Morgunblaðið - 04.06.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert orðheppin/n og mjög
sannfærandi og getur
hæglega haft atvinnu af
mælsku þinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er eins og allt aukist þeg-
ar tunglið er fullt. Þetta á ekki
síst við um erfiðleikana sem
við glímum við. Þú getur þó
huggað þig við það að þetta
muni ganga yfir um leið og
tunglið fer að minnka á nýjan
leik.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert með hugann við eignir
þínar og fjárhagsstöðu.
Mundu að raunverulegt örlæti
felst í því að láta hlutina af
hendi þegar þörfin fyrir þá
kemur upp.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert eitthvað tvístígandi
þessa dagana. Þú ert á báðum
áttum um það hvort þú eigir
að láta þarfir þínar eða ann-
arra hafa forgang.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla þörf fyrir ein-
veru í dag. Þú vilt helst fela
þig sem lengst inni í skel þinni
og það mælir ekkert á móti því
að þú látir það eftir þér í
nokkra daga.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt líklega lenda í tog-
streitu á milli vina þinna og
kunningja annars vegar og
fjölskyldu þinnar hins vegar.
Þótt fjölskyldan skipti þig
mestu máli máttu ekki líta
framhjá þörfum vina þinna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er hætt við að skyldur
þínar í vinnunni stangist á við
þarfir fjölskyldu þinnar þessa
dagana. Það er mikilvægt að
þú sinnir starfi þínu því annað
mun koma niður á fjölskyld-
unni þótt síðar verði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það eru miklar líkur á að þú
lendir í einhvers konar deilum
í dag. Best væri ef þú gætir
frestað umræðum um mikil-
væg málefni fram á föstudag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert ósammála einhverjum
um grundvallaratriði málsins
sem um ræðir. Þetta þýðir
ekki að annað ykkar hafi rétt
fyrir sér og hitt rangt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það þýðir ekkert fyrir þig að
öskra til að ná eyrum annarra
í dag. Tunglið er fullt og það
skapar sambandsleysi á milli
manna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það þýðir ekkert fyrir þig að
stappa niður fótunum og
krefjast þess að þú fáir þitt
fram í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í skapi til að skemmta
þér þessa dagana. Þig langar
til að daðra, leika þér og fara í
ferðalög.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki setja þig upp á móti for-
eldrum þínum eða öðrum í
fjölskyldunni í dag. Bíddu með
að ræða málin fram á föstu-
dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
50 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 5. júní
verður Margrét Jóhanns-
dóttir grunnskólakennari,
Háhóli, Borgarbyggð,
fimmtug. Hún og fjölskylda
hennar taka á móti ætt-
ingjum og vinum í félags-
heimilinu Lyngbrekku,
þann sama dag, á milli kl.
18:30 og til 01:00 eftir mið-
nætti.
SÚ VAR tíðin að menn
skrifuðu lærðar ritgerðir
um úrspil í 4-3 tromp-
samlegu. Frægastur fræði-
manna í þessum efnum er
Alphonse Moyse (1898–
1973), fyrrum ritstjóri The
Bridge World, enda er 4-3
samlegan við hann kennd
og kölluð „Moysian-fit“.
Lítið hefur borið á slíkum
pælingum í seinni tíð, lík-
lega vegna þess að kerfin
hafa batnað og mönnum
hefur lærst að spila frekar
þrjú grönd en fjóra í hálit
á slíkar hendur. En auðvit-
að kemur annað slagið fyr-
ir að eina geimið sem
vinnst er fjórir í hálit á 4-3-
fitt. Það gerðist í einu spili
á landsliðsæfingu um síð-
ustu helgi.
Suður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ÁKD7
♥G10
♦K984
♣ÁD10
Vestur Austur
♠53 ♠9642
♥953 ♥ÁK7642
♦ÁD752 ♦G10
♣G94 ♣8
Suður
♠G108
♥D8
♦63
♣K76532
Spilað var á þremur
borðum, en aðeins eitt par
náði hinum gullfallega
samningi, fjórum spöðum.
