Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 21 BOSTON 26” 21 gíra Shimano. Hátt stýri, breiður hnakkur með dempara. Bretti, bögglaberi og standari Tilboð kr. 23.700 Herrada gar Rincon 26” Létt „oversize“ álstell, 24 gíra Shimano Alivio og stillanlegur demparagaffall. Tilboð kr. 35.900 Með diskabremsum. Tilboð kr. 38.900 GSR AluxX F/S 26” Létt ál fjallahjól 21 gíra með demparagaffli. Shimano gírar. Frábær kaup. Tilboð kr. 25.900 H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 07 . 2 00 4 Apollo 26” 21 gíra Shimano/GripShift. Verð áður kr. 24.900 Tilboð kr. 18.600 GSR F/S 26” Alvöru herra demparahjól 21 gíra. Tilboð kr. 21.900 15-25 % afsláttu r af herrahjó lum Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði. Ábyrgð og upphersla. VIÐ MENNIRNIR köllum okkur „hinn vitiborna mann“, en sumir draga í efa, að það sé réttnefni. Mikl- ar framfarir hafa vissulega orðið í margvíslegri tækni, en hafa vits- munir okkar og siðferði þróast með sama hætti? – Fregnir berast öðru hverju af banaslysum í umferðinni, og fjöl- margir verða fyrir al- varlegum meiðslum og bíða þess aldrei bætur. Sumir foreldrar sjá á eftir börnum sínum, sem vonirnar voru bundnar við. Þetta er mjög dapurlegt, enda er slíkur missir einhver þyngsta raun, sem menn geta orðið fyrir. Hér er spurt: Hver er hér kostnaður þjóð- félagsins, hverjar eru helstu orsakir alvarlegra umferð- arslysa, og hvar og hvenær verða slysin einkum? Hverjir eru hér í mestri hættu, og hvað væri hægt að gera til að stuðla að úrbótum? 20 milljarðar króna Umferðarslys eru með dýrustu mála- flokkum þjóðfélagsins, og talið er, að kostnaður þess vegna umferðarslysa sé allt að 20 milljarðar króna á ári hverju (Rannsóknarnefnd umferð- arslysa: Banaslys í umferðinni 2002. Maí 2003, 16. bls.). Unnt væri að spara verulegar fjárhæðir með bættri umferðarmenningu. Og þó er hinn mikli kostnaður ekki kjarni málsins, enda er ekki er unnt að meta til fjár raunir þess fólks, sem hér á um sárt að binda. En við getum sjálf einsett okkur að gera betur í framtíðinni og leitast við að fækka alvarlegum um- ferðarslysum. Helstu orsakir umferðarslysa Að jafnaði farast 26 menn á ári í um- ferðarslysum á Íslandi (sbr. Morg- unblaðið, 3. jan. 2004, 64. bls.) og miklu fleiri slasast. RNU (Rannsókn- arnefnd umferðarslysa) hefur rann- sakað 112 banaslys (133 dauðsföll) á árunum 1998–2002. Þar kemur fram, að flest slysin verða við bestu að- stæður, um miðjan dag, þegar bjart er úti og færðin er góð. Flest bana- slysin verða um helgar að sumarlagi, og þau verða einkum á vegum, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Helstu orsakir banaslysa á þessum árum eru: 1) hraður akstur 2) bílbelti ekki notað, 3) ölvunarakstur, 4) svefn og þreyta. – Einnig kemur fram hjá rann- sóknarnefndinni, hverj- ir lenda oftast í umferð- arslysum, en það eru ungir karlmenn. Hlutur kvenna í umferð- arslysum fer þó vaxandi samfara auknum akstri þeirra (sama heimild, 30.