Morgunblaðið - 10.06.2004, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vel gefin/n, afkasta-
mikil/l og óhrædd/ur við að
taka áhættu og lifir því yf-
irleitt áhugaverðu lífi.
Leggðu hart að þér á þessu
ári því þú munt uppskera á
árunum 2005 og 2006.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Farðu varlega í öllum samn-
ingaviðræðum í dag. Það er
mikil hætta á að þú lofir
meiru en þú getur staðið við.
Segðu heldur minna en
meira.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú stendur í kostn-
aðarsömum framkvæmdum í
vinnunni í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert jákvæð/ur og bjart-
sýn/n á framtíðina. Þú ert
tilbúin/n til að gera lang-
tímaáætlanir en ættir að bíða
aðeins átekta þar til þú hefur
allar upplýsingar í hönd-
unum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert á andlegu nótunum í
dag. Þú sérð að við erum öll
samherjar og að hagur ein-
staklingsins er því hagur
heildarinnar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Farðu varlega í að ganga frá
samningum við yfirmann
þinn eða aðra áhrifamikla
einstaklinga í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gakktu úr skugga um að þú
hafir allar nauðsynlegar upp-
lýsingar áður en þú gengur
frá samningum eða hefur
framkvæmdir við eitthvað.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þú gerir of miklar vænt-
ingar til einhvers er nokkuð
öruggt að þú verður fyrir
vonbrigðum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú þarft að deila einhverju
með einhverjum í dag skaltu
leggja höfuðáherslu á að
gæta þinna eigin hagsmuna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samskiptaplánetan merkúr
er skáhallt á móti júpiter.
Þetta hefur mikil áhrif á þig
og gerir þig jákvæða/n og
óvenju opinskáa/n. Gættu
þess bara að fara ekki yfir
strikið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eitthvað í vinnunni virðist
lofa góðu. Þú þarft eftir sem
áður að gæta þess að láta
ekki mikilvæg smáatriði
framhjá þér fara. Þér hættir
til fljótfærni í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í skapi til að leggja
drög að spennandi ferðaáætl-
unum. Þú vilt hafa gaman af
lífinu og því höfða daður og
alls konar leikir sérstaklega
sterkt til þín.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver í fjölskyldunni mun
sennilega koma þér á óvart í
dag. Reyndu að sýna þínum
nánustu skilning og stuðning.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HVÍTAR KINDUR
Lagðprúðar ær með hrokkinn sveip í hnakka
í halarófu þræða slóð til fjalla.
Lausar við smalans rekistefnu og rakka,
þær rása dátt. – Þær heyra vorið kalla.
Þær stika glaðar út í opinn daginn,
og eins og vín þær sloka heiðablæinn.
Löng var sú bið í hljóðum húsum inni,
er húm og fannir byrgðu lítinn glugga.
Lyngt var þar úrgu auga mörgu sinni,
án afláts þvæld og jórtruð sérhver tugga.
Nú titrar loft af léttum, hvellum jarmi,
eitt lausnaróp frá sólskinsþyrstum barmi.
Ilmbylgju sterka vindur ber að vitum
frá vetrarlauksins safaríka kólfi.
Öræfahöllin ljómar öll í litum,
– á leik þær bregða á hinu stóra gólfi.
Um klaufir lykur gljúpur gamburmosi,
nú ganga þær á heimsins mýksta flosi.
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐABROT
80 ÁRA afmæli. UnnurBenediktsdóttir,
húsmóðir, Hvassaleiti 58,
Reykjavík, er áttræð í dag,
fimmtudaginn 10. júní. Í til-
efni dagsins tekur Unnur
ásamt eiginmanni sínum,
Magnúsi E. Baldvinssyni,
úrsmið, á móti gestum, vin-
um og vandamönnum, í
Oddfellowhúsinu, Von-
arstræti 10 (við Tjörnina) í
Reykjavík á afmælisdaginn
milli kl. 17–19. Þeir sem
vilja gleðja Unni á þessum
tímamótum eru velkomnir.
HVER er besta spila-
mennskan í sex tíglum suð-
urs?
Norður
♠ÁKD62
♥765
♦7642
♣G
Suður
♠10
♥ÁK84
♦ÁKG10
♣Á852
AV hafa ekkert lagt til
málanna í sögnum og útspil
vesturs er lauftía – gosi,
drottning og ás.
Spilið er frá landsliðsæf-
ingu á laugardaginn og þar
deildu menn um tvær meg-
inleiðir. Sumir vildu reyna
að stinga sem flest lauf í
borði, en aðrir töldu best að
fara strax í trompið og fría
svo spaðann. Skoðum báðar
leiðir og gerum ráð fyrir því
að trompið liggi 3-2.
