Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur
gefið út ákæru á hendur Grétari
Sigurðssyni, Jónasi Inga Ragnars-
syni og Tomasi Malakauskasi fyrir
að hafa staðið að innflutningi á
223,67 grömmum af metamfetam-
íni sem Vaidas Jucevicius flutti
hingað til lands innvortis 2. febrúar
sl. Einnig er þremenningunum
gefið að sök brot gegn lífi og lík-
ama skv. 1. mgr. 221 gr. almennra
hegningarlaga fyrir að koma Vaid-
asi ekki til hjálpar í lífsháska eftir
að hann veiktist vegna stíflu í
mjógirni, af völdum fíkniefna-
pakkninga, sem leiddi hann til
dauða að morgni 6. febrúar. Varðar
sú sök allt að 2 ára fangelsi.
Þá er ákærðu gefin að sök
ósæmileg meðferð á líki Vaidasar
skv. 1. mgr. 124. gr. hegningarlaga,
með því að hafa flutt líkið austur til
Neskaupstaðar þar sem ákærðu
sökktu líkinu í sjó. Í lögunum segir
að ef nokkur raskar grafarhelgi
eða gerist sekur um ósæmilega
meðferð á líki, þá varði það sektum
eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
Ákæra og málsskjöl hafa verið
send Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ákæra á
hendur
þremur
mönnum
BÁTASMIÐJAN Trefjar hf. í
Hafnarfirði hefur nú selt nærri 20
báta af gerðinni Cleopatra til Bret-
landseyja á undanförnum árum og
á sjávarútvegssýningu sem haldin
var í Glasgow í Skotlandi dagana
20.–22. maí sl. fékk fyrirtækið
pantanir í sex nýja báta. Högni
Bergþórsson, tæknilegur fram-
kvæmdastjóri Trefja, segir bátana
hafa slegið í gegn á Bretlandseyj-
um, sérstaklega við humar- og
krabbaveiðar. Hann segir bátana
hafa reynst vel til gildruveiða og
þeir orðnir mjög eftirsóttir. „Við
höfum til dæmis afgreitt þessa
báta með sérstökum búnaði til að
halda humrinum lifandi um borð
sem hefur mikið að segja um verð-
mæti hans. Bátarnir þykja sömu-
leiðis mjög góðir sjóbátar og menn
hafa einnig hrifist af vinnuhagræð-
ingu sem felst í góðu skipulagi
veiðibúnaðar á dekki,“ segir Högni.
Íslenskir
bátar vin-
sælir í
Bretlandi
Sex pantanir/16
MÁL efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra gegn aðalféhirði
Landssímans og fjórum öðrum sak-
borningum var dómtekið í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gærkvöldi að
lokinni munnlegum málflutningi.
Ákæruvaldið krafðist fangelsis-
refsingar yfir ákærðu, en verjendur
allra sakborninga nema aðalsak-
borningsins, Sveinbjörns Kristjáns-
sonar, sem játað hefur sök, krefjast
sýknu.
Saksóknari sagði brot Svein-
björns margslungin og dulin fyrir
starfsmönnum Landssímans en við
ákvörðun refsingar ætti að líta til
samvinnufýsi hans. Þá yrði að taka
tillit til þess að um stærsta mál
þessarar tegundar sé að ræða við
ákvörðun refsingar.
Frásögn ákærða
talin ótrúverðug
Frásögn Sveinbjörns var í mörg-
um atriðum afar ótrúverðug og
ótraust, að mati saksóknara. Verj-
andi hans krafðist vægustu refs-
ingar sem lög leyfa, en allt að sex
ára fangelsi liggur við fjárdráttar-
brotum skv. almennum hegningar-
lögum.
Verjendur meðákærðu sögðu
skjólstæðinga sína ekki hafa haft
vitneskju um að féð sem dreift var
til þeirra var illa fengið, en þau eru
ákærð fyrir hylmingu og peninga-
þvætti.
Dómur verður kveðinn upp í mál-
inu hjá Héraðsdómi Reykjavíkur
hinn 23. júní.
Landssímamálið dómtekið
Verjendur/10 og 11
VORHÁTÍÐ Stakkaborgar við
Bólstaðarhlíð var haldin í góð-
viðrinu í gær. Þar litu til dæmis
Mikki refur og Lilli klifurmús inn
í heimsókn og sjá mátti að krakk-
arnir kunnu vel að meta að fá svo
fræga skógarbúa í heimsókn til
sín. Einnig var hoppukastali í
garðinum og grillaðar pylsur of-
an í mannskapinn. Margir for-
eldrar sáu sér fært að mæta og
taka þátt í gleðinni.
Morgunblaðið/Ómar
Mikki og Lilli litu við í Stakkaborg
ÁSAHREPPUR og Skeiða- og
Gnúpverjahreppur munu setja
Norðlingaölduveitu í Þjórsárver-
um inn á aðalskipulag sitt og aug-
lýsa það í sumar í kjölfar sam-
komulags sem náðst hefur milli
sveitarfélaganna og Landsvirkj-
unar. Sömuleiðis mun samvinnu-
nefnd um svæðisskipulag miðhá-
lendisins gera breytingar og
kynna þær í sumar.
