Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 19.06.2004, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Svínið mitt © DARGAUD Grettir Smáfólk Smáfólk VIÐ MÝSNAR ERUM BÚNAR AÐ KJÓSA UM ÞAÐ, OG ÞIÐ MEGIÐ BÚA ÁFRAM Í HÚSINU TAKK FYRIR. ÆÐISLEGT! ER ÞAÐ EKKI? HVAÐ ÞYKIST ÞIÐ VERA? ÉG BJÓ TIL HEITT KAKÓ HANDA OKKUR HVERNIG SMAKKAST? EF AÐ ÉG VÆRI F0ST FYRIRAFTAN VÍGLÍNU ÓVINARINS OG ÞAÐ VÆRI ÞRJÁTÍU GRÁÐU FROST, ÞÁ MYNDI ÉG SEGJA AÐ ÞAÐ VÆRI GOTT... ÉG GERI EKKI RÁÐ FYRIR ÞVÍ AÐ ÞETTA HAFI VERIÐ HRÓS HALLO, SIGGI? ÉG HEYRÐI LAG Í ÚTVARPINU SEM MINNTI MIG SVO MIKIÐ Á ÞIG... KANNSKI SEINNA, ÞEGAR VIÐ ERUM GIFT, ÞÁ HRINGI ÉG Í ÞIG Í VINNUNA OG SEGI ÞÉR HVAÐ ÉG ER AÐ HUGSA MIKIÐ UM ÞIG... VÆRI ÞAÐ EKKI SKEMMTILEGT? ÞAÐ ER ENGINN NOTANDI MEÐ ÞETTA SÍMANÚMER... VINSAMLEGAST LEGGIÐ Á OG REYNIÐ EKKI AFTUR SÍÐAR! ÆI! GÓÐAN DAG ELSA. EN VIÐ BÁÐUM ÞIG EKKI AÐ PASSA ÖDDU Í DAG ÉG VEIT. HÚN HRINGDI SJÁLF Í MIG VEGNA ÞESS AÐ RÚNARI ER MÁL AÐ PISSA EN EKKERT GENGUR Í 4 DAGA? JÁ, RÚNAR HEFUR EKKI FARIÐ Á KLÓSETTIÐ Í 4 DAGA ÉG SKIL EKKI. HANN BORÐAR GÓÐAN MAT FYRST ÞARF MAÐUR AÐ SIGRAST Á VEIKINDUNUM MAÐUR ÞARF AÐ HENDA ÖLLUM PILLUM Í RUSLIÐ SVONA! ! RÚNAR KOMDU HINGAÐ! TAKTU ÞETTA DREKTU SÍRÓPIÐ HVERT ER HANN AÐ FARA Á KLÓSETTIÐ ÓTRÚLEGT! ÞETTA VIRKAÐI EINS OG SKOT. HVAÐ VAR ÞETTA PILLAN VAR EKKERT ANNAÐ EN BRAUÐMOLI, EN SÍRÓPIÐ... ER SÉRSTÖK BLANDA FRÁ HEIMALANDI MÍNU FÆR MAÐUR ENDUR- GREIÐSLU FRÁ TRYGGINGUNUM HÚN BJARGAÐI RÚNARI! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FRAM UNDAN eru þrír stórvið- burðir. Sextíu ára afmæli lýðveld- isins, forsetakosningar og þjóðar- atkvæðagreiðsla um fjölmiðla- frumvarp. Ætla má að þjóð- hátíðardagurinn geti orðið með hefðbundnum hætti og hátíðlegur að vanda. Forsetakosningar verða í skugga þess að sitjandi forseti ákvað að blanda sér í flokkapólitík eftir að framboðsfrestur rann út. Þetta veldur kjósendum vanda. Kosning um fjölmiðlafrumvarpið eykur enn á vanda kjósenda. Kosningarnar eru nl. að frum- kvæði forseta og hans ákvörðun, en virðast á ábyrgð forsætisráð- herra, þar eð forseti er ábyrgð- arlaus af stjórnarathöfnum. Und- irritaður hefur síðustu daga velt fyrir sér hvaða möguleika hann hefur til að taka málefnalega af- stöðu til umdeilds lagafrumvarps. Ljóst er að meirihluti alþingis- manna telur að takmarka beri rétt, markaðsráðandi fyrirtækja, að eignast flest eða öll skoðanamynd- andi fyrirtæki í landinu. Það sem ég hef séð og heyrt frá samein- uðum og einhuga minnihluta þingsins virðist lítið hafa með efn- isatriði að gera. Einhver hljóta þó efnisrök minnihlutans að vera, þótt almenningi, sem hefur fréttir frá fjölmiðlamönnum, virðist öll þeirra ræða vera til þess gerð að sanna mannvonsku og skítlegt eðli forsætisráðherrans, ábyrgðar- manns forseta. Því eru það tilmæli mín til Forseta Alþingis að hann láti valinkunna heiðursmenn gera samantekt úr efnisatriðum máls- ins, læsileg almenningi. Þarna yrði tekin saman úrdráttur, þeirra sem gáfu allsherjarnefnd álit sem og efnislegur úrdráttur málflutnings þingmanna. Þó eingöngu það sem skiptir máli við ákvarðanatöku al- mennings um frumvarpið. Stóryrð- um, langlokum