Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 22 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Tvílyft 489 fm atvinnuhúsnæði m. jafnri skiptingu milli hæða. Neðri hæðin er verslunarpláss með góð- um gluggum, ca 244 fm. Efri hæðin er að mestu leyti skrifstofur eða að 2/3 hlutum og 1/3 hluti lager bakatil með aðkomu Ártúnsbrekkumegin. Nýjar vörudyr, nýtt þak á húsinu og allt annað ástand mjög gott. Næg bílastæði og góð aðkoma. Getur verið laust fljótlega. Til leigu eða sölu. VERÐTILBOÐ. Upplýsingar gefur Ólafur B. Blöndal í s. 690 0811. Bíldshöfði – Leiga – Sala SÍMI 5 900 800 Hafnarfjörður | Hellisgerði og Lækjarskóli í Hafnarfirði munu iða af lífi næstu mánuði, þar sem stofnuð hefur verið listasmiðja barna sem starfrækt verður í allt sumar. Yfirskrift námskeiða lista- smiðjunnar er „Komdu og láttu ljós þitt skína“ en það eru þau Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir sem standa að smiðj- unni. Þau eru bæði menntaðir leik- arar og hafa starfað hjá Leikfélagi Akureyrar og víðar ásamt því að halda leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga. „Námskeiðin eru fyr- ir börn og unglinga á aldrinum 5 til 15 ára, og tekið verður fyrir ákveðið þema á hverju námskeiði. Námskeiðið fyrir 5 og 6 ára börn hefst núna á mánudaginn 21. júní og stendur skráning enn yfir. Fyrst verður það Dýrin í Hálsa- skógi, í júlí er það Ronja Ræn- ingjadóttir og þriðja þemað er Hrói höttur,“ segir Jón Ingi í sam- tali við Morgunblaðið. Aukin fjölbreytni fyrir for- eldra og börn Hellisgerði er að sögn Jóns Inga tilvalinn staður til leiks og tján- ingar, „og öll verkin sem við tök- um fyrir gerast í skógi, þannig að umhverfið er kjörið,“ bætir hann við. „Tilgangur námskeiðanna er að börn og unglingar fái nasasjón af leiklist og kynnist því hve öflugt tæki leiklistin er, bæði til að vinna með sjálfan sig og með öðru fólki. Þau fá æfingu í að koma fram og segja skoðanir sínar,“ útskýrir Jón Ingi, og segir námskeiðin annan valkost fyrir foreldra og börn þeirra í úrvali sumarnámskeiða. „Þetta er kærkomið fyrir krakka að kynnast þessum geira.“ Námskeiðin eru skipulögð af þeim Jóni Inga og Laufeyju Brá í samstarfi við æskulýðs- og tóm- stundaráð Hafnarfjarðar. „Okkar draumur er að halda þessum sum- arnámskeiðum áfram á komandi árum, og halda starfsemi lista- smiðjunnar sömuleiðis áfram yfir vetrarmánuðina fyrir þá krakka sem vilja. Með þeim hætti gætum við annað þeirri þörf sem er fyrir hendi að kynna leiklistina fyrir börnum og unglingum,“ segir Jón Ingi. Verður afrakstur sumarnám- skeiðanna sýndur vinum og vanda- mönnum á sýningu í Hellisgerði á góðum dögum í sumar. „Það eru allir velkomnir í Hellisgerði á góð- viðrisdegi til að njóta umhverfisins og sjá æsku Hafnarfjarðar sprella og syngja,“ segir Jón Ingi að lok- um. Láta ljós sitt skína í Hellisgerði Morgunblaðið/ÞÖK Dýrin í Hálsaskógi: Krakkarnir komnir í ýmis gervi. Þjóðarblómið kynnt | Veggspjald og bæklingur með tillögum að ís- lenska þjóðarblóminu verða kynnt á Árbæjarsafni á morgun, sunnudag. Alls eru 20 tillögur að þjóðarblómi, og mun Tryggvi Felixson fram- kvæmdastjóri Landverndar annast kynninguna, sem hefst klukkan 14. Ennfremur verður boðið upp á fjallagrasamjólk og fjallagrasaflat- kökur með nýstrokkuðu smjöri. Danmarks Drengekor lítur inn í heimsókn og syngur lög fyrir gesti safnsins klukkan 16. Ný sýning hefur sömuleiðis verið opnuð í listmunahorni Árbæj- arsafns. Þar sýnir Helga Birg- isdóttir – Gegga – ljósamyndir úr postulíni. Sýningin stendur til 23. júní. Reykjavík | Golfklúbbur Reykjavík- ur (GR) fagnar sjötíu ára afmæli sínu núna um helgina, og af því til- efni býðst almenningi að nota nýtt æfingasvæði á landi Golfklúbbsins í Grafarholti, Bása, án greiðslu í dag, laugardag, frá 10 til 15. Gestur Jóns- son, formaður Golfklúbbs Reykja- víkur, segir mjög gleðilegt að nýja æfingasvæðið sé opnað í tilefni af- mælisins. „Æfingasvæðið er full- komlega samanburðarhæft við það besta sem gerist í Evrópu, og gjör- bylting í aðstöðu til æfinga í golfi, bæði fyrir lengra komna og byrjend- ur,“ segir Gestur. Í tilefni afmælisins verður haldin hátíð á svæði klúbbsins í Grafarholti í dag, laugardag. Básar verða vígðir formlega, og sem fyrr sagði gefst al- menningi í framhaldinu kostur á að prófa svæðið frítt fram eftir degi. Af- mælismót GR verður haldið um miðjan daginn og um kvöldið verður haldið afmælishóf í klúbbhúsinu. Glæsileg aðstaða til æfinga Básar verða jafnt opnir félögum í Golfklúbbi Reykjavíkur og þeim sem koma á klúbbsvæðið og nota aðstöð- una. Básar eru á tveimur hæðum, auk þess sem þak hússins er nýtt þannig að í raun er æfingaaðstaðan á þremur hæðum. Básarnir eru 78, þar af fimm lokaðir til afnota fyrir kenn- ara klúbbsins og auk þess sem fjórir básar eru með sjálf„tíandi“ mottum, þannig að kúlan kemur sjálfkrafa á „tíið“. Allir básar á jarðhæð eru með innrauðum hitalömpum. Slíkir lamp- ar halda góðum hita á kylfingnum, jafnvel þó hiti sé undir frostmarki. Golfklúbbur Reykjavíkur rekur nú tvo átján holu golfvelli, í Graf- arholti og við Korpúlfsstaði. Þar er einnig níu holu byrjendavöllur. Enn- fremur hefur klúbburinn gert samn- inga við golfklúbbana í Keflavík og á Hellu, og þar eiga félagsmenn GR aðgang að átján holu völlum. Margir vilja komast að í golfinu Ásókn í golf hefur aukist mikið á undanförnum árum, að sögn Gests. „Það sem veldur okkur mestum áhyggjum er, að yfir 500 manns eru nú á biðlista eftir að gerast meðlimir í GR, en í klúbbnum eru nú um tvö þúsund manns,“ segir Gestur. Getur verið allt að tveggja ára bið eftir inn- göngu í klúbbinn. Hann segir GR ekki geta boðið upp á aðstöðu fyrir fleiri eins og málum sé nú háttað, og því sé mjög brýnt að stækka at- hafnasvæðið. „Það er því miður ekki fyrirsjáanlegt að þetta ástand breyt- ist í náinni framtíð, en von okkar er sú, að fljótlega verði tekin ákvörðun um stækkun Korpúlfsstaðavallar í samræmi við gildandi skipulag, þannig að við getum tekið við fleiri félögum í klúbbinn,“ útskýrir Gest- ur. „Það er enginn vafi á því að golfið er sú íþrótt sem mætir best þörfum fólks í dag fyrir útiveru, félagsskap og hæfilega keppni. Það er engin til- viljun að engin íþrótt er í samsvar- andi vexti og golfið,“ segir Gestur. Hann segir fjölda þeirra sem ganga í golfklúbba landsins hafa vaxið um 10 til 15 prósent undanfarin ár, sem þýði tvöföldun þátttakenda á fimm til sjö árum. „Ég er enn fremur sannfærður um það, að úti í þjóð- félaginu eru þúsundir manna sem dreymir um að komast af stað í golf- íþróttinni,“ segir Gestur að lokum. Golfklúbbur Reykjavíkur 70 ára Glæsileg aðstaða til golfæfinga vígð Morgunblaðið/Þorkell Gestur Jónsson, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur, með Bása, nýja æf- ingasvæðið, í baksýn. Morgunblaðið/Þorkell Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, prófar nýja æfingasvæðið. NÝTT æfingasvæði Golfklúbbs Reykjavíkur, Básar, verður opið al- menningi ókeypis í dag, laugardag, milli 10 og 15. Básar eru fullkomið æfingasvæði með aðstöðu fyrir 73 kylfinga til æfinga samtímis, en svæðið sem slegið er út á er alls um fimm hektarar. Kostnaður við gerð mannvirkisins er um 110 milljónir króna með öllum búnaði, og er það fjármagnað til hálfs með styrk frá Reykjavíkurborg og R&A í Skot- landi. Þar til viðbótar er eigið fé klúbbsins og lántaka, að sögn Gests Jónssonar, formanns Golfklúbbs Reykjavíkur. Til hliðar við æfingabásana er bæði púttvöllur og aðstaða til æf- inga á stutta spilinu. Ætlunin er að hafa svæðið opið jafnt sumar sem vetur, þegar veður leyfir. Hvorki kuldi né myrkur mun takmarka notkun Básanna, en þeir verða upp- hitaðir og svæðið flóðlýst. Básar opnir almenningi ókeypis í dag Kvennahlaupið í dag | Hið ár- lega kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í 15. sinn í dag, laugardag. Viðburð- urinn hefur vaxið ár frá ári og verða alls níutíu þátttökustaðir víða um land að þessu sinni. Þar að auki er hlaupið á 15 stöðum erlendis. Áætl- að er að um 20 þúsund konur taki þátt í hlaupinu, á öllum aldri og af fjölbreyttu þjóðerni eins og vera ber. Á höfuðborgarsvæðinu verður hlaupið í Garðabæ og í Mosfellsbæ. Hlaupið verður ræst á íþróttavell- inum í Mosfellsbæ klukkan 12, og í Garðabæ á Garðatorgi klukkan 14. Dagskrá hefst 45 mínútum fyrir ræsingu. Í Mosfellsbænum verður hægt að velja á milli 3, 5 og 7 km leiðar, og í Garðabæ verður meðal annars hlaupin 9 km leið. Í tilefni 15 ára afmælis hlaupsins er bolur hlaupsins fagurbleikur að lit. Þátttökugjald er 1.000 krónur, og munu 50 krónur af hverjum seld- um bol renna til geðræktarmála. ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.