Morgunblaðið - 08.07.2004, Side 39

Morgunblaðið - 08.07.2004, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 39 DRULLA og ekki drulla. Hróars- kelduhátíðin er tónlistarhátíð og það er sú eðla list sem bindur allt batt- eríið saman, fyrst og síðast. Enginn er verri þótt hann vökni og síst er hann verri ef hann hefur ráð og rænu á að umfaðma töfra tónlistarinnar. Sem nóg var af þessa fjóra daga. Síð- asta sunnudag var gerð grein fyrir helstu tónlistaratriðum opn- unardagsins, sem var fimmtudag- urinn 1. júlí. Hér fer svo samantekt yfir þá daga sem eftir lifðu af hátíð- inni. Föstudagur Ég byrjaði á því að bregða mér í heimstónlistartjaldið (Ballroom) þar sem alsírska tónlistarkonan Hasna el Becharia hélt uppi dynjandi dans- stuði ásamt félögum. Jesse Sykes er bandarísk söng- kona og gítarleikari og plægir akur þunglyndislegrar rokktónlistar. Hún lék í Pavilion (einskonar nýbylgju- rokktjald svæðisins ásamt Odeon) klukkan 17.00. Nokkuð mikið eftir bókinni og lítt stingandi en það flott- asta við tónleikana var að það byrjaði að rigna um leið og hún sló fyrsta strenginn. Tilviljun? Á sama tíma voru sænsku tækni- þungarokkssnillingarnir í Meshuggah að spila á Appels- ínugula sviðinu. Ótrúlega flottir. Ekki er hægt að segja það sama um veslings Graham Coxon, fyrrum Blurliða, sem var einfaldlega „drullu- lélegur“ í Odeontjaldinu. Á eftir Jesse steig Færeyingurinn Teitur á svið. Stemningin góð, tjaldið troðfullt og færeyskir fánar á lofti. Teitur er á flugi um þessar mundir. Slipknot leystu David Bowie af og voru með kröftug trúðslæti á aðal- sviðinu. Ágætis skemmtan en Slip- knot dæmið er engu að síður búið. Rak svo nefið inn í Arenatjaldið (næststærsta tjaldið) og þar voru N*E*R*D algerlega að gera sig og fjörið allsvakalegt. Pixies, sem spiluðu á Appels- ínugula sviðinu, náðu ekki að sann- færa mig. Þetta er hreinlega slappt verður að segjast og „við erum að gera þetta peninganna vegna“- andinn er yfir þeim öllum. Skítalykt af málinu og forsendur fyrir þessari endurkomu vægast sagt hæpnar. Svei. Má ég þá frekar biðja um Avril Lavigne sem stóð sig eins og hetja í Arena. Smellunum var staflað upp og ég er að „fíla“ þetta í botn! Þá má ekki gleyma Ozy, Örnólfi Thorlacius, sem hélt uppi góðu „grúvi“ í litlu tjaldi sem kallað er Lounge. Einhverra hluta vegna var þetta ekki á auglýstri dagskrá en stemningin hjá þeim tæplega 400 manns sem þarna voru sam- ankomnir var einkar góð. Wire léku í Oden, en þessi frá- bæra síðpönksveit (sú besta reynd- ar) var endurreist (enn og aftur) fyrir fjórum árum síðan og er alveg að gera sig. Hér eru forsendurnar heið- arlegri en hjá aurapúkunum í Pixies. Wire spiluðu nær einungis flunkuný lög, og það af miklum krafti. Glæsi- legt hreint út sagt. Laugardagur Matthew Herbert Big Band er kúnstugt fyrirbæri og lét öllum góð- um látum í hinu rafvæna Metropol- tjaldi. Á einhvern ótrúlegan hátt virkar þetta dæmi. Taktdrifin strengja- og málmblásturssveit sem helst ætti að koma fyrir í Twin Peaks þáttunum. Fyrsta flokks skemmtan og fegurð, frá öðrum heimi nánast. Þýska snúllutæknósveitin Lali Puna, sem gefur út hjá Morr