Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 41
möguleg málefni, þar sem hún átti
það svo oft til að koma með aðra sýn
á hlutina. Það lýsir henni vel í okkar
síðustu samskiptum, þegar hún með
miklum áhuga og jákvæðni var að
hvetja mig áfram í nýjum viðfangs-
efnum með mörgum góðum ráðum.
Það er mikið ríkidæmi að hafa átt
hana að í gegnum árin og mun ég
aldrei geta fullþakkað það.
Kæru Björn Davíð, Davíð Freyr,
Fjóla, systkinin, makar og frænd-
systkin. Ég og fjölskylda mín tileink-
um ykkur okkar hlýjustu hugsanir
og sendum okkar einlægustu samúð-
arkveðjur. Það er von okkar og vissa
að góðar minningar verði ykkur
styrkur í þessari sorg.
Megi hinar góðu minningar um
Siggu Stínu lifa um ókomna tíð.
Birna Björnsdóttir.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pét.)
Á erfiðustu stundu míns lífs stóð
Sigríður, eða Sigga eins og hún var
jafnan nefnd, við hlið mér á þann hátt
sem ég mun aldrei gleyma. Ekki datt
mér þá í hug að aðeins nokkrum ár-
um síðar myndi ég þurfa að kveðja
þennan trausta samkennara, þessa
lífsglöðu móður og eiginkonu, svo
langt um aldur fram. Að leiðarlokum
minnist ég áratuga samstarfs sem
aldrei bar skugga á, vináttu sem var
best þegar mest á reyndi og glað-
værðina og brosið sem einkenndi
hana alla tíð. Sigga var sönn hetja
sem gafst aldrei upp, lífsgleðin bar
alla skugga ofurliði.
Hún var brautryðjandi á sviði tón-
listarkennslu fyrir fatlaða og það var
stolt hennar að miðla þeirri dýrmætu
gjöf til nemenda sinna.
Ég kveð mína góðu vinkonu með
þakklæti og votta ástvinum hennar
mína dýpstu samúð.
Guð styrki ykkur í sorginni.
Þórunn Jónatansdóttir.
Kveðja frá starfsfólki
Fjölmenntar
Það líf var okkar lán, en henni sómi.
Hún leyndist nærri, og var þó stéttar prýði,
og það sem mörgum sóttist seint í stríði,
það sigraði’ hún með brosi og hlýjum rómi.
(Þorsteinn Erl.)
Þegar við kveðjum Siggu sam-
starfskonu okkar hér hjá Fjölmennt,
áður Fullorðinsfræðslu fatlaðra, er
okkur efst í huga hve mikils virði hún
var samstarfsfólki sínu.
Sigga var fyrirmyndarstarfsmað-
ur í öllu sem hún tók sér fyrir hendur
hér á vinnustaðnum. Hún var frábær
fagmaður og vann af óbilandi krafti
við að móta og efla tónlistarstarf hjá
Fjölmennt. Sigga og samstarfsfólk
hennar í tónlistinni hefur á undan-
förnum árum lyft grettistaki við að
gefa fötluðu fólki tækifæri til að
sinna tónslistariðkun og tónlistar-
sköpun. Þessari uppbyggingu hefur
Sigga sinnt af sannri hugsjón og
aldrei hvikað frá þeirri sannfæringu
sinni að fatlaðir gætu sinnt tónlist-
arnámi og sköpun til jafns við aðra.
Sigga var einnig mjög mikilvægur
meðlimur starfshópsins af öðrum
ástæðum. Það var mannbætandi að
umgangast hana og fylgdi henni
ferskur andblær hér á vinnustaðnum
fram á síðustu stundu. Hún lyfti upp
starfsandanum og smitaði okkur hin
af glaðværð sinni, hlýju og krafti.
Nemendur Siggu eru einnig harmi
slegnir yfir því að þurfa að horfa á
eftir henni. Þeir hafa misst mikið og
þau sterku tengsl sem Sigga mynd-
aði við nemendur sína munu seint
gleymast.