–33. og 38. bls.). Raunalegt er, að ung- mennin skuli vera í mestri hættu í þessum hildarleik. Hraðakstur er ósæmilegur Hraðakstur er ein algengasta orsök banaslysa. Mikilvægt er, að menn geri sér þetta ljóst, og breyta þarf viðhorfunum til þessarar hættulegu hegðunar. – Stundum er t.a.m. vikið að hraðakstri með nokkurri léttúð í vinsælum dægurlögum. Menn ættu að íhuga ábyrgð sína í þessum efnum. Ekki man ég eftir dægurlögum um ölvunarakstur, og líklega telst slíkt ekki við hæfi. – En margir menn átta sig ekki á hættum hraðans. Sumir segja jafnvel frá því brosandi, að þeir hafi ekið allt of hratt og löggæslu- menn hafi svo „gómað“ þá. Þetta þyk- ir ekki mikið mál. En engan mann hef ég heyrt segja frá ölvunarakstri með sama hætti. Hann þykir skamm- arlegur, sem vissulega er rétt, en hið sama á við um hraðakstur. – Ég vil hér þakka sérstaklega löggæslu- mönnum í dreifbýli og þéttbýli fyrir gott starf við eftirlit með hraðakstri. Aðalorsök umferðarslysa Hraðakstur er oft aðalorsök umferð- arslysa og meðorsök í fjölda slysa. Það hefur komið fram í rannsóknum á hraðakstri, að áhættan af honum og ölvunarakstri getur verið með sama hætti. Margar rannsóknir eru til um tengsl hraða og mismunandi gerða slysa, og þær gefa allar svipaðar nið- urstöður um hættur hraðaksturs. Okkur myndi takast að fækka látnum og alvarlega slösuðum um 15–20%, ef við lækkuðum meðalhraða um 5% (Rögnvaldur Jónsson: Minnka þarf umferðarhraða og bæta vegina. Morgunblaðið 17. febr. 2003, 14. bls.). Brýnt er, að viðurlög við hrað- akstri verði hert og þau höfð í sam- ræmi við þá hættu, sem skapast af þessari háttsemi. Slíkir ökumenn setja ekki bara sjálfa sig í stórhættu, heldur einnig aðra menn, sem þar eru á ferð. Í þessum efnum þurfa við- urlög að vera í samræmi við eðli brots. Að óbreyttu getum við búist við því, að 26 menn deyi árlega í umferð- inni og miklu fleiri verði örkumla- menn. Rögnvaldur Jónsson verk- fræðingur, formaður RNU, segir, að ef ekki verði gerðar stórfelldar end- urbætur á núverandi vegakerfi og ráðstafanir til að draga umtalsvert úr umferðarhraða, þá „munum við á næstu árum sjá svipaðan fjölda af banaslysum og alvarlegum slysum“ (sama heimild). Þetta eru athygl- isverð orð. Lokaorð Erum við „hinn vitiborni maður“? Það skal játað, að stundum efast ég um það. Tilgangslaus og ótímabær dauðsföll í umferðinni valda mér nokkrum efasemdum í þessum efn- um. Og þegar ég sé í náttúrunni, hvernig þrestirnir annast afkvæmi sín og verja þau gegn ýmiss konar hættu, þá verður mér það ljóst, að við mennirnir getum ýmislegt af þeim lært. – Að hættunum í umferðinni verður vikið nánar í næstu grein. „Hinn vitiborni maður“ – á vegum úti Ólafur Oddsson fjallar um umferð ’Tilgangslaus og ótíma-bær dauðsföll í umferð- inni valda mér nokkrum efasemdum í þessum efnum.