Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 12
ERLENT
12 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sandey ehf • Sími 533 3931
SANDEY HEILDSALA
OG FJARÐARKAUP KYNNA
KYNNING í Fjarðarkaupum
8. og 9. júlí milli kl. 14.00 og 18.00.
Snyrtifræðingur verður á staðnum fólki til aðstoðar.
Loksins á Íslandi, Love Line Platinum
snyrtivörur, einstæð snyrtivörulína
fyrir líkams- og andlitshirðun,
byggð upp á „lífrótinni“,
betur þekkt sem „ginseng“.
Brazilian tan brúnkukremið
hefur fengið frábærar viðtökur
enda auðvelt og
fljótvirkt í notkun.
Brazilian tan,
fallegur litur á
heilbrigðan
og skjótan hátt.
RÍKISSTJÓRN Íraks tilkynnti í
gær að sett hefðu verið þjóðarörygg-
islög sem veittu forsætisráðherran-
um heimild til að grípa til ýmissa að-
gerða til að binda enda á árásir
uppreisnarmanna, meðal annars að
setja herlög á svæðum þar sem
neyðarástand skapast. Bakhityar
Amin, mannréttindaráðherra Íraks,
sagði að lögin nauðsynleg til að
vernda líf íraskra borgara sem staf-
aði hætta af „hópum hryðjuverka-
manna“.
Nýju lögin veita forsætisráð-
herranum, Iyad Allawi, sem er sjíti,
heimild til að setja útgöngubann á
tilteknum svæðum, gefa út hand-
tökutilskipanir, banna samkomur og
skerða ferðafrelsi útlendinga. Hann
getur einnig bannað pólitískar
hreyfingar. Þá er yfirvöldum heim-
ilað að hlera síma og skoða póst
meintra uppreisnarmanna.
Forsætisráðherrann getur þó
ekki gripið til aðgerðanna nema með
einróma samþykki forseta landsins,
sem er súnníti, og tveggja varafor-
seta, Kúrda og sjíta. Malik Dohan al-
Hassan dómsmálaráðherra sagði að
forsætisráðherrann þyrfti einnig að
fá heimild írasks dómstóls til að
grípa til aðgerðanna.
Herlögin geta aðeins gilt í tvo
mánuði og stjórnin verður að af-
nema þau um leið og hættan er liðin
hjá.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að þessi lög geta skert frelsi borg-
aranna en við höfum reynt að
tryggja réttlæti og mannréttindi,“
sagði dómsmálaráðherrann.
Samkvæmt lögunum getur for-
sætisráðherrann ekki beitt þeim til
að breyta mannréttindaákvæðum
bráðabirgðastjórnarskrár sem ír-
aska framkvæmdaráðið samþykkti
áður en það var leyst upp fyrir
skömmu og bráðabirgðastjórnin tók
við. Allawi getur ekki heldur frestað
kosningum sem ráðgerðar eru í jan-
úar.
Dómsmálaráðherrann og mann-
réttindaráðherrann eiga að skipa
nefnd sem á að fylgjast með svæðum
þar sem herlög gilda og rannsaka
ásakanir um mannréttindabrot.
Allawi fær að
setja herlög í Írak
Ráðherranum veitt víðtækt vald til öryggisráðstafana
Bagdad. AFP, AP.
KIM Jong-Il, leiðtogi Norður-
Kóreu, komst að því fyrir fáum
árum, að hamborgarar og fransk-
ar kartöflur væru hin mesta
hollustufæða. Ákvað hann þá, að
framvegis skyldi enginn skortur
verða á henni fyrir háskólastúd-
enta, prófessora og vísindamenn.
Hamborgari heitir „gogig-
yeopbbang“ á kóresku og út-
leggst sem samloka með kjöti. Að
því er fram kemur í n-kóreska
dagblaðinu Minju Joson var ham-
borgaraverksmiðja reist í landinu
árið 2000 og fyrstir til að fá góð-
gætið voru námsmenn við Kim Il-
Sung-háskólann í Pyongyang.
Uppgötvun Kim Jong-Ils vekur
nokkra furðu því að hingað til
hefur vestræn neyslumenning
verið fordæmd í n-kóreskum fjöl-
miðlum og kók kallað „hlandfor
bandarískrar auðhyggju“.
Í n-kóreska blaðinu sagði, að
hamborgarar væru raunar orðnir
kunnuglegur matur í landinu og
stangast það dálítið á við fréttir
um mikla hungursneyð.
Hamborgarar heilsufæði?
Seoul. AFP.
ÞÚSUNDIR aðdáenda Bills Clint-
ons, fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna, biðu í gær tímunum saman í
brennandi sumarhitanum í biðröð
við Barnes&Nobles-bókaverslunina
í miðborg Washington til að fá
áritun hans á sjálfsævisöguna, My
Life. Röðin tók að myndast strax á
þriðjudag og þeir sem lengst höfðu
beðið sátu eða lágu á gangstéttinni
í nær 30 klukkustundir.
Biðröðin teygði sig yfir fimm
húsaraðir. Konur voru í miklum
meirihluta í biðröðinni, blaðamaður
The Washington Post hafði metið
hlutfallið og hélt því fram í fyrra-
dag að 80% þeirra sem biðu við
götuna eftir áritun Clintons væru
konur.
„Þetta hefur ekki verið svo
slæmt. Sumir eru að lesa, við
styttum okkur stundir, spilum
músík og bara bíðum,“ sagði ung
kona í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær. Hún hafði
beðið við verslunina frá því klukk-
an 15 á þriðjudag eða í tæpan sól-
arhring. En hvað fær fólk til að
leggja þetta á sig svona lengi og í
þessum steikjandi hita?