Við, starfsfólk Fjölmenntar, vilj-
um að lokum votta Birni, Davíð og
öðrum aðstandendum Siggu okkar
dýpstu samúð og sendum þeim hlýj-
ar kveðjur á þessum erfiðu tímum.
Fleiri minningargreinar um Sig-
ríði Kristínu Halldórsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Það er sárt að hugsa
til þess að Jón Þorvald-
ur sé látinn, ungur
maður í blóma lífsins.
Jón höfum við þekkt
frá fæðingu hans, fylgst
með uppvexti hans og
þroska. Munum litla glókollinn þar
sem hann sat við hliðina á dóttur okk-
ur í barnagrindinni. Séð hann þrosk-
ast í ljúfan og góðan dreng.
Ófáar voru stundirnar sem við fjöl-
skyldurnar tvær áttum saman hér
áður fyrr og margt var sér til gamans
gert. Minnisstæðar eru heimsóknir
til okkar erlendis, skíðaferð á Lang-
jökul og gisting í Húsafelli. Eins eru
ljúfar minningar tengdar heimilum
okkar beggja.
Það var gaman að hitta Jón á heim-
ili foreldra hans og ræða við hann um
allt milli himins og jarðar. Áhugasvið
hans var fjölbreytt og hann rökfastur
og fylginn sér.
Eftir því sem árin liðu, fækkaði
samverustundum en við fylgdumst
alltaf með honum og samglöddumst
honum í mörgum áföngum, nú síðast
doktorsvörninni sem fram fór með
glæsibrag.
Jón Þorvaldur valdi sér sálfræðina
og náði langt á þeirri braut. Okkur
fannst að þar hefði hann tekið rétta
stefnu og vorum ánægð með val hans.
Gurrý kom inn í líf hans og við
hjónin eigum þá frábæru minningu
að hafa verið á heimili foreldra hans
daginn sem Ingjaldur Bogi fæddist,
fyrsta barnabarn vina okkar.
Eftir að þau Gurrý fluttu til Nor-
egs brást ekki að til okkar kæmi kort
með mynd af drengjunum þeirra á
jólum og það var gott að fylgjast með
velgengni Jóns og Gurrýjar í námi og
JÓN ÞORVALDUR
INGJALDSSON
✝ Jón ÞorvaldurIngjaldsson
fæddist í Reykjavík
28. mars 1967. Hann
lést í Bergen í Nor-
egi 27. apríl og var
útför hans gerð frá
Akraneskirkju 7.
maí.
starfi og hvað fjölskyld-
unni leið vel í Bergen.
En skjótt skipast
veður í lofti og nú ríkir
sorg í fjölskyldu vina
okkar Ingu Jónu og
Ingjalds.
Við biðjum góðan
Guð að styrkja þau öll.
Lífsgöngu Jóns nú
lokið er.
Lifir eftir minning
kær.
Hún yljar okkur, þér
og mér,
og sorg að sefa nær.
Blessuð sé minning Jóns Þorvalds.
Gunnhildur og Gunnar.
Fyrir hönd samstarfsmanna, nem-
enda og vina við sálfræðideild Há-
skólans í Bergen langar mig að segja
nokkur orð í minningu Jóns Þorvalds
Ingjaldssonar.
Jón kom til Háskólans í Bergen
ásamt fjölskyldu sinni og hóf þar nám
í klínískri sálfræði haustið 1994. Þar
sem hann hafði numið sálfræði á Ís-
landi gat hann lokið kandídatsprófi á
styttri tíma en almennt gerist, eða
aðeins þremur og hálfu ári í stað
fimm ára, sem er venjulegur náms-
tími. Jafnskjótt og hann lauk prófi
var Jón ráðinn til starfa sem aðstoð-
armaður við rannsóknir. Lýsandi er
fyrir hæfileika hans er að aðeins
nokkrum mánuðum síðar hlaut hann
styrk til doktorsnáms undir hand-
leiðslu prófessors Jons Christians
Laberg. Rannsóknarmarkmið dokt-
orsritgerðar hans var að skoða hvort
dulvituð örvun hefði áhrif á ferli sem
tengjast löngun og virkri athygli
þeirra sem misnota áfengi. Jón lauk
þessu starfi vel innan þeirra fjögurra
ára sem ætluð voru til verksins og í
janúar 2003 varði hann doktorsrit-
gerð sína, sem var einkar frumleg og
ítarlega studd gögnum.
