Morgunblaðið - 10.06.2004, Page 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 57
MARGIR þekktir kylfingar frá Evr-
ópu, Bandaríkjunum og víðar féllu
úr keppni á úrtökumóti fyrir Opna
bandaríska meistaramótið sem
fram fer í næstu viku á Shinnecock
Hills í New York. Luka Donald frá
Englandi og Jesper Parnevik frá
Svíþjóð verða ekki með, en þeir
tóku báðir þátt á úrtökumóti sem
fram fór í Columbus í Ohio og var
Parnevik einu höggi frá því að
komast áfram en Donald var tveim-
ur höggum frá markmiði sínu. Alls
komust 33 kylfingar frá þessu úr-
tökumóti inn á stórmótið og má þar
nefn Alex Cejka frá Þýskalandi og
Svíann Daniel Chopra, en alls tóku
184 keppendur þátt. Bandaríkja-
mennirnir Tom Lehman og Mark
O’Meare komust ekki í gegnum úr-
tökumótið. Lehman sigraði á Opna
breska meistaramótinu árið 1996.
Tim Clark frá S-Afríku sigraði á
úrtökumótinu en hann lék á 67 og
62 höggum. Duffy Waldorf, Chris
Smith, Jeff Maggert, Aaron
Baddeley, Mark Calcavecchia, Rory
Sabbitini og Bill Haas komust í
gegnum úrtökumótið.
Nick Faldo, frá Englandi þurfti
einnig að taka þátt í úrtökumóti í
fyrsta sinn í rúman aldarfjórðung.
Faldo fékk fugl á síðustu holunni á
Lake Nona í Flórída og tryggði sér
þar með rétt til að keppa á Opna
bandaríska mótinu.
Þekktir kylfingar féllu úr
leik á úrtökumóti SIGURVEGARARNIR í Meist-aradeild Evrópu í knattspyrnu árið
2004, Porto frá Portúgal, fengu
ekki úthlutað hæstu peninga-
upphæðinni hjá knattspyrnu-
sambandi Evrópu er 32 lið skiptu á
milli sín rúmlega 36 milljörðum ísl.
kr.
Chelsea, sem féll úr leik í undan-
úrslitum keppninnar, fær mest í
sinn hlut eða tæpa 2,5 milljarða.
Ensku deildarmeistararnir Arsenal
sem féllu úr leik í átta liða úrslitum
gegn Chelsea fengu 2,4 milljarða,
og Manchester United fékk út-
hlutað 2,36 milljörðum kr.
Mónakó sem sló Chelsea út í und-
anúrslitum og tapaði í úrslitum
gegn Porto fær rúmlega 2,2 millj-
arða og Porto er fimmta í röðinni
með tæplega 1,7 milljarða kr.
Chelsea fékk hæstu peningaupphæðina
Þótt leikmenn Chelsea hafi ekki náð að vinna Meistaradeild
Evrópu í vor vann ekkert félag, sem þátt tók í keppninni, sér
inn meiri tekjur af þátttöku en Chelsea.
Reuters
ÁRNI Sigtryggsson, unglinga-
landsliðsmaður í handknattleik og
einn Evrópumeistaranna frá því í
fyrra, og króatíski hornamaðurinn
Goran Gusic hafa báðir gert nýja
samninga við handknattleikslið Þórs
á Akureyri. Báðir hafa þeir verið
lykilmenn í liði Þórs og jafnan með
markahæstu mönnum liðsins. Nokk-
ur félög höfðu sýnt Árna áhuga en
hann kaus að vera áfram í herbúðum
Þórs.
ENSKA knattspyrnuliðið Chelsea
er sagt hafa hækkað tilboð sitt í
framherjann Didier Drogba, leik-
mann franska liðsins Marseille en
upphaflegu tilboði, sem hljóðaði upp
á 17 milljónir punda, var hafnað í síð-
asta mánuði. Franska íþróttablaðið
L’Equipe hefur eftir Christophe
Bouchet, þjálfara Marseille, að
Drogba sé ekki til sölu.
ROMAN Abramovítsh, eigandi
Chelsea, er sagður vilja fá Drogba í
liðið eftir að Úkraínumaðurinn
Andrei Shevtsjenko, hafnaði tilboði
frá liðinu og framlengdi samning
sinn við AC Milan.
MARSEILLE keypti Drogba á síð-
asta ári og gerði við hann samning til
ársins 2009. Drogba, sem er frá Fíla-
beinsströndinni, skoraði 19 af 47
mörkum liðsins í frönsku úrvals-
deildinni á síðasta ári og 11 af 18
mörkum liðsins á leið þess til úr-
slitanna í Evrópubikarkeppninni.
MJÖG óvænt úrslit urðu á sterku
atvinnumannamóti í tennis í Lund-
únum í gær. Ástralinn Mark Phil-
ippoussis beið lægri hlut fyrir
óþekktum Walesverja, Ian Flanagan
en hann er 849 sætum neðar en Ástr-
alinn á stigalista atvinnutennisleik-
ara. Flanagan var að leika sinn
fyrsta leik á atvinnumótaröðinni.
ASTON Villa hefur boðið Juan
Pablo Angel nýjan fjögur ára samn-
ing. Ef Angel samþykkir samning-
inn verður hann einn launahæsti
leikmaður í sögu Aston Villa en Ang-
el er samningsbundinn liðinu til árs-
ins 2005.
ÞÝSKI landsliðsmaðurinn í knatt-
spyrnu Christian Ziege skrifaði í
gær undir tveggja ára samning við
Borussia Moenchengladbach.
Ziege, sem er 32 ára gamall, var í
herbúðum Tottenham á síðustu leik-
tíð.
BARCELONA hefur gert nýjan
samning við Brasilíumanninn Ron-
aldinho. Hinn 24 ára brasilíski
landsliðsmaður í knattspyrnu fær
mun hærri laun eftir að hafa skrifað
undir nýja samninginn. Barcelona
vonar að með þessu minnki áhugi
annarra liða á kappanum.
FRAMHERJINN Michael Bridges
hefur skrifað undir eins árs samning
við enska úrvalsdeildarliðið Bolton
en hann hefur verið samningsbund-
inn Leeds United síðan 1999. Bridg-
es er 25 ára gamall og hefur glímt við
erfið meiðsli síðustu ár.
FÓLK
Lakers var sterkari aðilinnframan af og í hálfleik var lið-
ið með átta stiga forystu. Gestirnir
frá Detroit spiluðu mjög vel í
þriðja leikhluta og þegar fjórði
leikhluti hófst var forysta Lakers
aðeins tvö stig. Í fjórða leikhluta
virtist Detroit ætla að tryggja sér
sigurinn en liðið hafði sex stiga
forystu þegar aðeins 37 sekúndur
voru eftir af leiknum. Detroit gat
tryggt sér sigurinn þegar 16 sek-
úndur voru til leiksloka en þá mis-
notaði Chauncey Billups skot úr
ágætu færi. Þetta varð til þess að
Lakers fékk boltann og Kobe
Bryant sá til þess að leikurinn yrði
framlengdur. Eftir það var aldrei
spurning hvorum megin sigurinn
myndi enda en Lakers skoraði tíu
stig gegn tveimur í framlenging-
unni.
„Þriggja stiga karfan undir lok-
in er líklega mikilvægasta karfa
sem ég hef skorað á ferlinum. Ég
hlakka til að fara til Detroit og
spila þar næstu þrjá leiki. Það
verður erfitt en við verðum til-
búnir,“ sagði Bryant eftir leikinn.
Phil Jackson, þjálfari Lakers,
sagði að hann hefur alltaf trú á að
Bryant geti hitt úr mjög erfiðum
og mikilvægum skotum. „Við hjá
Lakers trúum því að Kobe geti
alltaf hitt úr ótrúlegum skotum og
þriggja stiga karfan hans undir
lokin var frábær,“ sagði Jackson.
„Þetta er ástæðan fyrir því að
Kobe er svona frábær leikmaður.
Hann er ótrúlega hæfileikaríkur
ungur maður,“ sagði Larry Brown
þjálfari Detroit Pistons þegar
hann var spurður um þriggja stiga
körfu Bryants.
Kobe Bryant var stigahæsti
leikmaður vallarinns en hann skor-
aði 33 stig. Shaquille O’Neal skor-
aði 29 stig og Karl Malone gerði 9
stig. Chauncey Billups var at-
kvæðamestur í liði Detroit með 27
stig en Richard Hamilton gerði
stigi minna. Ben Wallace kom
næstur með 12 stig en hann tók
einnig 14 fráköst. Næsti leikur lið-
anna fer fram í nótt á heimavelli
Detroit Pistons en næstu þrír leik-
ir fara fram í Detroit.
