Morgunblaðið - 19.06.2004, Page 52
ÍÞRÓTTIR
52 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Golfsamtök fatlaðra gangast fyrir námskeiði, bæði fyrir
byrjendur og lengra komna. Sérstök kennsla er fyrir ein-
staklinga sem misst hafa hönd eða fót, einnig verður
reynt að kenna sitjandi golf. Námskeiðið fer fram á æf-
ingasvæði Golfklúbbsins Odds, Urriðavatnsdölum, alla
miðvikudaga kl. 17-19 í sumar. Kennarar eru Magnús
Birgisson, PGA kennari, og Jakob Magnússon, kylfu-
smiður og leiðbeinandi, báðir með margra ára reynslu.
Nánari upplýsingar gefur Magnús
í síma 898 7250.
NÝTT GOLFNÁMSKEIÐ
FATLAÐRA
ÉG hef lengi verið á þeirri skoð-
un og sagt frá henni áður, að það
sé kominn tími til að myndavélar
skeri úr um vafaatriði á knatt-
spyrnuvellinum. Það er ekki hægt
að ætlast til þess af einum manni,
dómara leiks, að hann sjái ná-
kvæmlega hvað gerist á vellinum
í öllum tilvikum. En það er þó
hægt að gera þá kröfu til dómara
og aðstoðarmanna hans, að þeir
geti staðið skammlaust við af-
drifaríkar ákvarðanir eins og að
dæma mark eða ekki mark, víta-
spyrnu eða ekki vítaspyrnu, og að
reka leikmenn af velli. Það getur
enginn, hvaða nafni sem hann
nefnist og í hvaða stöðu sem hann
er, leyft sér að kveða upp úrskurð
nema hann sé viss í sinni sök. Það
hefur oft verið sorglegt að verða
vitni að dómgreindarleysi manna
í hinum ýmsu stöðum, og það var
grátlegt að horfa upp á norska
dómarann Terje Hauge er hann
vísaði rússneska markverðinum
Sergei Ovchinniko af leikvelli,
vegna þess að hann taldi að hann
hafði handleikið knöttinn viljandi
fyrir utan vítateig. Það gerði
hann ekki, en hann kom á snilld-
arlegan hátt í veg fyrir að leik-
maður Portúgals næði að komast
á auðan sjó og skora. Fyrir snilld-
arleg tilþrif var Ovchinniko refs-
að.
Það getur vel verið að það sé
hægt að segja að dómarinn hafi
verið illa staðsettur til að sjá at-
vikið. En þegar dómarar eru illa
staðsettir, þá geta þeir hreinlega
ekki lagt rétt mat á atburða-
rásina. Þeir hafa þá ekki leyfi til
að refsa leikmönnum, nema þeir
séu vissir í sinni sök. Norski dóm-
arinn hreinlega skemmdi leik
Portúgals og Rússlands – og
hann gerði út um draum Rússa
um að komast áfram. Ef mynda-
vélar hefðu fengið að ráða ferð-
inni í þessu umdeilda atviki,
hefðu ekki orðið lengri tafir á
leiknum en urðu við að vísa Ovch-
inniko af leikvelli og bíða eftir
skiptingum, þannig að varamark-
vörður kom inn á. Það tók þrjár
mínútur, en tafirnar hefðu ekki
orðið nema ein mínúta ef leitað
hefði verið eftir aðstoð mynd-
bandsupptöku. Markvörðurinn
hefði þá fengið að njóta snilld-
artilþrifa sinna í stað þess að
Dómarar verða
að fá aðstoð
ALEX Nyarko, leikmaður Ever-
ton, hefur spilað sinn síðasta leik fyr-
ir félagið þar sem atvinnuleyfi hans
er útrunnið og fékkst það ekki end-
urnýjað. Nyarko, sem er þrítugur
landsliðsmaður Ghana, kom til fé-
lagsins frá Lens árið 2000 fyrir 4,5
milljónir punda en náði ekki að festa
sig í sessi hjá liðinu fyrr en á síðasta
tímabili og var í láni hjá frönskum
liðum tvö tímabil.
