Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið virka daga frá 10-18, lau og sun 13-16.
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík - Sími 517 0220 - www.netsalan.com
Bílar í sérflokki frá Chrysler
Chrysler 300C
árgerð 2005, hlaðinn nýjungum
Glæsilegur 2ja sæta sportbíll
Chrysler
Crossfire
Báðir bílarnir eru til sýnis á staðnum
Bílar sem eru að slá í gegn um þessar mundir!
SNIGLARNIR gangast fyrir minningarvöku vegna fallinna félaga í kvöld kl. 21 við Kúagerði á Reykjanesbraut.
Verður þar kyrrðarstund „fyrir okkur öll að hugleiða lífið og liðna atburði“ segir í frétt Sniglanna. Komið hefur
verið upp minningarreit á slysstaðnum við Þingvallaveg þar sem ungur maður lét lífið í bifhjólaslysi sl. mánudag.
Morgunblaðið/Þorkell
Minningarvaka vegna fallinna félaga
gr. útvarpslaga. Að þessu virtu og í
ljósi ofangreindra sjónarmiða telur
umboðsmaður verulegan vafa leika á
því að gerð og birting ritaðs efnis á
heimasíðu Ríkisútvarpsins sem
hvorki sé beinn þáttur í miðlun hljóð-
varps eða sjónvarpsútsendinga stofn-
unarinnar, t.d. fréttalýsingar eða önn-
ur dagskrá, né almenn kynning á
stofnuninni geti talist til „útvarps-
starfsemi“ í merkingu síðari málsliðar
1. mgr. 10. gr. laga um Ríkisútvarpið,
eins og það hugtak verði skýrt í ljósi
skilgreiningar a-liðar 1. mgr. 1. gr. út-
varpslaga á hugtakinu „útvarp“. Um-
boðsmaður telur vandséð að sjálfstæð
birting ritaðs efnis á heimasíðunni
sem aðeins sé unnið fyrir heimasíð-
una, geti því talist til útvarpsstarf-
semi eða verið þáttur í slíkri starfsemi
Ríkisútvarpsins sé slíkt efni ekki
beinn liður í því lögbundna verkefni
stofnunarinnar að annast hljóðvarp
og sjónvarp. Hefur umboðsmaður þá í
huga að tekjum Ríkisútvapsins megi
eingöngu verja í þágu útvarpsstarf-
semi, skv. ákvæði laga um Ríkisút-
varpið, en af lögskýringargögnum við
ákvæðið verði ekki annað séð en með
því hafi verið girt fyrir að tekjur Rík-
isútvarpsins yrðu nýttar í öðru skyni
en til að standa undir lögbundnum
verkefnum stofnunarinnar og þá í
samræmi við meginreglur stjórn-
sýsluréttar um tekjuöflun opinberra
aðila.
Ekki sýnt fram á full-
nægjandi lagaheimildir
Vegna viðhorfa Ríkisútvarpsins í
svarbréfum til umboðsmanns tekur
hann fram að af ákvæðum útvarps-
laga og lögskýringargögnum verði
ekki ráðin nein almenn fyrirætlan
löggjafans um að núgildandi útvarps-
lög hafi við gildistöku sína átt að leiða
til þess að undir hugtakið „útvarp“
félli miðlun upplýsinga af hálfu hand-
hafa útvarpsleyfa í gegnum alnetið
sem ekki væri beinn liður í útsend-
ingu hljóðvarps eða sjónvarps. Telur
umboðsmaður að Ríkisútvarpið hafi
ekki sýnt fram á að fullnægjandi laga-
heimild standi til framleiðslu sjálf-
stæðs efnis til birtingar á heimasíð-
unni. Þá fær umboðsmaður ekki
heldur séð að sala auglýsinga sérstak-
lega til birtingar á heimasíðu Ríkisút-
varpsins falli undir heimila gjaldtöku
vegna „[auglýsinga] í hljóðvarpi og
sjónvarpi“ skv. 2. mgr. 10. gr. laga um
Ríkisútvarpið.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis kemst
að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að Rík-
isútvarpið hafi ekki sýnt fram á að
gerð og birting efnis á heimasíðunni
ruv.is, eigi sér fullnægjandi lagaheim-
ild. Þá segir umboðsmaður jafnframt
að Ríkisútvarpið skorti lagastoð til að
selja auglýsingar til birtingar á
heimasíðunni. Beinir umboðsmaður
þeim tilmælum til ríkisútvarpsins að
það hagi starfsemi sinni í samræmi
við sjónarmið þau sem hann gerir
grein fyrir í áliti sínu.
