Morgunblaðið - 04.07.2004, Side 42
42 SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það er ósjaldan sem fólkkvartar undan því að þaðséu ekki gerðar neinarævintýramyndir lengur
sem ætlaðar eru allri fjölskyldunni.
Bandaríski leikstjórinn Frank Cor-
aci, var í þeim hópi. Saknaði þrjú-
bíómyndanna sem hann ólst upp
við. Þessara hreinræktuðu, fjar-
stæðukenndu ævintýramynda sem
voru uppfullar af hasar, saklausu
gríni, vondum brellum og vafasöm-
um B-myndaleikurum með skunka
á kollinum.
Besti vinur aðal
Eftir að hafa gert tvær býsna
hefðbundnar gamanmyndir, Wedd-
ing Singer og Waterboy – ef hægt
er að telja mynd með Adam Sand-
ler hefðbundna – þá taldi hann sig
þurfa á meiri áskorun að halda.
Einhverju alveg snargeggjuðu, eins
og t.d. að prófa að búa til þrjúbíó,
nú á tímum þegar eitthvað þykir
hreinlega bogið við saklausar
myndir og vel meintar.
„Umhverfis jörðina á 80 dögum
var tilvalin saga, algjör klassík, sem
hefur að geyma frábæra sögu,
spennandi og viðburðaríka sem æs-
ir hjá manni ævintýraþrána. Svo
eru persónurnar kostulegar, ekki
bara Fogg og Passepartout heldur
einnig allar þessar skrautlegu
aukapersónur. Þá hefur sýnt sig að
sögur Vernes eru sannarlega sígild-
ar, höfða alltaf jafnsterkt til fólks.
Ég hafði mjög gaman af frægu út-
gáfunni frá 1956 með David Niven
en þótti hún alltaf fullalvörugefin.
Mig langaði aðeins að létta hana
upp og láta hana ná til yngri áhorf-
enda.“
Coraci er 38 ára og er gamall
skólafélagi Adams Sandlers. Þeir
gengu saman í New York Univers-
ity og eftir að þeir brautskráðust
lágu leiðir þeirra saman aftur er
Coraci leikstýrði Sandler í einni af
hans best heppnuðu myndum The
Wedding Singer, sem var nokkurs
konar óður til æskuára beggja á
miðjum 9. áratugnum þegar sítt-að-
aftan tískan var málið og Billy Idol
tekinn alvarlega. Myndin gerði það
líka verulega gott og sama má
segja um næstu mynd á eftir sem
þeir gerðu saman The Waterboy,
þótt sú hafi verið síðri í alla staði.
Coraci segir þá Sandler enn bestu
vini þótt þeir hafi ekki gert saman
mynd síðan 1998. „Við náum alveg
ótrúlega vel saman, höfum sama
húmorinn, sömu áhugamálin og
sömu vinnureglur. Höfum gaman af
því að fíflast en vitum báðir alveg
upp á hár hvenær rétti tíminn er til
að taka vinnuna föstum tökum.“
Snillingurinn Coogan
Coraci segir þó aldrei hafa komið
til tals að fá Sandler til að leika
séntilmanninn Phileas Fogg sem
veðjaði um það að hann gæti
ferðast á loftbelg umhverfis jörðina
á 80 dögum.
„Allt frá upphafi beit ég í mig að
Fogg þyrfti að vera breskur. Ekki
franskur og alls ekki bandarískur.
Ég vildi þennan breska aðalsmann.
Klaufabárð með ómælt stolt og
mikla snilligáfu. Og eftir að hafa
séð hann fyrir mér kom enginn
annar til greina en Steve Coogan.“
Coraci segist ekki hafa þekkt
hann fyrir. Samstarfsmaður hefði
bent honum á að sjá þennan mögu-
lega kandídat fyrir hlutverkið í 24
Hour Party People.
