Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
um humri sem svarar til um fjögurra
tonna af skottum. Þá var sjöundi
humarbáturinn, Kristbjörg, að hefja
veiðar og átti hún að fara út í gær.
„Þrír aðrir bátar voru líka að landa
hjá okkur í morgun, Jón Vídalín er
með 300 kör af bolfiski og Drangavík
100 kör og Sighvatur Bjarnason er að
landa 500 tonnum af norsk-íslensku
síldinni og 1000 tonnum af kol-
munna,“ sagði Stefán Friðriksson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar, í samtali við Morg-
unblaðið.
Stefán sagði að mestu umsvifin hjá
þeim á sumrin væru í humrinum.
„Aflaheimildir okkar í humri eru 90
tonn af skottum en sjómennirnir
koma með hann heilan að landi. Er
humrinum pakkað heilum og hann
frystur, en ef hann er eitthvað brot-
inn eru skottin slitin af og þau fryst. Í
dag er allt á fullu, sjöundi báturinn að
byrja og 70 til 80 manns að vinna við
pökkun og frystingu,“ sagði Stefán.
Vinnslustöðin hefur bætt við sig
aflaheimildum í humri undanfarið og
segir Stefán að hann passi vel við
aðra starfsemi. „Eftir netavertíð tek-
MIKIÐ var um að vera í höfninni í
Vestmannaeyjum í gær. Landað var
á öllum bryggjum um leið og afurðum
var skipað út í eitt af skipum Sam-
skipa.
Mest gekk á hjá Vinnslustöðinni
þar sem sex humarbátar voru að
landa, einnig tvö skip með bolfisk og
eitt skip með síld og kolmunna, alls
níu skip. Þá voru tvö skip á leiðinni
með síld. Humarinn kemur sér vel
fyrir skólafólk en um 50 framhalds-
skólanemar starfa í Vinnslustöðinni í
humarvinnslu.
Humarbátarnir eru Gandí, Brynj-
ólfur, Glófaxi, María Péturs, Gunnvör
og Gæfa, með samtals 84 kör af heil-
ur humarinn við fram að þjóðhátíð
sem er í byrjun ágúst. Svo byrjum við
aftur í september og erum að þangað
til síldin byrjar. Humarinn er mjög
mannfrekur og þess njóta krakkarnir
í Framhaldsskóla Vestmannaeyja;
eru hátt í 50 þeirra í humrinum hjá
okkur allt sumarfríið og fá fínan pen-
ing fyrir.“
Stefán sagði að það væri heldur
ekki alveg dautt í bræðslunni þar sem
búið er að taka á móti hátt í 20.000
tonnum af síld og kolmunna það sem
af er sumri. Er það óvenju góð byrj-
un. „Bergur landaði fullfermi af kol-
munna hjá okkur á miðvikudaginn,
Gullberg er væntanlegt á morgun,
laugardag, með 1200 tonn af norsk-
íslensku síldinni og Ísleifur kemur á
sunnudaginn með 1100 tonn. Er þetta
fullfermi hjá báðum. Þetta er ansi
löng sigling hjá þeim, 1000 sjómílur
og eru þeir um þrjá og hálfan sólar-
hring á leiðinni hingað af síldarmið-
unum.“
Að lokum sagði Stefán að Ísleifur
færi næst í loðnuleit á vegum Haf-
rannsóknastofnunar og hélt hann að
Gullberg færi líka.
Vertíðarstemning hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum
Níu skip að landa og tvö
á leiðinni með fullfermi
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sigurrós, Guðlaug, Tinna, Natalía og Rakel kunna vel við sig í humrinum.
Vestmannaeyjar. Morgunblaðið.
GULLPENINGUR frá árinu 1714
fannst nýlega við uppgröft sem
stendur yfir í Skálholti á vegum
Fornleifastofnunar Íslands. Pen-
ingurinn fannst í leifum byggingar
sem nefnd er sjúkrastofa á korti frá
18. öld. Samkvæmt upplýsingum
frá Fornleifastofnun er einstakt að
finna önnur eins verðmæti við upp-
gröft þar sem fólk reyni yfirleitt að
halda í fjársjóði sína. Myntsérfræð-
ingur mun skoða peninginn sem
síðan fer í gegnum sama ferli og
aðrir gripir. Ef um hreint gull er að
ræða verður engin þörf á forvörslu
Uppgraftarstjórinn, Gavin Lucas
segir margt nýtt vera að koma í ljós
við uppgröftinn sem veita mun upp-
lýsingar um lífið í Skálholti fyrr á
öldum. M.a. er verið er að grafa
upp sýruklefa, sem er lítið herbergi
með stóru keraldi sem fyllir nær
allt herbergið. Keraldið hefur verið
úr viði og undir því leirþekja. Undir
viðarleifum kom í ljós fallega hellu-
lagt gólf.
Gullpeningur
úr jörðu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur hefur dæmt 19 ára pilt í 15
mánaða fangelsi fyrir þjófnað-
arbrot framin fyrr á árinu, m.a.
innbrot í apótek þar sem hann
stal lyfjum fyrir tugi þúsunda
króna. Frá refsingunni dregst
116 daga gæsluvarðhaldsvist.
Með brotunum rauf ákærði
hálfs árs skilorðsbundinn fang-
elsisdóm frá í október fyrir
hegningar-, fíkniefna- og um-
ferðarlagabrot. Var sá dómur
því dæmdur upp nú og ákærða
gerð refsing í einu lagi.
Hann braust m.a. inn í apó-
tek í Reykjavík í lok mars sl.
með því að brjóta rúðu og stal
lyfjum fyrir 84 þúsund krónur.
Tíu dögum seinna stal hann
tösku sem innihélt verðmæti
upp á kr. 170 þúsund kr.
Þremur dögum seinna fór
hann í heimildarleysi inn í íbúð-
arhúsnæði að Lækjarhvammi í
Hafnarfirði og stal fartölvu og
fleira fyrir 50 þúsund krónur.
Sama dag braust hann inn í
Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og
stal um 5 þúsund krónum í
reiðufé.
Málið dæmdi Pétur Guð-
geirsson héraðsdómari. Verj-
andi ákærða var Hilmar Ingi-
mundarson hrl. og sækjandi
Dagmar Arnardóttir, fulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík.
15 mánaða
fangelsi fyrir
þjófnaði
EKIÐ var á 81 árs konu á gang-
braut á Dalvegi á móts við Smára-
torg í gær klukkan 14.30. Hún slas-
aðist á höfði og fæti og var flutt á
slysadeild Landspítalans. Að sögn
lögreglunnar í Kópavogi, sem tekið
hefur tildrög slyssins til rannsókn-
ar, vildi svo heppilega til að læknir
gaf sig fram á slysstað og aðstoðaði
lögreglu á meðan beðið var sjúkra-
bíls.
Ekið á gangandi
vegfaranda
TVEIR erlendir menn sem beðið
hafa um pólitískt hæli hérlendis,
hafa afturkallað beiðni sína um hæli
og hefur lögreglan á Keflavík verið
beðin um að taka skýrslur af mönn-
unum því til staðfestingar, skv. upp-
lýsingum Ásgeirs Eiríkssonar sýslu-
fulltrúa. Verið er að afla upplýsinga
um hvort þeir hafi framvísað fölsuð-
um skilríkjum við komuna til lands-
ins. Lögreglan á Akureyri hóf rann-
sókn á máli mannanna og óskaði eftir
aðstoð lögreglunnar í Keflavík við að
ljúka rannsókninni. Að sögn Útlend-
ingastofnunar vilja mennirnir aftur-
kalla beiðni sína um pólitískt hæli.
Fram hefur komið í fréttum að
þeir hafi haft í frammi líflátshótanir
og hótanir um líkamsmeiðingar við
starfsfólk félagsþjónustunnar í
Reykjanesbæ, en að sögn Hjördísar
Árnadóttur, forstöðumanns fé-
lagsþjónustunnar, eru þær fréttir
rangar. Ásgeir Eiríksson segir að
engin kæra vegna slíks framferðis
mannanna hafi borist.
Afturkalla
beiðni sína um
pólitískt hæli
FIMM ára börn í leikskólum Reykja-
víkur fá þriggja tíma leikskólavistun
frítt, samkvæmt tillögum starfshóps
um aukna samþættingu leikskóla og
grunnskóla í Reykjavík. Hópurinn,
sem hóf störf sín í júní 2002, kynnti
tillögur sínar í gær og verða þær
lagðar fyrir borgarráð á þriðjudag-
inn. Þegar hefur fengist fjárveiting
frá borgarráði fyrir breytingunni,
sem kostar tæpar 100 milljónir á árs-
grundvelli, og mun hún því koma til
framkvæmda í haust en fram að ára-
mótum verður kostnaður vegna
breytingarinnar um 35 milljónir.
Í tillögum starfshópsins er einnig
lagt til að leikskólar geri afmarkaða
námsskrá fyrir fimm ára börn og
mun hver leikskóli vinna sína náms-
skrá sjálfstætt. Með tilkomu náms-
skrárinnar er meðal annars ætlað að
draga úr því stökki að fara úr leik-
skólaumhverfi yfir í grunnskóla. Þor-
lákur Björnsson, formaður leikskóla-
ráðs, segir að tillögur um upptöku
sérstakrar námsskrár fyrir hvern
leikskóla séu ekki hugsaðar til að
setja krakkana ári fyrr inn í skóla-
stofu. Námið eigi að vera fjölbreytt
nám í leikskólaumhverfi.
„Þetta er lærdómur á forsendum
leikskólans,“ segir Þorlákur.
Hann segir að tillögur nefndarinn-
ar miði að því að festa leikskólann í
sessi sem fyrsta skólastigið. Hingað
til hafi margir litið svo á að leikskól-
inn sé millistig milli þess að vera
geymsla fyrir börnin og fyrsta skóla-
stig en tillögur hópsins eigi að bæta
þar úr.
Viðurkenna í verki að leikskól-
inn sé fyrsta skólastigið
Sigrún Elsa Smáradóttir, formað-
ur starfshópsins, segir að með því að
bjóða fimm ára börnum upp á gjald-
frjálst leikskólanám að hluta sé verið
að viðurkenna í verki að leikskólinn
sé fyrsta skólastigið.
„Þótt leikskólinn hafi verið skil-
greindur sem fyrsta skólastigið hefur
þjónustan ekki verið gjaldfrjáls og
það hefur því verið ákveðin hindrun.
Við viljum tryggja að öll börn geti
notið leikskólagöngu að nokkru leyti
því við teljum þetta vera mikilvægan
þátt í menntun hvers einstaklings.“
Sigrún segir að starfshópurinn
hafi einnig lagt áherslu á að auka
samstarf milli leikskóla og grunn-
skóla, þannig að þjónustan verði
markvissari og heildstæðari.
Í tillögum hópsins er einnig er lagt
til að allir leikskólar skuli, með sam-
þykki foreldra, koma upplýsingum í
samræmdu formi til grunnskóla í
upphafi skólagöngu. Sigrún segir að
upplýsingaflæði milli leikskóla og
grunnskóla sé vel þekkt í dag en til-
lögur hópsins muni vonandi leiða til
aukinnar samræmingar á því sviði.
Hópurinn leggur jafnframt til að
leikskólar og grunnskólar hafi með
sér formlegt og skipulagt samstarf á
hverfagrundvelli og geri samstarfs-
áætlun á hverju vori, líkt og gert hef-
ur verið í Árbæjar- og Seljahverfi.
Auk þess leggur hópurinn áherslu á
aukið samstarf leikskólaráðs og
fræðsluráðs, með það að markmiði að
samþætta starfsemi Fræðslumið-
stöðvarinnar og Leikskóla Reykja-
víkur.
Starfshópur um leikskóla í Reykjavík leggur til breytingar á gjaldskrá
Gjaldfrí leikskólavistun hluta úr
degi fyrir fimm ára gömul börn
Vilja aukið sam-
starf milli leik-
skóla og grunn-
skóla í borginni
Morgunblaðið/Ásdís
Tillögur starfshóps um leikskóla fela í sér að fimm ára börn eiga rétt á
gjaldfrjálsri leikskólavistun þrjá tíma á dag. Á myndinni má sjá nokkra
duglega krakka á leikskólanum Sólbakka að leik í skólanum.
♦♦♦