Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Dodge Ram 2500
Quad Cab Laramie
Til afgreiðslu strax
Væntanlegur í búðina á föstudag
Opið virka daga frá 10-18, lau og sun 13-16.
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík - Sími 517 0220 - www.netsalan.com
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra fór í þriggja
daga leiðangur upp á Vatnajökul með Jöklarann-
sóknarfélagi Íslands (JÖRFÍ). Siv kom heim á
þriðjudag en leiðangur félagsins stendur enn og er
tilgangur hans margþættur. Meðal helstu verkefna
JÖRFÍ eru ýmsar mælingar m.a. mælingar á vatns-
hæð Grímsvatna, sem standa hærra en verið hefur
frá árinu 1996, og er búist við hlaupi úr þeim mjög
fljótlega. Siv sagði að skjálftavirkni á svæðinu væri
töluverð og færi vaxandi og því mætti búast við gosi
innan tveggja ára í Grímsvötnum. Hún sagði afar
litlar líkur á því að fólk eða mannabyggðir yrðu fyr-
ir skaða vegna gossins og hlaupsins.
Siv sagðist hafa verið spenntust fyrir hæðarmæl-
ingu Hvannadalshnúks, hæsta tinds landsins, með
GPS-landmælingatækjum en hæð hans hefur verið
talin 2.119 m frá því hann var fyrst og síðast mæld-
ur fyrir 100 árum. Hún sagði að niðurstöðu mætti
vænta eftir um eina og hálfa viku. Þá fæst úr því
skorið hvort hæðin sé sú sama eða hvort breyting
hafi orðið þar á. Áhugasamir geta kynnt sér meira
um ferð Sivjar á heimasíðu hennar www.siv.is.
Siv segir að tafir verði á því að opna Vatnajök-
ulsþjóðgarð, en ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt
að jökulhetta Vatnajökuls verði þjóðgarður og þar
með stærsti þjóðgarður Evrópu. Það sem veldur
töfunum eru deilur um eignarhald en átta landeig-
endur í sveitarfélaginu Hornafirði gerðu kröfu í að
eiga hluta af jökulhettunni sjálfri í því sveitarfélagi.
Óbyggðarnefnd úrskurðaði að jökullinn væri þjóð-
lenda en ekki einkaeign. „Tveir landeigendur hafa
nýtt sér sinn málskotsrétt og gera áfram kröfu fyrir
héraðsdómi að þeir eigi hluta af jökulhettunni í
sveitarfélaginu Hornafirði. Eignarhaldið er komið
fyrir dómstóla og við bíðum nú eftir niðurstöðu í
héraðsdómi. Svo er einnig hugsanlegt að þetta fari
fyrir Hæstarétt þótt það sé óljóst á þessari stundu,“
segir Siv. Hún segir að undirbúningsvinna fyrir
þjóðgarðinn sé í fullum gangi og bætir því við að ef
dómstólar úrskurði landeigendum í vil muni ráðu-
neytið semja við landeigendurna um að lönd þeirra
væru innan þjóðgarðsins. „Það er alveg opin heim-
ild fyrir því í lögum að það sé einkaland í þjóðgarði,
þó að það hafi verið talið æskilegra að það sé í al-
manna eigu.“ Siv bendir á að fordæmi séu fyrir því
að þjóðgarður sé í einkaeigu, t.a.m. sé lítill skiki inn-
an Snæfellsjökulsþjóðgarðs í einkaeign.
Umhverfisráðherra fór í þriggja daga rannsóknarleiðangur upp á Vatnajökul
Búist er við gosi innan
tveggja ára í Grímsvötnum
Niðurstöðu úr nýrri hæðarmælingu á Hvanna-
dalshnúk er að vænta eftir rúma viku.
EVRÓPUKEPPNI landsliða í
knattspyrnu hefst næstkomandi
laugardag og verða allir leikir
keppninnar í beinni útsendingu.
Með hliðsjón af tölum frá RÚV, um
áhorf frá síðustu keppnum, má
áætla að rúmlega helmingur Íslend-
inga muni fylgjast með keppninni
að miklu eða öllu leyti. Einnig ligg-
ur það fyrir að 70 af hundraði þjóð-
arinnar telja að fréttir eigi að víkja
fyrir beinum útsendingum frá stór-
mótum eins og EM eða HM í knatt-
spyrnu.
Ríkissjónvarpið mun hafa þann
háttinn á, þegar leikir skarast við
fréttatíma, að sýna einnar mínútu
langt yfirlit frétta á sama tíma og
leikurinn verður smækkaður niður í
horn skjásins.
Samstarf við Sýn
í þágu áhorfenda
Sjónvarpið, sem á sýningarrétt-
inn frá kepninni, mun sýna alla
leikina 31, þar af 26 leiki beint.
Jafnframt hefur verið gerður samn-
ingur við Sýn um að sýna beint þá
fimm leiki sem Sjónvarpið getur
ekki boðið upp á í beinni útsend-
ingu. „Það má segja að þetta sam-
starf brjóti blað í íþróttaumfjöllun
hér á landi,“ segir Samúel Örn
Erlingsson, yfirmaður íþróttadeild-
ar RÚV. „Þetta samstarf er fyrst
og fremst í þágu áhorfenda þannig
að þeir eigi kost á því að sjá alla
leikina í beinni útsendingu. Þeim
sem að þessari keppni standa og
selja réttinn að henni þykir þetta
fyrirkomulag einnig æskilegt þó að
það sé ekki sett sem skilyrði. Þá er
þetta mikilvægt skref í þeirri um-
ræðu sem hefur farið fram um ger-
valla Evrópu, sem snýst um það að
almenningur skuli hafa aðgang að
sem flestum stórkeppnum.“
Samúel er ánægður með sam-
starfið við Sýn og segir að framhald
verði á því. „Við gerðum heilmikið
samkomulag við Sýn og í framhald-
inu munu þeir taka þátt í því að
sýna frá Ólympíuleikunum með
okkur og það mun auka möguleika
íslenskra áhorfenda verulega á því
að sjá það efni sem þeir vilja sjá.
Þeir koma mjög fagnandi að þessu
samstarfi rétt eins og við og það er
mikil eining meðal okkar um þessa
hluti.“
EM í knattspyrnu hefst á laugardag
Talið að um helming-
ur Íslendinga fylgist
með keppninni
ÞINGFEST voru í Héraðsdómi
Austurlands í gær mál vegna úr-
skurða óbyggðanefndar í sveitarfé-
laginu Hornafirði, áður A-Skafta-
fellssýslu, frá því í lok síðasta árs.
Bæði ríki og landeigendur áfrýja úr-
skurðunum og vilja að þeim verði
hnekkt og tekið tillit til þeirra upp-
haflegu krafna um mörk þjóðlendu
og eignarlanda á og við sunnanverð-
an Vatnajökul. Næst verða málin
tekin fyrir í byrjun september.
Óbyggðanefnd birti úrskurði um
fimm svæði í desember sl; Öræfi,
Suðursveit, Mýrar, Nes og Lón.
Þjóðlendulínan var dregin við jök-
ulrönd Vatnajökuls eins og hún var
talin hafa verið í kringum 1998, þeg-
ar þjóðlendulögin tóku gildi. Að auki
var nyrðri hluti Stafafellsfjalla, svo-
kölluð Lónsöræfi, úrskurðaður þjóð-
lenda en smájöklar utan meginjök-
ulsins töldust tilheyra viðkomandi
eignarlandi. Var kröfum margra
landeigenda hafnað um að jarða-
mörk næðu inn fyrir jökulröndina.
Ríkið höfðar einkamál vegna
Stafafells og Skaftafells, auk
jarðanna í kringum Jökulsárlón á
Breiðamerkursandi, þ.e. Fjalls,
Fells og Breiðamerkur. Á móti
áfrýja úrskurðum óbyggðanefndar
landeigendurnir í Stafafelli í Lóni
vegna Lónsöræfa, í Skálafelli og
Hoffelli í Nesjum vegna Lamba-
tungna og á Kvískerjum í Öræfum
vegna Ærfjalls, sem úrskurðað var
þjóðlenda hjá óbyggðanefnd.
Ólafur Björnsson hrl. er lögmaður
nokkurra landeigenda í þessum mál-
um. Hann segir mikið annríki um
þessar mundir hjá lögmönnum sem
sinna óbyggðamálum. Auk málaferla
fyrir Héraðsdómi Austurlands sé
verið að skila inn kröfum landeig-
enda til óbyggðanefndar vegna Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og í haust
megi vænta dóms Hæstaréttar um
þjóðlendumörk í Biskupstungum og
öðrum uppsveitum Árnessýslu. Þá
er beðið úrskurða óbyggðanefndar
um Rangárvalla- og V-Skaftafells-
sýslur. Lögmenn eru því að störfum
á þremur dómstigum; fyrir óbyggða-
nefnd, héraðsdómi og Hæstarétti.
Þingfesting í Héraðs-
dómi Austurlands
Áfrýjað á
báða bóga
EINAR Nielsen garð-
yrkjumaður stendur í
körfulyftu og sagar of-
an af grenihekki í átta
metra hæð í góðviðrinu
í gær. Hekkið er í Gró-
anda sem er garð-
plöntustöð í Mosfells-
dal.
Björn Sigurbjörns-
son, eigandi Gróanda,
vill meina að þetta sé
hæsta hekk landsins og
varpar um leið þeirri
spurningu til áhuga-
samra hvort eitthvert
hekk á Íslandi sé
hærra, en það sem vex
hjá honum í Mosfells-
dalnum.
Greni-
hekk
sagað
Morgunblaðið/Árni Sæberg