Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 47

Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 47 FRÉTTASKRIF eru viðkvæmt verkefni, og gæði prentmiðla mark- ast af því með hvaða hætti upplýs- ingar eru settar fram. Þar skipta ekki ein- göngu máli orð og upplýsingar, heldur ekki síður það sam- hengi sem verður á milli þeirra. Frásögn- in felst ekki aðeins í því sem er sagt, held- ur einnig því sem kann að vera gefið í skyn. Þegar best lætur er texti í fréttagreinum dagblaða skýr, segir skilmerkilega frá við- fangsefninu og skilar lesendum óvéfengj- anlegum fréttum. Þegar verst lætur er texti samsettur þann- ig að óskyld efnis- atriði eru talin upp og þar með tengd saman; þá er eðlilegt að les- andinn dragi eigin ályktanir, oft á grunni takmarkaðra upplýs- inga. Sunnudaginn 6. júní birti Morg- unblaðið litla frétt af síðara taginu, sem verður að gera athugasemdir við. Þar hefur blaðamaður kosið að nota frétt af vefútgáfu dagblaðs í Ástralíu til að gefa ýmislegt í skyn um sama málaflokk hér á landi. Yf- irskrift fréttarinnar var: „Ástralsk- ir barnalæknar greindu börn rang- lega sem einhverf“. Greinin öll er aðeins 30 dálk- sentimetrar (að meðtalinni töflu, sem henni fylgir). Það tekur aðeins um fimmtung þess rýmis að segja fréttina frá Ástralíu. Afgangurinn af greininni fer í annað, og um leið byrjar blaðamaðurinn að gefa ým- islegt í skyn. Þar skal fyrst telja bollalegg- ingar blaðamanns um staðfesta fjölgun greininga einhverfu hér á landi, m.a. með framslætti eins og að „(fjölgunina) má að miklu leyti skýra með auknum rannsókn- um … og breyttum aðferðum við greiningu“, „nú eru fleiri einkenni talin til einhverfu en áður …“ og „greiningin fer fram á svokölluðu einhverfurófi í stað þess að fólk sé greint sem annaðhvort einhverft eða ekki“ o.s.frv. Síðan fjallar blaða- maðurinn um greining- arferlið hér á landi (án þess þó að nefna t.d. langa biðlista, sem þar eru til staðar), og teng- ir það bótagreiðslum (?). Loks bítur hann höfuðið af skömminni með því að rekja upp- hæðir umönnunarbóta og segja að auk þeirra standi fjölskyldum ein- hverfra barna „til boða ýmis úrræði hjá svæð- isþjónustunni.“ Hér segir blaðamað- ur stutta frétt úr fjar- lægu landi, og notar hana síðan til að tengja saman upplýsingar sem gefa óhjákvæmi- lega í skyn að fjöl- skyldur geti haft fjár- hagslegan hag af því að eignast einhverf börn. Í blaðamennsku telst slík framsetning sóðaskapur af versta tagi, og ég minnist þess ekki að hafa séð annað eins í ómerktri fréttagrein í Morgunblaðinu. Ég þekki t.d. enga foreldra ein- hverfra barna, sem ekki myndu fegnir skipta á umönnunarbótum – sem eru nýttar til að kosta aukna gæslu, aukið öryggi á heimilum, markvissa þjálfun og umönnun, sér- stakan kennslubúnað o.s.frv., o.s.frv., – og heilbrigðu barni. Að gefa annað í skyn er móðgun við hundruð aðstandenda einstaklinga á einhverfurófinu. Það væri að æra óstöðugan að reyna að fara efnislega í öll atriði þessarar litlu greinar og færa til raunveruleika einhverfra á Íslandi. En maður hlýtur að spyrja: Hvað er næst? Fréttir af trygg- ingasvikum í sjónmælingum í Moldavíu – og til frekari áréttingar upplýsingar