Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 29
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 29
✝ Björn ZophaníasKetilsson fæddist
á Siglufirði 20. okt.
1945. Hann lést 11.
júní síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Ketill Ólafsson, f. 18.
ágúst 1918, d. 25.
maí 2001, og Ásbjörg
Una Björnsdóttir, f.
19. maí 1919, d. 4.
sept. 1972. Systkini
Björns eru fjögur.
Þau eru: Ólafur Þór,
f. 14. apríl 1942, d.
28. febr. 1973, maki
Theodóra Gunnars-
dóttir; Sigurður Sævar, f. 28. maí
1944, maki Guðrún Hjálmarsdótt-
ir; Halldór Frank, f. 20. des. 1949,
maki Heiða Ármannsdóttir; og
Jónína Ragnheiður f. 14. apríl
1955, maki Snorri Ólafur Haf-
steinsson.
Börn Björns eru 1) Oddsteinn,
hann á soninn Bjarka. 2) Vil-
hjálmur, kvæntur Jónu Bryndísi
Gísladóttur, þeirra börn eru Guð-
rún Lilja, Gísli Lárus, Fannar Páll
og Bryndís Ósk. 3) Ásdís Hrönn.
4) Ásbjörg Una.
Björn var kvæntur
Jeanne. Þau skildu.
Þeirra börn eru 5)
Lars, sambýliskona
Katarina. 6) Björn
Rolf, sambýliskona
Trine. Björn var í
sambúð með Vigdísi
Ragnarsdóttur. Hún
á þrjár dætur, Hjör-
dísi Jónu, Hafdísi
Björgu og Herdísi
Rós.
Björn fluttist til
Reykjavíkur tveggja
ára. Hann gerðist
ungur sjómaður, tók skipstjórn-
arpróf frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík. Hann fluttist til Dan-
merkur 1976 og var lengst af
skipstjóri og einn af eigendum
dansk-íslenska nótaskipsins Ísa-
foldar sem gert er út frá
Hirtshals á Jótlandi. Síðustu árin
gerði Björn út og var skipstjóri á
skipi sínu Normark frá Hirtshals.
Útför Björns fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Það segir í ljóðinu „Fast þeir
sóttu sjóinn“ og svo framvegis, en
við sem höfum kynnst íslenska sjó-
manninum skiljum að hluta til hvað
liggur í þessum orðum, hörð vetr-
arveður, mikill afli, og miklar vökur
að maður tali ekki um erfiðið.
Sjómennskan var mörgum miklu
meira en ævistarf, hún var ástríða.
Björn var einn af þessum ástríðu-
fullu sjómönnum, það gilti einu
hversu langir túrarnir voru eða
hversu vel fiskaðist, það snerist allt
lífið um sjómennskuna. Hann varð
að fara hafnarrúnt á hverjum degi
sama hvar hann var staddur í heim-
inum.
Hann fór ungur á sjóinn, og var
fljótt eftirsóttur í flotanum. Hann
þótti mjög fiskinn og sérstaklega
góður nótaveiðimaður.
Hann eins og fjölmargir íslenskir
síldarsjómenn á áttunda áratugn-
um, elti síldina í Norðursjóinn.
Björn settist að í Hirtshals þar sem
hann gerði út nótaskipið Ísafold
ásamt tveimur félögum sínum þeim
Árna Gíslasyni og Nils. Björn var
fengsæll skipstjóri Ísafoldar í tæp
20 ár.
Fjöldi Íslendinga settist að í
Hirtshals á Norðursjávar-síldarár-
unum, og enn búa þar tæplega
hundrað Íslendingar. En það var
aðeins einn þeirra sem bjó á Ís-
landsgötu 1, Björn Ketilsson ásamt
fyrri konu sinni Jeanne og börnum
þeirra.
Hann var stoltur af því og tók vel
á móti okkur Jónínu þegar við heim-
sóttum hann þangað fyrst 1978.
