Morgunblaðið - 10.06.2004, Side 56
ÍÞRÓTTIR
56 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
40 ára afmælismót
Golfklúbbs Suðurnesja
Skráning á www.golf.is og í síma 421 4103
Keppnisfyrirkomulag :
Þrjár keppnir í einu móti. Keppendur geta valið um punktakeppni, höggleik
með forgj. eða höggleik án forgj. Keppendur ákveða í hvaða keppni þeir spila
áður en leikur hefst, en þeir geta spilað í meira en einni keppni í sama
hringnum. Keppendur geta unnið til verðlaun í öllum flokkum.
Verðlaun:
1. sæti í öllum flokkum. Flugfarseðill fyrir tvo með Icelandair til Evrópu.
2-3. sæti í öllum flokkum. Golfvörur
Aukaverðlaun:
Nándarverðlaun á öllum par 3. brautum.
Nándarverðlaun á 9.braut í öðru höggi
Lengsta teighögg á 18. braut.
Alla keppendur fá teiggjafir.
Keppnisgjald
fyrir eina keppni kr. 2500-
fyrir tvær kr. 3500-
fyrir allar 4500-
Ræst verður út frá kl. 8-15
Sunnudaginn 13. júní
HEIMSMET Stacy Dragila, Banda-
ríkjunum, sem hún taldi sig hafa
sett á móti Ostrava í Tékklandi í
fyrrakvöld verður ekki staðfest af
Alþjóða frjálsíþróttasambandinu,
IAAF. Dragila stökk 4,83 m og
bætti met Svetlönu Feofanovu um
einn sentimetra. Ástæðan er sú að á
síðasta þingi IAAF var gerð sú
breyting á reglum að samræmd
voru met í innanhúss- og utanhúss-
greinum, sem gerir að verkum að
aðeins er skráð eitt heimsmet í
hverri grein, burt séð frá því hvort
þau eru sett innan- eða utanhúss.
Þar sem heimsmetið í stangar-
stökki kvenna innanhúss er betra
en það sem Dragila setti verður ár-
angur hennar aðeins skráður sem
heimsins besti árangur í stang-
arstökki kvenna utandyra. Þar með
fær Dragila heldur ekki þá 50.000
dollara, um 3,8 millj. kr. sem IAAF
hefur heitið hverjum þeim íþrótta-
manni sem setur heimsmet.
Jelena Isinbayeva, Rússlandi, á
heimsmetið í stangarstökki, 4,86,
en það setti hún á heimsmeist-
aramótinu innanhúss í Búdapest í
mars.
Nýju reglurnar virðast hafa kom-
ið mönnum í opna skjöldu því það
var mikill fönguður þegar metið
var kynnt á mótinu í Ostrava en þar
féll einnig heimsmetið í 10.000 m
hlaupi karla. Það met stendur.
Heimsmet Dragilu
ekki staðfest
Þau fara til Aþenu
ÞEIR sem keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíumóti fatlaðra í
Aþenu 18.– 28. september eru sundkonan Kristín Rós Há-
konardóttir úr Fjölni, Jón Oddur Halldórsson úr Breiðabliki,
sem keppir í frjálsíþróttum, og Nesmaðurinn Jóhann Rúnar
Kristjánsson sem keppir í borðtennis. Með keppendum fara þrír
þjálfarar, læknir og fararstjóri, þannig að í íslenska hópnum
eru átta manns. Kristín Rós er að fara á sitt fimmta ólympíu-
mót en þeir Jóhann Rúnar og Jón Oddur eru að fara í fyrsta
sinn.
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaðurÍþróttasambands fatlaðra, sagði
í gær þegar hópurinn var kynntur að
ein meginástæðan fyrir því að svo fáir
fara á leikana að þessu sinni væri að
settar hefðu verið strangar lágmarks-
kröfur til íþróttamannanna. „Við sett-
um strangar kröfur um árangur
íþróttafólksins og því miður náðu ekki
fleiri lágmörkunum. Við höfum yfir-
leitt gert kröfu um að okkar kepp-
endur eigi raunhæfa möguleika á að
komast á verðlaunapall. Nú um
stundir virðumst við ekki eiga fleiri
sem standa undir þeim væntingum,
en framtíðin er björt hjá okkur.
Það er líka gaman til þess að vita að
nú eigum við keppanda í borðtennis í
fyrsta sinn frá árinu 1992 og Jóhann
Rúnar er einn af tuttugu bestu í sinni
grein og er í erfiðasta keppnisflokkn-
um í borðtennis,“ sagði Sveinn Áki.
Tveir aðrir sundmenn náðu lág-
markinu fyrir leikana, Bjarki Birgis-
son og Gunnar Örn Ólafsson. Bjarki
er meiddur og kemst því ekki á leik-
ana en Gunnar Örn, sem er þroska-
heftur, verður ekki með þar sem ný-
lega var tilkynnt að þroskaheftir yrðu
ekki með á leikunum, nema í nokkr-
um sýningargreinum.