um greiðslur Trygg- ingastofnunar til blindra og sjón- skertra á Íslandi? Fréttir af föls- uðum geðheilsuvottorðum í bandaríska hernum – ásamt með upplýsingum um kostnað íslenskra heilbrigðiskerfisins af geðheilbrigð- ismálum? Mér finnst Morgunblaðið setja verulega ofan með þessari vægast sagt einkennilegu blaðamennsku. Aukning greiningar einhverfu með- al barna í heiminum síðustu áratugi er staðreynd, líkt og aukning krabbameins meðal barna, aukning ofnæmis af öllu tagi og aukning geðrænna vandamála barna og ung- linga. Og þótt aðeins sé bent á eitt at- riði: auknar rannsóknir eru ekki or- sakir þessara vandamála, heldur eðlileg og sjálfsögð tilraun til að takast á við þau. Ég legg til að sá blaðamaður sem skrifaði þessa „frétt“ verði sendur í endurhæfingu, t.d. með því að starfa um vikutíma á dagvist fyrir einhverfa. Ef Morgunblaðið hefur raunverulegan áhuga á málum ein- hverfra – utan þess að gefa eitthvað vafasamt í skyn á grundvelli frétta úr fjarlægum heimshornum – má hins vegar benda blaðinu á að fimmtudaginn 10. júní nk. mun einn fremsti sérfræðingur heims á þessu sviði flytja fyrirlestur í húsi Ís- lenskrar erfðagreiningar. Það fyr- irtæki vinnur einmitt nú að einni viðamestu rannsókn heims á sviði einhverfu, þökk sé um 200 milljóna króna styrk frá bandarískum aðila. Þar er frétt sem vert væri að veita meiri athygli. Að skrifa frétt og að gefa í skyn Eiríkur Þorláksson fjallar um skrif Morgunblaðsins Eiríkur Þorláksson ’Mér finnstMorgunblaðið setja verulega ofan með þess- ari vægast sagt einkennilegu blaðamennsku.‘ Höfundur er formaður Umsjón- arfélags einhverfra. A4 / HG M GETUR það verið að æðstu ráðamenn þjóðarinnar, ráðherrar og þingmenn, viti ekki hvað þing- ræði er? Þeir fleipra hver eftir annan um „atlögu að þingræðinu“ og virðast telja að í orðinu felist að þingið eigi alltaf síðasta orðið í öll- um málum, vald þess sé algjört, lengra verði ekki komist í full- komnun lýðræðis. Þetta er rugl. Orðabók Menn- ingarsjóðs skilgreinir þingræði sem það „stjórnarfyrirkomulag, sem gerir ráðherra ábyrga fyrir þjóðþingi; sú venja, að ríkisstjórn styðjist við meirihluta þingmanna og fari frá völdum þegar meiri- hlutinn bregst“. Þingræði þýðir m.ö.o. það eitt, að þingið á að vera stjórninni æðra, þangað á hún að sækja vald sitt, í þess skjóli á hún að sitja, og segja af sér ef hún glatar trausti þingsins. (Annað mál er svo hvort hlutirnir gerast í raunveruleikan- um í þessari röð.) En þingið hefur annan hús- bónda: þjóðina. Það fer ekki á neinn hátt í bága við þingræðið, þótt þjóðin sé beint spurð álits á einstaka máli. Það er engin „at- laga að þingræðinu“ að vísa máli í dóm þjóðarinnar. Þegar fram í sækir er það líklegt til að styrkja þingræðið gegn ásælni fram- kvæmdavaldsins, að fulltrúi þjóð- arviljans bendi á að einnig þinginu eru valdmörk sett. Hér eftir geta þingmenn krafist þess að sæmi- lega sé frá málum gengið áður en þeir taka við fyrirskipunum frá hrokagikkjum framkvæmda- valdsins um afgreiðslu mála, sem eru bæði þingi og stjórnsýslu til skammar. Þjóðin er þinginu æðri Höfundur er blaðamaður. Ólafur Hannibalsson GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.