Morgunblaðið - 10.06.2004, Síða 22
SUÐURNES
22 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Glæsilegt einbýlishús, Foss-
vogsmegin í Kópavogi, byggt
árið 1998. Húsið er 172 fm,
auk þess sérstæður bílskúr 32
fm. Allt fullfrágengið á vandað-
asta máta - góð staðsetning. Í
húsinu eru m.a. 3 stór svefnherbergi, stórar stofur, tvö bað-
herbergi og stórt eldhús o.fl. Opið hús í dag frá kl. 18-21.
OPIÐ HÚS Í DAG – EINBÝLI
ASPARGRUND 3 - KÓPAVOGI
Tilvalin fyrir verslun eða aðra starfsemi. Frábær staðsetning í nágrenni
við öflug fyrirtæki. Nr. 3a er ca 250 fm jarðhæð og 130 fm 2. hæð. Nr. 3b
er ca 250 fm jarðhæð og 130 fm 2. hæð. Hægt er að opna á milli.
Hæðirnar hafa sérinngang svo mögulegt er að leigja þær sér.
Upplýsingar í síma 897 3703 og ester@bakkar.is
TIL LEIGU - ATVINNUHÚSNÆÐI
SKEIFAN 3a og 3b
Njarðvík | „Ég var í popp- og rokk-
hljómsveitum þegar ég var yngri,
alltaf söngvari. Með árunum hefur
tónlistaráhuginn hins vegar þróast í
þessa átt,“ sagði Rúnar Þór Guð-
mundsson tenór í samtali við Morg-
unblaðið, en hann mun á laugardag
halda sína fyrstu einsöngtónleika.
Rúnar Þór hefur verið að læra
söng á undanförnum sex árum, fyrst
í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en
er nú í einkatímum í Reykjavík, „til
að vinna með röddina“, eins og Rún-
ar Þór orðar það sjálfur. Hann hefur
lokið miðstigi í söng en sagðist í
samtali við blaðamann ekkert vera
að einblína á stigpróf í augnablikinu,
heldur röddina. „Ég byrjaði hjá Sig-
urði Sævarssyni í tónlistarskólanum
hér en flutti mig síðan í Söngskólann
í Reykjavík þar sem ég nam hjá
Guðmundi Jónssyni. Á undanförnum
árum hef ég hins vegar verið í einka-
tímum, fyrst hjá Sigurði Demenz en
nú hjá Gunnari Guðbjörssyni,“ sagði
Rúnar og bætti við að veganestið frá
þessum ólíku kennurum væri gott.
Að undanförnu hefur Rúnar Þór
verið að koma lítillega fram, aðallega
í brúðkaupum og jarðarförum, en
hann söng einnig á krýningarkvöldi
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja í
síðasta mánuði. „Ég hafði nú svo
sem ekkert hugsað um að halda tón-
leika, en það hafa svo margir verið
að ýta á mig og benda mér á að ég
þurfi að kynna mig, svo ég ákvað að
láta til leiðast.“
Tónleikar Rúnars Þórs verða í
Listasafni Reykjanesbæjar, Duus-
húsum, laugardaginn 12. júní kl. 16
og á dagskrá verða bæði þekkt ís-
lensk sönglög og erlend, en einnig
ítalskar aríur.
Þeim sem þekkja til Rúnars Þórs
finnst sennilega með ólíkindum
hvernig hann finnur tíma til þess að
sinna þessu áhugamáli sínu. Með
vinnu er fjölskyldan að byggja sér
einbýlishús, börnin eru orðin þrjú og
eiginkonan er einnig í námi samhliða
vinnu. „Ég fer inneftir að jafnaði
einu sinni til tvisvar í viku en það er
nauðsynlegt að hafa eitthvað annað
fyrir stafni en þetta daglega amst-
ur,“ sagði Rúnar að lokum og ekki
ósennilegt að íbúar við Lágseylu í
Innri-Njarðvík eigi eftir að heyra
ómþýðan söng í bland við hamars-
höggin.
