Morgunblaðið - 08.07.2004, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 23
imi.
til Íslands
aður hafði
r Alcoa í
tjórnvöld,
eir tækni-
rfyrirtæki
um við. Í
ér endur-
r á vegum
vel á að-
þeim vel
um sínum
, sem tók
á Keilis-
um ásamt
s frá Hol-
. Þar sem
var ákveð-
áætlunina
s var und-
2002, rétt
rúmum tveimur mánuðum eftir að
Reitan hafði fyrst samband.
Bernt Reitan sagði við Morgun-
blaðið á þessum tíma að Alcoa hefði
markvisst verið að leita að tækifær-
um til að auka álframleiðslu sína, til
lengri tíma litið, með byggingu um-
hverfisvæns álvers.
„Ég mælti með því að við hefðum
samband við Íslendinga þar sem ég
þekki vel til landsins og þeirra orku-
möguleika sem þar eru. Einnig á ég
marga kunningja á Íslandi eftir
heimsóknir mínar hingað í gegnum
árin,“ sagði Reitan. Hann á langa
reynslu að baki í málmiðnaði, starf-
aði í tuttugu ár hjá Elkem í Noregi,
eiganda Járnblendiverksmiðjunnar
á Grundartanga, þar af sem fram-
kvæmdastjóri Elkem Aluminium í
tólf ár, eða þar til í júlí árið 2000 að
hann fluttist vestur um haf og hóf
störf sem framkvæmdastjóri nýrra
verkefna hjá Alcoa World Chem-
icals í New York. Reitan var svo á
síðasta ári ráðinn forstjóri frum-
vinnslu Alcoa og telst meðal aðstoð-
arforstjóra fyrirtækisins.
,,Við höfðum að sjálfsögðu heyrt
af áformum um álver og virkjun á
Austurlandi. Í áliðnaðinum heyrum
við stöðugt af einhverjum orðrómi
en við vissum það ekki fyrir víst að
Norsk Hydro hefði hikað fyrr en það
var gert opinbert,“ sagði Reitan þá
ennfremur við Morgunblaðið.
Skapar 2.300 ársverk
Þegar aðgerðaáætlunin hafði ver-
ið samþykkt kom aðalforstjóri Alcoa
og stjórnarformaður, Alain J. P.
Belda, til Íslands ásamt fylgdarliði í
stutta heimsókn í júní 2002 og eftir
undirritun viljayfirlýsingar mánuði
síðar varð öllum sem að málinu
komu endanlega ljóst að bandaríska
álrisanum var full alvara með áform-
um sínum á Íslandi. Undirritun allra
helstu samninga fór síðan fram með
viðhöfn á Reyðarfirði í mars 2003.
Hér á síðunni eru raktar nokkrar
dagsetningar til dagsins í dag, sem
sýna hve hratt og vel þetta verkefni
á Austurlandi hefur gengið fyrir sig.
Nú er komið að því að stinga skófl-
um í lóðina við Hraun í Reyðarfirði.
Í kjölfarið hefjast jarðvegsfram-
kvæmdir og reiknað með að sjálf
byggingin fari að rísa á næsta ári.
Áætlaður kostnaður við byggingu
álversins er um 80 milljarðar króna.
Reiknað er með að smíði álversins
skapi 2.300 ársverk og 1.500 manns
starfi þarna þegar mest lætur eftir
rúmt ár. Þegar álverið verður svo
komið í notkun er búist við að hjá
Fjarðaáli starfi 400–450 manns.
öð inn-
s Alcoa
Morgunblaðið/RAX
rstjóri og stjórnarformaður fyrirtækisins,
ekin þegar skrifað var undir samninga í mars
s og taka skóflustunguna á lóðinni í dag.
eð 41 at-
varp sem
álvers á
dir endan-
lversins í
rku-, lóð-
festingar-
ka fyrir-
sku verk-
V til að
í Reyðar-
essa aðila
ber sama
hverjir
. Íslenski
L er val-
á TARK-
ríinu og
n ráðinn
hópi 90
ár var áð-
rðuráls á
ur þegar
áli ásamt
oa, Bernt
fleirum
ð lóð ál-
r hefjast
era lokið í
Fjarðaál
u sína.
ngu
bjb@mbl.is
nægilega mikilli reynslu að ráða til
að axla þá ábyrgð að vera í framboði
til forseta Bandaríkjanna.
Repúblikanar telja að
uppsveifla hjá Kerry sé líkleg
„Demókratar hefðu vel getað val-
ið verri mann,“ segir David S.
Broder, dálkahöfundur og frétta-
skýrandi hjá Washington Post, og
virðist það mat hans við fyrstu sýn
sanngjarnt.
