Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 33 in, standa við þau minni reynum.“ Og kvæðinu lauk hann svo: „Burt með holu hismisorðin, hrokareiging, froðuspenning. Burt með raga skríldóms skjallið! Skiljum heimsins sönnu menning.“ Hannes Hafstein hafði, aðeins 18 ára gamall, ort sína innilegu ástarjátningu til Íslands: „Ef verð ég að manni, og veiti það sá, sem vald hefur tíða og þjóða, að eitthvað ég megni, sem lið má þér ljá, þótt lítið ég hafi að bjóða, þá legg ég, að föngum, mitt líf við þitt mál, hvern ljóðstaf, hvern blóðdropa, hjarta og sál.“ Tómas Guðmundsson segir um þetta kvæði hins unga manns. „Sjaldan hefur svo drengileg rödd og þróttmikil kvatt sér hljóðs að upphafi skáldferils, og enn sjaldnar hefur ungur fullhugi leitað æskuheitorði sínu efnda af afdráttarlausari trúnaði en Hannes Hafstein.“ Ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir þing- menn sem nú um stundir skipa Alþingi, hvar sem þeir í fylking standa, taka af einlægum hug og heilindum undir þá heitstrengingu, sem Hannes Hafstein, fyrsti ráðherrann okkar, orðaði svo tær- lega og gera hana að sinni. Geri þeir það, „Þá mun sá guð, sem veitti frægð til forna, fósturjörð vora reisa endurborna. Þá munu bætast harmasár þess horfna, hugsjónir rætast. Þá mun aftur morgna.“ Ég óska löndum mínum farsældar í framtíð og þakka þeim þolinmæði og umburðarlyndi við mig, er ég segi í fjórtánda sinn frá þessum stað: „Gleði- lega hátíð, góðir Íslendingar.““ á þjóðhátíðardegi meðal höfn Morgunblaðið/Júlíus una á þjóðhátíð á Austurvelli 17. júní. R eykjavíkurborg virkj- ar borgarana til þátt- töku í stjórn borg- arinnar á miklu víðtækari hátt en flesta ,,skoðanaleiðtoga“ í fjöl- miðlum virðist gruna. Til dæmis mátti heyra í útvarpsþættinum ,,Speglinum“ hefðbundna grunn- færna umfjöllun í tilefni 10 ára af- mælis Reykjavíkurlistans; af og til koma fullyrðingar þess efnis að ,,grasrótin“ fái ekki að vera með. Er það svo? Hverfaráðin sanna sig í verki Hverfaráð borgarinnar voru stofnuð fyrir tveimur árum með sérstökum samþykktum til að skapa vettvang fyrir ,,grasrót- armálin“ í einstökum hverfum og tengja við yfirstofnanir borg- arinnar. Borgarfulltrúar sitja í ráðunum og funda reglulega með gestum, áheyrnarfulltrúum og öðr- um sem mál varða. Ráðunum var fjölgað fljótlega úr átta í tíu og hafa nú fundað í 60 skipti og haldið 13 opna fundi íbúa um til dæmis nýtt leiðakerfi Strætó, skipulags- mál, samgöngumál, málefni ung- linga, umferðarmál og forvarn- armál. Í því ráði sem ég veiti formennsku, hverfisráði Graf- arvogs, sitja áheyrnarfulltrúar frá íbúasamtökum, foreldraráðum, eldri borgurum og fleirum hefur reyndar verið boðið að vera með. Stór og smá mál koma inn á borð okkar og starfsmanna hverfisþjón- ustumiðstöðvarinnar Miðgarðs. Við höfum haldið þrjá opna borg- arafundi um málefni Grafarvogs sem hafa verið vel sóttir. Haustið 2002 var haldið íbúaþing um mál- efni Grafarvogs. Þar bar hæst um- ræðu um umferðarmál og leiddi hún til þess að ráðið stofnaði um- ferðaröryggishóp sem í eru fulltrú- ar íbúasamtaka, lögreglu og hverf- isráðs. Það starf leiðir til tillagna um margvísleg mál sem snerta umferðaröryggi í hverfinu. Er þetta lýðræði í verki? Er þetta ,,grasrótarstarf“? Ef ekki, hvað er það þá? Ráðin taka reyndar ekki ákvarðanir sem skuldbinda æðra vald borgarinnar, en þau eru ráð- gefandi og geta tekið mál íbúa á dagskrá til að ýta eftir fyrir hönd fólks í hverfunum. Dæmi um slíkt mál er deilan um áfengisveitingar í Egilshöll, sem ég hef fjallað um annars staðar og tel að megi draga lærdóm af um það hvernig fólk getur haft áhrif á næsta umhverfi sitt. Þegar upp komu raddir um að tiltekið útilistaverk væri sett upp í óþökk íbúa beitti ég mér fyrir því sem formaður ráðsins að kanna hug fólks í hverfinu. Skoðanir og áhrif hríslast eftir mörgum farveg- um þótt ekki sé efnt til kosninga um stórt og smátt. Opnir fundir nefnda Í þeim nefndum sem ég stýri hefur verið innleidd sú nýjung að halda opna nefndarfundi með al- menningi. Nýlega var haldinn fundur fræðsluráðs um meinta veika stöðu pilta í grunnskólum, sem þótti frábærlega heppnaður. Það voru leiddir saman stefnumót- endur borgarinnar, fræðimenn og áhugasamir leikmenn í röðum borgara. Grasrótarstarf? Eða hvað með opinn fund menningarmála- nefndar í samstarfi við Alþjóðahús á dögunum um fjölmenning- arstefnu þar sem mættu 60–70 manns? Í undirbúningi fundarins var stofnuð sérstök menningar- málanefnd Alþjóðahúss sem nú hefur verið ákveðið að verði menn- ingarmálanefnd borgarinnar til ráðgjafar um málefni innflytjenda og endurskoðun fjölmenning- arstefnu borgarinnar. Menningar- málanefnd hélt sérstakan opinn fund um stefnu Listasafns Reykja- víkur til að hlýða á flóru lista- manna og leiða þá saman við stefnumótendur borgarinnar. Nefndin hélt í vetur sérstakan samráðsfund með fulltrúum allra helstu listgreina með for- ystumönnum borgarinnar og er það nýjung sem hér eftir verður reglubundin. Sömuleiðis hef ég sem formaður í nefndum beitt mér fyrir því að fjölga gestum sem boð- ið er á fundi til að ræða tiltekin málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Slíkir álitsgjafar hafa oft sett hlutina í annað samhengi en áður blasti við og hjálpað við stefnumótun. Satt að segja furðar mig nokkuð sem formaður í þess- um nefndum hve þetta framtak með opna fundi hefur vakið litla athygli þeirra sem hafa áhyggjur af lýðræði í verki. Kannski vegna þess að þeir hafa engan áhuga á ,,grasrótinni“ í reynd? Mætti ekki benda nefndum Alþingis á þessi vinnubrögð? Ég er þeirrar skoðunar að setja eigi formlega í samþykktir nefnda borgarinnar að þær skuli halda opna fundi um valin málefni sem þær fjalla um. Flokkapólitík eða fólkspólitík? Þessi dæmi sanna að Reykjavík- urlistinn starfar ekki bara inn í flokkana sem að honum standa, heldur miklu frekar út yfir þá og til almennings í borginni. Með réttu. Meirihluti Reykvíkinga er ekki í stjórnmálaflokkum og hefur rétt til að láta til sín taka án milli- göngu flokkanna. Þetta sýna opnir fundir borgarstjóra sem árlega eru haldnir í öllum hverfum. Þar eru ekki flokkshestar heldur fólk sem hefur áhuga á málum borgarinnar. Þá eru auðvitað ótaldir reglu- bundnir viðtalstímar borgarstjóra og allra borgarfulltrúa, meiri- og minnihluta og annars sem er hefð- bundið og menn þekkja. Þá skal telja margvíslegt samráð um skipulagsmál sem sumt er bundið í lög en annað af frumkvæði borg- aryfirvalda: nýleg dæmi um miðbæinn og skipulag á Norð- lingaholti sýna það. Stundum spretta umræður af deilum. Best er þegar hægt er að koma í veg fyrir deilur með sam- ráði og samstarfi – en þá kallast það víst ekki lýðræði og grasrót- arstarf af þeim sem best þykjast vita. Lýðræði í reynd Eftir Stefán Jón Hafstein Höfundur er borgarfulltrúi Reykjavík- urlistans. ’Þessi dæmi sannaað Reykjavíkurlistinn starfar ekki bara inn í flokkana sem að hon- um standa, heldur miklu frekar út yfir þá og til almennings í borginni. Með réttu.‘ L andsmenn hafa til þessa talið sig búa við allgott og öruggt vel- ferðarkerfi og heil- brigðisþjónustan talin ein sú besta sem völ er á. Nú er hins vegar jafnt og þétt að henni vegið. Framsóknarflokkurinn hefur farið með heilbrigðismálin í rúm tvö kjörtímabil og ber því höf- uðábyrgð á auknum einkarekstri í þessum mikilvæga þætti velferð- arþjónustunnar. Fyrir síðustu kosningar lofaði þessi sami flokkur að standa vörð um velferðarþjón- ustuna og þvertók fyrir að til stæði að einkavæða heilbrigðisþjón- ustuna. Hvernig hafa svo efndirnar verið? Undir merkjum sparnaðar í rík- isrekstri hefur heilbrigðisþjón- ustan látið á sjá á nær öllum svið- um. Það hefur verið gengið lengra en að halda í horfinu með óbreytta starfsemi, sparnaðurinn er orðinn að niðurskurði í þjónustu um leið og þörfin fyrir aukna þjónustu blasir við í hverju sveitafélagi, hvort sem er innan heilbrigðis- eða fé- lagsþjónustunnar. Heilbrigðisstarfsmenn og sveit- arstjórnarmenn tala fyrir lokuðum eyrum um nýjungar eða aukna þjónustu og margir heilbrigð- isstarfsmenn eru orðnir lang- þreyttir á því vinnuumhverfi sem þeim og skjólstæðingum þeirra er skapað. Það er komið að þolmörk- um sparnaðar og hagræðingar, frekari sparnaður kemur niður á þjónustustigi og öryggi sjúklinga. Þetta er staðreynd sem rík- isstjórnin ber alla ábyrgð á. Ekki einkavæðing, bara einkarekstur Fólki er talin trú um að ekki sé verið að einkavæða þessa mik- ilvægu samfélagsþjónustu, það sé eingöngu verið að koma einstökum þáttum hennar í einkarekstur í því skyni að spara í ríkisrekstrinum. Undir þeim formerkjum er heil- brigðisstofnunum landsins og þá sérstaklega Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi skammtað svo naumt af fjárlögum að annaðhvort verða þær að draga úr starfsemi eða koma henni af sér til einkaaðila. Með þessu er verið að mola niður þá heilbrigðisþjónustu sem við höfum byggt upp sem samfélagsþjónustu fyrir alla. Hvað gengur mönnum til? Eru einhverjar ástæður fyrir því að veikja þarf eitt öflugusta heilbrigð- iskerfi í veröldinni? Jú, það er ein mikilvæg ástæða fyrir þessari aðför og hún er sú að ríkisstjórnin veit að það er enginn hljómgrunnur hjá þjóðinni fyrir einkavæðingu heil- brigðisþjónustunnar og því þarf að koma markaðshyggjunni að bak- dyramegin. Það er erfitt að taka pólitískt á móti smáskammtaað- ferðinni, því að með henni er eitt látið leiða af