Aðalsteinn Guðmundsson, odd-
viti Skeiða- og Gnúpverjahrepps,
segir hreppsnefndina hafa á end-
anum samþykkt framkvæmdina,
sérstaklega þar sem Eyvafen
sleppur nær alveg miðað við nýj-
ar mælingar. Samkomulagið var
samþykkt einróma í hreppsnefnd
á þriðjudag.
Loks komist að samkomulagi
Agnar Olsen, yfirmaður fram-
kvæmdasviðs Landsvirkjunar,
segir að með þessu samkomulagi
við Ásahrepp og Skeiða- og
Gnúpverjahrepp sé loks lokið ára-
tuga löngum deilum um þessa
framkvæmd, en mikilvægt sé að
sátt verði um framkvæmdina.
Umsamin lónhæð verður 566
metrar yfir sjávarmáli að sum-
arlagi, en 567,5 metra rekstrar-
hæð að vetrarlagi. Segir Agnar
þá lónhæð vera lágmarkshæð og
með þessari niðurstöðu eigi lónið
ekki að hafa áhrif inn í Eyvafen,
og nú verði sett af stað skipulags-
vinna í samræmi við samþykkt-
ina.
Samkomulag um framkvæmdir við Norðlingaölduveitu
Sveitarfélögin setja
veituna á skipulag
Samkomulag/6
NORRÆNU útvarpsleikhúsverðlaunin
voru afhent í gær í Norræna húsinu. Það
var Svefnhjólið, leikgerð Bjarna Jóns-
sonar og hljómsveitarinnar múm eftir
skáldsögu Gyrðis Elíassonar, sem hlaut
verðlaunin en þetta er í 5. sinn sem þau
eru afhent. Það eru leiklistardeildir rík-
isútvarpsstöðvanna í Noregi, Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi sem standa
að verðlaununum og nema þau 70 þúsund
norskum krónum. Hver stöð tilnefnir eitt
verk til verðlaunanna sem dómnefnd velur
síðan úr.
Formaður dómnefndarinnar, Magnus
Florin, leiklistarstjóri sænska útvarpsins,
afhenti Bjarna verðlaunin og sagði að
Svefnhjólið „væri ferðalag milli draums
og veruleika, lífs og dauða, ævintýrs og
sögu. Hljóð, texti og tónlist vinna saman í
fjölþættri frásögn þar sem áheyrandinn er
staddur í spennandi og framandi um-
hverfi.“
Bjarni Jónsson sagði að verðlaunin
væru mikill heiður fyrir þau sem stóðu að
verkefninu, þar sem samkeppnin væri
mikil og í raun væri ólíku saman að jafna
þegar leiklistardeild RÚV væri borin sam-
an við leiklistardeildir ríkisútvarpsstöðv-
anna á Norðurlöndunum. „Þetta er einnig
heiður og hvatning fyrir íslenska rík-
isútvarpið sem aldrei áður hefur hlotið
þessi verðlaun og er jafnframt eina út-
varpsstöðin á Íslandi sem framleiðir leikið
efni.“
Svefnhjólið var að sögn Bjarna unnið
þannig að eftir að hann hafði skrifað
handritið hafði hann samband við múm og
falaðist eftir samstarfi við þau.
Svefnhjólið
hlutskarpast
Morgunblaðið/Golli
Bjarni Jónsson tekur við verðlaunum af
Magnus Florin, formanni dómnefndar.
Norrænu útvarpsleikhús-
verðlaunin afhent
KASSI með um 7 kg af dínamíti fannst á lofti
gamallar tréskemmu sem starfsmenn Stykkis-
hólmsbæjar voru að rífa í fyrradag. Dínamítið
var í plastpokum og var nítróglyserin farið að
leka úr því en sennilega hefur sprengiefnið
legið á skemmuloftinu í um þrjá áratugi.
Ólafur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn á
Snæfellsnesi, segir að starfsmennirnir hafi
komið með dínamítið á lögreglustöðina, en þeir
hafi verið gerðir afturreka enda um mikla
sprengihættu að ræða. Var sprengiefninu
komið fyrir í gamalli námu í Berserkjahrauni í
nágrenni bæjarins og voru kallaðir til
sprengjusérfræðingar frá embætti ríkislög-
reglustjóra sem gerðu sprengiefnið óvirkt.
Mjög hættulegt
Ólafur segir, að vitað sé að aðili sem notaði
skemmuna hafi verið með sprengiefnaleyfi en
um þrír áratugir séu frá því sá notaði sprengi-
efni. Líklegast sé að kassinn hafi gleymst á
skemmuloftinu.
Ólafur segir að gamalt sprengiefni sem
þetta sé mjög hættulegt og hugsanlega hefði
kassinn getað sprungið við það eitt að falla á
gólf.
Fundu 7 kíló af dínamíti í tréskemmu
Kassinn með dínamítinu hefði getað sprungið
við það eitt að falla á gólf, að sögn lögreglu.
♦♦♦