Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 50

Morgunblaðið - 19.06.2004, Síða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Skipin Reykjavíkurhöfn: Á morgun eru farþega- skipin Hanseatic og Volmeborg væntanleg. Hafnarfjarðarhöfn: Á morgun kemur far- þegaskipið Volmeborg. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 9–12 pútt á Ásvöllum. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Lokað vegna sumarleyfa frá mánu- deginum 5. júlí. Opnað aftur þriðjudaginn 17. ágúst. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Sunnuhlíð Kópavogi. Söngur með sínu nefi á laugardögum kl. 15.30. Íbúar, aðstandendur og gestir velkomnir. FEBK. Púttað á Lista- túni kl. 10.30 á laug- ardögum. Mætum öll og reynum með okkur. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud: Kl.18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnes. Miðvikud: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogur og Eg- ilsstaðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud: Kl.20, Víðistaðakirkja, Hafnarfjörður. Laug- ard: Kl.10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Gler- árkirkja, Akureyri. Kl.19.15 Seljavegur 2, Reykjavík. Neyð- arsími: 698 3888 Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átröskun / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabílinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blodbank- inn.is. Minningarkort Minningarkort MS- félags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl.10–15. S. 568 8620. Bréfs. 568 8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533 1088 eða í bréfs. 533 1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í s. 588 9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafn- arfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elías- dóttur, Ísafirði. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd á skrifstofutíma í s. 552 4440 frá kl. 11–15. Kortin má einnig panta á vefslóðinni: http://www.park- inson.is/sam_minning- arkort.asp Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtak- anna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562 5605, bréfsími 562 5715. Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar (K.H.), er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafn- arfirði s. 565 1630. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í s. 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu fást hjá Sjálfsbjörg fé- lagi fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu, Há- túni 12, sími: 551 7868 Kortin er einnig hægt að panta með tölvu- pósti, rfelag@sjalfs- bjorg.is Kortin eru inn- heimt með gíróseðli. Í dag er laugardagur 19. júní, 171. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera um- hyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. (Sl. 55, 23.)     Jón Steinsson, sem stund-ar doktorsnám í hag- fræði við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, skrifaði grein í Morgunblaðið hinn 12. janúar sl., þar sem hann benti á ein- falda leið til þess að draga úr hringa- myndun. Í grein sinni sagði hinn ungi dokt- orsnemi m.a.: „Skattlagning arð- greiðslna milli fyrirtækja væri afskaplega einföld leið til þess að draga veru- lega úr hringamyndun í ís- lenzku atvinnulífi. Hún hefur þann mikilvæga kost að hún íþyngir á engan hátt fyrirtækjum, sem ein- ungis stunda rekstur í því augnamiði að hámarka hagnað sinn. Hún íþyngir eingöngu fyrirtækjum, sem til hliðar við sinn eig- inlega rekstur standa í því að byggja upp fyrirtækja- samsteypur. Hún hefur einnig þann kost, að fyr- irtækjasamsteypurnar leysast upp af sjálfu sér í stað þess, að Samkeppn- isstofnun og lögreglan þurfi að standa í stöðugum rannsóknum og málaferl- um til þess að leysa þær upp með valdi.