Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 29
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
HERRASANDALAR
Litur: Svartur
Stærðir: 40-46
VERÐ ÁÐUR 4.995
VERÐ NÚ 2.995
ELLEFU gjörólík tónskáld á
sama matseðli ættu að veita gull-
tryggingu fyrir fjölbreytni. Því
voru fámennu heimturnar að bráð-
skemmtilegu tónleikum rúmensk-
húsvíska píanóleikarans Aladárs
Rácz í Salnum í hrópandi ósam-
ræmi við væntingar. Annars er
maður löngu hættur að taka mark
á aðsókn sem gæðamælakvarða per
se. Til þess hafa góðir tónleikar of
oft verið sniðgengnir – og öfugt.
Aladár Racz (f. 1967) er þegar
bæði sjóaður og sigldur konsert-
píanisti og á einnig nokkra geisla-
diska að baki. M.ö.o. ekki afleitt
dæmi um þá vel menntuðu atgerv-
isnýbúa á tónlistarsviði sem margir
hafa kosið að setjast hér að á síðari
árum, m.a. til ágóða fyrir tónlistar-
kennslu á landsbyggðinni; í hans
tilfelli sem kennari á Húsavík síðan
1999. Og hvað sem manni kynni
annars að finnast um meðferð hans
á fjölskrúðugu verkefnavali, þá var
það ýmist með eða á móti. Ekkert
miðjumoð. Hér fór skapmikill pían-
isti sem var greinilega eðlislægt að
koma á óvart – án tillærðra tikt-
úrna. Enda reyndist gjörsamlega
útilokað að láta sér leiðast.
Það átti jafnvel við um Bach,
sem hér þurfti eina ferðina enn að
sæta upphitunarhlutverki hjá lista-
manni er auðheyrilega var meira
gefinn fyrir eldheita rómantík.
Eins og oft kom fram í 3. Ensku
svítunni í g-moll, er mótaðist af
fullreikulli rúbatóvökurð fyrir minn
smekk, þó að sumt næði að heilla,
þökk sé einkum glimrandri fingra-
tækni og fallega syngjandi tóni.
Einfaldur Menúett Mozarts í G
K315G slapp fyrir horn, og ball-
ettleg Eccosaise Beethovens í Es
sömuleiðis, þótt bunuð væri fram á
hálfgerðum formúluhraða. Hins
vegar glitti fyrst í alvörutöfra
píanóljónsins hjá ljóðskáldi slag-
hörpunnar, Chopin. Mazúrkinn í f
Op. 68,4 var furðuviðkvæmur og
„Hetju“-pólónesan alkunna ridd-
araliðsárásargjörn við hæfi, en
Mínútuvalsinn í Des bar þó af fyrir
reiprennandi uppmælingafingralip-
urð. Það gleymdist að vísu að taka
tímann – mér vitandi hefur valsinn
aldrei verið rúbbaður af á sléttri
mínútu – en fróður maður í hléi
benti hins vegar á að „Valse min-
ute“ þýddi aðeins „Lítill vals“, og
má það vel vera.
Eftir hlé var skipt frá Steinway-
inum yfir á Bösendorferinn – „ung-
píuflygilinn“ eins og Árni Krist-
jánsson heitinn ku hafa dubbað
hljóðfæramerkið í gamni – jafnvel
þótt sum atgangshörðustu verkin
væru eftir. Harla óvenjulegt á ein-
um og sömu píanótónleikum. Blóð-
glettin þótt ekki alveg örðulaus út-
tekt Aladárs á sígaunamúsík Liszts
í 2. Ungversku rapsódíunni hreif
mann í botn, og eftir að vísu full-
geystan Vikivaka Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar (í raun færeyskt
þjóðlag) var tekizt á við eftirröð-
unartækni færeyska tónskáldsins
Sunleifs Rasmussen í Chaindance
with Shadows (1997); fruntaerfiða
framúrstefnu-regndropaprelúdíu er
nýtti óspart sostenutofetilinn með
diskant-staccato við bassastrengja-
enduróm. Stravinskíj-stykkin
Tango og Piano-Rag Music sýndu
góða tækni en náðu ekki að dansa.
Hins vegar bar af Rúmenskur dans
Bartóks nr. 1 í kraftþrunginni en
litríkri túlkun, og stuttu tvö síðustu
verkin, eftir A. Benjamin (Jamaic-
an Rumba) og Dave Brubeck
(Bossa Nova), opinberuðu óvenju-
mikla aukabreidd hjá klassískum
píanista, jafnvel þótt djasssveiflan
næði sem von var ekki fullkomnu
„laid back“ flæði.
Húsvíkingurinn frá Rúmeníu
TÓNLIST
Salurinn
Verk eftir J.S. Bach, Mozart, Beethoven,
Chopin, Liszt, Sveinbjörn Sveinbjörns-
son, Sunleif Rasmussen, Stravinskíj,
Bartók, Benjamin og Brubeck. Aladár
Racz píanó. Fimmtudaginn 3. júní kl. 20.
PÍANÓTÓNLEIKAR
Morgunblaðið/Eggert
„Úttekt Aladárs á sígaunamúsík
Liszts í 2. Ungversku rapsódíunni
hreif mann í botn,“ segir Ríkarður
Ö. Pálsson m.a. í umsögninni.
Ríkarður Ö. Pálsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111