Morgunblaðið - 10.06.2004, Síða 31
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 31
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
• Hagstætt verð
FÁLKINN ER KOMINN AFTUR!
Margar gerðir skúfhólka ásamt
hálsmenum, ermahnöppum
og bindisnælum.
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Nú þegar sumarið er skollið á styttist í hiðárlega Reykjavíkurmaraþon, en þaðverður haldið hinn 21. ágúst næstkom-
andi. Fyrir þá sem langar til þess að æfa fyrir
maraþonið, en vantar e.t.v. aðhald og aðstoð,
býðst nú að skrá sig í undirbúningshóp Reykja-
víkurmaraþonsins, sem hefur göngu sína, eða
öllu heldur hlaup sitt, í dag og mun æfa tvisvar í
viku fram að maraþoninu fyrir 7 og 10 km hlaup.
Skokkað verður á þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 17.30 undir handleiðslu Auðar
Ebenesersdóttur íþróttakennara.
Hjördís Guðmundsdóttir, íþróttastýra og
kynningarfulltrúi Reykjavíkurmaraþonsins, seg-
ist vonast eftir öflugri þátttöku í undirbúnings-
hópnum, en hann er öllum opinn, bæði byrj-
endum og vönum hlaupurum. „Markmiðið er að
efla áhuga fólks á skokki og veita þeim sem æfa
reglulega tækifæri til að fá sem mest út úr þjálf-
uninni með stuðningi og leiðsögn fagfólks.
Hlaupið verður frá Laugardalslaug og farnar
skemmtilegar leiðir um Laugardalinn. Þar er
einnig hægt um vik að stytta sér leið ef fólk
treystir sér ekki 7 eða 10 kílómetrana.“
Þátttökugjaldi er haldið í lágmarki að sögn
Hjördísar, en það nemur 3.000 krónum og inni-
falið í því er þátttaka í hlaupaæfingunum fram
að Reykjavíkurmaraþoni, auk þess sem þátttak-
endur fá gagnlega hluti í kaupbæti, s.s. hlaupa-
útvarp og Hlaupahandbókina 2004 eftir Gunnar
Pál Jóakimsson, sem inniheldur leiðbeiningar
um hlaupþjálfun.
Mikilvægt að byrja rétt
„Margir þekkja það að
byrja að hlaupa af miklum
krafti en missa svo niður
dampinn. Ekki vantar metn-
aðinn hjá fólki, en það er
ákveðin kúnst að fylgja metn-
aðinum eftir. Á kynningarfundi
sem haldinn var í gærkvöldi um und-
irbúningshópinn, var komið inn á ýmiss
konar fróðleik um hlaupaþjálfun, t.d. hvern-
ig best er að byrja, hvernig æfingar er gott að
gera og hvaða hlaupaleiðir eru á höfuðborg-
arsvæðinu. Þessar upplýsingar er hægt að
nálgast á heimasíðu okkar, nú eða með
því að skella sér í undirbúnings-
hópinn. Við gefum fólki síðan færi á
að vera með þótt það komist ekki í
hvern einasta tíma, t.d. getur það
unnið sjálft að hluta til,“ segir
Hjördís.
Aðspurð segir hún að leiðsögn fag-
fólks skipti miklu fyrir fólk sem hefur
áhuga á að taka hlaupið alvarlega, því ekki
nægi að hlaupa bara af stað, gæta þurfi að góð-
um skóbúnaði og að fylgja áætlun sem hentar
líkamsgerð og ástandi hvers og eins. Þá geti
hlaup með öðrum ráðið úrslitum um hvort fólki
tekst að komast yfir fyrsta hjallann og gera
hlaupið að reglulegum þætti í dagsins önn.
„Það gæti orðið skemmtileg reynsla fyrir fólk
TENGLAR
..........................
www.marathon.is
www.hlaup.is
heida@mbl.is
að taka þátt í
svona þjálf-
unarferli og ljúka
þessu síðan með
Reykjavíkurmaraþon-
inu,“ segir Hjördís.
Fyrsta æfing undirbún-
ingshópsins verður haldin
kl. 17.30 í kvöld, og verður
hlaupið frá anddyri Laug-
ardalslaugarinnar. Nán-
ari upplýsingar eru veitt-
ar í síma 535 3705.