‘ Ólafur Oddsson Höfundur er kennari. FRÁ því að ég man eftir mér hefur líf mitt tengst íþróttum og heilsurækt með einum eða öðrum hætti. Ég ólst upp í Vogahverfinu og kynntist Þrótti, litlu en afar jákvæðu og fjöl- skylduvænu íþrótta- félagi hverfisins, sem mér þykir alltaf vænt um síðan. Sem barn dvaldi ég á sumrin með fjölskyldu minni að Laugarvatni í næsta nágrenni við Íþróttakennaraskóla Ís- lands. Leit ég mjög upp til nemendanna þar og væntanlegs ævistarfs þeirra og var þá þegar enginn efi í mínum huga að ég ætlaði í þann skóla líka. Ég lauk skólanum 1980 og æ síðan hefur líf mitt snúist um að leiðbeina fólki varðandi hreyf- ingu, mataræði og fæðubótaefni. Eigin reynsla Ég kynntist Rauðu Eðalginsengi fyrst fyrir um 16 árum þegar við fé- lagarnir vorum að byggja upp starf- semina í Veggsporti ásamt fullri vinnu og þurftum því á öllu okkar að halda og meiru til. Reynsla mín var að ginsengið jók úthaldið og starfs- þrek án þess að ganga á líkamann eins og mörg örvandi efni gera. Þvert á móti virtist það endurnýja lífskraft og því meir sem maður notaði það lengur. Ég þekki fjölda afreksmanna í íþróttum sem notað hafa ginseng um lengri eða skemmri tíma og er reynsla þeirra nokkuð einstaklings- bundin. Áhrifin virðast þó vera meiri hjá þeim sem eru komnir vel á seinni hluta ferils síns og margir hafa haldið því fram að ginsengið hafi gert þeim kleift að halda áfram mun lengur en ella. Allt þetta varð til þess að ég ákvað að kynna mér þessa merkilegu jurt betur, bæði fyrir sjálfan mig og eins til að geta leið- beint öðrum. Er ginseng gott fyrir líkamsrækt? Ég tek það fram að ég trúi alls ekki á neinar töfralausnir, sem af og til er reynt að markaðs- setja, s.s. megrun án aðhalds eða lík- amsrækt án áreynslu. Það breytir ekki því að skyn- samlegt fæðuval ásamt réttri notkun fæðubótaefna getur ráðið úrslitum og er í öllu falli til góðs. Margt íþrótta- fólk notar ginseng til að auka þrek, úthald og einbeitingu með misjöfnum árangri vegna ónógrar þekkingar á eðli vörunnar. Vitað er að ginseng- notkun flýtir fyrir útskoli mjólkur- sýru og annarra eiturefna úr lík- amanum og dregur þannig úr þreytutilfinningu. Ennfremur stuðlar hún að auknum fjölda rauðra blóð- korna og bætir þannig súrefnisupp- töku. Þetta þýðir aukið þol en það gerist ekki á augnabliki, eins og sum- ir virðast halda, heldur þarf neysla að hafa staðið yfir í að minnsta kosti 3-4 vikur, ef góður árangur á að nást og þá helst samhliða æfingum. Aftur á móti mæli ég alls ekki með að fólk taki inn ginseng innan við klukku- stund fyrir keppni, t.d. spretthlaup, vegna þess að fyrst eftir inntöku lækkar blóðsykur en jafnast síðan. Er allt ginseng eins? Því fer fjarri. Frægast er svokallað Panax Ginseng sem er upprunnið frá miðhálendi Kóreu og fjallagörðum Mansjúríu. Því eldri og þykkari sem rótin er því betri er hún að gæðum og samsetningu virkra efna. Jurtin mergsýgur jarðveginn sem þarf að vera afar steinefnaríkur og því er æskilegt að hvíla akrana helst í mörg ár milli uppskera til að tryggja við- unandi gæði. Rautt ginseng frá Kór- eu inniheldur flest virk efni og jafn- framt inniheldur það mest magn svokallaðra andoxunarefna. Því mætti ætla að neysla þess bætti árum við lífið en öruggt má telja að það bæti lífi í árin. Ginseng og íþróttir Hafsteinn Daníelsson skrifar um heilsurækt ’Því eldri og þykkarisem rótin er því betri er hún að gæðum og sam- setningu virkra efna.‘ Hafsteinn Daníelsson Höfundur er íþróttakennari og eigandi líkamsræktarstöðvar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.