öðru eins og ekkert sé fyrirfram ákveðið og fólk uggir ekki að sér. Þegar til lengri tíma er litið dugar því smáskammtaaðferð- in vel til þess að þröngva einkavæð- ingu heilbrigðisþjónustunnar upp á þjóðina. Að kroppa þjónustuna af LSH Fjárhagsvanda Landspítala – há- skólasjúkrahúss ber hæst í rekstr- arþrengingum heilbrigðisstofnana og má telja að hann sé í réttu hlut- falli við umfang og starfsemi sjúkrahússins. Krafa um enn frek- ari sparnað setur starfsemi sjúkra- hússins í uppnám. Heilbrigð- isstarfsmenn hafa ekki viljað vekja ótta með því að gera opinbert að þeir teldu að öryggi sjúklinga gæti verið stefnt í hættu, en nú hefur læknaráð LSH bent á að frekari sparnaðaraðgerðir muni bitna á sjúklingum og koma niður á þjón- ustu og starfsanda. Smám saman er verið er að kroppa alla þá starfsemi af LSH sem ekki getur flokkast undir bráðaþjónustu og er það í höndum heilbrigðisráðherra að finna nýja rekstraraðila eða leggja starfsem- ina niður. Þessari vinnu er haldið áfram, þrátt fyrir að sérstakri nefnd hafi verið falið að gera til- lögur um framtíðarþjónustu LSH, nefnd sem átti að skila áliti nú í vor en hefur frestað því fram til hausts- ins. Framsóknarráðherra heil- brigðismála kemur þeirri þjónustu sem LSH flokkar utan starfssviðs sjúkrahússins í einkarekstur um leið og starfsemi á þjónustudeildum LSH er ógnað. Tillögur um að setja þjónustueiningarnar undir opinber- an rekstur á ný hafa ekki heyrst. Óraunhæf sparnaðarkrafa gefur hugmyndum um sjúklingaskatta byr undir báða vængi og hefur stjórn LSH lagt til að tekin verði upp komugjöld sjúklinga sem leggjast inn á sjúkrahúsið. Þingflokkur VG hefur harðlega mótmælt áframhaldandi aðför að Landspítala – háskólasjúkrahúsi og varar við því að frekari aðhalds- aðgerðir valdi varanlegri eyðilegg- ingu á áratuga uppbyggingarstarfi. Í ályktuninni segir enn fremur: „Þetta yrðu afleiðingar sveltistefnu ríkisstjórnarinnar sem greinilega er framfylgt til að knýja sjúkra- húsið til að einkavæða starfsemi sína. Þingflokkurinn hafnar alger- lega öllum hugmyndum um frekari komugjöld og sjúklingaskatta sem komið hafa til umræðu í stjórn sjúkrahússins. Í því sambandi má vísa í varnaðarorð handhafa nor- rænu Lýðheilsuverðlaunanna, Gör- ans Dahlgrens, sem flutti fyr- irlestur hér á landi nýlega, en hann sagði það sannað mál að komugjöld bitnuðu illa á tekjulitlu fólki og öldruðum og leiddu til félagslegs misréttis. Heilbrigðisþjónustan er einn af mikilvægustu hornsteinum velferðarþjóðfélagsins og hefur fram undir þetta verið víðtæk sátt í þjóðfélaginu um áframhaldandi uppbyggingarstarf. Í þessu ljósi er ástæða til að vara sérstaklega við hugmyndum um að skerða tekjur ríkissjóðs með stórfelldum skatta- lækkunum.“ Smáskammtaaðferðin Morgunblaðið/Sverrir Eru einhverjar ástæður fyrir því að veikja eitt öflugasta heilbrigðiskerfi í heimi? spyr greinarhöfundur. Myndin er frá hjartaþræðingu í LSH. Eftir Þuríði Backman Höfundur er þingmaður VG. ’Undir merkjumsparnaðar í ríkis- rekstri hefur heil- brigðisþjónustan lát- ið á sjá á nær öllum sviðum.‘
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.