Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 49
SMS
tónar og tákn
LANDSSAMBAND Soroptim-
ista efnir til móttöku í Þjóðar-
bókhlöðunni í kvöld en samtök-
in eiga 30 ára afmæli 8. júní
næstkomandi. Á Íslandi eru 16
Soroptimistaklúbbar víðs vegar
um landið og að sögn Hafdísar
Karlsdóttur, forseta landssam-
bandsins, munu í kringum 260
manns verða við móttökuna í
kvöld. „Í tilefni af 30 ára afmæl-
inu buðum við Soroptimistum
frá Evrópu að koma og taka
þátt í þessu með okkur. Það eru
að koma 37 konur og makar frá
Danmörku, Þýskalandi, Hol-
landi, Skotlandi og Englandi.“
Á morgun, laugardag, verður
jafnframt haldinn landssam-
bandsfundur samtakanna en að
þessu sinni verður hann haldinn
á Akranesi. „Þetta eru góðgerð-
arsamtök þar sem lögð er
áhersla á það besta fyrir konur
og besta frá konum. Við viljum
bæði gera gott fyrir okkur en
við viljum líka láta gott af okkur
leiða,“ segir Hafdís.
Mannauður innflytjenda
Þema fundarins er mannauð-
ur innflytjenda þar sem mál
innflytjenda verða skoðuð frá
ýmsum sjónarhornum. Meðal
fyrirlesara verða Amal Tamini,
sem situr í stjórn Félags
kvenna af erlendum uppruna,
og dr. Unnur Dís Skaptadóttir
mannfræðingur. „Nálgunin
verður á þann hátt að við velt-
um fyrir okkur hvað við hér á
Íslandi getum lært af innflytj-
endum og hvað við getum nýtt
okkur af þeirri þekkingu sem
við öðlumst af því að kynnast
þeim,“ segir Hafdís og bendir í
því skyni á hvernig hægt er að
nýta menntun og þekkingu inn-
flytjenda, t.d. í skólum landsins.
Að loknum hátíðarhöldum
munu evrópsku gestirnir heim-
sækja klúbba Soroptimista víðs
vegar um landið.
Landssam-
band Sor-
optimista
30 ára
GREINT hefur verið frá ákvörðun
Íslendinga um að veiða 25 hrefnur
í vísindaskyni á þessu sumri í sum-
um erlendum fjöl-
miðlum en eftir því
sem næst verður
komist hafa engin
mótmæli verið í Evr-
ópu vegna ákvörðun-
ar Íslendinga.
Starfsmenn ís-
lenska sendiráðsins í
Lundúnum vissu
ekki af mótmælum
vegna ákvörðunar-
innar og Frode
Pleym talsmaður
Grænfriðunga tekur
í svipaðan streng:
„Ég veit ekki um
nein mótmæli og
ástæðan er væntan-
lega sú að Íslendingar hafa ákveð-
ið að draga verulega úr veiðun-
um.“
Skynsamleg ákvörðun hjá
íslenskum stjórnvöldum
Pleym segist raunar fagna því
sérstaklega að ákveðið hafi verið
að draga verulega úr veiðunum og
veiða aðeins 25 dýr í stað þeirra
100 sem gert var ráð fyrir að veidd
yrðu í hvalarannsóknaráætlun
Hafrannsóknastofnunar.
„Mér finnst þetta hafa verið
skynsamleg ákvörðun af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda. Þótt það liggi
fyrir að við viljum að
Íslendingar hætti
hrefnuveiðunum alger-
lega, lítum við á þessa
ákvörðun sem sigur að
hluta. Íslendingar hafa
ákveðið að draga veru-
lega úr veiðunum mið-
að við upphaflegar
áætlanir og það eru
skilaboð um að menn
hafa valið að taka skref
í jákvæða átt. Það er
bæði mikilvægt og
gott,“ segir Pleym.
Hann segir að enn sé
stefnt að því sigla skipi
Grænfriðunga, MV
Esperanza, til Íslands,
að hluta til vegna þess að Græn-
friðungar vilji að veiðum verði al-
veg hætt. „En eins vegna þess að
við munum óska eftir því að beina
sjónum manna að öðrum mikil-
vægum umhverfisvandamálum
eins og t.d. mengun hafsins og
loftslagsbreytingum. eftir að ís-
lensk stjórnvöld hafa tekið ákvörð-
un í rétta átt varðandi vísindaveið-
arnar viljum við skerpa enn frekar
áhersluna á slíka þætti,“ segir
Pleym.
Engin mótmæli
vegna vísinda-
veiða á hrefnu
Frode Pleym
HÚSAKYNNI ORG-ættfræðiþjón-
ustu við Skildingarnes verða öllum
opin á laugardag og sunnudag frá kl.
10–17.
ORG-ættfræðiþjónusta sérhæfir
sig í ættrakningu og söfnun ætt-
fræðiupplýsinga um Íslendinga, þar
með taldir Vestur-Íslendingar. Odd-
ur Helgason ættfræðingur segist ný-
lega hafa fengið í hendur hluta af
þjóðskrám Bandaríkjanna og Kan-
ada og þar sé að finna ýmis gögn um
Vestur-Íslendinga. Hann segir að
þessi grunnur auðveldi verulega
vinnu þeirra sem leita að tengslum
við ættir Íslendinga í Vesturheimi.
Nánari upplýsingar er hægt að
finna á www.simnet.is/org.
Opið hús hjá ORG-
ættfræðiþjónustu