Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 35
MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 35 Frítt á völlinn fyrir 16 ára og yngri Viðskiptavinir Landsbankans 16 ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar. Þeir lenda líka í happdrættispotti með 100 glæsilegum vinningum. Miðar eru afhentir í útibúum bankans! 560 6000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 51 84 0 7/ 04 Nokkrir veruleikaþættir erusýndir um þessar mundir áíslenskum sjónvarps- stöðvum. Dæmi eru The Restaur- ant á Skjá einum sem fjallar um rekstur veitingastaðar í New York, The Joe Schmoe Show á Popptíví sem fjallar um náunga í útslátt- arkeppni um peningaverðlaun og My Big Fat Obnoxious Fiance á Stöð 2 sem fjallar um par sem á að sannfæra foreldra sína um að þau vilji giftast. Í seinni tíð hefur til- koma nýrra slíkra þátta aukist mjög og um leið hefur flóra þeirra stækkað jafnt og þétt. Ekki einungis hafa verk- efnin sem þátttakendur eru að fást við orðið fleiri, eins og dæmin hér að ofan sýna, heldur er tilkomin ný kynslóð slíkra veruleikaþátta, þar sem markvisst er logið að þátttak- endum, þeir sitja alls ekki allir við sama borð og ekki er allt sem sýn- ist.    Dæmi um það er The Joe SchmoShow, þar sem Joe greyið er blekktur til að halda að hann sé einn af keppendum um pen- ingaverðlaun og málið sé að reyna að lifa af í hópnum sem þarna er samankominn. Í raun og veru eru allir hinir „þátttakendurnir“ leik- arar, sem eru gefnar fyrirfram skrifaðar rullur. Slíkar blekkingar eru líka fyrir hendi í My Big Fat Obnoxious Fiance, þar sem kærast- inn er ekki í liði með kærustunni, heldur fyrirfram skrifaður gegn henni. Sitt sýnist hverjum um þessa nýju kynslóð veruleikaþátta. Marg- ir fyllast sterkri réttlætiskennd fyrir hönd þess sem blekktur er og finnast þættirnir afar ósann- gjarnir. En sennilega er þessi brella nauðsynleg viðbót, það er ekkert gaman lengur að sjá hver er vinsælastur í alvörunni heldur sjá „raunveruleg“ viðbrögð. Eða eru þau það ekki? Þessir nýju þættir leiða hugann óhjákvæmilega að spurningunni um hvort þessir veruleikaþættir hafi hreinlega ekki alltaf verið skrifaðir fyrirfram og hversu mikil nýjung það sé að einhverjir sem taka þátt þekki plottið í raun og veru og viti útkomuna fyrirfram. Það hefur raunar alltaf verið mín kenning að veruleikaþættir væru að miklu leyti skrifaðir fyrirfram og „fótósjoppaðir“, því hvernig öðruvísi er hægt að útskýra margt af þessu bulli sem þarna fer fram? Hvernig stendur á því að konurnar í Survivor virðast alltaf rakaðar undir höndunum þegar þær áttu að hafa hoppað úr báti og synt í land á eyðieyju fyrir tveimur vikum? Hvers vegna kjósa einhverjir að ræða og þar með koma upp um plottin sín, vitandi að myndavélin er ofan í nefinu á þeim? Af hverju er myndatökumaðurinn einmitt staddur heima hjá þjóninum þegar hann fær hið óvænta símtal?    Þó að Stiklur gætu talist fyrstiíslenski veruleikasjónvarps- þátturinn, hlýtur aðalþátturinn í ís- lenska geiranum um þessar mundir að vera Brúðkaupsþátturinn Já! sem gengur núna fjórða sumarið í röð. Sá þáttur rennir stoðum undir kenninguna um að margir þessara þátta séu skrifaðir fyrirfram, því hann er það augljóslega ekki. Ef metnaðarfullir handritshöfundar skrifuðu þann þátt, myndi ekki nánast hver einasta manneskja sem beðin er að gefa brúðhjónunum gott ráð minna þau á að fara aldrei ósátt að sofa, með fullri virðingu fyrir því heillaráði. Og það er ein- mitt þetta „ekta“ við þættina sem er virðingarvert, þó umræðuefnin séu stundum alveg steikt. Þá vekur athygli hversu lítinn áhuga Ríkissjónvarpið hefur sýnt veruleikaþáttum, bæði aðkeyptum og heimatilbúnum. Því þegar öllu er á botninn hvolft, eru slíkir þætt- ir afar vinsælir og atvinnuskap- andi. Sérstaklega fyrir handrits- höfunda, leikara og leikstjóra ef kenning mín reynist rétt – að þetta sé allt skrifað fyrirfram rétt eins og annað sjónvarpsefni. Nýr veruleiki í sjónvarpi? ’Af hverju er mynda-tökumaðurinn einmitt staddur heima hjá þjón- inum þegar hann fær hið óvænta símtal?