Ungur tenór heldur sína fyrstu einsöngstónleika
Söngurinn nauðsynlegur
í hinu daglega amstri
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Tenór: Söngurinn hljómar um íbúðahverfið þar sem Rúnar Þór Guðmundsson er að byggja sér hús, að minnsta
kosti meðan hann æfir sig fyrir fyrstu einsöngstónleikana. Tónleikar hans verða í Duushúsum á laugardag.
FJÖLBRAUTASKÓLI Suðurnesja
verður með kennslu á flugþjónustu-
braut á vormisseri. Um er að ræða
starfsnám í þjónustu við flugfarþega
og er brautin skipulögð í samstarfi
við Flugþjónustuna á Keflavíkur-
flugvelli (IGS).
Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur
sett sér þá stefnu að byggja upp
námsbrautir í tengslum við atvinnu-
lífið á svæðinu og er nýja flugþjón-
ustubrautin liður í því, að sögn Ólafs
Jóns Arnbjörnssonar skólameistara.
Námið hefur verið undirbúið í tæp
þrjú ár, í samvinnu við Flugþjón-
ustuna á Keflavíkurflugvelli, sem er
dótturfélag Flugleiða og annast
þjónustu fyrir Icelandair og fleiri
flugfélög á Keflavíkurflugvelli.
Starfsemi í fluginu er að aukast
mjög og áætlað að farþegarflutning-
ar eigi eftir að aukast mjög á næstu
árum. Það kallar á aukna menntun
og þjálfun í þeim starfsgreinum sem
tengjast henni, segir í kynningu um
námið á vef Fjölbrautaskólans.
Starfsnám á
Keflavíkurflugvelli
Námið stendur eina önn, samtals
22 einingar, og á að undirbúa nem-
endur fyrir vinnu við innritun og
bókun og alla almenna þjónustu við
ferðafólk. Bóklegt nám fer fram í
skólanum en starfsnámið hjá IGS á
Keflavíkurflugvelli.
Ætlast er til að nemendur hafi lok-
ið um það bil þriggja ára námi á
tungumálabraut framhaldsskóla til
að geta skráð sig á brautina og vera
orðnir nítján ára. Einnig er fólk sem
orðið er 25 ára og hefur víðtæka
starfsreynslu hvatt til að sækja um
þótt það fullnægi ekki almennum
forkröfum.
Flugþjónustubrautin er sú eina á
landinu og á skólameistarinn von á
að nemendur komið víðar að en af
Suðurnesjum. Fjöldi nemenda verð-
ur þó takmarkaður. Miðað er við 24
nemendur. Ef vel tekst til vonast
Ólafur Jón til að framhald verði á
þessu námi við skólann.
Nám á flugþjónustubraut getur
verið hluti af námi til stúdentsprófs
en það veitir ekki sérstök starfsrétt-
indi. Ólafur Jón segir mikilvægt að
nemendur verði í starfsnámi undir
handleiðslu starfsmanna IGS og það
ætti að auka möguleika þeirra á
starfi við innritun og aðra þjónustu
við flugfarþega að námi loknu.
Innritun á flugþjónustubrautina
stendur yfir til 11. júní.
Nýjung í starfsemi Fjölbrautaskóla Suðurnesja kynnt
Morgunblaðið/Ásdís
Innritun: Nemendum flugþjónustubrautar verður meðal annars kennt að
innrita farþega í flug. Myndin er tekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Kennsla á flugþjón-
ustubraut á vormisseri
Fór alla leið | Ökumaður sem
lögreglan í Keflavík mældi á 119
kílómetra hraða á Reykjanesbraut
í fyrradag sinnti ekki fyrirmælum
lögreglu um að stöðva bifreið sína.
Hann hélt áfram og stansaði ekki
fyrr en hann var kominn á leið-
arenda í Keflavík. Lögreglan tek-
ur fram á vef sínum að hraði öku-
tækisins hafi ekki verið mikill eftir
að lögreglan hóf afskipti sín en
ökumaðurinn borið því við að hann
hefði verið að flýta sér á staðinn.