FIFA dæmdi í dag landsliðsmann
Úrúgvæ og RCD Mallorca, Fern-
ando Correa, í eins árs keppnisbann
eftir að leifar af kókaíni fundust í lík-
ama hans. Correa, sem er 30 ára, fór
í lyfjapróf eftir leik Úrúgvæ og
Venesúela 31. mars síðastliðinn og
reyndist sýnið vera jákvætt. Bannið
tók gildi 13. maí síðastliðinn en hann
hefur tækifæri á að áfrýja dómnum.
ÍTALSKA liðið Parma hefur mik-
inn áhuga á að fá franska leikmann-
inn Pascal Cygan til sín frá Arsenal.
Þá hefur franska liðið St. Etienne
óskað eftir því við Arsenal að fá hinn
30 ára miðvörð lánaðan næsta
keppnistímabil. Cygan hefur ekki
náð að tryggja sér sæti í liði Arsenal,
þar sem hann er að keppa um stöður
við Sol Campbell og Kolo Toure.
LIVERPOOL er komið í hóp
þeirra liða sem vilja fá franska lands-
liðsmanninn Sylvain Wiltord til sín,
en hann er laus frá Arsenal. Önnur
lið sem hafa sýnt honum áhuga eru
Werder Bremen, Tottenham, Val-
encia og Barcelona. Rafael Benítez,
nýi knattspyrnustjóri Livepool, vildi
fá Wiltord til Valencia, er hann var
þjálfari liðsins.
EVERTON ætlar að bjóða Wayne
Rooney nýjan samning eftir EM í
Portúgal. Rooney á tvö ár eftir af
samningi sínum við félagið en
frammistaða hans í keppninni hefur
vakið áhuga liða í Evrópu. David
Moyes, knattspyrnustjóri Everton,
hefur ítrekað sagt að hann muni ekki
selja Rooney en fari svo að hann
verði seldur frá félaginu er talið að
kaupverðið verði ekki undir 45 millj.
punda og er Chelsea líklega eina lið-
ið sem hefur efni á kappanum.
FÓLK
Guðmundur Karlsson landsliðs-þjálfari er fullur tilhlökkunar
fyrir mótið. „Það er búinn að vera
gríðarlegur undirbúningur og mikil
eftirvænting hjá öllum sem að
mótinu koma. Það er búið að kaupa
ný tæki á völlinn, undirbúnings-
nefnd búin að starfa frá því fyrir
Evrópubikarinn í Árósum í fyrra.
Nefndin fór þangað út og kynnti sér
reksturinn á keppninni og það er
auðvitað mikil eftirvænting í liðinu
og allir búnir að undirbúa sig vel.
Því miður voru ákveðin meiðsli sem
komu upp á lokastundu annars
hefðum við verið með toppundir-
búning fyrir mótið. Björn Margeirs-
son, Magnús Aron, Reynir Logi og
Eygerður Inga eru til að mynda
meidd þannig að það er skarð fyrir
skildi,“ sagði Guðmundur. Spurður
hverjar væntingarnar væru sagði
Guðmundur að væntingar yrðu
helst gerðar til yngra fólksins. „Það
eru væntingar til yngra fólksins
sem er að koma inn að það bæti
sinn besta árangur í góðri keppni
og að reynsluboltarnir okkar keppi
við heimsklassafólkið og nái jafnvel
verðlaunasætum. Þá er ég að tala
um Þóreyju Eddu, Jón Arnar, Silju,
Sunnu og svo framvegis og það
myndi skila verðlaunasætum til
okkar á heimavelli. Heimavöllurinn
mun pottþétt hjálpa okkur og ég er
bjartsýnn á að við fáum töluvert af
áhorfendum þannig að það verður
gaman að þessu,“ sagði Guðmund-
ur.
Það verður í nógu að snúast hjá
íslensku frjálsíþróttafólki í sumar.