(1) Stunguleiðin. Lauf er
trompað í öðrum slag, farið
heim á trompás og lauf aftur
trompað. Síðan er hjarta
spilað heim og síðasta laufið
stungið. Fylgi báðir lit er
björninn nokkurn veginn
unninn ef trompið er 3-2. Þá
er hjarta spilað heim til að
leggja niður tígulkóng og
síðan er hjörtum hent í
háspaða. Í grófum dráttum
leiðir þetta oftast til vinn-
ings þegar laufið er 4-4, en
einnig þegar sami mótherji
á þrílit í laufi og trompi.
(2) Leið spaðans. Þá er
hugmyndin að taka strax
ÁK í trompi og skilja
drottninguna eftir hang-
andi. Fara svo í spaðann,
taka þrjá efstu og trompa
spaða. Ef liturinn er 4-3
(62%) er spilið í húsi. Í þess-
ari leið leynist athygl-
isverður aukamöguleiki. Ef
trompdrottningin kemur
niður önnur, má láta spað-
ann lönd og leið og stinga
tvö lauf í borði.
Norður
♠ÁKD62
♥765
♦7642
♣G
Vestur Austur
♠95 ♠G8743
♥G1093 ♥D2
♦985 ♦D3
♣10963 ♣KD74
Suður
♠10
♥ÁK84
♦ÁKG10
♣ÁD52
Svona var allt spilið, svo í
reynd skipti ekki máli hvor
leiðin var valin – allt lá til
vinnings. Þeir sem tóku ÁK
í trompi strax, gátu skipt
um áætlun þegar drottn-
ingin kom og stungið tvö
lauf. Það dugði í tólf slagi.
Það gæti verið dokt-
orsverkefni fyrir stærð-
fræðing að reikna út hvor
leiðin er betri, en tilfinning
bridsmanna er sú að báðar
séu nokkurn veginn jafn lík-
legar til árangurs.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Þessir þrír duglegu strákar héldu tombólu nýlega til
styrktar börnum í Úganda. Þeir söfnuðu kr. 2.820 og gáfu
peningana til ABC-hjálparstarfs. Þeir heita Þorvar Bjarmi
Harðarson, Birnir Sigurðarson og Dagur Sigurðarson.
ÁRNAÐ HEILLA
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3
Rf6 4. g3 dxc4 5. Bg2
Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. O-O
O-O 8. Dc2 a6 9. Dxc4 b5
10. Dc2 Bb7 11. Hc1 Bd6
12. Bg5 Rbd7 13. Rbd2 c5
14. Bxf6 Dxf6
Staðan kom upp á
heimsmeistaramóti kvenna
sem fram fór fyrir
skömmu í Elista, höf-
uðborg forseta FIDE,
Kirsan Iljumshinov.
Ekaterina Polovnikova
(2406) hafði hvítt gegn
Nino Khurtsidze (2387).
15. Re5! Rxe5 16. Bxb7!
Sterkara en 16. dxe5
Bxe5 17. Bxb7 Hab8. 16...
cxd4 17. Re4 De7 18.
Bxa8 Hxa8 19. Dc8+ Df8
20. Rxd6 og svartur gafst
upp enda fátt um fína
drætti.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ kl. 11-18 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ kl. 13-18.
Hvítur handmálaður
skápur
Verð áður kr. 7.900
Tilboð kr 3.900.-
Handmáluð
innskotsborð
í þremur litum
Verð áður kr 19.500
Tilboð
frá kr 7.950.-
VIKUTILBOÐ - SPRENGITILBOÐ
50 - 60% AFLSÁTTUR
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Satíndragtir
Sumarkjólar
Fullar búðir af nýjum vörum
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í
sólina í júní á hreint ótrúlegum kjörum og tryggt þér síðustu sætin
til Benidorm, þessa vinsæla áfangastaðar. Þú bókar tvö sæti en
greiðir bara fyrir eitt, og getur
valið um úrval góðra gististaða á
meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.990
Fargjald kr. 32.600/2 = 16.300.
Flugvallarskattur kr. 3.690. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
Verð kr. 2.490
Verð á mann hver nótt, m.v. 2 í íbúð,
Trinisol III. Val um 1 eða 2 vikur.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu 22 sætin
2 fyrir 1 til
Benidorm
23. júní
frá kr. 19.990
Úrvals gististaðir
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
Upplýsingar í síma
552 2028 og 552 2607
www.graennkostur.is
Sendum grænmetisrétti
til fyrirtækja í hádeginu
• Magnafsláttur