Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 28
þeirrar blessunar að búa í húsi með
sál og sögu, en hér höfum við verið
undanfarin fimm ár. Við njótum þess
ríkidæmis að hafa stóra og fallega
lóð, sem við nýtum m.a. til mat-
jurtaræktunar. Við ræktum allt okk-
Ó
hætt er að segja að
ábúendurnir í Litlabæ,
hjónin Sigurður Árni
Þórðarson
Nes-
kirkjuprestur og Elín
Sigrún Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Dóm-
stólaráðs, séu miklir áhugamenn
um mat og matargerð. Þau ganga
samstiga í kokkeríið og gera til-
raunir. Auk matartilbúnings nota
þau eldhúsið sitt til samvista, tala
saman og hlæja. Brauðbaksturinn er
á ábyrgð húsmóðurinnar, en hús-
bóndinn er algjör einvaldur í sósum
og steikingum. Annað vinna þau
jöfnum höndum.
„Að rækta garðinn okkar í víðum
skilningi er sameiginlegt áhugamál
okkar. Við njótum þess að vera sam-
an í eldhúsinu. Til marks um það
unnum við að skemmtilegu verkefni
fyrir tveimur árum. Vinir og kunn-
ingjar voru oft að biðja okkur um
uppskriftir svo við ákváðum í árs-
byrjun 2002 að nota árið til að
vinna matreiðslubók heimilis-
ins, sem fékk nafnið „Líf og
matur í Litlabæ“. Mat-
reiðslubókin var gefin
út í fimmtíu eintökum
og gefin vinum og
vandamönnum í
jólagjöf það ár-
ið. Bókin er
myndskreytt
og krydduð
með borðbænum
og sálmaversum,“
segir Elín.
Matjurtagarður
Hús þeirra hjóna heitir Litlibær
og stendur á baklóð við Tóm-
asarhagann. Litlibær er steinbær
frá 1893 og var í eigu afa og ömmu
Sigurðar Árna. Síðan hefur margoft
verið bætt við húsið. „Við njótum
ar salat, kryddjurtir og grænmeti
yfir sumartímann og eigum nóg fyrir
allar máltíðir frá miðjum júní og
fram í október. Einhverjar rækt-
unartilraunir eru gerðar á hverju
vori. Nú er verið að rækta hvítlauk
og rauðlauk í fyrsta sinn,“ segir Elín
og bætir við að þau hjón hafi bæði
verið alin upp við mikla grænmetis-
og kartöflurækt, hún í Sandgerði og
hann á Tómasarhaga þar sem
mamma hans hafi ræktað
dýrustu kartöflur Ís-
lands, samkvæmt
áliti Þjóðviljans sál-
uga. Hjónin í Litlabæ
hafa mest á borðum
grænmeti, fisk, kjúk-
ling og lambakjöt. Þau
eru síður fyrir nauta- og
svínakjöt. „Matreiðslu-
bækur Jamie Olivers eru
mikið notaðar hjá okkur
ásamt Gestgjafanum og bók-
um Nönnu Rögnvaldsdóttur
Matarástarkonu. Svo spilum við
af fingrum fram þegar þannig
liggur á okkur. Matargerð okkar
tekur mjög mið af árstíð og hvað er
til í garðinum á hverjum tíma. Upp-
skriftirnar, sem fylgja, eru dæmi-
gerðar fyrir júnímánuð.“
Biblíumatur
Sigurður Árni heldur úti heima-
síðu þar sem kennir ýmissa grasa
enda er þar að finna uppskriftir and-
legra og líkamlegra krása. „Ég vil að
heimasíðan mín líkist eldhúsborðinu
heima. Ég ákvað því að setja líka
nokkrar vel valdar mataruppskriftir
inn á síðuna.
Slóðin er: www.gudfraedi.is/
annall/sigurdurarni/matur.
Neskirkjupresturinn áformar
jafnframt að nýta sér mataráhugann
í kirkjustarfinu þar sem nýtt safn-
aðarheimili bjóði upp á marga
skemmtilega möguleika. Til stendur
að reka þar kaffihús
svo fólk geti notið bæði
andlegrar og lík-
amlegrar næringar í
kirkju og safn-
aðarheimili.
Sigurð Árna dreym-
ir líka um veislur og
námskeið í Biblíumat.
Þegar Litlabæj-
arhjónin voru beðin
um að gefa uppskriftir
í Matarkistuna ákváðu
Litlubæjarhjónin að
bjóða upp á júnísalat,
fyllt brauð, kjúkling og
rabarbarapæ.
Júnísalat með ferskjum
400 g blandað salat, s.s.
spínat, klettasalat, miz-
una, grænkál, salatblöð,
lollo rosso,
2 ferskjur skornar í báta,
Fersk mynta og graslaukur eftir
smekk,
2 msk. graskersfræ, ristuð á þurri
pönnu þar til þau brúnast.
Nokkrar sneiðar af parmesanosti,
skornar með ostaskera
Salatolía
2 tsk. Dijon-hunangssinnep
1 tsk. límónubörkur, fínrifinn
1 saxað hvítlauksrif
1 msk. límónusafi
4 msk. valhnetuolía
Maldonsalt og mulinn svartur pipar
eftir smekk
Byrjið á salatolíunni. Gott er að
setja hana í matvinnsluvél. Raðið
salatinu á stóran disk, sneiðið ferskj-
urnar í báta, saxið myntu og gras-
lauk yfir. Osturinn er síðan skorinn í
þunnar, langar sneiðar og graskers-
fræinu dreift yfir. Salatolíunni hellt
yfir í lokin.
Elínarbrauð með fyllingu
2,5 dl ylvolgt vatn
2 tsk þurrger
1 tsk hunang
1 tsk salt
3 msk ólífuolía
400 g brauðhveiti
Fylling
10 sneiðar parmaskinka
1 lúka af fersku basil
Hálf krukka af sólþurkuðum
tómötum
10 svartar, saxaðar ólífur
2 msk olífuolía
Öllu blandað saman og látið mar-
inerast í skál meðan deigið lyftist.
MATARKISTAN|Líf og matur í Litlabæ
Elínarbrauð: Með fyllingu.
Steiktar kjúklingabringur: Með
salati og brauði.
Hún: Elín Sigrún Jónsdóttir segir að matargerðin í Litlabæ taki mjög mik-
ið mið af árstíðum.
Hann: Sigurður Árni Þórðarson heldur m.a. úti heimasíðu með andlegum
og líkamlegum krásum.
Júnísalat og rabarbarapæ
Rabarbarapæ:
Með rjóma.
DAGLEGT LÍF
28 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
European Business School London
EBS London is one of the UK’s largest and leading private business
schools. Through our innovative programmes and corporate links, we
consistently achieve a 100% employment rate amongst our graduates.
BA (Hons) in International Business
choice of six business majors, combined with 1 or 2 languages.
Regents Business School London
With a professional and practical focus our degree programmes are
suitable for a range of entry qualifications. BA (Hons) degrees in:
International Business
International Finance & Accounting
International Marketing
International Business with Design Management
British American College London
Leading American University degree programmes delivered
in Central London. 4 year BA degrees (GCSE entry):
Management, Media Communications
International Relations, Social Science, Psychology
Study in London
Situated in central London’s Regent’s Park, Regent’s
College offers a unique education experience at
one of 3 leading independent institutions.
Apply now
for August
2004
w
w
w
.r
e
g
e
n
ts
.a
c
.u
k
Regent’s College, Regent’s Park, London NW1 4NS, UK T: 020 7487 7505 - F: 020 7487 7425
Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is
Brúðkaup • Pökkun • Merking