Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 49
JÓHANNA Björg Jóhannsdóttir hlaut titilinn Tívolí-
meistari Hróksins og Húsdýragarðsins á hörkuspenn-
andi úrslitamóti í Húsdýragarðinum 17. júní. Jóhanna
hlaut sex vinninga af sjö mögulegum og hlaut hún að
launum ferð í Tívolíið í Kaupmannahöfn.
Næsta vetur verða tvær syrpur og fara þær þannig
fram að fyrst verða fjögur stigamót og svo úrslitamót.
Verðlaun á mótinu voru glæsileg og fjölmörg fyr-
irtæki sem lögðu Hróknum og Húsdýragarðinum lið.
Allir keppendur fengu medalíu frá Árna Höskuldssyni
og viðurkenningarskjal frá Hróknum. Heimilistæki gaf
ferðageislaspilara og vasaútvarp, JPV bókina Virgil
litla, Edda útgáfa bók Madonnu, 12 Tónar geisladisk og
Penningg gaf skáktölvu, skákklukku og skáksett.
Úrslit:
1. sæti Jóhanna Björg með 6 vinninga.
2.–5. sæti Andri Steinn, Einar Ólafsson, Hörður Aron
og Sigríður Björg með 5 vinninga.
Verðlaunahafar sem fengu bikar frá Árna Höskulds-
syni og árskort í Húsdýragarðinn fyrir frammistöðuna
í vetur eru: Dagur Andri Friðgeirsson, Jóhanna Björg
Jóhannsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Hörður Aron
Hauksson.
Hlaðborð fyrir alla fjölskylduna fá: Júlía Guðmunds-
dóttir, Aníta Jóhannesardóttir, Nikulás Óskarsson og
Einar Ólafsson
Dagpassar í garðinn og frír aðgangur: Mikael Luis
Gunnlaugsson, Alfreð B. Valencia, Selma Ramdani og
Júlía Rós Hafþórsdóttir.
Jóhanna Björg Tívolímeistari
Morgunblaðið/Ómar
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykjavíkur
hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem
fram kemur að félagið harmar þá
túlkun sem fram hefur komið í
tengslum við myndatöku af þeldökkri
konu í íslenskum hátíðarbúningi til
birtingar í blaðinu Reykjavík Grape-
vine.
„Stjórn ÞR harmar þá túlkun sem
fram hefur komið, að það sé stefna fé-
lagsins að ekki skuli lána fólki af öðr-
um litarhætti búninga úr búninga-
leigu félagsins. Engar slíkar reglur
eru til í lögum félagsins eða reglum
búningaleigu. Félagið hefur margoft
lánað búninga til fólks af öðrum lit-
arhætti. Nýlegt dæmi um það eru
tvær ungar konur í Félagi nýrra Ís-
lendinga sem eru að fara á ráðstefnu
erlendis og munu klæðast búningum
frá ÞR. Fullyrðingar um kynþátta-
fordóma félagsins eða félagsmanna
ÞR eru rakalausar.“
Í tilkynningunni segir enn fremur
að búningaleigan hafi í nokkrum til-
vikum ákveðið að lána ekki búninga
ef vafi léki á því að sýna ætti þeim
fulla virðingu. Þessi stefna hafi í
nokkrum tilvikum orkað tvímælis og
hafi stjórn félagsins þá kannað málið
nánar og fullvissað sig um að tilgang-
ur leigutaka væri þess eðlis að um
viðunandi meðferð á búningi væri að
ræða. Sú venja hefði ekkert með lit-
arhátt, uppruna eða kyn fólks að
gera.
Þótti hugsanlega vegið
að heiðri búningsins
Þegar starfsmenn Reykjavík
Grapevine hafi lýst hugmyndum
sínum um notkun búningsins fyrir
umsjónarkonu búningaleigu hafi hún
látið í ljós að sér þætti hugsanlega
vegið að heiðri búningsins og notk-
unin vart viðeigandi. Blaðið hugðist fá
búninginn lánaðan gegn umfjöllun
um Þjóðdansafélagið og hafi búninga-
leigan vísað á formann félagsins sem
taldi möguleika á slíkum samningi.
Samskiptum við starfsmenn blaðsins
hafi lokið með þeim hætti að þeir ætl-
uðu að hafa samband aftur til að finna
endanlegan flöt á málinu. Ekki hafi
heyrst aftur í þeim og stjórn félagsins
hafi engar fréttir haft af málinu fyrr
en það rataði í fjölmiðla.
Yfirlýsing frá Þjóðdansafélaginu
Harmar þá túlkun
sem fram hefur komið
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Messa í Viðey Lífsfagnaðarmessa
með Dómkirkjupresti verður haldin í
Viðey á morgun þar sem athyglinni
verður beint að lífinu sjálfu, hvort
sem það er mannfólkið, dýrin eða
gróðurinn. Á þessum tíma iðar eyjan
af fuglalífi og gróðurinn er í miklum
blóma. Messan hefst kl 14.00 en kl
13.00 og 13.30 verða ferðir á milli
með Viðeyjar-ferjunni og nokkrar
ferðir til baka aftur um miðjan dag-
inn.
Leitin að þjóðarblóminu og dansk-
ur drengjakór Sunnudaginn 20. júní
verður mikið um að vera í Árbæj-
arsafni en dagurinn er tileinkaður ís-
lenskri flóru. Klukkan 14 verður
kynnt veggspjald og bæklingur með
tillögum að þjóðarblómi Íslands, en
íslensk stjórnvöld ákváðu í vor að
kanna hvort tilefni gæti verið til að
eitt tiltekið íslenskt blóm bæri
sæmdarheitið ,,þjóðarblóm Íslands“.
Kynninguna annast Tryggvi Fel-
ixson framkvæmdastjóri Land-
verndar og grasafræðingarnir Þóra
Ellen Þórhallsdóttir og Eyþór Ein-
arsson. Alls eru „frambjóðendur“ til
þjóðarblóms 20 talsins. Í Árbænum
verður boðið upp á fjallagrasamjólk
og fjallagrasaflatkökur með ný-
strokkuðu smjöri. Aðilar sem vinna
vörur úr íslenskum jurtum verða á
safninu og kynna afurðir sínar.
Klukkan 16 heimsækir Danmarks
Drengekor safnið og syngur fyrir
gesti.
Safnið verður opið kl. 10-18 á sunnu-
daginn en formleg dagskrá hefst kl.
13. Fyrir börnin verður einnig mikið
um að vera, teymt verður undir börn-
um við Árbæinn kl. 13-15, krakkar
geta spreytt sig á að húlla, ganga á
stultum og leika með leggi og skeljar.
Kaffisala er í Dillonshúsi og mun
Karl Jónatansson spila fyrir gesti á
harmóníku.
Skógræktarferð Íslensk-japanska
félagsins Hin árlega Jónsmessuferð
Íslensk-japanska félagsins í skóg-
ræktarreitinn Mirai no Mori verður
farin sunnudaginn 20. júní kl. 14.00.
Félagar munu að vanda hittast við
bílastæði kirkjugarða Hafnarfjarðar
og aka saman að skógrækt-
arreitnum. Félagið mun bjóða upp á
hressingu í lok vinnudags.
Á MORGUN