Stuðningur fyrir þá
sem vilja skokka
Á HLAUPUM | Undirbúningur fyrir Reykjavíkurmaraþonið er hafinn
Hlaupþjálfun:
Hjördís hvetur
fólk til þátttöku í
undirbúnings-
hópnum.
„MARKMIÐIÐ er að æfa
börnin í að tjá sig í gegnum
leiklist og aðrar listgreinar
um lífið og upplifun þeirra
af því, “ segir Margrét Áka-
dóttir leiklistarmeðferð-
arfræðingur og leikona en
Dramasmiðjan ætlar í sum-
ar í samvinnu við for-
varnadeild Hafnarfjarð-
arbæjar að standa fyrir
leiklistarnámskeiðum fyrir
10 til 12 ára börn. Yfirskrift
námskeiðanna er „Það er
líka pláss fyrir mig!“ Nám-
skeiðum þessum er einkum
ætlað að auka félagslega
hæfni barna og sporna gegn
mismunun með vitsmunum.
„Við vitum að þær tilfinn-
ingar, sem fylgja því að vera
barn, geta oft valdið miklu álagi. Við
vitum líka að oft er einmitt erfitt að
tjá þessar tilfinningar, ekki síst ef
maður á erfitt með að nefna þær og
skilja. Leiklist er ein leið til að finna
og skilja tilfinningar.“
Taktfast ferli
Að sögn Margrétar eru nám-
skeiðin fyrir alla krakka, hressa
jafnt sem óhressa. „Ég kem til með
að nota aðferðir, sem ég hef lært um
og þróað í gegnum mitt mast-
ersnám, sem ég lauk frá University
of Hertfordshire í Bretlandi á gam-
alsaldri árið 2002. Mastersritgerðin
mín fjallar að hluta til um áhrif takts
til að örva minni, tal og tjáningu, en
segja má að eineltisferlið sé líka sí-
endurtekið taktfast ferli, sem mjög
erfitt er að komast út úr nema með
því að rjúfa taktinn. Leiklistin getur
í fyrsta lagi hjálpað til við að þekkja
ástand á borð við einelti. Þá er loks
hægt að freista þess að finna leiðir
til úrbóta svo að einstaklingurinn
komist út úr þessu óæskilega
ástandi.“
Sýning og samverustund
Margrét verður aðalkennari á
námskeiðunum ásamt Matthildi
Matthíasdóttur, söngvara og söng-
kennara, Sólveigu Þorbergsdóttur,
myndlistarkonu og
Lindu Hilmarsdóttur
líkamsræktarfrömuði í
Hress. Gestakennarar
verða m.a. Edda Björg-
vinsdóttir, Guðjón
Sigmundsson eða Gaui
litli, Guðrún Arnalds,
Jón Páll Hallgrímsson,
sálfræðingur hjá
Regnbogabörnum, og
Geir Bjarnason, for-
varnafulltrúi Hafn-
arfjarðar.
Unnið verður utan
dyra ef veður leyfir og
gagngert tekist á við
umhverfið. Hverju nám-
skeiði lýkur svo með
sýningu og sam-
verustund, sem nem-
endur vinna og þróa sjálfir.
Haldin verða samtals átta nám-
skeið og varir hvert þeirra í viku-
tíma, frá klukkan 9–17 virka daga.
Fyrsta námskeiðið hófst mánudag-
inn 7. júní. Námskeiðin fara fram í
Hvaleyrarvatnsskála og fer rúta frá
húsnæði Regnbogabarna við Mjó-
stræti í Hafnarfirði. Í námskeiðs-
gjaldinu, sem nemur 15 þúsund kr.,
er innifalin máltíð í hádeginu og
akstur til og frá Hvaleyrarvatns-
skála.
NÁMSKEIÐ| Spornað gegn mismunun með vitsmunum
Það er líka pláss fyrir mig
TENGLAR
.....................................................
www.dramasmidjan.is
Morgunblaðið/Eggert
Forvarnir: Með leiklist má finna og skilja tilfinningar,
segir Margrét Ákadóttir leiklistarmeðferðarfræðingur,
sem hér er ásamt valinkunnum hópi leiðbeinenda.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111