Morgunblaðið - 10.06.2004, Síða 20
AKUREYRI
20 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 594 5050 Fax 594 5059
Lynghálsi 4//110 Reykjavík
VATNSENDABLETTUR
VIÐ ELLIÐAVATN
KLASSÍSK OG NÚTÍMALEG HÖNNUN
VEL STAÐSETT EINBÝLI Á ÞREMUR PÖLLUM MEÐ INNBYGGÐ-
UM BÍLSKÚR. Útsýni yfir Elliðaárvatn. Húsið er fokhelt að innan,
tilbúið að utan og grófjöfnuð lóð. Vandað með mahóní-
hurðum og -gluggum. Húsið er hannað að innan í skemmti-
legum nútímalegum stíl.
Teikningar og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu.
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Óskum eftir að ráða starfskraft
25 ára og eldri
til afgreiðslu í verslun okkar
í Skipagötu 5, Akureyri.
Upplýsingar gefur Þorgerður í verslun
REKSTRARGJÖLD Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri umfram fjárveitingar á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs námu tæpum 13 milljónum
króna, eða um 1,3% af heildargjöldum. „Þetta er
í samræmi við væntingar og þær áætlanir sem
við lögðum upp með í byrjun árs,“ sagði Vignir
Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármála og rekst-
urs FSA. „Og það út af fyrir sig er ánægjulegt.“
Áætlanir varðandi starfsemi og rekstur
sjúkrahússins gera ráð fyrir að afkoma þessa árs
verði neikvæð um 37,5 milljónir króna.
Rekstraruppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung
þessa árs liggur nú fyrir en samkvæmt því hefur
launakostnaður hækkað um 1,9% miðað við sama
tímabil í fyrra en almenn rekstrargjöld hafa
hækkað um 13%. Sértekjur hafa hækkað um
12%.
Störfum við sjúkrahúsið hefur fækkað um alls
10,5 stöður, en sú fækkun tengist skipulagsbreyt-
ingum sem gripið var til í október á liðnu ári.
„Þær áætlanir hafa gengið eftir, þær aðgerðir
sem gripið var til vegna hagræðingar í rekstri á
síðastliðnu áru eru nú að skila sem svo sem að
var stefnt,“ sagði Vignir.
Nokkur aukning hefur orðið á aðkeyptri þjón-
ustu og skýrir að hluta þá hækkun sem orðið hef-
ur á almennum rekstrargjöldum. Lyfjakostnaður
hefur á móti lækkað um 5% milli ára sem rekja
má til aðhalds í lyfjanotkun og hagkvæmari inn-
kaupa í kjölfar útboðs.
Umfang starfseminnar er svipað á milli ára og
biðlistar hafa minnkað í öllum sérgreinum.
„Við erum sátt við stöðuna, það er jafnvægi í
starfseminni. Okkar markmið er að halda starf-
seminni innan áætlunar og vonandi tekst okkur
það. Við vitum hins vegar að það má afar lítið út
af bera í þessum rekstri, eitt dýrt tilvik getur
sett strik í reikninginn, en þá er bara að finna
leiðir til að hagræða á móti,“ sagði Vignir.
Rekstur FSA í samræmi við áætlanir að sögn framkvæmdastjórans
Rekstrargjöld 13 milljón-
ir umfram fjárveitingar
NEYÐARSÍMI, sem settur var upp
í Kjarnaskógi fyrir nokkrum árum,
var nýlega skemmdur. Hlustin var
tekin úr honum, þannig að sá sem
tekur upp tólið heyrir ekkert í lög-
reglunni – en þangað liggur bein lína
úr símanum – en lögreglan heyrir
hins vegar í viðkomandi því míkró-
fónninn í símanum er á sínum stað.
Ársæll Magnússon vakti athygli
Morgunblaðsins á þessu. Hann er
formaður Félags hjartasjúklinga á
Eyjafjarðarsvæðinu. Meðlimir þess
ganga mikið um í skóginum og félag-
ið hafði einmitt forgöngu um það á
sínum tíma að síminn var settur upp.
„Síminn var reyndar settur upp fyr-
ir tíma gemsanna, þannig að hann er
líklega ekki jafnnauðsynlegur og þá
en þó er slæmt að hann skuli ekki fá
að vera í friði. Einhver gæti þurft á
símanum að halda sem ekki væri
með gemsa,“ sagði Ársæll við Morg-
unblaðið.