Núna um helgina stendur yfir
Norðurlandamót unglinga í fjöl-
þrautum, landsmót og meistaramót
eru framundan hér á landi og Ól-
ympíuleikarnir í Aþenu um miðjan
ágúst. En hvernig skyldi Guðmundi
lítast á framtíðina í frjálsum íþrótt-
um? „Það er mjög björt framtíð.
Það eru ákveðin kynslóðaskipti að
verða og þetta er gott fólk sem er
að koma inn. Þegar ég hef verið að
boða þau í landsliðið hef ég gert
þeim grein fyrir því að þau gætu
verið komin inn fyrir næstu 15 ár
þess vegna. Ég er mjög bjartsýnn
fyrir hönd frjálsra íþrótta á Íslandi í
dag. Það er mjög góð grastrótar-
starfsemi í gangi í stærstu félögun-
um hér á landi sem eru að skila
mörgum góðum frjálsíþróttamönn-
um. Aðstaðan er einnig að batna og
það verður stórglæsilegt þegar nýja
innanhússaðstaðan kemur hérna í
Laugardalnum og þá myndi maður
vilja vera sextán ára ennþá. Að
sjálfsögðu fylgja meiri væntingar í
kjölfarið og vonandi meiri kynning
á íþróttinni líka þegar við fáum ein-
hver mót hérna innanhúss og svo
framvegis og ég held að þetta vinni
allt saman,“ sagði Guðmundur.
Það verða margir gríðarlega
sterkir keppendur á mótinu um
helgina en athygli vekur að sterk-
ustu menn Danmerkur og Eist-
lands, Wilson Kipketer og Erki No-
ol, verða ekki með á mótinu. Hefði
ekki verið skemmtilegra að fá þá?
„Jú, kannski pínu vonbrigði að fá
ekki Virgilijus Alekna, sem er einn
allra besti kringlukastari í heimi, og
Erki Nool en það verður gríðarlega
gaman að fá þessar rísandi stjörnur
eins og Gerd Kanter og Joachim Ol-
sen í kringlunni og svo fleiri verð-
launahafa á stórmótum sem eru að
koma hingað. Þetta er bara svona,
það mæta ekki alltaf allir,“ sagði
Guðmundur.
Evrópubikarkeppnin í frjálsíþróttum, 2. deild, á Laugardalsvelli
Mikil eftirvænting
EVRÓPUBIKARKEPPNI lands-
liða í frjálsum íþróttum, 2. deild
– A-riðill, fer fram á Laugardals-
velli um helgina og er þetta
stærsta frjálsíþróttamót sem
haldið hefur verið hér á landi.
Með Íslandi í karlaflokki keppa
Kýpur, Danmörk, Eistland, Ír-
land, Litháen, Luxemborg og
sameiginlegt lið smáþjóða, en
þjóðirnar í kvennaflokki eru Ís-
land, Austurríki, Kýpur, Dan-
mörk, Írland, Lítháen, Noregur
og sameiginlegt lið smáþjóða.
Morgunblaðið/RAX
Þórey Edda Elísdóttir – nær hún að bæta Íslands- og Norðurlandamet sitt í stangarstökki?
KR vann yfirburðasigur á FH, 11:2, í
úrvalsdeild kvenna en leikur liðanna
fór fram í Kaplakrika um hádegið á
þjóðhátíðardaginn, 17. júní. KR-ingar
voru í hátíðaskapi, sérstaklega Hólm-
fríður Magnúsdóttir sem skoraði 4
markanna og kom við sögu í öðrum
fimm. Guðlaug Jónsdóttir skoraði
þrennu fyrir KR í fyrri hálfleiknum.
Ekki var útlit fyrir svona stóran sig-
ur framan af leik því FH jafnaði leikinn
snemma, 1:1, og minnkaði síðan mun-
inn í 3:2.
Tvö lið náðu að skora ellefu mörk í
fjórðu umferð deildarinnar því ÍBV lék
sama leik gegn Stjörnunni fyrr í vik-
unni og sigraði 11:0. Alls voru skoruð
29 mörk í fjórum leikjum í umferðinni.
