Morgunblaðið - 04.06.2004, Page 52
ÍÞRÓTTIR
52 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BRASILÍA er komin á topp Suður-
Ameríkuriðilsins í undankeppni
HM sem fram fer í Þýskalandi
2006. Liðið lagði Argentínu í Bras-
ilíu 3:1 og skoraði Ronaldo öll
mörk heimamanna og komu þau
öll úr vítaspyrnum sem hann hafði
sjálfur fiskað. Juan Pablo Sorin
skoraði mark Argentínumanna.
Gestirnir voru mjög ósáttir við
dómara leiksins og þurfti Marcelo
Bielsa, þjálfari liðsins, að draga
leikmenn sína burt frá dóm-
aranum eftir leikinn.
Ekvador sigraði Kólumbíu á
heimavelli með tveimur mörkum
gegn einu og var þetta fyrsti sigur
liðsins á Kólumbíu í 39 ár. Hvorki
gengur né rekur hjá Kólumbíu-
mönnum en þeir hafa tapað fjór-
um af sex leikjum í keppninni.
Diego Forlan, leikmaður Man-
chester United, skoraði eina mark
Úrúgvæa gegn Perú en það dugði
skammt því Perú vann leikinn, 3:1.
Loks sigraði Chile lið Venesúela
með einu marki gegn engu.
Þegar sex umferðir eru búnar
eru Brasilíumenn á toppnum með
12 stig og eru enn taplausir. Arg-
entína er í öðru sæti með 11 stig
og Chile og Paragvæ eru í þriðja
til fjórða sæti með 10 stig. Alls eru
spilaðar átján umferðir og komast
fjögur efstu liðin til Þýskalands.
Liðið í fimmta sæti spilar við lið
frá Eyjaálfu um laust sæti í úr-
slitakeppni HM.
Ronaldo fiskaði þrjú víti
og skoraði þrisvar
Rúmlega 150 keppendur frá 6 fé-lögum; ÍRB, KR, Þrótti úr
Vogum, Sandgerði, Fjölni og Hún-
um, sem komu alla
leið frá Hvamms-
tanga, mættu til
leiks og gerðu sitt
allra besta en með
örlitlu roki sáu veðurguðirnir til þess
að heitu pottarnir voru mjög vinsæl-
ir á milli þess stinga sér til sunds.
Það kom þó ekki í veg fyrir allir
skemmtu sér vel og gleymdu kulda-
hrollinum um leið og ræsirinn sagði:
„Viðbúin.“
Rík hefð er fyrir sundi í Keflavík
og mikill metnaður enda æfa um 250
unglingar hjá ÍRB, sem er sameinað
félag Keflavíkur og Njarðvíkur, en
Keflavík heldur mót á vorin og
Njarðvík á haustin. Það á einnig við
um foreldra því starf þeirra er hluti
af árangri ÍRB auk þess að bærinn
styður vel við sundfólkið. Sundmenn
segja að íþróttin byggist mest á ein-
staklingnum, að hann standi sig Til
þess þarf stífar æfingar en það hafi
oft sýnt sig að námið verður ekki út
undan því skipulagið skili sér. Hver
einstaklingur er samt í félagi auk
þess að í boðsundi þarf að vinna sam-
an.
Húnar voru mættir alla leið frá
Hvammstanga og keyrðu foreldrar
hina vösku keppendur heiman frá
sér. Sund var áður vinsælt í þar í
bænum en lá síðan niðri um hríð þar
til það var endurvakið fyrir þremur
árum og starfið er öflugt, stóð meðal
annars fyrir móti á Hvammstanga
með 250 krökkum.
Í Vogum á Vatnsleysuströnd var
fyrir fjórum árum drifið í að stofna
sunddeild, Ungmennafélagið Þrótt.
Níu krakkar hófu leik en nú æfa 55
af kappi en það eru flestallir krakkar
í Vogunum. Áhuginn er mikill, líka
hjá foreldrum, enda sagði María
þjálfari að þeir fengju 10 fyrir mæt-
ingu.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Gunnar Örn Arnarson úr ÍRB, fyrir miðju, setti sveinamet í 100 metra bringusundi en það voru
rúmlega 150 keppendur á Sparisjóðsmótinu. Félagar hans fögnuðu með honum í heita pottinum.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Þótt það sé gaman að synda þurfti smáátak að sleppa teppinu og stíga út úr upphitunartjaldinu
upp á stökkpallinn í rigningu og roki. Hér hafa nokkrar sundprinsessur hreiðrað um sig í tjaldinu
þar sem keppendur gátu hlýjað sér.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Heiti potturinn var mjög vinsæll á milli keppnisgreina hjá krökkunum.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Hákon frá Þrótti lagði sig allan fram og
þá varð að bæta á orkubirgðirnar svo
að matarboxið var aldrei langt undan.
Fjör á Spari-
sjóðsmótinu
SUND og meira sund var málið í Keflavík í síðustu viku þegar ÍRB
hélt sitt árlega Sparisjóðsmót fyrir 12 ára og yngri í sundlauginni
í Keflavík. Nóg var um að vera, keppt var í 37 greinum og riðlum
auk boðsunds en eins og venjulega er líka gaman að hitta jafn-
aldra víða að. Boðsundið rak endahnútinn á mótið og var mikið
fjör, hvort sem var í lauginni eða á bakkanum því þar hvatti hver
sem betur gat.
Stefán
Stefánsson
skrifar