Að mínu mati á að banna þessagerð af pútterum. Það er hluti
af leiknum að glíma við útlimina
undir miklu álagi. Það er alveg eins
hægt að taka lyf til þess að koma í
veg fyrir að vera taugaóstyrkur, en
það er víst bannað,“ sagði Els við
ESPN-fréttavefinn í upphafi vik-
unnar.
Það eru æ fleiri atvinnukylfingar
sem hafa nýtt sér nýjar gerðir af
löngum pútterum á undanförnum
misserum. Bandaríkjamaðurinn
Paul Azinger var sá fyrsti sem sigr-
aði á atvinnumannamóti með slíkum
pútter árið 1999.
Sum sköftin ná upp að nafla á
meðan önnur eru mun lengri og ná
upp að höku kylfinga í mörgum til-
fellum. Aðalkosturinn við þessa gerð
púttera er að kylfingar geta fram-
kallað nánast fullkomna pendúl-
sveiflu með kylfuhausnum og úti-
loka þar með ýmsar hreyfingar í
olnboga-, axla og úlnliðum sem að
öðrum kosti hafa áhrif á púttstroku
kylfinga.
Í hópi þeirra sem notast við slíka
púttera má nefna Vijay Singh, Fred
Couples, Stewart Cink, Steve
Flesch, Rocco Mediate og Bernhard
Langer.
Sænski kylfingurinn Jesper
Parnevik er í hópi þeirra sem styðja
bann við löngum pútterum en hann
var nálægt því að vera dæmdur úr
leik á Players-meistaramótinu á
þessu ári vegna svitabanda sem
hann bar rétt ofan við úlnliði beggja
handa. „Það kom dómari til mín og
fékk að skoða svitaböndin, hann
vildi að ég setti þau ofar á fram-
handlegginn, þar sem að þau gætu
verið túlkuð sem hlutir sem gætu
bætt sveiflu mína. Og þar með væri
ég úr leik í keppninni,“ sagði Parne-
vik en hann hélt í fyrstu að dóm-
aranum væri ekki alvara með til-
mælunum.
Hins vegar er ekki auðvelt fyrir
þá aðila sem sjá um reglubreytingar
í golfi að breyta reglunum um lengd
púttera, með þeim hætti að öllum
líki. Það eru golfsamband Banda-
ríkjanna og R&A í Skotlandi sem
funda tvívegis á ári um reglubreyt-
ingar og hafa löngu pútterarnir ver-
ið mikið til umfjöllunar á undanförn-
um misserum á þeim fundum.
Greinarhöfundur á ESPN segir
að verði hámarkslengd skaftsins
miðuð við 1 m, megi búast við því að
þeir sem séu lágvaxnir geti samt
sem áður notast við slíka púttera
sem „langa“ gerð.
Reuters
Fijibúinn Vijay Singh mundar kylfuna.
Kylfingurinn Ernie Els er í hópi þeirra sem vilja banna púttera með löngu skafti
„Eru ekki
hluti af
leiknum“
KYLFINGURINN Ernie Els frá S-Afríku er í hópi þeirra sem telja að
banna ætti púttera með löngu skafti, en slíkir pútterar hafa notið
vinsælda hjá atvinnukylfingum á undanförnum misserum. Els telur
að gerð pútteranna geri það að verkum að kylfingar sem þá nota
geta útilokað óæskilegar hreyfingar í höndum, öxlum og úlnliðum.
En að hans mati ættu slík vandamál að vera hluti af leiknum, líkt og
í gamla daga.
Kobe Bryant bjarg-
vættur Lakers
KOBE Bryant bjargaði Los Angeles Lakers frá því að lenda 0:2 undir
gegn Detroit Pistons í úrslitarimmu liðanna um NBA-titilinn en liðin
mættust öðru sinni í Los Angeles í fyrrinótt. Bryant knúði fram
framlengingu þegar hann jafnaði leikinn með erfiðu þriggja stiga
skoti þegar 2,1 sekúnda var eftir af venjulegum leiktíma. Í fram-
lengingunni voru heimamenn miklu sterkari og sigruðu að lokum
með átta stiga mun, 99:91. Staðan er 1:1 í einvígi liðanna en það lið
sem vinnur fyrr fjóra leiki tryggir sér NBA meistaratitilinn.