Þar voru á ferð Ís-
landsmeistararnir í tví-
menningi, Erlendur Jóns-
son og Sveinn Rúnar
Eiríksson. Í andstöðunni
voru Þröstur Ingimarsson
og Bjarni Hólmar Ein-
arsson:
Vestur Norður Austur Suður
Bjarni Sveinn Þröstur Erlendur
– – – Pass
Pass 1 tígull 2 hjörtu Pass
Pass Dobl Pass 3 lauf
Pass 3 hjörtu Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Sveinn Rúnar vekur á
Standard-tígli og Þröstur
hindrar með tveimur hjört-
um. Það rúllar aftur til
Sveins, sem enduropnar
með dobli.
Nú myndi suður gefa til
kynna dauð spil með tveim-
ur gröndum (Lebensohl),
en Erlendur kaus að sýna
lífsmark með þremur lauf-
um. Sveinn reyndi þá við
þrjú grönd með því að
melda ofan í hjarta mót-
herjanna og Erlendur kom
við í þremur spöðum með
þrílitinn, enda leit hann svo
á að hann hefði neitað fjór-
lit. Sveinn Rúnar var með
á nótunum og ákvað að
heiðra Moyse með því að
lyfta í geim.
Tíu slagir eru á borðinu,
því vörnin fær aðeins tvo
slagi á hjarta og tígulás.
Vel gert hjá Íslandsmeist-
urunum.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rc3 e6 3. f4 d5 4.
Rf3 dxe4 5. Rxe4 Rc6 6. Bb5
Bd7 7. 0-0 Be7 8. d3 Rf6 9.
c3 0-0 10. Ba4 Dc7 11.
Rxf6+ Bxf6 12. Rg5 h6 13.
Re4 Be7 14. Bc2 f5 15. Rd2
e5 16. Rc4 Bf6 17.
Dh5 Be6 18. Bb3
Hae8 19. fxe5 Rxe5
20. Bf4 b5 21. Rxe5
Bxe5 22. Bxe5 Dxe5
23. Hae1 Df6
Staðan kom upp á
Heimsmeistaramóti
kvenna sem stendur
nú yfir í Elista í
Rússlandi. Ekat-
erina Kovaleskaya
(2.467) hafði hvítt
gegn Carolina Lujan
(2.319). 24. Hxe6!
Hxe6 25. Hxf5! c4
25. – Dxf5 gekk að
sjálfsögðu ekki upp vegna
26. Dxf5 Hxf5 27. Bxe6+ og
hvítur vinnur. Í framhaldinu
fær hvítur einnig unnið tafl.
26. Hxf6 Hfxf6 27. h3 cxb3
28. axb3 Hb6 29. d4 Hfd6
30. De8+ Kh7 31. d5 a5 32.
De5 a4 33. bxa4 bxa4 34. c4
Hg6 35. c5 Hb5 36. d6 Hb3
37. c6 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Þessir duglegu krakkar héldu hlutaveltu í Verslunar-
miðstöðinni Firði í Hafnarfirði og söfnuðu 12.009 kr. og
afhentu athvarfinu Læk andvirðið. Lækur er athvarf fyrir
fólk með geðraskanir og er í Hafnarfirði. Að því standa
Hafnarfjarðardeild Rauða kross Íslands, Hafnarfjarð-
arbær og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi.
Krakkarnir sem söfnuðu heita: Fanney Ösp Finnsdóttir,
Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Melkorka Knútsdóttir, Guð-
laug Þóra Gunnarsdóttir, Brynhildur M. Herbertsdóttir,
Hulda D. Jónasdóttir, Geir Andersen, Ýr Steinþórsdóttir
og Benedikt Herbertsson.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Innvielse av minnelunden „Noregslundur“
i dag lørdag 5. juni 2004 kl. 16-18 ved Thorgeirstadir,
hytta til Nordmannslaget i Heiðmörk.
Alle nordmenn hjertelig velkommen.
Styret i Nordmannslaget
Nordmenn på Ísland
MAÐURINN OG FLYÐRAN
Forgefins hafði fiskimann
færinu keipað lengi dags,
þolgæði stöðugt hafði hann,
þó heppnaðist ekki veiðin strax.
(Merk, að biðlundar mest er þörf
mönnum, sem stunda fiskirí,
skólameistara og skyttu störf
skiljast ei heldur undan því.)
Jón Þorláksson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA