Morgunblaðið - 19.06.2004, Side 24
AKUREYRI
24 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
26. júní 2004 liggur frammi til sýnis
á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar
á Syðra-Laugalandi
frá og með miðvikudeginum 16. júní
til og með föstudeginum 25. júní 2004
á venjulegum opnunartíma skrifstofunnar.
Sveitarstjóri.
Kjörskrá
vegna kjörs
forseta Íslands
ALLS voru 144 stúdentar brautskráðir
frá Menntaskólanum á Akureyri á
þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Skólanum
var nú slitið í 124. sinn og brautskráði
Jón Már Héðinsson skólameistari stúd-
enta nú í fyrsta sinn, en hann tók við
störfum af Tryggva Gíslasyni á liðnu
sumri.
Nemendur í MA voru 649 á nýliðnu
skólaári, 190 á fyrsta ári og hlaut Anna
Harðardóttir hæstu einkunn, 9,3, í öðr-
um bekk voru 175 nemendur og hlaut
Sólveig Sigurðardóttir hæstu einkunn
9,7 og í þriðja bekk voru 140 nem-
endur og hlaut Helga Valborg Stein-
arsdóttir hæstu einkunn, 9,9. Ásgeir
Alexandersson hlaut hæstu einkunn á
stúdentsprófi, 9,6, og varð hann einnig
Dux Scholae með einkunnina 9,58, en
þar er um að ræða meðaleinkunn allra
fjögurra áranna.
Fram kom í máli skólameistara að aðsókn að
skólanum nú í vor er með því mesta sem verið
hefur, 230 umsóknir bárust, „og nú ræðst það
meðal annars af heimild menntamálaráðu-
neytisins hversu marga nemendur við inn-
ritum,“ sagði Jón Már.
Svoleiðis er ekki gert
Hann gerði samræmd próf m.a. að umtals-
efni í ræðu sinni og hvort þörf væri á slíkum
prófum. „Ég skil vel að menntamálaráðherra
sé hugsi yfir því að taka þau upp í framhalds-
skólum. Háskólarnir sýna enga tilburði til að
gera neitt með þau, nemendur hafna þeim og
sjá lítinn tilgang með þeim og ekki heldur
kennarar þeirra. Nemendur velja sér fram-
haldsskóla eftir sérstöðu þeirra og skólarnir
keppa á grundvelli sérstöðu sinnar en ekki á
því að vera allir eins. Það eiga þeir heldur ekki
að vera. Reynslan er sú úr grunnskólum að allt
snýst um samræmdu prófin og annað verður
útundan. Það er líklegt að eins fari í fram-
haldsskólunum. Þetta er líkt því að hafa ein-
ungis æfingar í 100 metra hlaupi í frjáls-
íþróttafélagi, þar sem líka er keppt í köstum
og stökkum. Svoleiðis er ekki gert,“ sagði Jón
Már.
Hvaðan kemur frjó
og skapandi hugsun?
Hann benti á að frumkvæði í menntun ætti
að koma frá skólunum sjálfum og þeir sem þar
starfa ættu að spyrja sig hvort svo væri.
„Hvaðan kemur frjó og skapandi hugsun um
námsmat, um lengd skólans, um kennslu og
kennsluhætti? Höfum við í skólanum þar frum-
kvæði? Ef við stjórnendur framhaldsskólanna
sýnum ekki nægjanlegt frumkvæði
lendum við í þeirri stöðu að vera að
bregðast og jafnvel að bíða eftir til-
mælum úr menntamálaráðuneytinu í
stað þess að vera leiðandi og axla þá
ábyrgð sem frumkvæðinu fylgir. Skól-
arnir þurfa að vinna meira saman til
þess að efla traust og skilning. Við eig-
um að nýta okkur kosti fámennisins,
ekki forðast samræðuna og skýla okk-
ur á bak við ópersónulegt skrifræði
eins og við værum milljónaþjóð.“
Öflugir nemendur geti lokið
stúdentsprófi á þremur árum
Annað stórmál varðandi framhalds-
skóla sagði Jón Már vera stytting náms
til stúdentsprófs. Hann greindi frá því
að forsvarsmenn MA hefðu kynnt
ráðuneyti menntamála hugmyndir um
að öflugir og áhugasamir nemendur geti lokið
stúdentsprófi á þremur árum og yrði málið til
umræðu á næsta skólaári. Vonandi yrði svo
hægt að bjóða nemendum upp á slíkt nám að
ári. „Við höfum blöndu af bekkja- og áfanga-
kerfi og getum nýtt kosti hvors tveggja, við
ráðum yfir upplýsingatækni og getum beitt að-
ferðum dreifináms, við höfum öflugt starfslið
og góðan tækjakost. Við viljum að nemendur
eigi kost á að velja um þriggja eða fjögurra
ára nám eftir áhuga og getu. Við viljum líka
gefa kost á heils árs námi því skóli snýst ekki
bara um nám heldur nemendur og velferð
þeirra. Hér er allt sem þarf til að gera nám til
stúdentsprófs sveigjanlegt og árangursríkt,“
sagði skólameistari. „Við viljum að stúdentar
okkar verði framvegis jafngóðir eða betri en
verið hefur. „Því náum við ekki með því að
tálga utan af því stúdentsprófi sem nú er.“
144 stúdentar brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri
Framhaldsskólar keppa á grundvelli
sérstöðu – ekki um að vera allir eins
Stillt upp í Stefánslundi: Jón Már Héðinsson, skólameistari
MA, útskrifaði stúdenta í fyrsta skipti og er hér í þeirra hópi
við myndatöku í Stefánslundi eftir brautskráninguna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Staðarhnjúkur og Baugasel | Ferða-
félagið Hörgur efnir til sólstöðugöngu á
Staðarhnjúk ofan við Möðruvelli í Hörgárdal
næstkomandi mánudagskvöld, 21. júní, og
verður lagt af stað frá Möðruvöllum III
klukkan 20.30.
Þetta er um þriggja tíma ganga og eru all-
ir velkomnir en göngumönnum er bent á að
hafa með sér nestisbita.
DALSBRAUT var formlega opnuð
fyrir umferð í gær, Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri klippti á borða
sunnarlega í brautinni og ók síðan
sem leið lá fremstur í flokki á eð-
alvagni eftir hinni nýju leið að Borg-
arbraut.
Borgarbrautin opnar nýja leið
milli bæjarhluta, frá efri brekku og
að Oddeyri eða Glerárhverfi um
Borgarbraut og er því mikil sam-
göngubót fyrir ökumenn í innanbæj-
arakstri.
Kostnaður við lagningu þessa
hluta Dalsbrautar er um 60 milljónir
króna. Til skoðunar er innan bæj-
arkerfisins að leggja Dalsbrautina
áfram til suðurs, allt að Miðhúsa-
braut í Naustahverfi, en með slíkri
framkvæmd myndi mjög létta á um-
ferð um Þórunnarstræti.
Dalsbraut opnuð umferð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bæjarstjóri ók fyrsta bílnum „norður og niður“ götuna,
forláta fornbíl, og á eftir honum komu fleiri bílar sem
Bílaklúbbur Akureyrar útvegaði.
Samgöngubót: Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri klipp-
ir á borða við suðurenda Dalsbrautar sem tekin var í
notkun í gær. Hjá honum er Guðmundur Guðlaugsson,
deildarstjóri framkvæmdadeildar bæjarins, og lengst
til vinstri Jakob Björnsson, formaður bæjarráðs.
Afhjúpa skilti | Jafnréttis- og fjölskyldu-
nefnd Akureyrar stendur fyrir dagskrá á úti-
vistarsvæðinu að Hömrum í dag, laugardag,
19. júní og hefst hann kl. 13.
Formaður nefndarinnar, Gerður Jónsdóttir,
flytur ávarp og börn afhjúpa skilti til minn-
ingar um Vilhelmínu Lever (1802–1879) at-
hafnakonu á Akureyri sem var fyrst kvenna til
þess að kjósa í sveitarstjórnarkosningum hér á
landi og það 19 árum áður en konur fengu
kosningarétt til sveitarstjórna. Vilhelmína var
einnig fyrsti kjósandinn á Akureyri til þess að
fá nafn sitt skráð í kjörbók Akureyrar. Skiltið
er hannað af Hallgrími Ingólfssyni og skartar
tilgátuteikningu af Vilhelmínu eftir Kristin G.
Jóhannsson myndlistarmann.
Að lokinni afhjúpun skiltisins verður gróð-
ursett í lundi tileinkuðum Vilhelmínu.
Á Nonnaslóð | Gengið verður um slóðir
Nonna, jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar, í
innbænum á Akureyri í dag, laugardag, 19.
júní kl. 14. Lagt verður af stað frá Nonnahúsi,
gengið upp stíginn sem liggur upp á Nausta-
höfðann og m.a. skoðaðir ýmsir staðir sem
tengjast lífi og sögum Nonna. Gangan tekur
rúma klukkustund. Með í för verða leið-
sögumenn frá Nonnahúsi og Minjasafninu á
Akureyri. Þátttökugjald er 400 kr. en innifalið
er aðgangur að báðum söfnunum.
LISTASUMAR á Akureyri hefst í
dag í 12. sinn. Um er að ræða 10 vikna
listahátíð sem hefur skipað sér veg-
legan sess í lífi bæjarbúa, setur á bæj-
arbraginn hátíðlegan svip. Á Lista-
sumri er boðið upp á fjölda viðburða
af öllu tagi, t.d. leiklist, tónlist, mynd-
list, bókmenntir, nánast alla daga þar
til Listasumri lýkur á afmælisdegi
Akureyrarbæjar, 29. ágúst.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, for-
maður menningarmálanefndar, setur
Listasumar við athöfn í Ketilhúsinu
en samtímis verður opnuð sýning
þriggja listakvenna, Auðar Vésteins-
dóttur, Bjargar Þorsteinsdóttur og
Sigríðar Ágústsdóttur. Sýningin ber
yfirskriftina: Nítjándi júní – vefur,
vatnslitur og leir. Hún stendur til 4.
júlí næstkomandi.
Listasumar í tólfta sinn
Jónsmessuvaka | Hörgur efnir einnig til ár-
legrar Jónsmessuvöku í Baugaseli í Barkárdal
á miðvikudagskvöld, 23. júní. Lagt verður af
stað frá Bugi kl. 20.30 og safnast menn saman í
jeppa. Dvalist verður í Baugaseli fram undir
miðnætti við leik og söng.