Útgáfa á íslensku efni ehf., sem
rekur frétta- og fjölmiðlavefinn
tunga.is, kvartaði til umboðsmanns
yfir „nær ótakmörkuðum heimildum
Ríkisútvarpsins til miðlunar efnis á
Internetinu“ og „nær ótakmörkuðum
heimildum Ríkisútvarpsins til að
leggja undir sig Internet-auglýsinga-
markaðinn á Íslandi“.
Umboðsmaður segir í umfjöllun
sinni að leggja verði til grundvallar að
útvarpslögum nr. 53/2000 hafi ekki
verið ætlað að kveða almennt á um
samruna fjarskipta, útvarps og tölvu-
notkunar á því sviði sem þau fjalla
um.
Ekki verði heldur annað séð en að
ákvæði útvarpslaga og athugasemdir
sem þeim fylgja lúti í aðalatriðum að
breyttum aðferðum til miðlunar efnis
samkvæmt lögunum. Sé í þeim gert
ráð fyrir að menntamálaráðherra geti
kveðið á um breytingu á merkjum út-
varpsstöðva yfir í stafrænt form í
þessu sambandi með reglugerð. Slík
reglugerð hafi hins vegar ekki verið
sett. Þrátt fyrir að útvarpslög geri
með þessum hætti ráð fyrir nýjum
möguleikum til miðlunar og dreifing-
ar útvarpsefnis sé hvergi í þeim vikið
að efnislegri skilgreiningu a-liðar 1.
mgr. 1. gr. laganna á hugtakinu „út-
varp“ en í því ákvæði sé hugtakið
bundið við tiltekna framsetningu efn-
is. Þannig sé í ákvæðinu gert ráð fyrir
að útvarp, hljóðvarp eða sjónvarp feli
í sér útsendingu dagskrárefnis sem
ætluð er „almenningi til beinnar mót-
töku og dreift er með rafsegulöldum“
og að slík útsending sé í „tali, tónum
eða myndum“.
Verulegur vafi á að efni á ruv.is
geti talist útvarpsstarfsemi
Umboðsmaður ítrekar að skýra
verði hugtakið „útvarpsstarfsemi“ í
merkingu laga um Ríkisútvarpið til
samræmis við framangreinda skil-
greiningu á hugtakinu „útvarp“ í 1.
Álit umboðsmanns Alþingis
Telur RÚV ekki
hafa sýnt nægar
lagaheimildir
TVEIR bifhjólamenn hafa látið lífið í
umferðinni það sem af er þessu ári en
fram að því höfðu liðið tvö ár án þess
að banaslys yrði meðal bifhjóla-
manna. Samkvæmt bráðabirgðatöl-
um frá embætti ríkislögreglustjóra
hafa að auki 24 einstaklingar slasast í
bifhjólaslysum á árinu. Oftast er um
þung bifhjól að ræða og eru 88% slas-
aðra karlmenn. Slys á fyrri hluta síð-
asta áratugar voru um og yfir 100 á
ári en voru komin niður í 60 árið 2001.
Nýrri tölur liggja ekki fyrir.