Og sumir repúblikanar voru til-
búnir að viðurkenna fyrir The
Washington Post að Edwards
styrkti framboð Kerrys. Hann gæfi
framboðinu mannlegri blæ, kann-
anir sýndu til að mynda að Ed-
wards yxi mjög í áliti hjá fólki sem
fengi að hitta hann augliti til auglit-
is. Þá vitnar Associated Press til
tölvuskeytis sem Matthew Dowd,
helsti skipuleggjandi framboðs
Bush forseta, á að hafa sent frá sér
fyrr í þessari viku en þar spáir hann
því að John Kerry muni taka „af-
gerandi forystu“ í skoðanakönnun-
um næstu vikurnar; að hann nái
jafnvel allt að 15 prósentustiga for-
skoti innan mánaðar.
Hafa ber í huga í þessu sambandi
að alkunna er að fylgi við tiltekinn
forsetaframbjóðanda eykst eftir að
hann tilkynnir varaforsetaefni sitt
og í kringum flokksþing umrædds
stjórnmálaflokks (demókratar
halda sitt flokksþing síðar í þessum
mánuði, repúblikanar ekki fyrr en
eftir sjö vikur).
Því er ekki víst að hægt sé að lesa
of mikið í fylgistölurnar svo löngu
fyrir kosningar. En repúblikanar
eru engu að síður sagðir hafa
áhyggjur af fylgistapi forsetans að
undanförnu – kannanir sýna að
Bush og Kerry hafa svipað fylgi; um
45% aðspurðra segjast ánægðir
með störf Bush – og því að meiri-
hluti fólks skuli nú, skv. könnunum,
óánægt með hvert stefnir í lands-
málunum.
ington Times mjög til þeirra skila-
boða sem talið er öruggt að
repúblikanar muni reyna að koma á
framfæri í kosningabaráttunni.
Landsnefnd Repúblikanaflokksins
hefur raunar þegar sett á heimasíðu
sína (www.rnc.org) ítarlega skýrslu
um allt það sem frá Edwards hefur
heyrst. Þar er hann fordæmdur fyr-
ir að vera „falskur og óhreinlyndur“
og lýst sem manni lítilla afreka.
Sömuleiðis eru í skýrslunni rifjuð
upp ýmis ummæli sem Kerry hefur
áður látið fara frá sér um Edwards,
þ.e. þegar þeir tókust á í forvali
Demókrataflokksins, en Kerry
færði vissulega fyrir því rök á sín-
um tíma að Edwards hefði ekki yfir
sem herra Kerry hafi gerst sekur
um dómgreindarleysi og jafnvel
hugsanlega um pólitísk mistök,“
sagði The Wall Street Journal.
Blaðið The Washington Times,
sem er jafnvel enn hægrisinnaðra
en Wall Street Journal, tók dýpra í
árinni og lýsti efasemdum um að
Edwards væri hæfur til þess að
taka við forsetaembættinu, færi svo
að Kerry ynni sigur á Bush í haust
en forfallaðist síðar með einhverj-
um hætti. Bætti blaðið því við að
„Kerry valdi þann frambjóðanda
sem hann sá ástæðu til að gera lítið
úr sökum reynsluleysis í forvali
demókrata“.
Svipar umfjöllun The Wash-
Haustið 2002 voru haldnarþingkosningar í Banda-ríkjunum og urðu úrslitþeirra með þeim hætti
að Repúblikanaflokkur George W.
Bush Bandaríkjaforseta stóð uppi
sem sigurvegari með meirihluta í
báðum deildum þingsins. Blaða-
maður Morgunblaðsins var í að-
draganda þessara kosninga staddur
á ferðalagi um ýmsar helstu höfuð-
stöðvar bandarísku stjórnsýslunn-
ar ásamt hópi evrópskra blaða- og
stjórnmálamanna og minnist þess
þegar einn ferðafélaganna, þing-
maður danska Jafnaðarmanna-
flokksins sem var að koma úr heim-
sókn í herbúðir demókrata í
Massachusetts-ríki, lýsti því hversu
vel John Edwards, lítt þekktur
þingmaður frá Norður-Karólínu,
hafði komið honum fyrir sjónir.
Edwards var þá að hefja baráttu
sína fyrir því að hljóta útnefningu
sem forsetaefni Demókrataflokks-
ins og spáði Daninn því hiklaust að
Edwards næði settu marki.
Sá spádómur rættist að vísu ekki
en John Edwards náði mun betri
árangri í forvalinu en menn höfðu
almennt gert ráð fyrir, kom næstur
á eftir John Kerry, sem tryggði sér
útnefninguna. Og þannig skapaðist
grundvöllur fyrir þeirri ákvörðun,
sem Kerry tilkynnti um á þriðju-
dag. Hinn myndarlegi og glaðlyndi
Edwards verður semsé varafor-
setaefnið, verkefni hans að virka
sem mótvægi við hinn stífa yfir-
stéttarmann Kerry.
