóra Friðfinnsdóttir,
gerðarbeiðandi Kaupþing Búnaðarbanki hf., þriðjudaginn 8. júní
2004 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
3. júní 2004.
Kriya joga
Fyrirlestur um Kriya-
jógahugleiðslu verð-
ur haldinn föstu-
daginn 4. júní kl.
20:00 í húsi Guð-
spekifélags Íslands í
Ingólfsstræti 22 og verður öllum
opinn án endurgjalds. Þeir, sem
áhuga hafa, eiga kost á að taka
innvígslu og læra Kriyajóga í sal
Lífssýnar í Bolholti 4, laugardag-
inn 5. júní. Eldri nemendur eru
einnig velkomnir.
Leiðbeinandi:
Rajarshi Peterananda.
Nánari upplýsingar í símum
860 8447, 825 8103 og 699 2518.
Fundur Parísar, félags þeirra
sem eru einar/einir, verður
haldinn á Kringlukránni laugar-
daginn 5. júní kl. 11.30 f.h.
Stjórnin
www.paris.is
ATVINNA
mbl.is
Alheimstvímenningurinn
4. og 5. júní
Hinn árlegi alheimstvímenningur
fer fram um helgina, nánar tiltekið
föstudagskvöldið 4. júní og laugar-
daginn 5. júní. Ekki er nauðsynlegt
að spila báða dagana, hvor spiladag-
ur er sjálfstæð keppni.
Spilað er samtímis í fjölmörgum
löndum og fer útreikningurinn fram
á Netinu. Á Íslandi fer keppnin fram
á 3 stöðum, í Reykjavík (Síðumúla
37), á Akureyri og á Hornafirði. Allir
þátttakendur fá veglegan bækling
með spilunum og umfjöllun um þau.
Í fyrra spiluðu um 12 þúsund spil-
arar hvorn daginn fyrir sig í nær 50
löndum, tæplega 300 bridgefélög.
Sigurvegarar föstudagsins voru
Milder og Katzman (með ríflega 75%
skor) og laugardagskeppnina unnu
Perry og Mignocchi (rétt um 73%).
Bæði pörin spiluðu í Bandaríkjun-
um. Á Íslandi spiluðu tæplega 50 pör
sem var ágæt þátttaka.
Spilamennskan hefst kl. 19 á
föstudagskvöldið. Hjálpað er til við
að mynda pör sé þess óskað. Í Síðu-
múla verður svo boðið upp á hina sí-
vinsælu Miðnætursveitakeppni að
föstudagstvímenningnum loknum.
Laugardagskeppnin hefst kl. 13.
Spilað er um gullstig.
Nánari upplýsingar um Al-
heimstvímenninginn má finna á vef-
síðunni www.ecatsbridge.com, hjá
BSÍ (587 9360) og hjá Matthíasi
(860 1003).
Dregið í 1. og 2. umferð
Bikarkeppni BSÍ
36 sveitir skráðu sig í Bikarkeppni
BSÍ að þessu sinni, sem eru heldur
færri sveitir en undanfarin ár.
Á kjördæmamótinu var að venju
dregið í 1. umferð:
Sigurjón Karlsson – Jón Sigurbjörnsson
Kjartan Ásmundss. – Söluf. garðyrkju-
manna
SS – Hákon Sigmundsson
Sparisjóður Vestfj. – Eðvarð Hallgrímsson
Til að létta spilurum lífið var
ákveðið að draga einnig í 2. umferð.
Geta þeir sem ekki spila í 1. umferð
því spilað sína leiki strax ef þeim
sýnist svo.
Í 2. umferð eigast við:
Una Sveinsdóttir – Orkuveita Reykjavíkur
Sigurjón Karlsson/Jón Sigurbjörns –
Gunnlaugur Sævarsson
Anna Ívarsdóttir – SS fremstir f. bragðið/
Hákon Sigmundsson
Eykt – Bernódus Kristinsson
Oliver – Vírnet
Hársnyrting Vildísar – Field Turf
Sp. Vestfjarðar/Eðvarð Hallgrímsson –
Sp. Keflavíkur
Baldur Bjartmarsson – Erla Sigurjónsdóttir
Black Mamba – Óli Björn Gunnarsson
Esso-sveitin – Félagsþjónustan
Kjartan Ásmunds/Söluf. garðyrkjumanna –
Aðalsteinn Sveins.
Sp. Siglufjarðar – Einar Sigurðsson
Frímann Stefánsson – Stafna á milli
Hrafnhildur Skúladóttir – Samskipti ehf.
Solway – Georg og félagar
Suðurnesjasv. – Haraldur Þ. Gunnlss.
Síðasti spiladagur hverrar um-
ferðar:
1. umf. sunnudagur 20. júní
2. umf. sunnudagur 18. júlí
3. umf. sunnudagur 15. ágúst
4. umf. sunnudagur 12. sept.
Undanúrslit og úrslit verða spiluð
25. og 26. sept.
Fyrirliðar eru minntir á að skila
inn úrslitum fljótt og vel.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Spilaður var tvímenningur 28.
maí, á sjö borðum.
Úrslit urðu þessi:
N/S
Árni Bjarnason – Þorvarður S. Guðm. 201
Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 174
Jóna Kristinsdóttir – Sveinn Jensson 166
A/V
Friðrik Hermannsson – Ólafur Gíslas. 212
Árni Guðmundsson – Hera Guðjónsd. 191
Sófus Berthels. – Haukur Guðmundss. 178
Úrslit í tvímenningskeppni þriðju-
daginn 2. júní 2004.
N/S
Bragi Björnss. _ Auðunn Guðmundss. 180
Einar Péturss. _Ólafur Gíslason 177
Jóna Kristinsd. _Sveinn Jensson 176
A/V
Ingimundur Jónsson _ Helgi Einarsson 188
Sófus Berthelsen _ Haukur Guðmundss. 186
Jón Ól. Bjarnas. _ Ásmundur Þórarinss. 185
Aðalfundur Bridsfélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Bridsfélags Reykja-
víkur verður haldinn þriðjudaginn
15. júní í húsnæði Bridssambandsins
í Síðumúla 37. Fundurinn hefst
klukkan 17:30 og stefnt að því að
honum verði lokið áður en sumar-
brids byrjar klukkan 19:00.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg
aðalfundarstörf og kosning nýrrar
stjórnar. Félagsmenn eru hvattir til
þess að mæta.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson