Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 24
AUSTURLAND
24 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Seyðisfjörður | Fyrsta Ceilidh-
hátíð á Íslandi hefst á Seyðisfirði í
dag og stendur fram á sunnudag.
Orðið Ceilidh, sem borið er fram
keilí, er gelíska og þýðir heimsókn
eða öllu heldur gleðskapur með þjóð-
lagatónlist- og dansi, þar sem fólk á
öllum aldri tekur þátt sem hlustendur
eða með dansi, spilamennsku og söng
á mjög óformlegan máta.
Muff Worden, skipuleggjandi tón-
listarhátíðarinnar, segir Smyril-Line
hafa gefið farmiða með Norrænu til
þess að Ceilidh-sveitir frá Norður-
Skotlandi, Hjaltlandseyjum og Fær-
eyjum geti siglt sér að kostn-
aðarlausu til og frá Seyðisfirði og
verður til endurgjalds spilað um borð.
„Á Seyðisfirði hitta tónlistar-
mennirnir Ceilidh-band Seyð-
isfjarðar og Didda fiðlu, ásamt fleira
tónlistarfólki og áhugamönnum og
verða haldin námskeið um þjóðlaga-
tónlist, dans, þjóðsögur og um hljóð-
færaleik og tónlistarstíl þeirra landa
sem þátttakendur koma frá“ segir
Muff. „M.a. verður námskeið í því
hvernig spila skal á gyðingahörpu.
Námskeiðin verða öllum opin.“
Á meðan hátíðin stendur yfir spila
Ceilidh-sveitirnar á öldur- og kaffi-
húsum Seyðisfjarðar og sunnudaginn
13. júní kl. 14 verða svo haldnir sam-
eiginlegir stórtónleikar í Herðubreið
með þeim öllum til samans.
Eftir kynnisferð um landið verður
efnt til annarra stórtónleika á
Seyðisfirði laugardagskvöldið 16.
júní, kvöldið áður en Ceilidh-sveit-
irnar láta úr höfn og sigla utan.
Vilji menn skrá sig á námskeiðin er
hægt að hafa samband við Muff
Worden í s. 472-1775 eða með raf-
pósti til www.geocities.com/
mworden.geo/.
Aðrir meginstyrktaraðilar hátíð-
arinnar eru RARIK, Menningarráð
Austurlands og Seyðisfjarðarkaup-
staður.
Þjóðlagatónlistin tekur völdin með námskeiðum og tónleikahaldi upp um alla veggi
Ceilidh-
hátíð á
Seyðisfirði
Ljósmynd/Einar B. Bragason
Ástríður og ærsl í tónum: Fulltrúar Íslands á Ceilidh-hátíðinni, Muff Worden lengst til vinstri.
Egilsstaðir | Menntaskólinn á Egils-
stöðum útskrifaði fimmtíu og níu
stúdenta í ár og hafa þeir aldrei
verið jafn margir. Lára Guðlaug
Jónasdóttir skaraði fram úr í
námsárangri og Andri Mar Jónsson
hlaut viðurkenningu fyrir góðan
árangur í raungreinum frá
Verkstjórafélagi Austurlands.
Fimm nemendur luku stúdents-
prófi á þremur árum og mæðg-
urnar Margrét Urður Snorradóttir
og Dagný Erla Ómarsdóttir útskrif-
uðust samtímis. Sömuleiðis systk-
inin Pétur Gíslason og Anna Guð-
laug Gísladóttir.
Það þótti táknrænt fyrir bjarta
framtíð nýstúdenta að í fremur
þungbúnu veðri útskriftardagsins
brutu sólargeislarnir sér leið niður
úr skýjaþykkninu og ferskir sum-
arvindar blésu kólgubökkum á
brott þegar gengið var til lokahá-
tíðar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Glæsilegur og vonglaður hópur: Aldrei hafa útskrifast jafnmargir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum eins og í ár.
Aldrei fleiri nýstúdentar brautskráðir frá ME
Djúpivogur | Tónskóli Djúpavogs
býður upp á æfingabúðir fyrir tón-
listarnemendur á grunnskólaaldri í
sumar. Svavar Sigurðsson, skóla-
stjóri skólans, segir að hugmyndin
sé sú að börnin komi á Djúpavog í
nokkra daga og stundi fjölbreytt
tónlistarnám. Þar verður m.a. boðið
upp á kennslu í popp- og rokk-
tónlist en einnig í klassískri tónlist.
„Hér ættu öll börn sem stunda tón-
listarnám að finna eitthvað við sitt
hæfi. Æfingabúðirnar verða sniðn-
ar eftir þörfum hvers og eins með
áherslu á allskyns samspil,“ segir
Svavar en auk þess verður boðið
upp á ýmiskonar afþreyingu eins
og gerist í „hefðbundnum“ sum-
arbúðum. „Hér á Djúpavogi er frá-
bær íþróttaaðstaða og ný sundlaug
auk þess sem umhverfið býður upp
á óteljandi möguleika á útiveru. Á
sumrin kemur hingað fjöldinn allur
af ferðamönnum sem við munum að
sjálfsögðu nýta okkur sem áheyr-
endur,“ sagði Svavar að lokum.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Telur í taktinn hjá Seyðfirðingum:
Svavar Sigurðsson verður með
músíkalskt námskeiðahald á Djúpa-
vogi á næstunni.
Rokkað og raulað
á Djúpavogi
Reyðarfjörður | Ferðafélag Fjarða-
manna gekkst fyrir fjöruferð á dög-
unum. Gengið var frá gamla bæn-
um á Sómastöðum (1.875), niður að
sjó og eftir fjörunni út að Hrauni en
fararstjóri var Ína Gísladóttir og
skiptust göngumenn á sögum af
svæðinu. Þessar fjörur fara undir
hafnarsvæði á næstu mánuðum
vegna álversframkvæmda.
Líflegt var við sjóinn, selur lá á
kletti en synti síðan í fjöruborðinu
og flygdist með gönguhópnum.
Hreiður sjófugla eru víða og fylgd-
ust þeir grannt með ferðalöng-
unum. Við Mjóeyrina í landi Sóma-
staða eru gamlar steinhleðslur frá
búskapartíð Hans Beck bónda á
Sómastöðum. Hans Beck (1838–
1920) bjó bæði á landi og sjó eins og
sagt var í þá daga og fylgdist vel
með nýjungum og tækni sem Norð-
menn fluttu með sér til landsins.
Talið er að Hans hafi verið fyrsti
bóndinn á Íslandi sem keypti nóta-
brúk og stundaði síldveiðar með
því. Ef til vill var hann eini bóndinn
sem kunni þessa veiðiaðferð til hlít-
ar en hann og Eiríkur Björnsson á
Karlsskála keyptu útgerð af manni
sem Mickelson hét og hafði byggt
sér hús við sjóinn fram og niður af
Sómastöðum. Þessar land-
nótaveiðar voru stundaðar lengi frá
Sómastöðum.
Fjöruganga
Fjarðamanna
Djúpivogur | Það var glatt á hjalla á Hótel Framtíð á
Djúpavogi þegar útskriftarárgangur ’52 úr Kennara-
skóla Íslands hittist og skemmti sér saman.
Af rúmlega þrjátíu manns úr árganginum mættu tutt-
ugu. Þau hafa hist nokkuð reglulega undanfarin ár, en
þar sem tíminn er tekinn að sækja að þeim með vaxandi
þunga mun ráðgert að hittast árlega framvegis.
„Við tókum kennarapróf árið 1952 frá Kennaraskóla
Íslands og vorum seinasti árgangurinn sem tók próf frá
gamla Kennaraskólanum með því sniði,“ segir Vilborg
Dagbjartsdóttir, kennari og rithöfundur, ein af þeim sem
rifjuðu upp gömul kynni á Djúpavogi. „Já, við vorum í
miklu ástfóstri hjá elskuðum skólastjóra okkar, Frey-
steini Gunnarssyni. Fórum út í lífið til þess að verða
kennarar og höfum öll, nema einn, verið í kennslu og
margir starfað alla sína ævi.“
Aldursforseti hópsins er Hálfdán Haraldsson, en hann
kenndi á Norðfirði í 43 ár og býr þar enn. Hann segist
fæddist norður við Bakkaflóa, á Langanesströndum, en
hafi byrjað og endað kennaraferil sinn á Norðfirði.
Hópurinn mun að ári ætla að hittast á suðvesturhorn-
inu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Glatt yfir gömlum kennurum: Þau útskrifuðust ’52 úr Kennaraskólanum og hafa fylgst að gegnum tíðina.
Þau útskrifuðust fimmtíu
og tvö og láta ekki deigan síga
Breiðdalur | Hreppsnefnd Breið-
dalshrepps ályktaði á fundi sínum í
maílok um slæmt ástand þjóðvegar 1
um Breiðdal, Breiðdalsheiði og
Skriðdal til Egilsstaða: Hrepps-
nefnd Breiðdalshrepps minnir á
harðorðar ályktanir sínar frá síðast-
liðnu ári og þessu ári vegna ástands
þjóðvegar nr. 1 um Breiðdal, Breið-
dalsheiði og Skriðdal til Egilsstaða.
Þrátt fyrir áðurnefndar ályktanir og
góð orð um úrbætur bólar enn ekk-
ert á nauðsynlegum framkvæmdum
við lagfæringar á veginum. Veg-
urinn er afar grýttur, svo grýttur að
bílar verða daglega fyrir skemmd-
um, bæði á lakki og dekkjum við að
fara þessa leið. Hreppsnefnd Breið-
dalshrepps ítrekar enn og aftur
áskoranir sínar um tafarlausar úr-
bætur áður en aðalumferðartími árs-
ins gengur í garð.
„Það er búið að vinna efni í mal-
arslitlag á þetta allt saman“ segir
Einar Þorvarðarson, umdæmisstjóri
hjá Vegagerðinni. „Það verður reynt
að fara að keyra því út á næstu dög-
um og þá ætti þessi leið öll að verða
góð eftir það. Við yfirkeyrum allan
kaflann frá Sandfelli í Skriðdal og
niður fyrir Ásunnarstaði í Breiðdal.“
Einar reiknar með að þetta taki um
hálfan mánuð og verði því búið áður
en ferðamannastraumurinn hefst af
fullum þunga um þessar slóðir.
Grýtt er
sú braut
Egilsstaðir | Nú standa yfir lagfær-
ingar á veginum um Fagradal, á
milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar,
frá Mjóafjarðarvegamótum upp að
Kofa. Vænta má að þessar fram-
kvæmdir tefji
fyrir umferð
meðan þær
standa yfir,
eitthvað fram
eftir þessum
mánuði.
„Þetta
klárast í sum-
ar“ segir Ein-
ar Þorvarð-
arson, umdæmisstjóri hjá
Vegagerðarinni. „Vonandi í júlí. Það
er verið að lagfæra veginn núna,
laga skeringar og bæta í vegaxlir, en
í júlí verður hann bikfestur frá
Mjóafjarðarvegamótunum og upp að
Kofa og klætt yfir aftur. Síðan er
kafli á Reyðarfirði, frá Melshorninu
og út undir ristarhlið sem verður
tekinn líka og þá er búið að styrkja
allan Fagradal. Þá verður að fullu
lokið þriggja ára löngum end-
urbótum á veginum um Fagradal.“
Aldrei gerst áður að Vega-
gerðin fái ekki tilboð í verk
Einar segir jafnframt að nú sé
verið að gera hringtorg innan við
Reyðarfjörð og nýjar tengingar inn í
bæinn. „Þetta var boðið út um dag-
inn og við fengum ekkert tilboð. Það
mun vera í fyrsta sinn sem það ger-
ist. Þetta er svolítið sérhæft verk og
kannski ekki áhugavert fyrir þessa
stóru jarðvinnuverktaka. Lítið magn
og dútl við þetta þannig að við
vinnum þetta þá sjálfir og semjum
um einstaka verkþætti við verktak-
ana. Svo er Arnarfell að byrja á veg-
inum niður að nýju álhöfninni og síð-
an verður haldið áfram með veginn í
átt til Eskifjarðar frá Sómastöðum
og út að Hólmum. Þeir fara að byrja
á því á næstunni.“
Leiðin niður að álvershöfninni var
færð frá upphaflegu skipulagi. Vega-
mótin að höfninni verða rétt neðan
við Framnes til að fá hallaminni veg.
Einar segir ástand á vegum Aust-
anlands annars mjög gott um þessar
mundir.
Þriggja ára
endurbótum í
Fagradal að ljúka