Morgunblaðið - 10.06.2004, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 65
Með
íslen
sku
tali
Tvíhöfði
DV
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.30. B.i. 12 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4.
ÁLFABAKKI
Kl. 4. ísl tal
ÁLFABAKKI
kl. 3.45. Ísl tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Hvað gerist þegar tveir andstæðingar
gifta sig fyrir slysni? Það verður allt
vitlaust!
Skemmtilegasta
og rómantískasta grínmynd ársins.
Frá leikstjóra
Johnny English
KRINGLAN
Sýnd kl. 5, 6.30 og 8.
Nýjasta og mest spennandi myndin
um Harry Potter er komin í bíó.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna
sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál
verða uppljóstruð.
Nýjasta og mest spennandi myndin
um Harry Potter er komin í bíó.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna
sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál
verða uppljóstruð.
Stórviðburður ársins er kominn!
Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri
stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
AKUREYRI
Sýnd kl. 5 og 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.40.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum
eins og þær gerast bestar í anda
IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar
sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla
greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
HL Mbl
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
HL Mbl
AFSTAÐAN til Morrissey
markast algjörlega af tilfinningum
viðkomandi í garð hinnar forn-
frægu The Smiths. Mér er mjög til
efs að nokkur sem óbeit hefur á
sveitinni geti
hlustað á Morriss-
ey. Það verður
líka að viðurkenn-
ast að þótt hann
hafi sent frá sér
fullt af góðu efni
síðan sveitin söng sitt síðasta 1987
þá hefur maður alltaf borið það
saman við Smiths og litið á það
sem sárabót, það sem næst komist
þessu eina sanna.
Og eftir tvær næsta skelfilegar
plötur þá er Morrissey aftur far-
inn að nálgast það að geta svalað
óseðjandi hungri þessa gamla
Smiths-aðdáanda.
Kjafturinn á honum er ennþá sá
sami og ennþá er hann jafnupptek-
inn af sjálfum sér og því hvað allir
aðrir eru yfirmáta illa gefnir og
ómerkilegir í hans garð - sér í lagi
nýju landar hans Kanar (maðurinn
býr í Los Angeles en úthúðar samt
nágrönnum sínum á plötunni). En
bersögli hans og Wilde-íska
hnyttnin hans er alltaf jafn ómót-
stæðileg og bjargar honum sem
fyrr fyrir horn.
Þá eru lögin á við það besta sem
hirðtónskáldin hans Alain Whyte
og Boz Boorer hafa gert fyrir
hann.
Velkominn aftur kæri Morr-
issey. En hvenær á svo að kyngja
stoltinu og hringja í Marr?
Tónlist
Stórikjaftur
snýr aftur
Morrissey
You are the Quarry
Gamli geðvondi Smithsboltinn aftur snú-
inn. Annaðhvort hatarðu hann eða elskar
- ekkert þar á milli.
Skarphéðinn Guðmundsson
Í KVÖLD stendur ÁTVR, Átthaga-
félag Vestmannaeyinga á höfuð-
borgarsvæðinu, fyrir minning-
artónleikum um Ása í Bæ.
Ástgeir Ólafsson, betur þekktur
sem Ási í Bæ, er kunnastur fyrir
texta- og lagasmíðar sínar sem
gjarnan fjölluðu um sjómannslíf og
annað líf í Vestmannaeyjum. Ási í
Bæ hefði orðið níræður þann 27.
febrúar síðastliðinn, en hann lést
árið 1985.
Gísli Helgason er einn skipu-
leggjenda tónleikanna. Hann segir
hugmyndina að tónleikunum vera
auk afmælisins útgáfa bókar og
geisladisks með verkum Ása í Bæ.
„Við Ingi Gunnar Jóhannsson átt-
um í fórum okkar upptökur af Ása
frá sjötugsafmæli hans sem haldið
var í Norræna húsinu árið 1984,“
segir Gísli. Hann segir þá félaga
hafa afráðið að gefa út efnið og
halda tónleikana í kjölfarið.
„Við höfum reynt að halda ljóð-
um og lögum Ása í Bæ á loft. Hann
er eitthvert besta textaskáld sem
við höfum átt og yrkir skemmtilega
um mannlífið og sjóinn,“ segir
hann.
Minningartónleikarnir voru
haldnir fyrr á árinu, bæði í Vest-
mannaeyjum og á Borginni en
vegna fjölda áskorana var ákveðið
að endurtaka leikinn, að sögn Gísla.
Sungið og sagðar sögur
„Við flytjum aðallega efni eftir
Ása en einnig verða sagðar sögur
af honum og samtíðarmönnum
hans,“ segir Gísli.
„Ósagt skal hvort sögurnar sem
sagðar verða eru alveg sannar en
skemmtilegar eru þær.“
Bæjarbandið sér um flutning
ljóða og laga Ása í kvöld en auk
Gísla skipa sveitina þau Hafsteinn
G. Guðfinnsson, Herdís Hallvarðs-
dóttir, Ingi Gunnar Jóhannsson og
Grettir Björnsson.
Dagskráin fer fram á Hótel Borg
í kvöld og hefst klukkan 21.
Minningartónleikar á Hótel Borg í kvöld
Til heiðurs Ása í Bæ
Morgunblaðið/Sverrir
„Hann er eitthvert besta textaskáld sem við höfum átt og yrkir skemmti-
lega um mannlífið og sjóinn,“ segir Gísli Helgason tónlistarmaður um Ása í
Bæ sem er hér hægra megin í heimahögunum.
Ljósmynd/Oddgeir Kristjánsson t
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Flott föt fyrir
allar konur