Morgunblaðið - 04.07.2004, Side 23
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 2004 23
NOKKUÐ hefur verið um það
fjallað að undanförnu hvernig haga
beri þjóðaratkvæðagreiðslu um fjöl-
miðlalögin, sem Alþingi samþykkti
hinn 21. maí síðastliðinn. Eins og vant
er sýnist sitt hverjum, en merkilegt
nokk virðast skoðanir manna á því
skipast á afar svipaðan hátt og af-
staðan til laganna.
Greinarhöfundur er
þeirrar skoðunar, að til
þess að hnekkja lögum
frá Alþingi þurfi að
koma til óyggjandi vilji
meirihluta þjóðarinnar:
að löggjafarvaldið sé
ekki tekið af æðstu
stofnun þjóðarinnar
nema meirihlutinn sé
örugglega á móti. Í því
skyni dugir ekki að
setja skilyrði um kjör-
sókn, því það felur í sér
hættuna á að minnihluti
þjóðarinnar geti ónýtt meirihlutavilja
réttkjörins Alþingis.
Það leikur enginn vafi á að meiri-
hluti var fyrir samþykkt laganna frá
Alþingi og því má enginn vafi leika á
því að það sé meirihluti þjóðar, sem
hnekki þeim að tillögu forseta. Það
verður ekki gert með öðrum hætti en
þeim að 50% kosningabærra manna
og einum betur felli þau úr gildi. And-
stæðingar fjölmiðlalaganna – sem af
tilviljun eru hinir sömu og telja að
ekki þurfi frekari reglur um þjóð-
aratkvæðagreiðslu um landslög en
skoðanakannanir um hundahald –
telja þetta fráleitt og jafnvel stjórn-
arskrárbrot.
Furðulegt dæmi um þetta birtist í
lögfræðiáliti Daggar Pálsdóttur og
Hróbjarts Jónatanssonar, sem unnið
var að beiðni leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, þar sem því er haldið fram
að í ákvæðum stjórnarskrárinnar um
þjóðaratkvæðagreiðslur séu engin
skilyrði, ef frá séu talin þau skilyrði
sem fram komi í 81. greininni, en í
þeirri grein segir að stjórnarskráin
öðlist gildi „þegar Alþingi gerir um
það ályktun, enda hafi meiri hluti
allra kosningarbærra manna í land-
inu með leynilegri atkvæðagreiðslu
samþykkt þau“. En er
það svo, að slík ákvæði
finnist ekki víðar?
Í stjórnarskránni er
vikið að kosningum til
Alþingis (33. gr.) og for-
setakjöri (5. gr.) og þar
er fjallað um kosninga-
réttinn, sumsé að menn
hafi rétt til þess að
kjósa í þeim kosningum
að uppfylltum skil-
yrðum um ríkisborg-
ararétt, aldur o.s.frv.
En í 81. greininni kveð-
ur við annan tón og sér-
staklega tekið fram að til þurfi meiri-
hluta allra kosningabærra manna.
Ekki meirihluta þeirra, sem nýta
kosningaréttinn; heldur meirihluta
allra, sem mega kjósa.
Hvar skyldum við nú finna sam-
svarandi orðalag? Jú, ótrúlegt en
satt, það gerum við í 26. greininni
margfrægu. Þar segir: „Nú synjar
forseti lagafrumvarpi staðfestingar,
og fær það þó engu að síður lagagildi,
en leggja skal það þá svo fljótt sem
kostur er undir atkvæði allra kosn-
ingabærra manna í landinu til sam-
þykktar eða synjunar með leynilegri
atkvæðagreiðslu.“
Sama er upp á teningnum í 2. máls-
grein 79. gr. þar sem fjallað er um
breytingu kirkjuskipanar ríkisins, en
þar er greinilega talið vissara að
öruggur meirihluti kosningabærra
sálna sé að baki samningsslitum þeg-
ar almættið á í hlut.
Á hinn bóginn er í 3. mgr. 11. gr.
stjórnarskrárinnar vikið að annarri
tegund þjóðaratkvæðagreiðslu, en
þar segir: „Forseti verður leystur frá
embætti, áður en kjörtíma hans er
lokið, ef það er samþykkt með meiri
hluta atkvæða við þjóðaratkvæða-
greiðslu.“ Þar er ekki talað um alla
kosningabæra menn, heldur að meiri-
hluti atkvæða skuli ráða. Ef í stjórn-
arskránni fælist sú skýring, sem lög-
mennirnir tveir vilja trúa, um 26.
greinina, hefði það auðvitað verið orð-
að á sama hátt og í 11. grein. Svo er
bara ekki. En af því þeir vilja trúa
leggjast þeir í afar langsóttar burt-
skýringar í stað þess að lesa einfald-
lega stjórnarskrána og hlíta henni.
Má þetta skýrara vera? Í venjuleg-
um kosningum ræður meirihluti
þeirra, sem vilja nýta kosningarétt-
inn. En sum málefni eru þess eðlis, að
gerð er krafa um það að meirihluti
allra kosningabærra manna ráði.
Ónýting laga frá Alþingi að tilstuðlan
forseta er eitt þeirra og fyrirmæli
stjórnarskrárinnar um kosninga-
tilhögunina liggja ljós fyrir. Þá þarf
meirihluta kosningabærra manna til
en ekki aðeins atkvæði stærri minni-
hlutans.
Meirihluti manna ráði
Andrés Magnússon skrifar um
þjóðaratkvæðagreiðslur ’Sum málefni eru þesseðlis, að gerð er krafa
um það að meirihluti
allra kosningabærra
manna ráði.‘
Andrés Magnússon
Höfundur er blaðamaður.
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 690 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 862 1350 898 8226
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 663 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarás Bisk. Hjörtur Freyr Sæland 486 8874
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 862 1286
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655
Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Rómantískur
rúmfatnaður