Morgunblaðið - 10.06.2004, Side 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það er nú annaðhvort að eiganda landsins sé sýndur sá sómi að hann fái að ráða einhverju
um gang mála.
Borgarbyggð 10 ára
Líf og fjör í
Borgarbyggð
Borgarbyggð heldurupp á 10 ára af-mæli sveitarfé-
lagsins á morgun. Í til-
efni af því mun
bæjarstjórn halda hátíð-
arfund þar sem tekin
verður ákvörðun um
stofnun húsafriðunar-
sjóðs og verða 10 einstak-
lingar úr Borgarbyggð
sérstaklega heiðraðir fyr-
ir mikið og gott starf í
þágu samfélagsins. Einn-
ig mun gamla „pakkhús-
ið“ í Borgarnesi tekið
formlega í notkun að
nýju eftir gagngerar
breytingar. Í kjölfarið
hefst svo Borgfirðingahá-
tíð sem stendur fram yfir
sunnudag og verður hún
óvenju glæsileg, að sögn
Helgu Halldórsdóttur, forseta
bæjarstjórnar Borgarbyggðar.
– Hvað verður gert á afmæl-
isdaginn?
„Við ætlum að byrja daginn á
því að heimsækja leikskólabörn í
Borgarbyggð og afhendum þeim
boli sem eru merktir sveitarfé-
laginu. Það stendur líka á þeim
„við erum framtíðin“, af því að
börnin okkar eru framtíðin. Síð-
an verður hátíðarfundur bæjar-
stjórnar klukkan 11, þar verða
lagðar fram tvær tillögur, ann-
ars vegar að stofna húsafriðun-
arsjóð og hin tillagan gengur út
á það að heiðra 10 einstaklinga
fyrir gott framlag til samfélags-
ins. Síðan klukkan hálfþrjú
verður „pakkhúsið“ opnað, en
húsið er 115 ára gamalt og við
höfum verið að vinna að því síð-
astliðin 10 ár að gera þetta
pakkhús upp, og fengið til þess
stuðning frá ríkinu og húsafrið-
unarsjóði. Þarna munum við
vígja húsið upp á nýtt og þar
verður opnuð verslunarsaga
Borgarness, sem Páll Guðbjarts-
son hefur verið að taka saman
fyrir okkur. Þessi sýning verður
opin þar í pakkhúsinu í sumar
og síðan er stefnan að næsta
sumar muni Kjartan Ragnars-
son hafa húsið til afnota fyrir
landnámssýningu sína, sem
hann er að vinna að. Ólafur
Thors, fyrrverandi forsætisráð-
herra, er fæddur í einu af þess-
um húsum en það eru þrjú hús á
þessu svæði. Faðir hans var
verslunarstjóri þarna þegar hús-
ið var byggt. Þetta eru sögu-
fræg hús og hafa legið svolítið í
láginni en nú eru tvö þeirra ný-
uppgerð og glæsileg, og þriðja
húsið er ennþá íbúðarhús í
einkaeigu.
Nú eru 10 ár ekki hár aldur.
Sérstaklega þegar litið er til
þess að flest þau sveitarfélög
sem sameinuðust 1994 og 1998
og mynda Borgarbyggð, höfðu
verið til í aldaraðir. Því eru 10
ár sannarlega skammur tími í
starfsemi sveitarfélaga. Við telj-
um samt ástæðu til að halda upp
á þessi tímamót og gera okkur
dagamun. Á þessum 10 árum
hefur Borgarbyggð
vaxið og dafnað. Ótrú-
legar breytingar hafa
orðið á atvinnuháttum
í sveitarfélaginu á
þessum árum. Þær
breytingar hafa í raun gert
sveitarfélagið sterkara og
íbúana samhentari en áður.
Óhætt er því að segja að við get-
um á afmælisdaginn horft já-
kvæð til framtíðarinnar.“
– Hvað verður svo um að vera
á afmælinu?
„Klukkan fjögur verður kaffi-
samsæti, þá er öllum íbúum í
sveitarfélaginu boðið í kaffi á
hótelinu. Þar verðum við með
borgfirsk skemmtiatriði. Hall-
dóra Björk Friðjónsdóttir söng-
kona, sem kláraði sitt söngnám í
Borgarnesi, mun syngja fyrir
okkur við undirleik Þorsteins
Gauta Sigurðssonar, sem er ætt-
aður úr Tungunum. Barnakór
grunnskólans í Borgarnesi ætlar
að syngja fyrir okkur en stjórn-
andi hans er Steinunn Árnadótt-
ir. Svo mun Unnur Halldórs-
dóttir, sem er þekkt fyrir
ýmislegt, m.a. að framleiða góð-
ar kjötsúpur og vísur, flytja
okkur hugvekju um sveitarfélög
fyrr og nú á léttu nótunum.“
– Hvað verður um að vera á
Borgfirðingahátíðinni?
„Á föstudagskvöldinu verður
baðstofukvöld í Hriflu í Bifröst í
nýja salnum þar. Það verða
skoskir, írskir og íslenskir sögu-
menn á Búðarkletti og segja
sögur frá sínum þjóðlöndum,
sannar og minna sannar. Þetta
er svona fyrst en svo er dag-
skráin inni á heimsíðu Borgar-
byggðar (www.borgarbyggd.is),
þetta er svo gríðarlega umfangs-
mikil dagskrá.“
– Hvaða sveitarfélög standa
að hátíðinni?
„Borgarbyggð er eitt af sveit-
arfélögunum, og langfjölmenn-
ast með tæplega 2.600 íbúa. Svo
er Borgarfjarðarsveit, Hvítár-
síðuhreppur og Skorradalur, það
eru þessi fjögur sveitarfélög
sem standa að Borgfirðingahá-
tíð. Hátíðin fer í rauninni fram í
öllum þessum sveitarfélögum að
einhverju leyti, það eru ein-
hverjar uppákomur í öllum
sveitafélögunum.“
– Hvernig er að búa
í Borgarbyggð?
„Það er náttúrulega
best í heimi. Það er al-
veg yndislegt, við er-
um bæði með sveit og borg. Þú
hefur í rauninni allt, þú hefur
sveitina, þéttbýlið og allt félags-
og menningalíf er blómlegt og ef
eitthvað vantar upp á tekur það
ekki nema klukkutíma að
skreppa í höfuðborgina. Það hef-
ur verið að fjölga fólki hjá okkur
langt yfir landsmeðaltal undan-
farin ár. Lífsgæðin eru gríðar-
lega mikil á þessu svæði.“
Helga Halldórsdóttir
Helga Halldórsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Borgarbyggðar,
er fædd 2. september 1962 og al-
in upp á Minni-Borg á Snæfells-
nesi. Helga hefur búið í Borg-
arnesi síðan 1981. Hún var
bæjarfulltrúi á árunum
1998–2002 og hefur verið forseti
bæjarstjórnar síðan 2002. Helga
starfar einnig á skrifstofu Bún-
aðarsamtaka Vesturlands. Hún
er gift Mýramanninum Gunnari
Jónssyni og eiga þau þrjú börn.
Yndislegt að
búa í Borgar-
byggð