Morgunblaðið/Skapti
Ársæll Magnússon, formaður Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæð-
inu, við neyðarsímann í Kjarnaskógi.
Neyðarsími í
Kjarnaskógi
skemmdur
STARFSMENN Háskólans á Ak-
ureyri bjóða um þessar mundir
íbúum Akureyrar og Suður-
Þingeyjarsýslu upp á heimsóknir
og svo verður næstu vikur. Mark-
mið þeirra er að taka viðtöl við
einstaklinga sem fæddir eru fyrir
1940 og nýta viðtölin í rannsókn-
arverkefni sem kallast Heilsu-
tengdir hagir eldra fólks í dreifbýli
og þéttbýli.
Elín Díana Gunnarsdóttir sál-
fræðingur og Sólveig Ása Árna-
dóttir, sjúkraþjálfari, báðar lekt-
orar við Háskólann á Akureyri
fengu á dögunum rannsóknarstyrk
frá Háskólanum á Akureyri og
KEA, en hann gerði þeim kleift að
gera hugmynd þessa að veruleika.
Einnig taka þátt í verkefninu tveir
hjúkrunarfræðingar og lektorar
við Háskólann á Akureyri, Hafdís
Skúladóttir og Ásrún Sigurð-
ardóttir. Þá hafa rannsakendur
fengið til liðs við sig þrjá nem-
endur úr Háskólanum á Akureyri,
sem munu ferðast milli staða og
taka viðtöl við þátttakendur nú í
sumar. Liðsaukinn er nauðsyn-
legur þar sem 250 einstaklingum
verður boðin þátttaka. Af þeim eru
160 búsettir á Akureyri og 90 í
dreifbýli Suður-Þingeyjarsýslu.
Markmið rannsóknarinnar er að
afla upplýsinga um ýmsa þætti
sem tengja má heilsu á efri árum,
m.a. hreyfingu og hreyfingarleysi,
langvinna verki, streitu og aðgengi
að ýmis konar heilbrigðis- og fé-
lagsþjónustu. Sérstök áhersla
verður lögð á að bera saman hagi
fólks í dreifbýli og þéttbýli. Vonir
eru bundnar við að niðurstöður
rannsóknarinnar verði nýttar til að
byggja upp þjónustu vð eldri Ís-
lendinga jafnt í dreif- og þéttbýli.
Rannsaka
heilsu eldri
Norðlendinga
BROTIST var inn í hús Siglinga-
klúbbsins Nökkva við Höephner að-
faranótt mánudags. Sá eða þeir
sem þar voru á ferð söguðu sig inn
um glugga á húsinu og höfðu á
brott með sér fjóra siglingagalla,
bæði blautgalla og þurrbúninga,
alla í fullorðinsstærðum. Þeir voru í
eigu félaga í siglingaklúbbnum og
kosta allt að 60 þúsund krónur
hver, þannig að um töluvert tjón er
að ræða fyrir eigendurna. Annað
var ekki tekið í innbrotinu, þannig
að ljóst þykir að þjófarnir voru á
höttunum eftir umræddum göllum.
Þeir sem kunna að hafa séð til
mannaferða á svæði siglinga-
klúbbsins aðfaranótt mánudags eru
beðnir um að láta lögreglu eða
Nökkva vita.
Siglingagöllum
stolið
AÐALSTEINN Helgason, fram-
kvæmdastjóri landvinnslu Sam-
herja, hefur ákveðið að láta af störf-
um hjá félaginu á þessu ári. Gestur
Geirsson tekur við starfi hans 1. júlí
nk.
Aðalsteinn hefur starfað hjá Sam-
herja og tengdum félögum frá árinu
1992 eða samtals í tólf ár. Í sumar og
fram á haust mun Aðalsteinn vinna
við erlend verkefni sem tengjast
starfsemi Samherja.
Gestur hefur stjórnað rækju-
vinnslu félagsins undanfarin ár.
Hann útskrifaðist sem sjávarútvegs-
fræðingur frá Háskólanum á Ak-
ureyri árið 1995 og hefur starfað hjá
Samherja frá þeim tíma.
Gestur tekur við
af Aðalsteini