Að doktorsprófi loknu gegndi Jón
stöðu sérfræðings hjá stjórnenda-
stofnun norska hersins. Starfsstaður
hans var þó áfram sálfræðideild Há-
skólans í Bergen. Jón varði drjúgum
hluta fullorðinsára sinna hjá okkur
við deildina, fyrst sem nemandi og
síðar sem ungur samstarfsmaður. Á
þessu tíu ára tímabili átti hann glæsi-
legan feril sem ungur vísindamaður.
Hann hóf þann feril sem ötull náms-
maður og lagði með kandídatsritgerð
sinni grundvöllinn að rannsóknum
sínum í doktorsnámi og öðru starfi að
því loknu. Síðar jók hann við rann-
sóknarsvið sitt sem sneri að áfeng-
islöngun og -fíkn og beindi sjónum
einnig að spilafíkn. Hann hafði nýver-
ið hafið rannsóknir á stjórnun og her-
sálfræði og átti bjarta framtíð fyrir
höndum á því sviði.
Þó svo að Jón væri miklum hæfi-
leikum gæddur sem vísindamaður
voru almennir mannkostir hans þó
ekki síður mikilsverðir. Skrifstofa
mín var á sömu hæð og skrifstofa
Jóns í fjögur ár. Á þessum tíma
kynntist ég honum sem vingjarnleg-
um, samviskusömum, hlýjum og
stundum feimnum manni sem heils-
aði þó alltaf með bros á vör og einlæg-
um áhuga og var ætíð reiðubúinn að
bjóða fram hjálp sína og aðstoð.
Hann færði okkur ekki aðeins rann-
sóknarspurningar og vísindaumræð-
ur heldur einnig heimabakaðar smá-
kökur og hafði lúmska kímnigáfu sem
lýsti upp tilveruna.
Jón var ekki aðeins vel liðinn af
samstarfsmönnum sínum heldur
gegndi hann veigamiklu hlutverki á
meðal sálfræðinema og yngri nem-
enda í doktorsnámi. Hann hélt áfram
að deila hugðarefnum sínum á sviði
rannsókna með yngri nemendum í
doktorsnámi og hvatti þá til dáða í
rannsóknum sínum og veitti þannig
mikinn stuðning á starfssviði sem
einkennist oft af hörku og mikilli
samkeppni. Hann var orðlagður fyrir
hæfileika sinn til að örva áhuga yngri
nemenda á rannsóknum og hafði um-
sjón með rannsóknarritgerðum
þeirra og þjálfun með slíkum hætti að
við getum öll tekið hann okkur til fyr-
irmyndar. Stúdentaráð deildarinnar
sendir því kveðju sína í minningu
Jóns.
Eldri samstarfsmenn Jóns minn-
ast hans einnig sem vingjarnlegs og
örláts ungs vísindamanns sem hafði
alltaf áhuga á nýjum hugmyndum og
var ætíð fús til að miðla af þekkingu
sinni, hugmyndum og aðferðum.
Fyrir hönd allra okkar sem kynnt-
ust Jóni í Bergen vil ég koma á fram-
færi samúðarkveðjum okkar og
þeirri sorg og harmi sem við erum
slegin. Í dag eru hugsanir okkar
einkum og sér í lagi hjá ungum börn-
um Jóns, konu hans og ættingjum.
Odd E. Havik, rektor
sálfræðideildar Háskólans
í Bergen í Noregi.
