Morgunblaðið - 04.07.2004, Side 1
Sígild saga í
nýjum búningi
Passepartout í karate og Fogg
reytir af sér brandara | Listir 42
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Eliza í Skandinavíu Lomo-myndavélar Tíska
Rauða húsið á Eyrarbakka Flugan Atvinna | Atvinnutekjur
hækkuðu Traustir starfskraftar Fjölgun starfa
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
RÍKISSJÓÐUR greiðir aukalega
tæpa níu milljarða króna til B-deild-
ar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins í ár. Þar er um svipaða árlega
greiðslu að ræða og að meðaltali síð-
ustu fimm ár, en á því tímabili hafa
verið greiddir 50 milljarðar auka-
lega til sjóðsins vegna lífeyrisrétt-
inda opinberra starfsmanna.
Lífeyrisgreiðslur úr B-deild Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins
námu um tíu milljörðum króna á
síðasta ári og voru um þriðjungur af
eftirlaunagreiðslum í lífeyrissjóða-
kerfinu í landinu í heild. Greiðslurn-
ar munu fara stighækkandi á næstu
árum og verða um og yfir 20 millj-
arðar króna á ári þegar mest er á
árunum milli 2020 og 2030, en eftir
það dregur hratt úr þeim, sam-
kvæmt greiðslustreymisáætlun
sem gerð hefur verið fyrir sjóðinn.
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR, segir að þetta
verði að skoða í því samhengi að
þessi sjóður sé langelstur lífeyris-
sjóða í landinu.
„Það var fyrr komið upp lífeyr-
iskerfi fyrir opinbera starfsmenn en
aðra landsmenn og þegar við erum
að tala um skuldbindingar lífeyris-
sjóðsins, sem vissulega eru miklar
og ekki ætla ég að draga úr því,
verðum við að hafa í huga að þarna
er um að ræða umsamin réttindi 40
þúsund sjóðfélaga. Mér finnst um-
ræðan um skuldbindingar B-deild-
arinnar oft á tíðum byggð á mis-
skilningi og að sumu leyti
ósanngjörn í garð þess fólks sem
greitt hefur í sjóðinn. Það gleymist
nefnilega að þetta fólk starfaði ára-
tugum saman lengst af samkvæmt
launakerfi, þar sem laun voru lægri
en gengur og gerist á almennum
vinnumarkaði, en á móti voru ýmis
réttindi betri. Hluti þessara rétt-
inda voru lífeyrisréttindi, en í stað
þess að byggja upp sjóð til að mæta
þessum réttindum að fullu, þegar
þau féllu til, var tekin ákvörðun um
að launagreiðandinn fjármagnaði
hluta af lífeyrisgreiðslum þegar að
þeim kæmi,“ sagði Haukur.
Í samtali við Hauk kemur einnig
fram að LSR hafi markað þá stefnu
að hvorki starfsmenn sjóðsins,
stjórnarmenn né aðrir fulltrúar
sjóðsins sitji í stjórn fyrirtækja sem
sjóðurinn á hlut í, jafnvel þótt eign-
arhluturinn gefi tilefni til þess að
sjóðurinn eigi þar stjórnarmann.
Níu milljarðar aukalega til B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í ár
Lífeyrisgreiðslur verða
yfir 20 milljarðar 2020–30
150 milljarðar/10–11
STJÓRNVÖLD í
Súdan hyggjast
grípa tafarlaust til
ráðstafana til að af-
vopna arabíska
vígamannahópa,
sem notið hafa
stuðnings frá rík-
inu, en þessir hópar
eru sakaðir um að
bera ábyrgð á því
hörmungarástandi sem ríkir í Darfur-hér-
aði í suðvesturluta landsins. Kemur þetta
fram í sameiginlegri yfirlýsingu Súdan-
stjórnar og Kofi Annan, framkvæmdastjóra
SÞ, er heimsókn hans til Súdan lauk í gær.
Súdanstjórn heitir því að „hefja tafarlaust
að afvopna Janjaweed-sveitirnar og aðra
vopnaða útlagahópa“. Einmitt þetta hafði
verið aðalkrafa Annans í viðræðum við Om-
ar al-Beshir, forseta Súdan, síðla föstudags.
Heita afvopn-
un vígahópa
Khartoum. AFP.
Flóttafólk í Darfur.
Ein milljón/14
SJÖ hvolpar og sjö krakkar vöktu athygli
fréttaritara þar sem þeir veltust hver um ann-
an. Hvolparnir eru af tegundinni Beagle og
eru fimm vikna gamlir. Eigendur þeirra eru
Blængur Alfreðsson og Þórdís Þorvaldsdóttir
og höfðu þau hólfað af hluta af garðinum fyrir
hvolpana. Frá vinstri eru Salvör Svava G.
Gylfadóttir, Margrét Helga Magnúsdóttir,
Hrefna Sigfúsdóttir, Aníta Pálínudóttir, Valur
Örn Vífilsson, Þorgrímur Magnússon og Þórð-
ur Elí Þorvaldsson og hvolparnir ónefndir eru
fjórar tíkur og þrír hundar.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Hvolparnir laða krakkana að
Borgarnesi. Morgunblaðið.
AFLEIÐINGAR efnavopnanotkunar í Víetnamstríðinu
eru enn að koma í ljós þó að 30 ár séu liðin frá því stríðinu
lauk. Þorkell Þorkelsson ljósmyndari lagði leið sína til Víet-
nams í mars sl. ásamt sendifulltrúa hjá Alþjóða Rauða
krossinum í Suðaustur-Asíu. Þau heimsóttu fatlaða ein-
staklinga sem rekja ástæðu fötlunar sinnar til efnavopna-
árásar Bandaríkjahers. Efnavopnanotkunin hefur leikið
þrjár kynslóðir grátt. Í Tímariti Morgunblaðsins í dag eru
birtar myndir frá ferð Þorkels ásamt texta Gunnars Her-
sveins blaðamanns. Nánari umfjöllun um Víetnam í máli og
myndum er að finna á mbl.is. Morgunblaðið/Þorkell
Langtímaböl efna-
vopnanotkunar
FJÖLDI farsímaáskrifta í Svíþjóð er
nú orðinn meiri en fólksfjöldi í land-
inu, að því er greint er frá í Dagens
Nyheter.
Farsímaáskriftum fjölgaði um tíu
af hundraði á seinasta ári og voru
orðnar um 9,07 milljónir undir lok
mars sl. Íbúar landsins eru um 8,98
milljónir og því er 1,01 „gemsi“ á
hvern Svía sem er Norðurlandamet í
farsímaeign. Skýringin á þessari
miklu þörf Svía fyrir farsíma er talin
sú, að margir þeirra noti einn far-
síma til persónulegra símtala og hinn
til starfstengdra.
Fleiri farsím-
ar en fólk
Stokkhólmi. AFP.
NORSKA ríkið hefur nú loksins gefist upp
á að vernda þarlenda einstaklinga fyrir
meintu guðlasti í Monty Python-myndinni
Life of Brian. Myndin verður tekin til sýn-
ingar í þarlendum kvikmyndahúsum í
fyrsta skipti hinn 6. ágúst, en hún var bönn-
uð þegar hún kom fyrst út, árið 1979.
Reyndar leyfðu frændur okkar sýningar
á myndinni ári seinna, 1980, en þá aðeins
fyrir fullorðna og með því skilyrði að vegg-
spjald með áletruninni „Þessi mynd er ekki
um Jesú“ væri við alla sýningarstaði.
Life of Brian loks
leyfð í Noregi
STOFNAÐ 1913 180. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is