Music, lék þá í Pavilion og komst, skulum við segja, þokkalega frá sínu. Á Appels- ínugula sviðinu var manni svo skotið 15 ára aftur í tímann þar sem dauða- rokksveitin Morbid Angel fór ham- förum. Ekkert nýtt en ekki slæmt heldur. Sá svo snillinginn Jamie Lidell fara á kostum í Metropol, fyrir tómu tjaldi. Þessi stórkostlegi tónlist- armaður er að blanda saman „grúv“- kenndri en þó vel sýrðri raftónlist saman við sálartónlist (hann syngur eins og hvítur Marvin Gaye) með fá- ránlega flottum árangri. Skrifið nafn- ið hjá ykkur! Þar á eftir var það Iggy and The Stooges. Þvílíkir hundar! Og Iggy ber að ofan – nei takk! En rokkið var þarna engu að síður. Síðar um kvöld- ið spilaði ein mest umtalaða nýnrokk- sveit samtímans, The Shins frá Nýju Mexíkó. Og þeir ollu ekki von- brigðum. Dásamlega melódískt „indí“ – eins gott og það getur orðið. Morrissey stóð svo sína plikt með miklum glans í Arena. Þrjú Smiths- lög sem fengu að fljóta með í settinu, „There Is A Light That Never Goes Out“, „Shakespeare’s Sister“ og „The Headmaster’s Ritual“ hafa ef- laust tendrað bál í hjörtum margra. Sunnudagur Það fyrsta sem maður varð var við þennan daginn var ræða og söngur frá Michael Franti, fyrrum liðsmanni úr Beatnigs og Disposaple Heroes of HipHoprisy en nú kom hann fram ásamt sveit sinni Spearhead. Franti er ofurpólitískur („Svartur Bono“ eins og Óli Palli frá Rokklandi sagði við mig) en dálítið klisjukenndur um leið. Þetta er fín lína. The Von Bondies voru í Odeon (söngvarinn var kýldur af Jack White á dögunum eins og frægt er) og rokk- uðu þétt. Frumleikinn þó óþægilega fjarri. Pönkfönksveitin !!! frá New York sló í gegn á sama stað, dans- tónlist fyrir nýbylgjukrakka, eins- konar uppfærð útgáfa af Stone Roses – í mjög svo ákveðnum skilningi. Franz Ferdinand („Leaving Here“, „Matinee“) spiluðu í Arena. Frábær hljómsveit og frábær lög en ekki sérstaklega sterk á sviði – a.m.k. ekki í þetta skipti. Vogatangaklíkan (Wu-Tang Clan) sté svo á svið á Appelsínugula sviðinu og skilaði sínu vel – merkilegt nokk. Áhorfendur voru vel „Wu“-aðir á því og fánaveifandi Wu-limir í góðu stuði. Hróarskelda 2004 | Þar sem tónlistargyðjan hafði veðurguðinn Í díki tónlistarinnar Morgunblaðið/Árni Torfason Á meðan mamma og pabbi fóru á tónleika gátu börnin drullumallað, horft á allt skrítna fólkið hegða sér svona undarlega eða bara látið sér leiðast. Hringurinn eini. Armbandið. Lyk- illinn. Vegabréf Hróarskeldu. www.roskilde-festival.dk arnart@mbl.is Þrátt fyrir allt sigraði tónlistargyðjan veðurguðinn á Hróars- kelduhátíðinni. Arnar Eggert Thoroddsen greinir frá.                                          !      "   #     $     $%&  '  ()                           !!!    " $   %" & $   $   '    (  )  $  ' #   *       ,- .                ) * + ) , - . / *0 1 2 3 *+ ** *- *3 *2 *1 *, *. !  * + - * + + 1 2 + , , , 1 3 1 - *1 *- *0 /                    ! 456 (!!78 79:!5 457;!  %78 (  4! 456 (!!78 79:!5 457;!  %78 (  4! 456 (!!7;!  %79:!5 4578 78 (  4!7<(  :457=  7 45 :457=   9:!5 45 :457=   :457=   9:!5 45 458 78 (  4! 456 (!!79:!5 45 :457=   456 (!!78 (  4! 9:!5 45 9:!5 45  :45 456 (!! :45 456 (!! 