Hér á landi eru tveir háttsettir
menn innan íþróttahreyfingar fatl-
aðra, Phil Craven, forseti Alþjóða-
ólympíuhreyfingar fatlaðra, IPC, og
Bob Price, forseti Evrópudeildar
IPC, EPC. Þeir eru hér meðal annars
í tilefni af 25 ára afmæli Íþróttasam-
bands fatlaðra.
Það sem gerðist í Sydney
má ekki endurtaka sig
Þegar Craven var spurður að því á
blaðamannafundi í gær hver skýring-
in væri á að þroskaheftir yrðu ekki
með á leikunum að þessu sinni minnti
hann á það sem gerðist á leikunum í
Sydney, þar sem þótti nokkuð ljóst að
sumir þeirra sem kepptu í körfu-
knattleik þroskaheftra, voru það alls
ekki.
„Það hefur verið bent á í nokkur ár
að það verði að finna nýja leið til að
skilgreina betur hvern þroskaheftan
einstakling. Matskrefið sem hefur
verið notað er gallað og það verður að
breyta því og að því er unnið.
Vonandi er það ekki til frambúðar
að þroskaheftir verði ekki með á
Ólympíumótinu, en það hefur engin
ákvörðun verið tekin um það, hvorki
af eða á. En það sem gerðist í Sydney
má alls ekki endurtaka sig,“ sagði
Craven á fundinum.
Ákveðið var að hafa nokkrar grein-
ar þroskaheftra sem sýningargreinar
en of fáir skráðu sig til leiks þannig að
hætt var við þær greinar. Í sundinu
voru samt nægilega margir keppend-
ur, en þegar ljóst varð að það átti
bara að vera sýningargrein ákváðu
mörg sambönd að senda ekki sitt
besta fólk og því var hætt við sundið
líka. Eftir stendur aðeins körfuknatt-
leikur og það er ef til kaldhæðni ör-
laganna að eina greinin sem þroska-
heftir keppa í á leiknum að þessu
sinni, er greinin sem olli öllu uppi-
standinu á síðustu leikum og er í raun
valdur að því að þroskaheftum er
kippt út.
Ólympíumótið verður samt jafn-
fjölmennt og verið hefur, um 4.000
íþróttamenn munu keppa þar og
koma þeir frá um 130 löndum, fleiri
en nokkru sinni. Sú umræða var fyrir
áratug eða svo að setja nokkrar vin-
sælustu greinarnar hjá fötluðum inn
á Ólympíuleikana en Craven segir
þær hugmyndir ekki lengur uppi á
borðinu.
„Það verður ekki því ef vinsælustu
greinar okkar færu á Ólympíuleikana
þá myndu vinsældir okkar leika
minnka og það viljum við ekki og Al-
þjóðaólympíunefndin (IOC), sem við
eigum góða samvinnu við, er sama
sinnis.“
Tvær greinar fatlaðra verða sýn-
ingargreinar á Ólympíuleikunum, 800
metra hjólastólahlaup kvenna og
1.500 metra hjá körlunum. Báðar
greinarnar verða á kjörtíma, um svip-
að leiti og úrslitin í 100 metra hlaupi
karla verða. „Þetta sýnir okkur að
greinarar eru vinsælar og að gott
samstarf er á milli okkar og IOC,“
sagði Craven.
Spurður um aðbúnaðinn í Aþenu
sagði hann að trúlega yrði hann sá
besti sem verið hefði. „Keppnisstaðir
og ólympíuþopið verða með því besta
sem verið hefur og svo höfum við
ágætis „prufkeyrslu“ á öllu nokkrum
vikum áður þegar Ólympíuleikarnir
fara fram!
Við vitum hins vegar að samgöngur
verða erfiðar hjá okkur vegna þess að
íbúar borgarinnar eru komnir til
hennar á ný eftir Ólympíuleikana og
lífið verður komið í eðlilegt horf,“
sagði forseti IPC.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhann Rúnar Kristjánsson er hér við hlið Phil Cravens, forseta Alþjóðaólympíuhreyfingar fatl-
aðra, og í aftari röðinni er frá vinstri Kristín Rós Hákonardóttir, Jón Oddur Halldórsson, Bob
Price, forseti Evrópudeildar IPC, og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra.
Aldrei eins fáir á
Ólympíumót fatlaðra
AÐEINS þrír íslenskir keppendur verða á Ólympíumóti fatlaðra sem
fram fer í Aþenu 18. til 28. september. Íslendingar hafa aldrei sent
svo fáa keppendur á þetta mót, sem nú er haldið í tólfta sinn.