Rótað í skápum | Brotist var inn
í íbúðarhúsnæði við Uppsalaveg í
Sandgerði í fyrrakvöld. Lögreglan í
Keflavík fékk tilkynningu um inn-
brotið upp úr miðnætti. Farið hafði
verið inn um opið lausafag á glugga.
Þaðan var stolið nokkrum vín-
flöskum. Búið var að róta til í skápum
og skúffum um allt hús. Ekki er vitað
hver eða hverjir voru hér að verki.
SKOÐUNARFERÐIRNAR sem
Upplýsingamiðstöð Reykjaness
skipuleggur standa enn yfir. Í
kvöld verður farið um Innri-
Njarðvík með
Áka Granz. Lagt
verður af stað frá
Innri-Njarðvík-
urkirkju klukkan
20, gengið með
ströndinni og til
baka að kirkj-
unni. Ferðinni
lýkur með kaffi-
sopa í Kaffitári.
Upplýsingamiðstöðin stendur
fyrir alls sjö skoðunarferðum um
öll sveitarfélögin á Suðurnesjum
og er gangan í kvöld sú fimmta
og þær tvær sem eftir eru verða
farnar næstu fimmtudaga.
Samkvæmt upplýsingum frá
Upplýsingamiðstöðinni hefur
þátttaka verið góð en hún hefur
nokkuð farið eftir veðri hverju
sinni. Í síðustu viku þegar farið
var um Hafnir mættu sjötíu
manns.
Dagskrá skoðunarferðanna er
meðal annars unnt að nálgast í
Upplýsingamiðstöð Reykjaness og
á vefnum www.reykjanes.is.
Skoðunarferð um
Innri-Njarðvík
Grindavík | Linda Oddsdóttir og
Sigrún Júlía Hansdóttir sýna verk
sín um þessar mundir í listsýning-
arsal Saltfiskseturs Íslands í
Grindavík. Sýningin var opnuð síð-
astliðinn laugardag, í tengslum við
sjómannadagshátíðina Sjóarann sí-
káta.
Verk Lindu eru með yfirskrift-
inni: Sérð þú það sem ég sé? Mynd-
efnið er aðallega sótt í náttúru
landsins og í gamla tíma í Grinda-
vík. Öll verkin eru unnin í olíu og
flest á þessu ári.
Verk Rúnu Hans eru með yf-
irskriftinni Um mig, frá mér, til
þín. Hún er að mestu leyti sjálf-
menntuð í myndlistinni en hefur
aflað sér þekkingar á fjölda mynd-
listarnámskeiða og í námi í iðn-
skóla.
Sýningin er í Listsýningarsal
Saltfiskseturs Íslands og stendur til
4. júlí. Salurinn er opin alla daga
frá klukkan 11 til 18.
Sýna saman
í Saltfisksetrinu
Reykjanesbær | Stjórnsýsla
Reykjanesbær er í efsta flokki sam-
anburðarsveitarfélaga á heimsvísu,
samkvæmt niðurstöðum Bertels-
mannprófs, sem er alþjóðlegur stað-
all og próf sem mælir gæði í stjórn-
sýslu sveitarfélaga. Þetta kom fram
á kynningu Haralds Baldersheim,
prófessors við Oslóarháskóla, á
fundi vinabæja í Finnlandi, að því er
segir í frétt á heimasíðu Reykjanes-
bæjar.
Vitnað er í Baldersheim og sagt að
vel á annað hundrað sveitarfélög í
Evrópu og Norður-Ameríku séu
þátttakendur í Bertelsmann-
prófinu. Reykjanesbær sé í hópi tíu
efstu. Ekki er vitað til að önnur
sveitarfélög hér á landi noti þennan
stjórnsýslumælikvarða.
Trollhattan, vinabær Reykjanes-
bæjar í Svíþjóð, varð efsta sveitarfé-
lagið í þessum samanburði og standa
sænsk sveitarfélög framarlega á
þessu sviði. Stigafjöldi Reykjanes-
bæjar samsvarar þó árangri annars
og þriðja sveitarfélagsins þar.
Stjórnsýsla
Reykjanesbæjar
fær góða dóma