Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 11
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 11
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands fór í fyrsta sinn yfir 2.900 stig
innan dags í gær, en lokagildi hennar
var 2.894,7 stig, sem er 1,3% hækk-
un frá fyrra degi. Tilkynning barst frá
Bakkavör um að Geest hefði verið
gert að hlutdeildarfélagi Bakkavarar.
Viðbrögð markaðarins voru þau að
Bakkavör hækkaði um 5,3%, eða
mest allra félaga í Kauphöllinni.
Hlutabréf hækkuðu í verði í flest-
um helstu kauphöllum í Evrópu og
Bandaríkjunum í gær. Sænska kaup-
höllin er ein af undantekningunum,
en þar lækkuðu hlutabréf lítillega.
Hlutabréf lækkuðu í flestum kaup-
höllum Asíu.
Úrvalsvísitalan yfir
2.900 stig innan dags
! "#$
! "
"
#$%&
'()
*+,
-.%
/
/
/
/
/
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● BANDARÍSKA
öldungadeildin
hefur staðfest til-
nefningu Bush
forseta um Alan
Greenspan sem
bankasjóra seðla-
banka Bandaríkj-
anna. Þetta er í
fimmta sinn sem
Greenspan er val-
inn seðlabankastjóri, hann tók fyrst
við árið 1987 í tíð Ronalds Reagans
og leysti þá af hólmi Paul Volcker.
Greenspan, sem er 78 ára, mun
sitja til ársins 2006 en ekki er hægt
að endurskipa hann að þeim tíma
liðnum.
Öldungadeildin stað-
festir Greenspan
Alan Greenspan
● STJÓRN Kauphallar Íslands hef-
ur samþykkt aðild Deutsche Bank
AG London að Kaup-
höllinni. Umsókn
bankans kom í kjöl-
far þátttöku hans í
útgáfu nýrra íbúða-
lána sem Íbúðalána-
sjóður mun gefa út
frá 1. júlí næstkomandi í stað hús-
og húsnæðisbréfa. Frá þessu er
greint í fréttatilkynningu frá Kaup-
höllinni.
Aðilar að Kauphöllinni eru 20 og
þar af tveir erlendir, Nordea Bank
Danmark og nú Deutsche Bank.
Fram kemur í tilkynningu Kaup-
hallarinnar að Deutsche Bank AG
sé nú þegar aðili að hinum NOREX-
kauphöllunum, þ.e. að kauphöll-
unum í Helsinki, Kaupmannahöfn,
Ósló og Stokkhólmi. Þá segir að
viðskipti bankans og samskipti
vegna aðildar muni fara í gegnum
útibú bankans í London enda hafi
bankinn aðgang að SAXESS-
viðskiptakerfinu þar.
Haft er eftir Þórði Friðjónssyni,
forstjóra Kauphallarinnar, í tilkynn-
ingu hennar, að þetta sé mikils-
verður áfangi fyrir íslenska mark-
aðinn. ,,Með aðild Deutsche Bank
hefur skapast greiðari aðgangur að
íslenska markaðnum og við vænt-
um þess að þetta leiði til enn frek-
ari viðskipta erlendra aðila með ís-
lensk bréf og efli þannig seljan-
leika á markaðnum. Við bjóðum
bankann velkominn til Kauphall-
arinnar,“ segir Þórður.
Deutsche Bank aðili
að Kauphöll Íslands
BAKKAVÖR Group hf. mun á næst-
unni efna til skuldabréfaútboðs að
upphæð um 2,5 milljarðar króna, og
verða bréfin seld í lokuðu
útboði. Kemur þetta fram
í tilkynningu sem fyrir-
tækið sendi Kauphöll Ís-
lands í gær. Í tilkynning-
unni segir að tilgangur
útboðsins sé að afla fjár-
muna til frekari uppbygg-
ingar á kjarnamörkuðum
Bakkavarar og styðja
þannig við vöxt félagsins.
Bakkavör hefur undan-
farnar vikur keypt hlutafé
í breska matvælaframleið-
andanum Geest plc að
upphæð rúmlega 11 millj-
arðar króna. Fyrir kaupin átti
Bakkavör um átta milljarða króna í
handbæru fé og því hefur fyrirtækið
getað fjármagnað kaupin að stórum
hluta úr eigin sjóðum, en gera verð-
ur ráð fyrir að skuldabréfaútboðinu,
sem nú hefur verið boðað, sé ætlað
að afla þess fjár sem upp á vantar.
Þegar Bakkavör tilkynnti þann 28.
maí síðastliðinn um kaup á ríflega
10% hlut í Geest sögðu forsvars-
menn fyrirtækisins að engin áform
væru um yfirtöku á breska framleið-
andanum. Samkvæmt breskum yfir-
tökureglum mega fyrirtæki ekki
gera yfirtökutilboð fyrr en sex mán-
uðum eftir að hafa gefið slíka yfirlýs-
ingu. Þar til sá frestur rennur út má
Bakkavör ekki eiga stærri hlut í
Geest en sem nemur þrjátíu hundr-
aðshlutum. Aðspurður sagðist Lýður
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Bakkavarar, ekki geta svarað því
hvort fyrirtækið hygðist taka Geest
yfir í framtíðinni.
Betri kaup í Geest?
Einar Þorsteinsson,
sérfræðingur hjá Grein-
ingu Íslandsbanka, segir
líklegt að Bakkavör muni
láta til skarar skríða og láti
reyna á sameiningu við
Geest. „Við teljum að
Bakkavör hafi áhuga á því
að eignast Geest og sýnir
hækkun á verði hlutabréfa
í Bakkavör í dag að mark-
aðurinn er bjartsýnn á að
ytri vöxtur styrki afkomu
félagsins,“ segir Einar.
Gengi á hlutabréfum í Bakkavör
hefur hækkað um 10,3% frá 28. maí
og er nú í sínu hæsta dagslokagildi
frá upphafi eða 25,8 kr. á hlut. Á
sama tíma hefur gengi Geest lækkað
um 1,75%. Hefur gengi beggja félaga
þó hækkað mikið á árinu en mun
meira hjá Bakkavör. Vegvísir grein-
ingardeildar Landsbankans gerir
gengi hlutabréfa í fyrirtækjunum að
umtalsefni í nýjasta tölublaðinu, sem
kom út í gær. Segir þar að athygl-
isvert sé að markaðsvirði Bakkavar-
ar og Geest er nánast hið sama, sér-
staklega í ljósi þess að velta Geest er
sex sinnum meiri en Bakkavarar og
hagnaður Geest tvöfalt meiri en ís-
lenska fyrirtækisins. „Ef fjárfestar
trúa því á annað borð að félögin muni
renna saman í eitt, ættu þeir því
e.t.v. frekar að kaupa bréf í Geest en
í Bakkavör,“ segir í Vegvísinum.
Bakkavör Group með skuldabréfaútboð
Yfirtaka Geest
talin líkleg
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR óskar eftir
því að eftirfarandi verði birt í ljósi
umfjöllunar um íslenska þýðingu á
tilkynningu Standard & Poor’s
vegna lánshæfismats á Íbúðalána-
sjóði og skuldabréfaútgáfu hans:
„Morgunblaðið fjallar í viðskipta-
blaði sínu þann 17. júní um þýðingar
á umsögn Standard & Poor’s vegna
lánshæfismats þessa þekkta láns-
hæfismatsfyrirtækis á Íbúðalána-
sjóði, en Íbúðalánasjóður fékk mjög
gott lánshæfismat, það sama og ís-
lenska ríkið.
Íbúðalánasjóður vill taka fram að
sjóðurinn hafði ekkert með innihald
tilkynningar Standard & Poor’s að
gera og breytti í engu þýðingu lög-
gilts skjalaþýðanda sem fékk enskan
frumtexta Standard & Poor’s í hend-
ur til þýðingar.