„Clinton afrekaði margt á for-
setaferlinum. Hann gerði margt
fyrir hörundsdökka og fyrir sam-
félagið allt. Þetta er einstakt tæki-
færi,“ sagði önnur kona fram-
arlega í röðinni.
„Nóttin var bara skemmtileg.
Við spiluðum á spil og nóttin var
fljót að líða. Það er mjög heitt í
dag en það er þess virði að fá árit-
un Bills Clintons,“ sagði ungur
maður sem hélt utan um vinkonu
sína framarlega í röðinni. Þau
höfðu beðið síðan klukkan ellefu á
þriðjudagskvöldið.
„Bill Clinton var góður forseti.
Hann var góður maður. Við erum
mjög hrifnar af honum og látum
okkur ekki varða persónuleg mál.
Hann er virðingarverður ein-
staklingur og það skiptir ekki
meginmáli hvað hann gerði af sér
heldur hvernig leiðtogi hann var,“
segja tvær fullorðnar konur sem
segjast hafa beðið í rúmar tvær
stundir í biðröðinni á 12. stræti.
Þær héldu á ævisögu Clintons í
fanginu og voru klæddar bolum
með mynd af John Kerry, forseta-
frambjóðanda demókrata.
„Ég veit ekki af hverju það eru
svona margar konur hérna. En
svona var þetta með John F.
Kennedy, það voru alltaf fleiri
konur en karlar sem hópuðust að
til að heilsa honum,“ segir Judy
Ross þegar hún er spurð af hverju
konur séu svona áfjáðar í að fá
áritun.
Klukkan 16 birtist Clinton í
versluninni ásamt fylgdarliði, um-
kringdur öryggisvörðum. Spjallaði
hann um stund við fréttamenn og
tók svo til við að árita bækurnar.
Bill Clinton undirritar ævisögu sína í bókabúð í Washington
„Mjög hrifnar af honum“
Morgunblaðið/Einar Falur
Fólk í biðröðinni sefur í breyskjuhita á gangstéttinni. Bill Clinton áritaði
bók sína, My Life, fyrir aðdáendur í bókaverslun Barnes&Nobles í Wash-
ington í gær. Þeir fyrstu mættu á annan sólarhring fyrir áritunina.
Washington. Morgunblaðið.
Ánægður
með
Edwards
BILL Clinton var spurður í
gær í bókaversluninni um álit
sitt á John Edwards sem
verður varaforsetaefni demó-
krata. Hann lýsti ánægju
sinni með valið á Edwards.
„John Edwards er mjög
hæfur og snjall maður og
fljótur að setja sig inn í mál-
in,“ sagði Clinton. Hann sagði
að sú staðreynd að Edwards
væri Suðurríkjamaður myndi
auka líkur hans og Johns
Kerrys, forsetaefnis demó-
krata, á að ná kjöri í sam-
bandsríkjum eins og Flórída,
Karólínuríkjunum tveim og
Arkansas. „Ég tel því að frá
stjórnmálasjónarmiði sé þetta
gott val og ég tel að þeim
muni koma vel saman, þeir
verði traustir félagar. Forseti
á ávallt að fela varaforset-
anum mikla ábyrgð,“ sagði
Bill Clinton.
FIMM manns biðu bana í sprengju-
tilræði í Colombo, höfuðborg Sri
Lanka, í gær og er þetta fyrsta
sjálfsmorðsárásin í landinu frá því
að samið var um vopnahlé þar í
febrúar 2002 fyrir milligöngu Norð-
manna. Talið er að vopnaðar sveitir
Tamíl-tígranna svokölluðu (LTTE),
sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki
tamíla í norðausturhluta Sri Lanka,
hafi staðið fyrir tilræðinu.
Fjórir lögreglumenn og kona,
sem grunuð er um aðild að LTTE,
biðu bana þegar konan sprengdi
sprengju sem hún var með innan
klæða. „Verið var að yfirheyra hana
og tvær lögreglukonur ætluðu að
leita á henni þegar sprengingin
varð,“ sagði talsmaður hersins á Sri
Lanka.
Konan hafði verið stöðvuð við inn-
gang ráðuneytisbyggingar í Col-
ombo. Sprengingin skók nálægar
byggingar, meðal annars bústað
Mahinda Rajapakse forsætisráð-
herra. Níu manns særðust alvarlega
og fjórir aðrir urðu fyrir minni hátt-
ar meiðslum.
Embættismenn sögðu að konan
hefði ætlað að ráða tamílskan ráð-
herra, Douglas Devananda, af dög-
um. Honum hafði þrisvar sinnum
áður verið sýnt banatilræði.
Friðarviðræður legið
niðri síðan í apríl 2003
Tamíl-tígrarnir segja að um 240
liðsmenn LTTE hafi beðið bana í
sjálfsmorðsárásum sem hófust í júlí
1987. Friðarviðræður hafa legið
niðri frá því í apríl í fyrra þrátt fyrir
tilraunir Norðmanna til að hefja
þær að nýju. Leiðtogar Tamíl-tígr-
anna hafa gagnrýnt stjórnina hart
að undanförnu vegna meints stuðn-
ings hersins við tamílskan skæru-
liðaforingja sem kallar sig Karuna
og stjórnaði uppreisn gegn yfir-
stjórn LTTE í mars.
Fimm bíða
bana á Sri
Lanka
Fyrsta sjálfsmorðs-
árásin frá því að samið
var um vopnahlé
Colombo. AFP.