Þriðjudaginn 27. apríl barst mér til
eyrna ein sú mesta harmafregn sem
mér hefur borist í minni tíð. Jón Þor-
valdur Ingjaldsson, minn æskuvinur
og félagi alla tíð, var látinn. Mig setti
hljóðan um tíð til að átta mig á stað-
reyndum. Kynni mín af Jóni ná
lengra en minni mitt rekur. Okkar
vinskapur var traustur frá okkar
fyrstu dögum og alla tíð síðar. Ég
ætla ekka að rifja hér upp okkar
prakkarastrik í æsku, ærsl og upp-
finningar á unglingsárum eða aðrar
minnisstæðar samverustundir þegar
á fullorðinsárin var komið því það
yrði of stórt rit. Ég vil því þakka Jóni
fyrir einstæða vináttu, allt frá barn-
æsku og alla tíð síðan. Ég votta að-
standendum öllum mína dýpstu sam-
úð.
Bjarki Sigurbjörnsson.
Mig langar til að
skrifa nokkur orð til
minningar um hann
afa minn. Margar
minningar rifjast upp
og eru þær nú flestar
tengdar bryggjunni og sjó-
mennsku. Mikið var oft að gera
niðri á bryggju og gaman að fylgj-
ast þar með. Þá var líka oft
skroppið í Búa og fengið eitthvað
gott í gogginn. Alltaf hafði afi frá
nógu að segja og sagði oft margar
og skemmtilegar sögur, sem oftast
voru tengdar sjómennskunni.
Hann vildi líka vera alveg viss um
að nógur saltfiskur væri til í
frystikistunni hjá okkur.
Afi hafði mjög gaman af börnum
og var oft búið að telja tær og
fingur. Ég eignaðist svo Særúnu
STEFÁN
STEFÁNSSON
✝ Stefán Stefáns-son fæddist að
Miðgörðum á Greni-
vík 14. október 1927.
Hann lést á Dalbæ,
heimili aldraðra á
Dalvík, 15. maí síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Dal-
víkurkirkju 28. maí.
Elmu á 73 ára afmæl-
isdaginn hans afa eða
fyrir nærri fjórum ár-
um. Það var mjög
gaman að það skyldi
hittast þannig á. Þau
voru mjög góðir vinir
og fannst henni alltaf
jafngaman að hitta
hann langafa, eins og
hún kallaði hann. Svo
fluttu afi og amma í
raðhúsið á móti okkur
og var mjög gott að
hafa þau í nágrenn-
inu. Særúnu fannst
einnig gaman að geta
rölt upp eftir og athugað inn um
eldhúsgluggann hvort einhver
væri heima.
En það er erfitt að kveðja hann
afa okkar og hefur margra spurn-
inga verið spurt, sérstaklega hjá
yngri kynslóðinni. Ein þeirra kom
frá Bertu Maríu en hún var að spá
í hvort hægt væri að veiða hákarla
í himnaríki.
Elsku afi, takk fyrir allar góðu
minningarnar sem við eigum um
þig.
Halla Davíðsdóttir
og fjölskylda.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Ástkær eiginkona mín, dóttir, systir, mágkona
og frænka,
EMILÍA SIGURSTEINSDÓTTIR
(Milla),
Blikanesi 29,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudag-
inn 11. júní kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja
minnast hennar, er bent á minningarsjóð Emilíu til styrktar heimilis-
lausum hundum. Reikningur nr. 515-14-608600.
Snorri Hallgrímsson,
Ágústína Berg, Sigursteinn Jónsson,
Heiðdís Sigursteinsdóttir, Vilhjálmur Þórðarson,
Hafdís Sigursteinsdóttir, Theodór K. Ómarsson
og frændsystkin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
ÞORBJÖRNS PÉTURSSONAR,
Gullsmára 9,
Kópavogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Svanhvít Guðmundsdóttir,
Guðrún J. Þorbjörnsdóttir, Jón Vilhjálmsson,
Guðmundur Þorbjörnsson, Ingibjörg Þorfinnsdóttir,
Oddrún Þorbjörnsdóttir, Gunnar Jónasson,
Svanþór Þorbjörnsson, Petrína Ólafsdóttir,
Katrín M. Þorbjörnsdóttir, Stefán Daði Ingólfsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.