‘ AF LISTUM Inga María Leifsdóttir ingamaria@mbl.is FÓTÓGRAMM nefnist það þegar hlutur er lagður á myndnæman flöt eins og ljósmyndapappír í myrkra- herbergi, sem síðan er lýstur í smá- stund. Engin myndavél kemur við sögu en þegar pappírinn kemst í snertingu við framköllunarvökvann birtist mynd af hlutnum á papp- írnum. Aðferðin er frá upphafi nítjándu aldar þegar frumkvöðlar ljósmyndunar, Talbot og Daguerre, gerðu tilraunir til að „mynda“ hluti á ljósnæmum fleti. Lengi vel var orðið photogram notað á sama hátt og photograph og það er ekki fyrr en á 20. öld að farið er að greina þarna á milli. Við gerð mynda af þessu tagi verður óhjákvæmilega til samspil tilviljunar og ætlunar og útkoman er að nokkru leyti ófyrirsjáanleg eins og Sigríður Bachmann segir á blöðungi sínum með sýningunni sem nú stendur yfir hjá Sævari Karli þar sem hún sýnir allnokkurn fjölda þessara fótógramma. Myndir hennar búa yfir ákveðinni fegurð sem verður til þegar hlutir birtast í nýju ljósi, eru næstum óþekkj- anlegir. Það er eins og að sjá allt í einu í myrkri, sjá nýjan heim birt- ast. Manni verður hugsað til ljós- mynda af árum fólks og Kirlian ljósmynda af orkusviði lífvera og líf- rænna hluta t.d. laufblaða, eða rönt- genmynda, mynda sem sýna okkur það sem annars er hulið sjónum okkar. Fótógrömm Sigríðar eru misáhugaverð en þau best heppn- uðu búa yfir jafnvægi í myndbygg- ingu og samræmi í litum og form- um. Hér er um skemmtilegan leik að ræða og þó að myndirnar séu ef til vill ekki sérlega persónulegar eða frumlegar eru þær heillandi og fallegar, líkt og svipmyndir úr hul- iðsheimum. Hversdagslegir hlutir í nýju ljósi á sýningu Sigríðar Bachmann. MYNDLIST Gallerí Sævars Karls Til 22. júlí. Galleríið er opið á verslunartíma. FORM OG LITIR, FÓTÓGRÖMM, SIGRÍÐUR BACHMANN EGILSDÓTTIR Ragna Sigurðardóttir DJASSHÁTÍÐIN Jazz undir fjöll- um hefst á morgun í Skógum undir Eyjafjöllum. „Hátíðin verður sett á föstudagskvöldið klukkan átta með pompi og pragt, en þar verður flutt- ur tónlistargjörningur okkar Jóels Pálssonar. Þórður Tómasson fyrrum safnstjóri Byggðasafnsins í Skógum mun flytja setningarræðu og Krist- jana Stefánsdóttir og Andrea Gylfa- dóttir munu syngja pínulítið,“ segir Sigurður Flosason, saxófónleikari og skipuleggjandi tónlistaratriða há- tíðarinnar, í samtali við Morgun- blaðið. Tónleikar kvöldsins hefjast svo kl. 21 í stóru tónleikatjaldi sem sett verður upp við Hótel Skóga. „Það er ráðgert að þeir tónleikar standi til miðnættis og svo verður leikurinn endurtekinn á laugardagskvöld. Hins vegar verða eftirmiðdagstón- leikar á hátíðinni bæði á laugardag og sunnudag milli klukkan þrjú og fimm sem haldnir verða í samgöngu- safni Byggðasafnsins á staðnum. Laugardagstónleikarnir eru helg- aðir minningu Viðars heitins Al- freðssonar trompetleikara, sem var um langt skeið einn helsti djass- trompetleikari okkar Íslendinga. Hann var ættaður frá Skógum og sum af hljóðfærum hans eru varð- veitt á byggðasafninu þar. Það er aldrei að vita nema að það verði spil- að á einhver af hljóðfærum hans,“ segir Sigurður. Trompetleikarinn í hópnum, Snorri Sigurðarson, sem er nýlega útskrifaður frá Hollandi, verður í forgrunni á þessum tón- leikum, þar sem leikin verður tónlist sem tengist Viðari. Þátttakendur á djasshátíðinni eru Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stef- ánsdóttir, Jóel Pálsson, Þórir Bald- ursson, Snorri Sigurðarson, Gunnar Hrafnsson, Erik Quick, Pétur Grét- arsson og Guðmundur Pétursson, auk Sigurðar. „Á hátíðinni verða bæði nokkur undirbúin prógrömm þar sem ákveðnir hlutar af hópnum spila saman, en svo verður líka sturt- að í pottinn, hrært í og athugað hvað gerist. Hátíðin verður því meðvitað hæfilega mikið undirbúin,“ segir Sigurður sem útilokar ekki að allir þátttakendur í hátíðinni komi á ein- hverjum tímapunkti saman og spili. Aðgangur að öllum tónleikum há- tíðarinnar er ókeypis. Tónlist | Djassinn dunar í Skógum undir Eyjafjöllum Morgunblaðið/Jim Smart Djassararnir sem taka þátt í djasstónlistarhátíðinni Jazz undir fjöllum. Meðvitað hæfilega undirbúið TÓNSKÓLI þjóðkirkjunnar stend- ur fyrir námskeiði fyrir barna- kórastjóra í Skálholti 16.–18. ágúst nk. Aðalkennari í kórstjórn verður Hákon Leifsson en hann kynnir einnig nám í kórstjórn við Tón- skóla þjóðkirkjunnar. Aðrir kennarar eru Gunnar Ben, sem kemur með hugmyndir að útsetn- ingum „litlu laganna“ og Ólöf María Ingólfsdóttir, sem kennir ís- lensku þjóðlögin á nýjan máta. Bjarney Ingibjörg stýrir um- ræðum og æfingum að raddþjálfun barna. Þá verður „málþing“ um stöðu barnakóra í kirkjunni og kjör kór- stjóra á Íslandi í dag. Skráning er hjá Gróu Hreins- dóttur í síma 699 1886, ton- sel@operamail.com og hjá Bjarn- eyju Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur í síma 693 3238, big@simnet.is. Námskeið fyrir barnakórstjóra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.