Ellefu mörk
KR-inga
LANDSLIÐSHÓPUR karla er þannig skipaður:
Andri Karlsson keppir í 100 m hlaupi og 4x100 m
boðhlaupi, Arnar Már Þórisson í spjótkasti, Bergur
Ingi Pétursson í sleggjukasti, Bjarni Þór Traustason
í 4x100 m og 4x400 m boðhlaupi, Björgvin Víkings-
son í 400 m grindahlaupi og 4x400 m boðhlaupi, Ein-
ar Karl Hjartarson í hástökki, Gauti Jóhannesson í
1500 m og 3000 m hlaupi, Halldór Lárusson í 4x100
m boðhlaupi, Jón Arnar Magnússon í 110 m grinda-
hlaupi, langstökki, 4x100 m og 4x400 m boðhlaupi,
Kári Steinn Karlsson í 5000 m hlaupi, Magnús Val-
geir Gíslason í 4x100 m boðhlaupi, Óðinn Björn Þor-
steinsson í kúluvarpi og kringlukasti, Ólafur Guð-
mundsson í þrístökki, Ragnar Frosti Ragnarsson í
400 m hlaupi og 4x400 m boðhlaupi, Sigurkarl Gúst-
avsson í 200 m hlaupi, 4x100 m og 4x400 m boð-
hlaupi, Stefán Már Ágústsson í 800 m hlaupi, Sverr-
ir Guðmundsson í stangarstökki og Sveinn
Margeirsson í 3000 m hindrunarhlaupi.
Landsliðshópur kvenna er eftirfarandi: Auður
Aðalbjarnardóttir keppir í kúluvarpi, Ásdís Hjálms-
dóttir í kringlukasti, Áslaug Jóhannsdóttir í 400 m
hlaupi, 4x400 m boðhlaupi, Fríða Rún Þórðardóttir í
1500 m og 3000 m hlaupi, Herdís Helga Arnalds í
800 m hlaupi, Hildur Kristín Stefánsdóttir í 4x100 m
boðhlaupi, Íris Anna Skúladóttir í 5000 m hlaupi, Jó-
hanna Ingadóttir í þrístökki, Karólína Haraldsdóttir
í hástökki, Kristín Birna Ólafsdóttir í 4x100 m boð-
hlaupi og 4x400 m boðhlaupi, María Kristbjörg Lúð-
víksdóttir í sleggjukasti, Sigurbjörg Ólafsdóttir í
4x100 m og 4x400 m boðhlaupi, Silja Úlfarsdóttir í
200 m hlaupi og 4x100 m og 4x400 m boðhlaupi,
Sunna Gestsdóttir í 100 m hlaupi, langstökki og
4x100 m og 4x400m boðhlaupi, Vigdís Guðjónsdóttir
í spjótkasti og Þórey Edda Elísdóttir í stang-
arstökki.
Landsliðshópar Íslands í frjálsíþrótt-
um á EM á Laugardalsvellinum
RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þýska-
lands, hefur engar áhyggjur fyrir leik
Þjóðverja og Letta – þó að fyrirliði
hans, Oliver Kahn, eigi ættir að rekja
til Lettlands. Amma Kahns er Letti, en
afi hans kynntist henni og giftist er
hann var í þýska hernum – með bæki-
stöðvar í Lettlandi í seinni heimsstyrj-
öldinni. Pabbi Kahn fæddist í Lett-
landi 1943, en fjölskyldan fluttist til
Þýskalands áður en heimsstyrjöldinni
lauk og settist að í Karlsruhe, þar sem
Oliver Kahn fæddist 1969.
„Jú, það er rétt að ég á ættir að
rekja til Lettlands. Ég er Þjóðverji,
þannig að ég mun ekki færa neinum
gjafir á laugardaginn,“ sagði Kahn,
markvörðurinn snjalli.
Mætir ekki
með gjafir