Ágúst Mogensen, framkvæmda-
stjóri Rannsóknarnefndar umferðar-
slysa, segir fjölda slysa mikið
áhyggjuefni. Fyrr á árinu lagði hann
fram, ásamt Njáli Gunnlaugssyni, bif-
hjólakennara, tillögur að bættu ör-
yggi bifhjólafólks sem byggðust á
skýrslu um bifhjólaslys árin 1999 og
2000. Í skýrslunni kemur fram að bif-
hjólaslys eiga sér oftast stað í þéttbýli
og helmingur slysanna eigi sér stað
við gatnamót en í 80% þeirra tilvika
lenda bíll og bifhjól saman. „Öku-
menn gæta sín ekki nógu vel á bif-
hjólum og eiga það til að keyra í veg
fyrir bifhjólamenn. Bifhjólin eru
minni en bílarnir og fólk virðist mis-
reikna sig við það að meta hröðunina
og hraðann á bifhjólunum. Ekki það
að hraðinn sé meiri heldur er ökutæk-
ið minna og því sýnist fjarlægðin vera
meiri og sér ökumaðurinn jafnvel
ekki bifhjólin. Það mætti því auka
fræðslu ökumanna varðandi bifhjól.“
Í skýrslunni kemur fram að bif-
hjólafólk gleymist stundum þegar
unnið er að hönnun umferðarmann-
virkja. „Þegar Vegagerðin og borgin
eru að hanna umferðarmannvirki
væri æskilegt að fram færi ákveðin
umferðaröryggisrýni ásamt fulltrú-
um bifhjólafólks. Bifhjólamenn eru að
fá fulltrúa í umferðarráð núna en ég
veit ekki til þess að bifhjólamenn séu í
umferðaröryggisrýni hjá Vegagerð-
inni eða hjá borginni,“ segir Ágúst.
Hann hefur einnig áhyggjur af
fjölda réttindalausra ökumanna á
minni bifhjólum sem margir hverjir
eru á unglingsaldri. Hann bendir á að
rétt væri að samræma aldursskilyrði
vegna þessara leyfa. „Það er ákveðið
gat þarna því hægt er að fá æfinga-
leyfi á létt bifhjól við 15 ára aldur.
Menn sleppa því oft að fara í prófið
vegna þess að þegar þeir eru 16 ára
hefst undirbúningur að bílprófi. Það
er mun meira spennandi og í kjölfarið
fá margir sér aldrei fullgild réttindi á
létt bifhjól.“
24 hafa slasast í bif-
hjólaslysum á árinu
MARKÚS Örn Antonsson útvarps-
stjóri segist vænta þess að við end-
urskoðun laga um Ríkisútvarpið,
sem boðuð hefur verið með haust-
inu, verði sérstaklega tekin afstaða
til þess hvort Ríkisútvarpinu eigi að
vera óheimilt að birta á heimasíð-
unni fréttir á ritmáli, sem þó tíðkist
hjá útvarpsstöðvum hvarvetna ann-
ars staðar.
„Við munum þ.a.l. vænta þess að
það liggi fyrir hrein og klár nið-
urstaða löggjafans um það atriði
varðandi okkar starfsemi í framtíð-
inni,“ segir Markús Örn. Hann seg-
ir að væntanlega þýði þetta líka, að
umboðsmaður Alþingis sé að mæl-
ast til þess að annað efni sem hafi
verið á vefnum en ekki á dag-
skránni, verði fjarlægt. „Það þætti
okkur mjög miður því að þar er
m.a. um að ræða sérstaka vefi sem
gerðir hafa verið um menningarlegt
efni og Íslandssögu, sem við vitum
að er mikið notað, t.d. af skólafólki.“
Markús segir að það stangist þó
á við það ákvæði, sem komi fram í
lögum um Ríkisútvarpið, að það
skuli stunda fræðsluútvarp í sam-
vinnu við fræðsluyfirvöld og sér-
staklega verði ætlað fé til þess á
fjárlögum. Það hafi hins vegar aldr-
ei verið gert, en RÚV sé að leitast
við að koma til móts við það sjón-
armið að vera með fræðsluútvarp,
og þá í þessu formi.
Tekið á athugasemdum ESA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra segist gera
ráð fyrir að við endurskoðun laga
um Ríkisútvarpið verði tekið á at-
riðum sem lúta að athugasemdum
Eftirlitsstofnunar Evrópusam-
bandsins (ESA) til Ríkisútvarpsins
um að reyna að aðgreina sam-
keppnisrekstur og þann rekstur
sem fellur undir almannahlutverk
stofnunarinnar. „Sú endurskoðun
kemur til með að nýtast okkur í
svörum okkar til ESA,“ segir Þor-
gerður. Tekið skal fram að henni
hafði ekki gefist færi á að kynna sér
álit umboðsmanns Alþingis í gær.
Væntir niðurstöðu
löggjafans um ruv.is