og orðklámi yrði auðvitað sleppt, enda málinu óvið- komandi. Það er nefnilega afar mikilvægt að kosningarnar snúist um málið sjálft og ekkert annað og alls ekki geðslag alþingismanna, ráðherra eða forseta Íslands. Bollaleggingar þar um getur þjóð- in áfram skemmt sér við í skamm- deginu. Já, skammdegið er góður tími til rifrildis og annarra skemmtana, svo sem leikþátta- gerðar, málfundaæfinga og jafnvel kosninga. En hvers vegna setur forseti minn mig í þessa vinnu um hásumarið í blessaðri blíðunni? Hvers vegna treystir hann bara ekki þjóðkjörnum alþingismönnum fyrir verkinu eins og ég geri? Get- um við ekki treyst því að fá aftur að kjósa til Alþingis eftir u.þ.b. 30 mánuði? Hvaða verklagsreglur ætlar forsetinn að hafa í framtíð- inni við mat samþykkis eða synj- unar laga frá Alþingi? Þarf ekki stóraukið starfslið á skrifstofu Forseta Íslands að sortera, hvað forsetanum kunni að hugnast frá þinginu og hvað ekki? Þessu verða þó allir forsetaframbjóðendur að svara. Líka sá sem býr á Bessa- stöðum. HALLDÓR BEN HALLDÓRSSON, Laugavegi 61–63, 101 Reykjavík. Frá grasrótinni Frá Halldóri Ben Halldórssyni: HERRA forseti, Ólafur Ragnar Grímsson. Í rökstuðningi yðar fyrir að synja fjölmiðlafrumvarpinu svo nefnda staðfestingar talið þér um að fjölmiðlar séu mun drýgri við að móta skoðanir almennings en stjórnvöld landsins. Með hliðsjón af þessu hlýtur yður að vera ljóst að skoðanakönnun sem gerð er um efni sem fjallað er um með mjög einhæfum hætti í fjölmiðlum á sama tíma og könnun er gerð er lítt marktæk. Ég tel því einsýnt að þér séuð ekki ósammála fjölmiðla- frumvarpinu efnislega en viljið að þjóðin sjálf ákveði hvort hún er sammála þeirri skoðun meirihluta alþingismanna að óæskilegt sé að auðmenn eða auðhringir, hvort sem er innlendir eða erlendir, leggi undir sig fjölmiðla landsins og noti þá síðan til að sveigja hug almennings undir skoðanir sem eru þeim sjálfum þóknanlegar. Nú er efni þessa bréfs að spyrja yður einnar spurningar: Er ofanrituð skoðun einnig yðar skilningur á efnislegu innihaldi til- færðra ummæla yðar? Spurningin er sett fram á grundvelli þeirra orða yðar á blaðamannafundi fyrir skemmstu að þér mynduð síðar svara efnis- legum spurningum um rökstuðn- ing yðar. Það skal tekið fram að undirritaður er hvorki fréttamaður né annar starfsmaður eða eigandi fjölmiðils, aðeins einn af „fjöldan- um handan gjár“ sem þarf að taka afstöðu til umræddra laga í kom- andi kosningu um þau. Ég mun taka þögn af yðar hálfu sem já- kvætt svar við ofanritaðri spurn- ingu. Í annan stað vil ég skora á yður að synja væntanlegu frumvarpi um þjóðaratkvæðagreiðslu staðfest- ingar. Þau lög verða engu ómerk- ari um framvindu þróunar lýðræð- is á Íslandi en fjölmiðlalögin. Greiða mætti atkvæði um hvora tveggja lagasetninguna samtímis. Ef þér takið ekki mark á óund- irrituðum tölvupósti bið ég yður vinsamlegast að láta mig vita svo að ég geti sent yður þetta bréf með undirskrift minni. Virðingarfyllst. SIGURBJÖRN GUÐMUNDSSON, Laugarnesvegi 87, 105 Reykjavík. Opið bréf til forseta Íslands Frá Sigurbirni Guðmundssyni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.