Morgunblaðið vísar í ónafngreinda
sérfræðinga á fjármálamarkaði sem
halda því fram að setningin:
„Þar af leiðandi er afar lítil hætta á
að sjóðurinn verði einkavæddur og
að jafnframt verði dregið úr opinber-
um stuðningi við hann í fyrirsjáan-
legri framtíð“ sé ekki rétt þýðing á
setningunni: „Accordingly, privatiza-
tion risk, and the concomitant weak-
ening of government support is
highly unlikely in the foreseeable
future.“
Morgunblaðið vísar til fyrr-
greindra, ónafngreindra sérfræðinga
sem telja réttari þýðingu vera eftir-
farandi:
„Þar af leiðandi er afar lítil áhætta
tengd einkavæðingu og að dregið
verði úr stuðningi hins opinbera í fyr-
irsjáanlegri framtíð.“
Íbúðalánasjóður treystir lesend-
um Morgunblaðsins til að taka af-
stöðu til þess hvort íslenska þýðingin
er ónákvæm eða ekki, en bendir á að
mismunandi túlkun á fyrrgreindri
setningu breytir í engu undirstöðuat-
riðum umsagnar Standard & Poor’s.
Þá vill Íbúðalánasjóður að gefnu
tilefni undirstrika að Morgunblaðið
staðfestir í frétt sinni að setningin:
„Íbúðalánasjóður nýtur mikils póli-
tísks stuðnings allra málsmetandi
pólitískra afla og því er ólíklegt að
umtalsverðar breytingar verði gerð-
ar á lagalegu umhverfi hans“ er rétt
þýdd.“
Lesendum treyst til að
taka afstöðu til þýðingar
KB BANKI hefur
verið tekinn inn í vísi-
töluna Attract 40 á O-
lista sænsku kaup-
hallarinnar. Í sænsku
kauphöllinni eru A- og O-listi og er
KB banki skráður á O-listann. Meiri
kröfur eru gerðar til fyrirtækja á A-
listanum en O-listanum, meðal ann-
ars um fjölda hluthafa og markaðs-
verðmæti. Þá eru almennt meiri við-
skipti með bréf fyrirtækja á A-lista
en O-lista.
Báðum listunum er skipt í tvo
hluta eftir því hversu mikil viðskipti
eru með bréfin og eftir markaðs-
verðmæti fyrirtækjanna. Þau fyrir-
tæki sem mest viðskipti eru með á O-
listanum eru valin í Attract 40 vísi-
töluna. Í vísitölunni eru 48 fyrirtæki
og að þessu sinni koma 13 ný fyr-
irtæki inn í hana.
Skuldabréfaútgáfa vegna FIH
KB banki hefur gengið frá er-
lendri fjármögnun með skuldabréfa-
útgáfu í evrum. Upphæðin var 39
milljarðar króna, að því er fram
kemur í tilkynningu bankans.
Útgáfan verður meðal annars nýtt
til að fjármagna kaup KB banka á
danska bankanum FIH
KB banki í sænska
hlutabréfavísitölu
ÍSLENSK skip eru nú að síldveiðum
innan Svalbarðasvæðiðsins, án af-
skipta norsku strandgæslunnar, en
Norðmann hafa heimilað þar veiðar
á 80 þúsund tonnum af síld fram til
15 október.
Norðmenn hafa undanfarin ár
bannað síldveiðar á Svalbarðasvæð-
inu með reglugerð sem íslensk
stjórnvöld hafa mótmælt, enda sé
reglugerðin byggð á norskum lögum
en ekki ákvæðum Svalbarðasáttmál-
ans. Norðmenn hafa því heimilað
þeim veiðar innan svæðisins sem
hafa átt aðild að samningi um veiðar
á norsk-íslensku síldinni. Svo er eins
nú, jafnvel þótt ekki liggi fyrir samn-
ingur um veiðar úr stofninum.
Í því felst að skip frá Íslandi, Evr-
ópusambandinu og Færeyjum geta
veitt síldina í Svalbarðalögsögunni
án afskipta norsku strandgæslunnar
og héldu fyrstu íslensku skipin inn í
Svalbarðalögsöguna fyrr í vikunni.
Reyndar hafa Norðmenn sett
ákvæði um 80 þúsund tonna afla-
mark á svæðinu fram til 15 október.
Ekki er í gildi samkomulag um
veiðar úr norsk-íslenska síldarstofn-
inum en Íslendingar hafa sett sér
einhliða 128 þúsund tonna kvóta úr
stofinum. Samkvæmt upplýsingum
frá Samtökum fiskvinnslustöðva
hafa íslensk skip nú þegar landað
tæpum 15 þúsund tonnum af síld á
vertíðinni. Þrjú íslensk skip voru að
veiðum á svæðinu í gær og fleiri voru
á leiðinni ýmist norður til veiða eða á
leið til löndunar. Súlan EA var nyrst
skipanna, á 75. gráðu norðlægrar
breiddar og 10. gráðu vestlægrar,
um 120 sjómílur fyrir sunnan Sval-
barða.
Eftirgjöf hjá Norðmönnum
Í Morgunkorni Íslandsbanka í vik-
unni kom fram að líta mætti á að-
gerðir Norðmanna sem eftirgjöf í
deilunum um yfirráð Svalbarða-
svæðisðins. Í norska sjávarútvegs-
blaðinu Fiskeribladet er haft eftir
starfsmanni í norska sjávarútvegs-
ráðuneytinu að Svalbarðasvæðið hafi
nú verið opnað fyrir veiðum af líf-
fræðilegum ástæðum. Síldin sé væn
og lítið af smásíld í aflanum. Þar
kemur einnig fram að Audun Maråk,
formaður samtaka norskra útgerð-
armanna, gerir ekki athugasemdir
við opnun Svalbarðasvæðiðsins,
enda hafi lengi legið fyrir að veið-
arnar yrðu leyfðar til að forðast deil-
ur um yfirráðarétt Norðmanna yfir
svæðinu. Hann gagnrýnir hins vegar
hversu mikið magn verður heimilað
að veiða á svæðinu, segir að erlend-
um skipið hefði dugað að veiða helm-
ingi minna.
Veiðar úr norsk-íslenska síldar-
stofninum hafa verið í uppnámi frá
árinu 2002 þegar Norðmenn settu
fram kröfur um aukna hlutdeild í
veiðunum. Samkvæmt samkomulag-
inu frá árinu 1996 skiptist árlegur
kvóti í norsk-íslensku síldinni þannig
á milli ríkjanna að Norðmenn fá
57%, Ísland 15,54%, Rússland
13,62%, Evrópusambandið 8,38% og
Færeyjar 5,46%. Norðmenn hafa sl.
tvö ár gert kröfu um það að hlutur
þeirra hækki úr 57% í 70%, en hlutur
annarra ríkja minnki. Kröfðust
Norðmenn þess að 8,66% kvótans
kæmu í hlut Íslendinga, 13,62% í hlut
Rússa, 4,67% í hlut Evrópusam-
bandsins og 3,04% í hlut Færeyja.
Morgunblaðið/HMÁ
Nokkur íslensk skip eru á síldveið-
um á Svalbarðasvæðinu.
Svalbarðasvæðið
opnað fyrir
síldveiðum
VEIÐAR úr norsk-íslenska síld-
arstofninum hafa gengið vel und-
anfarinn áratug en norskir fiski-
fræðingar segja að horfurnar séu
jafnvel ennþá betri fyrir næsta ára-
tug. Árgangurinn frá 2002 sé mjög
stór og útbreiðsla hans meiri.
Í norska sjávarútvegsblaðinu
Fiskeribladet kemur fram að veiðar
úr norsk-íslenska síldarstofninum
virðast ná hámarki á 10 ára fresti.
Eftir hrun stofnsins á 7. og 8. ára-
tugnum hafi árgangurinn frá árinu
1983 verið fyrsti stóri árgangurinn,
árgangurinn frá 1992 hafi einnig
verið mjög stór og nú stefni í að
2002 árgangurinn verði jafnvel
ennþá stærri. Er honum líkt við ár-
ganginn frá árinu 1950 og telja
fiskifræðingar að þessir tveir ár-
gangar vaxi bæði í Noregshafinu
og Barentshafi en ungsíld með-
alárganga heldur sig jafnan bara í
Barentshafinu á uppvaxtarárunum.
Komi ungsíld 2002 árgangsins í
Noregshafið þýðir það að hún
stækkar hraðar og þar af leiðandi
verður hægt að veiða lengur úr ár-
gangnum að mati fiskifræðinga.
Telja þeir jafnvel líkur á að hægt
verði að veiða úr árganginum strax
næsta vetur en annars komi hann af
fullum krafti inn í veiðina árið 2006
og að þá gæti heildarkvóti úr stofn-
inum orðið um ein milljón tonna á
ári næstu árin.
Útlit fyrir aukna síldveiði