“     Hinn 1. júní sl. skrifaðiJón Steinsson að nýju um þetta mál á vefritið Deigluna. com, þar sem hann segir frá því, að Bush Bandaríkjaforseti hafi á síðasta ári boðað afnám þessarar skattlagningar.     Síðan segir Jón Steins-son á Deiglunni.com, að í Bandaríkjunum hafi menn áttað sig á mikilvægi þessara skatta og bætti við: „Þeir vissu, að það mundi draga úr sam- keppni í mörgum geirum bandaríska hagkerfisins, hafa neikvæð áhrif á selj- anleika bandarískra hluta- bréfa, draga úr áhuga smærri hluthafa á því að eiga hlutabréf og þannig hækka fjármögn- unarkostnað nýrra fyr- irtækja...“     Þessum ábendingumhafi verið komið á framfæri við háttsetta efnahagsráðgjafa Bush. Jón Steinsson segir: „Sem betur fer áttuðu þeir sig fljótt á því, að þarna hafði þeim yfirsést mikilvægt atriði ... Mik- ilvægi skatta á arð- greiðslur milli fyrirtækja fyrir öfluga samkeppni og virka fjármálamarkaði var hins vegar svo mikið og augljóst að meira að segja ríkisstjórn Bush, sem ekki er þekkt fyrir að vera feimin við að lækka skatta ákvað að hrófla ekki við þeim.“     Í umræðum hér hefurverið bryddað á því að þeir sem vildu takmarka umsvif viðskiptasam- steypna væru einhvers konar sósíalistar. Ætli það verði sagt um Bush?! STAKSTEINAR Bush og viðskipta- samsteypur Jón Steinsson Víkverji skrifar... VÍKVERJI hyggst klæðastbleiku í dag til að halda upp á að þennan dag, 19. júní, fyrir 89 árum fengu konur á Íslandi kosn- ingarétt. Ætlar hann að láta sig hafa það þrátt fyrir að honum finnist bleikur einstaklega ljótur litur og hafi aldrei fundið sig í þannig litum fötum. Reyndar er Víkverji afar sérvitur þegar kemur að því að velja hvernig litum fötum hann á að klæðast við mismunandi tilefni. Þannig hefur hann aldrei viljað vera í rauðum fötum í próf- um heldur verður hann þá að klæðast grænu. Daginn eftir mik- inn gleðskap ganga rauð föt ekki, heldur, líður honum þá best í hvít- um fötum. Ef hann fer í starfs- viðtal, vill hann vera í bláum eða gráum fötum. Ef til vill eru til ein- hvers konar fræði um þetta en Víkverji er ekki svo fróður að þekkja til þeirra. x x x Víkverji fór eins og margir aðrirniður í bæ 17. júní og skemmti sér konunglega. Mikill mannfjöldi var í miðborginni enda sól og blíða, og gott að vera í skjólinu á Austurvelli þar sem Víkverji lét fara vel um sig á útikaffihúsi. Finnst honum alltaf jafn stór- undarlegt þegar hver spekingurinn á fætur öðrum kemur fram og seg- ir að þjóðin hafi alltof marga frí- daga. Þeim eigi að fækka því frí- dagar séu slæmir fyrir atvinnulífið og minnki framleiðni. Verður Vík- verji að játa að þetta finnst honum endemis bull, honum gæti ekki verið meira sama þótt framleiðni minnki af því að hann er í fríi. Tel- ur hann að sama megi segja um nánast allt vinnandi fólk sem nýtur þess virkilega að eiga einn og einn frídag inn á milli. Lífið snýst nefni- lega um meira en framleiðni. x x x Víkverji vann fyrir nokkrum ár-um í ríki Spánarkonungs og líkaði vel. Á vinnustað hans í höf- uðborg landsins var sá háttur hafður á að ef frídag bar upp á fimmtudag, eins og mjög oft vill verða hér á landi, var einnig gefið frí á föstudeginum til að helgin lengdist. Þetta kunni Víkverji vel að meta og vill að sama regla verði innleidd hér á landi. x x x Fréttir bárust af því í vor aðreisa ætti Bríeti Bjarnhéð- insdóttur