Morgunblaðið - 08.07.2004, Page 8

Morgunblaðið - 08.07.2004, Page 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Landsmót ung-mennafélags Ís-lands, UMFÍ, hefst í dag á Sauðárkróki og er þetta 24. mótið sem haldið er. Áður fyrr var mótið haldið á þriggja ára fresti en síðustu ár hafa þau ver- ið haldin annað hvert ár. Þrátt fyrir að mikilvægi móta sem þessa hafi minnkað á síðari árum með aukinni afþreyingu fyrir al- menning þá halda þau samt gildi sínu. Það er oft talað um ungmennafélags- andann, það er sú stefna að vera með og taka þátt þó svo menn eigi ef til vill ekki mikla möguleika á að kom- ast á verðlaunapall. Á tímum harðnandi samkeppni þar sem íþróttamenn eru margir hverjir á launum eða styrkjum, mismiklum að sjálfsögðu, hefur mót sem þetta mikla þýðingu. Þarna koma saman fjölmargir íþróttamenn í fjölmörg- um greinum og reyna með sér, en kynnast síðan utan keppnisvallar- ins og það er af hinu góða, það er alltaf gaman að hittast og reyna með sér þó svo aðalatriðið sé ekki að sigra. Með þessu er ekki átt við að samkeppnin um stigin sé ekki mikilvæg – hún er það vissulega – heldur að samfara keppninni hafa menn gagn og gaman af, enda er það einn af megintilgangi íþrótta. Ómar Bragi Stefánsson er fram- kvæmdastjóri landsmótsins og hef- ur staðið í ströngu síðustu vikurn- ar. „Það er allt tilbúið hjá okkur og við bjóðum alla velkomna á Sauð- árkrók um helgina og auðvitað eru alltaf allir velkomnir hingað til okk- ar,“ sagði Ómar Bragi á miðviku- daginn. Síðustu vikurnar hafa Sauð- krækingar lagt nótt við dag til að gera bæinn sem fallegastan þannig að sem best fari um gesti og gang- andi en búist er við fjölda gesta. „Við vitum auðvitað ekki nákvæm- lega hversu margir gestir koma en keppendur verða um tvö þúsund með þeim sýningarflokkum sem koma hingað erlendis frá. Af reynslu síðustu móta má búast við eitthvað á bilinu 12–20 þúsund gestum og við erum tilbúin til að taka á móti þeim fjölda. Þetta ræðst auðvitað mikið af veðrinu og við eigum ekki von á öðru en góðu veðri. Við vonum alltént að það verði gott,“ segir Ómar Bragi. Á Sauðárkróki búa um 2.700 manns þannig að íbúum bæjarins fjölgar verulega um komandi helgi. Íþróttabandalögin í landinu hafa nú í fyrsta sinn rétt til að senda keppendur og er þátttaka ágæt, en þrjú bandalög senda keppendur, Íþróttabandalag Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Akureyrar. Það kostar sitt að halda svona mót og er áætlað að bæjarfélagið hafi lagt fram um 160–200 milljónir til verksins. „Ríkið kemur inn í þetta með 60–70 milljóna framlagi. Það er auðvitað gríðarlega mikil uppbygging sem fer af stað þegar svona mót er haldið. Hérna er búið að gera íþróttaleikvöllinn sérlega glæsilegan, það er búið að laga sundlaugina og í raun má segja að allir leggist á eitt um að gera allt eins fínt og hægt er. Öll mannvirk- in standa síðan eftir og þar með er sveitarfélagið komið með eins góða aðstöðu og kostur er,“ segir Ómar Bragi. Eins og venjulega er að- gangur ókeypis, enginn verður rukkaður fyrir tjaldstæði né annað í tengslum við mótið. Þannig hefur það verið á landsmótum og þannig verður það. „Tekjumöguleikarnir eru í raun takmarkaðir. Við erum með mjög góð fyrirtæki sem styrkja okkur veglega og síðan eru það þátttökugjald keppenda. Hér kostar ekkert inn á svæðið, tjald- stæðin eru frí og ekkert kostar á kvöldvökurnar og annað sem við erum með í tengslum við mótið,“ segir Ómar Bragi sem telur að það kosti um 30 milljónir að halda mót- ið, bara framkvæmdin sjálf. „Það kom mér einna helst á óvart hversu gríðarlega mikið þetta er allt saman. Það má segja að landsmótið sé í raun tæplega þrjátíu aðskilin íþróttamót. Hér er keppt í það mörgum greinum og hver grein er með sinn sviðsstjóra sem sér um viðkomandi grein og alla framkvæmd við hana. Þannig að í raun erum við að halda rosa- lega mörg mót.