„Og eftir að hafa séð þá kol-
geggjuðu og frábæru mynd þá
sannfærðist ég endanlega. Coogan
yrði að fá hlutverkið. Einhver sem
gæti gjörsamlega lagt undir sig
hlutverk og gert heila mynd með
því eins og hann gerði við 24 Hour
Party People. Ég þurfti að fá ein-
hvern svona snilling til að leika
snillinginn Fogg. Annars hefði hann
ekki orðið trúverðugur.“
Björk í Bláa lóninu
Steve Coogan er þekktastur hér
á landi fyrir hlutverk sitt í popp-
sýrumyndinni 24 Hour Party
People en þessi breski snillingur –
og sannarlega er hann snillingur –
er þó mun þekktari í heimalandi
sínu fyrir sjónvarpshlutverk sín,
einkum sem þáttastjórnandinn hé-
gómagjarni, Alan Partridge. Það er
líka aðal Coogans að geta brugðið
sér í allra kvikinda líki og spunnið
út í eitt þangað til fólk er hætt að
greina muninn á Coogan sjálfum og
persónunni hans. Ein af þessum
kostulegum persónum Coogans er
Tony Ferrino, rómanski ástmög-
urinn, sem hefur sungið sig inn í
hjörtu kvenna um allan heim – að
hann heldur. Ein er sú kona sem þó
féll fyrir honum. Það er hún Björk
okkar og saman sungu þau ást-
ardúettinn hádramatíska „Short
Term Affair“ við glæpsamlega veik-
ar undirtektir. Það var um miðbik
10. áratugar síðustu aldar og Björk
þakkaði fyrir þennan miklar heiður
sem Ferrino sýndi henni með því
að bjóða þeim Coogan til Íslands.
„Ég hef einu sinni komið til Ís-
lands,“ segir Coogan við blaðamann
Morgunblaðsins, sem reyndi að
stoppa hann af og benda honum á
að ekki væru nema tvö ár síðan
hann sagði sama blaðamanni og les-
endum Morgunblaðsins frá þessari
sömu heimsókn fyrir tveimur árum
er Coogan var að kynna 24 Hour
Party People. „Já, ég man það eins
Kvikmyndir | Sagan sígilda Umhverfis jörðina á 80 dögum er komin í nýjan og ferskan kvikmyndabúning
Umhverfis jörðina
með Coogan og Coraci
Í nýrri æsilegri bíóútgáfu af Umhverfis jörðina á 80 dögum
beitir Passepartout karatebrögðum og Phileas Fogg reytir af
sér brandarana – allt í þágu meira fjörs. Skarphéðinn
Guðmundsson ræddi við Fogg sjálfan – Steve Coogan –
og leikstjórann Frank Coraci.
Steve Coogan sem breski aðalsmaðurinn Phileas Fogg og Jackie
Chan er slagsmálahundurinn Passepartout. Coogan ber mótleikara sín-
um frá Hong Kong afar vel söguna og segir hann mikinn öðling og hafa
verið hjálpsaman mjög þegar kom að líkamlegum grínleik.
Sýnd kl. 4 og 8.Sýnd kl. 6 og 10. B.I. 16.
SV Mbl
www .borgarb io. is
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND
SUMARSINS!
Jenna fékk ósk sína uppfyllta...
og er allt í einu þrítug! Frábær
mynd fyrir fólk á öllum aldri.
Missið ekki af
svölustu mynd
sumarsins!
Frábær hasarmynd með
ofurtöffaranum The Rock
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 16 ára.
ÞEGAR KRAFTAVERK
VERÐUR AÐ MARTRÖÐ
ER EKKI AFTUR SNÚIÐI I
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13 .00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 16.
Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.15.Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B. i. 16 ára.
kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Fjölskylda hans
var myrt og hefnd hans
er miskunnarlaus!
Sýnd kl. 1.30 og 3.40.
Íslenskt tal
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.40.
1/2
HL Mbl
ÓÖH DV
Ó.H.T Rás2
Ó.H.T Rás2
SV Mbl
SKONROKK
Kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.40.
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND SUMARSINS!
Missið ekki af
svölustu mynd
sumarsins!
Frábær hasarmynd með
ofurtöffaranum The Rock
FRUMSÝNING
Jenna fékk ósk sína uppfyllta...
og er allt í einu þrítug!
Frábær mynd fyrir fólk á öllum aldri.
ÓHT Rás2
SV Mbl
Forsa la ha f in – Frumsýnd 9. jú l í