kvenréttindafrömuði minnisvarða við Alþingishúsið árið 2006. Víkverji fagnar þessu fram- taki enda svo sannarlega kominn tími til að þessari stórmerkilegu og kjörkuðu konu yrði sómi sýnd- ur. Hún er ein af þeim merk- ismanneskjum sem ber að þakka fyrir allt sem þær gerðu fyrir ís- lenskt samfélag á sínum tíma. Vill Víkverji nota tækifærið og óska Ís- lendingum, konum jafnt sem körl- um, til hamingju með daginn. Morgunblaðið/Júlíus 17. júní var sólríkur í ár. LÁRÉTT 1 öreiga, 8 guð, 9 kaðall- inn, 10 kraftur, 11 dreg- ur með erfiðismunum, 13 hagnaður, 15 fjöturs, 18 lygi, 21 verkur, 22 glæta, 23 kærleikurinn, 24 húsdýrinu. LÓÐRÉTT 2 skoðunar, 3 kindurnar, 4 smáa, 5 kroppað, 6 pest, 7 pípur, 12 rödd, 14 stormur, 15 húsdýr, 16 ekki veik, 17 traðk, 18 ristu, 19 undirstaðan, 20 þekkt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 trúss, 4 gæfur, 7 erfið, 8 rómum, 9 arg, 11 tært, 13 hráa, 14 elfur, 15 háll, 17 ólar, 20 hræ, 22 lofar, 23 fögur, 24 raust, 25 rangi. Lóðrétt: 1 tregt, 2 úlfur, 3 siða, 4 garg, 5 fimar, 6 rimma, 10 rófur, 12 tel, 13 hró, 15 hólar, 16 lyftu, 18 lygin, 19 rýrði, 20 hret, 21 æfur. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Munið eftir plastpokunum ÞAÐ er mikið af hundum á Seltjarnarnesi. Eigendur hundanna gleyma því oft að hafa poka meðferðis. Unglingarnir eru nú að hreinsa göturnar og því ætti fólk að hafa þetta hugfast. Einn hundeigandi sagði við mig að ef maður tæki ekki með sér plast- poka kæmi það óorði á hundeigendur. Seltirningur Gjöld á ketti Ég heyrði í fréttum út- varps þann 8. júní sl. að Suðurnesjamenn hefðu sett gjöld á ketti. Það er 15 þúsund krónur á hvern kött og 3400 krónur fyrir merkingu. Í fréttinni var einnig sagt að kettirnir réðust á sunnudagssteik húsmæðra og pissuðu út um allt. Ég spyr hvort þetta háa gjald hafi verið sett á vegna þess. Ég bý ekki á Suðurnesjum en fólk hefur hringt í mig þaðan í dag og það fólk kannast ekki við neina slíka áreitni katta. Ég ótt- ast að þetta háa gjald á köttum verði til þess að þeim verði hent út á Guð og gaddinn. Nóg er af slíkri ómanneskjulegri meðferð fyrir. Í vetur sá ég í fréttum að gæludýr bættu heilsa hjá sjúkling- um og gamalmennum og einmana fólki. Sums stað- ar erlendis hefur verið far- ið með dýrin á sjúkrahús til eigenda sinna, þá batn- ar líðan þeirra. Ég er ekki á móti því að gjald verði sett á ketti, en ekki svona óskaplega hátt. Það mega ekki verða forréttindi hinna ríku að eiga gælu- dýr. Þessir litlu elskulegu vinir mannanna hafa þurft að þola fordóma þeirra sem ekki hafa kynnst þeim og eru hræddir við þá. Hrekjum dýrin ekki á brott heldur leyfum börn- unum að kynnast þeim og það mun gefa þeim mikið. Ég bið dýravini að hafa samband við mig í síma 663 5207 vegna þess að fyrirhuguð er stofnun fé- lags dýravina. Sigrún Reynisdóttir Tapað/fundið Fjallahjól tapaðist MONGOOSE-fjallahjól; gult, svart og hvítt, tap- aðist í Samtúni fyrir skömmu. Finnandi vin- samlega hafi samband við Elísabetu í síma 864 6314 eða 552 4014. Fundarlaun. Olíubrúsi tapaðist OLÍUBRÚSI var af vangá skilinn eftir í áfyllingu við olíudælu Atlantsolíu í Hafnarfirði laugardaginn 5. júní sl. kl. 9.10. Þeir sem hafa upplýsingar um brúsann eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 821 4369 eða afgreiðslu Atlantsolíu. Dýrahald Páfagaukur í óskilum GRÆNN páfagaukur með gulan haus er í óskilum á Álfhólsvegi 46 í Kópavogi síðan í byrjun júní. Upp- lýsingar í síma 554 4858 eða 697 4576. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.