“ Svona mót verður ekki haldið án stuðnings almennings á viðkom- andi stað því það þarf margar hendur til að mótið fari vel fram. „Fjölmargir sjálfboðaliðar hafa komið að undirbúningnum en síð- ustu daga hefur streymt hingað fólk sem vill aðstoða okkur og það er virkilega gaman að finna hversu jákvætt fólkið hérna er,“ segir framkvæmdastjórinn og leggur áherslu á að á Sauðárkróki ríki hinn sanni ungmennafélagsandi þar sem gleði og skemmtun ráði ríkjum í bland við hæfilega keppni innan vallar. En þeir Sauðkrækingar verða meira í sviðsljósinu í sumar því átján dögum eftir að landsmótinu lýkur verður annað landsmót á Króknum, unglingalandsmótið og í millitíðinni verður leikinn einn rið- ill á Norðurlandamóti kvenna, 21 ára og yngri. Það er því nóg að ger- ast á Króknum í sumar. Fréttaskýring | 24. Landsmót ungmenna- félaganna hefst í dag á Sauðárkróki Skín við sólu Skagafjörður Heimamenn tilbúnir að taka vel á móti tólf til tuttugu þúsund gestum Ómar Bragi Stefánsson Ungmennafélagsandinn að vanda í hávegum hafður  Útimót eins og Landsmót UMFÍ hefur mikla þýðingu fyrir það bæjarfélag sem heldur það hverju sinni. Bæjarbúar vinna ómælt starf í sjálfboðavinnu til að fegra bæinn áður en gestir flykkjast að. Ekki minnkar starf- ið þegar mótið sjálft hefst því um 400 sjálfboðaliðar verða við störf um helgina. Glæsileg aðstaða bíður íþróttafólksins og gesta, en þegar öllu er á botninn hvolft þá veltur framkvæmd móts sem þessa mikið á veðrinu. skuli@mbl.is NÝSKÖPUNAREINTAKIÐ af Elí 2000 plóg, olíu- og hreinsunar- og slökkvitæki, var prófað við olíu- miðstöð olíufélaganna við Örfirisey í gærmorgun og aðstoðaði Slökkvi- lið Reykjavíkur Elí ehf. við prufu- keyrsluna. Þetta nýsköpunarverk- efni hefur fengið styrki, bæði frá fjárlaganefnd Alþingis og IMPRU. Að sögn Auðuns Snævars Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra Elí ehf., tókst prófunin vel og allt virðist lofa mjög góðu. Á við stærstu slökkvibíla „Þessi plógur hefur tvíþætt hlut- verk, þ.e hreinsun á olíubrák og svo erum við nú að athuga með slökkvi- liðinu hvort við getum ekki einnig notað hann sem dælu í stórbrunum. Aukaáhrifin sem sagt þessi að hann getur virkað sem brunadæla eins og í skógareldum, stórbrunum þar sem þarf að koma einhverju tæki að vatni eða sjó sem hefur afköst eins og stór og mikill slökkvibíll. Dæl- urnar eiga að afkasta næstum jafn- mikið og stærsti slökkvibíllinn í Reykjavík.“ Við olíuhreinsun byggist tæknin á því að Elí Plógnum er stungið undir olíumengaða yfirborðið og samspil dælna, stúts og lögunar Plógsins myndar hvirfil og yf- irborðið sogast niður og í gegnum Plóginn í móttakara sem getur ver- ið tankbíll, skip, belgir o.fl. Auðunn segir að olíumengunar-viðbragðs- risinn OSRL í Southampton, sem sé stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum, hafi óskað eftir að fá fyrsta eintakið af Elí 2000 til ít- arlegra prófana. Plógurinn fari þangað í byrjun ágúst þar sem olíu- hreinsunarþátturinn verði athug- aður og prófaður enda hafi þeir sértanka til þess. Prófanir á Elí-plógnum við olíumiðstöðina við Örfirisey Morgunblaðið/Eggert Verkar sem brunadæla og olíuhreinsunartæki í senn FJÖLBRAUTASKÓLI Norður- lands vestra á Sauðárkróki, FNV, hefur ákveðið að halda áfram með nýtt námsmatskerfi, stundum nefnt lotukerfi, sem tekið var upp um síð- ustu áramót. Jón F. Hjartarson skólameistari segir kerfið hafa reynst ágætlega, nemendur séu ánægðir en gera þurfi á því nokkrar endurbætur. Til þess fékk skólinn nýlega styrk úr þróunarsjóði. FNV var fyrstur framhaldsskóla til að taka þetta kerfi upp hér á landi, sem er að nokkru leyti að finnskri fyrirmynd. Nýja kerfið felur í sér að nemendur gangast undir próf á miðri önn og standist þeir þau taka þeir fyrir í lok annarinnar aðeins helming námsefnisins. Þeir sem falla taka hins vegar allan áfangann fyrir. Jón segir markmið þessa fyrirkomu- lags að auka námsástundun nem- enda, bæta árangur þeirra í námi og draga úr brottfalli. Í könnun meðal nemenda FNV í lok vorannar kom fram að 64% svarenda töldu lotu- kerfið vera frábært eða ágætt, 22% voru hlutlaus, 8% töldu það frekar slakt og 6% mjög lélegt. Jón segist vera ánægður með þessar niðurstöð- ur en telur að bæta megi kerfið enn. „Kennarar finna fyrir aukinni vinnu vegna innleiðingar þessa nýja kerfis, einkum vegna endurskipu- lagningar á verkefnavinnu nemenda, en telja áhugavert að þróa kerfið áfram. Allt þróunarstarf gefur okkur starfsfólkinu tækifæri til að sjá hlut- ina í nýju ljósi og sækja enn frekar fram. Heildarniðurstaðan er augljós- lega jákvæð og lofar góðu um fram- haldið með jákvæðum nemendum og kennurum.“ FNV fær styrk til að þróa áfram nýtt námsmatskerfi ÞAR sem Sigmund Jóhannsson teiknari verður í fríi næstu vik- urnar munu teikningar hans ekki birtast í blaðinu um sinn. Sigmund gerir ráð fyrir að snúa aftur eftir nokkrar vikur. Sigmund í fríi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.