„Clinton án persónugallanna“
– og reynslunnar?
Viðbrögðin í Bandaríkjunum við
útnefningu Edwards voru með
ýmsum hætti í gær. Bæði The
Washington Post og The New York
Times, sem frekar eru höll undir
demókrata, hrósuðu Kerry fyrir
valið í leiðurum sínum og sögðu
Edwards styrkja framboð Kerrys
þar sem þess þyrfti einmitt við:
Edwards hefði til að bera mikla
persónutöfra, hefði þurft að brjót-
ast til bjargálna og hugsanlegt væri
að hann gæti aukið sigurlíkur
demókrata í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna.
„Á margan hátt eru þessir tveir
menn eins og tvö brot í púsluspili
sem smellpassa hvort við annað: ef
þeir yrðu bræddir saman í einn
mann yrði sá maður mun öflugari
frambjóðandi heldur en þeir eru sitt
í hvoru lagi,“ sagði í leiðara The
Washington Post.
Blaðið The New York Times
sagði Kerry hafa sýnt skynsemi
þegar hann ákvað að hafa ekki
áhyggjur af því að Edwards kynni
að skyggja á hann með umtalsvert
meiri persónutöfrum sínum, Ed-
wards styrkti nefnilega framboð
Kerrys.
Íhaldsblöðin voru gagnrýnni á
val Kerrys. The Wall Street Journ-
al sagði ákvörðunina „vonbrigði“,
Edwards væri „[Bill] Clinton án
persónugallanna“ en líka „Clinton
án þeirrar reynslu og þekkingar“
sem hann hefði haft, „tungulipur
maður sem enga sérfræðiþekkingu
hefði“.
Sagði blaðið að Edwards myndi
þurfa að læra hratt, reynsluleysi
hans og þekkingarleysi væri mikið
á sumum sviðum, s.s. í utanríkis-
málunum. „Nú þegar þjóðarörygg-
ismál skipta kjósendur jafnmiklu
máli og raun ber vitni sýnist okkur
Fréttaskýring | Það hefur ekki tekið öldungadeildarþingmanninn John Edwards lang-
an tíma að skjótast upp á stjörnuhimininn. Fyrir örfáum misserum hafði enginn heyrt á
hann minnst utan heimaríkisins Norður-Karólínu – en núna er hugsanlegt að Edwards
taki innan fárra mánaða við næstæðsta embætti í Bandaríkjunum. Davíð Logi Sigurðs-
son skoðaði viðbrögðin vestra við valinu á varaforsetaefni Demókrataflokksins.
Edwards mótvægi
við hinn stífa Kerry
david@mbl.is
GÖTUBLAÐIÐ The New York
Post játaði í gær á sig alvarlegt
glappaskot en blaðið hafði á
þriðjudag fullyrt í fyrirsögn að
John Kerry hefði valið Dick Gep-
hardt, þingmann demókrata í full-
trúadeild Bandaríkjaþings, sem
varaforsetaefni sitt. Stóð í kynn-
ingu að um „einkafrétt“ [e. exclus-
ive] væri að ræða og voru ástæður
valsins á Gephardt síðan raktar
inni í blaði.
Í frétt á forsíðu blaðsins í gær
sagði hins vegar: „Demókratar
velja Edwards sem varaforseta-
efni (ALVEG SATT)“. Við hliðina
gerði blaðið grín að sjálfu sér:
„ekki einkafrétt“ og í leiðara báð-
ust ritstjórar afsökunar á vitleys-
unni.
Keppinautarnir sáu þó enga
ástæðu til að hlífa blaðinu. The
Daily News gerði fréttina að for-
síðuefni í gær og lýsti þar rang-
færslunum sem „langstærsta
glappaskotinu“ síðan Chicago
Daily Tribune lýsti því yfir á for-
síðu sinni árið 1948, eins og frægt
er orðið, að Thomas Dewey, for-
setaframbjóðandi repúblikana,
hefði unnið sigur á sitjandi forseta,
demókratanum Harry Truman.
Edwards en ekki
Gephardt – alveg satt
New York. AFP.
AP
Reuters
Væntanlegur forsetaframbjóðandi demókrata, John F. Kerry, ásamt eiginkonu sinni, Teresu Heinz Kerry
(lengst t.h.), og varaforsetaefnið John Edwards, öldungadeildarþingmaður frá Norður-Karólínu, með eig-
inkonu sinni, Elizabeth Edwards, á sveitasetri í eigu Heinz Kerry skammt frá borginni Pittsburgh í gær.