9:!5 45 Forsætisráð-herra Kambódíu bauð í vikunni leikkon- unni Angelinu Jolie kambód- ískan ríkisborg- ararétt í við- urkenningarskyni fyrir störf hennar í þágu náttúruverndar í þessu fátæka ríki. Jolie, sem kom í óvænta tveggja daga heimsókn til Kambódíu í gær, segist munu þiggja ríkisborgararétt- inn verði henni boðinn hann. Hún tjáði sig ekkert um bandarískan ríkisborgararétt sinn. Í Kambódíu er þarlendum ríkisborgurum heimilt að vera einnig með ríkisborgararétt í öðru landi. Jolie, sem ættleiddi son sinn Maddox frá Kambódíu fyrir tveimur árum, segir að Hun Sen forsætisráð- herra hafi boðið sér ríkisborgara- réttinn á fundi þeirra tveggja í dag. Jolie, 29 ára, hefur veitt samtökum í Kambódíu sem beita sér fyrir sam- félagsþróun 1,5 milljónir Bandaríkja- dala, eða 108,3 milljónir króna, til verkefnis er miðast að umhverfis- vernd í afskekktum hlutum landsins í norðvestri. Verkefnið miðast að verndun um 60.000 hektara skóglendis í Samlaut og Pailin, en svæðin voru áður yfir- ráðasvæði hinna grimmu Rauðu khmera sem stýrðu Kambódíu á ár- unum 1975–79.    Bandaríski leikarinn Paul New-man hefur aldrei losnað við kappakstursdelluna og um helgina mætti hann til leiks í götubílaralli sem fram fór í Lime Rock-garði í Lakeville í Connecticut. Sýndi hann góða takta þótt á 80. aldursári sé en komst ekki alla leið í mark vegna bil- unar í gírkassa. Newman var meðal þriggja fremstu í rallinu þegar gírkassinn gaf sig í Corvettunni hans, en hún bar númerið 79 og var því ætlað að minna á aldur leikarans. Voru þá aðeins eftir um 15 mínútur af kappakstrinum. Stjarna Butch Cassidy-myndar- innar komst lítt eftir það en varð á endanum í 15. sæti af 19 þátttakendum. „Ég naut kappakstursins allt þar til gírkassinn fór að gefa sig en eftir það var bíllinn reikull,“ sagði Newman. Þar sem Chevrolet-bíll Newmans komst fyrst í gegnum skoðun fyrir keppnina fékk hann að hefja kapp- aksturinn á ráspól. „Ég er að verða of gamall fyrir þetta, ef ég bara væri orðinn 75 ára aftur hefði ég verið talsvert fljótari,“ sagði kvikmynda- stjarnan fræga sem gert hefur sér það til dundurs að keppa öðru hverju í kappakstri. Newman hefur um dagana keppt í nokkrum af helstu sportbílamótum Bandaríkjanna, meðal annars í sólar- hringskappakstrinum árlega í Day- tona á Flórída. Fólk folk@mbl.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6 og 8. www.laugarasbio.is ÞEGAR KRAFTAVERK VERÐUR AÐ MARTRÖÐ ER EKKI AFTUR SNÚIÐ Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.  SV Mbl Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www .regnboginn.is  SV Mbl Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.40.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16 ára. SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SUMARSINS! Jenna fékk ósk sína uppfyllta... og er allt í einu þrítug! Frábær mynd fyrir fólk á öllum aldri. Missið ekki af svölustu mynd sumarsins! Frábær hasarmynd með ofurtöffaranum The Rock Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. ÓHT Rás 2 ETERNAL SUNSHINE Forsa la ha f in – Frumsýnd 9. jú l í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.