Enn lífið er aldrei eintóm gleði og
sigrar, Björn missti móður sína Ás-
björgu Unu í september 1972, hún
var honum mikill harmdauði, og átti
hann alla tíð erfitt með að sætta sig
við þann missi.
Aðeins fimm mánuðum þar á eftir
missti hann bróður sinn Ólaf Þór en
hann fórst með mb. Íslendingi í
febrúar 1973, aðeins þrítugur að
aldri. Ketill faðir Björns lést 25. maí
2001.
Björn var lífsglaður maður og
vinamargur. Það sannaðist við
minningarathöfn sem haldin var í
Hirtshals þar sem fjölmargir gamlir
skipsfélagar og vinir voru saman
komnir, þó svo að kista Björns hafi
ekki fengið að standa innan dyra,
þar sem Björn var alla tíð ákveðinn í
að hans síðasti hvíldarstaður yrði
heima á Íslandi var hann ekki
meðlimur í dönsku Þjóðkirkjunni.
Hann var duglegur að halda sam-
bandi við sína og hringdi oft. Hann
hringdi á ólíklegustu tímum sólar-
hringsins að heiman eða utan af sjó.
„Hvað eru þið alltaf sofandi þarna á
Íslandi,“ var svarið þegar hann var
spurður hvort hann vissi hvað
klukkan væri. Ekki þurfti að segja
honum fréttir af íslenskum
sjávarútvegi, því hann fylgdist mjög
vel með og var áskrifandi að öllu
sem viðkom sjómennsku.
Síðustu árin voru Birni erfið,
hann átti skipið Normark sem hann
reri á og gerði út frá Hirtshals. Á
nýársnótt 2000 sökk Normark við
bryggju og varð af mikið tjón. Skip-
ið var gert upp, en á sama tíma var
mikill niðurskurður í aflaheimildum
hjá dönskum útgerðum og fékk út-
gerð Björns að finna fyrir því.
Á síðasta ári varð Björn fyrir slysi
er verksmiðjuhurð fór af lömum og
féll yfir hann. Hann slasaðist illa og
var rétt að ná sér þegar harðvítug
lungnabólga lagði hann að velli.
Sambýliskona Björns síðasta ára-
tuginn var Vigdís Ragnarsdóttir,
hún var honum mikil stoð og stytta í
veikindum hans.
„Harðir sjóir granda eigi fá“ segir
líka einhvers staðar, en hver á sinn
tíma og þegar hann er liðinn, klippir
maðurinn með ljáinn á spottann sem
tengir okkur við jarðlífið og minn-
ingin ein lifir.
Snorri.
Með þessum fallega sálmi vil ég
kveðja kæran frænda, Björn Ket-
ilsson, Bödda frænda.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(Úr 23. Davíðssálmi.)
Blessuð sé minning Bödda
frænda.
Ásbjörg Ósk Snorradóttir.
Elsku Björn minn, það er sárt að
kveðja þig svona fljótt, þú kvaddir
okkur svo snöggt, ég gerði mér ekki
grein fyrir hversu alvarlegt þetta
var fyrr en Jónína systir þín og
Snorri maðurinn hennar voru á leið
út til þín þegar þú lást á spítalanum
í Hirtshals.
Björn var einstaklega vinaræk-
inn, traustur og stoltur maður.
Björn minn, þú reyndist mér svo
vel, sérstaklega þegar Óli heitinn
fór varst þú mér stoð og stytta á
þeim árum. Þær minningar hef ég
geymt hjá mér öll þessi ár. Þú hefur
einnig reynst börnum mínum vel,
sérstaklega honum Ásbirni mínum
sem þú tókst undir þinn verndar-
væng þegar hann bjó hjá þér í Dan-
mörku og kenndir honum ýmislegt.
Mun ég ætíð vera þér þakklát fyrir
það.
Það voru líka margar góðar og
skemmtilegar stundir sem við átt-
um hérna á árum áður, við gátum
rætt allt á milli okkar, mörg þau
skipti þegar þú komst í heimsókn til
Íslands fundum við okkur oft tíma
til að borða saman og rifja upp
gömlu góðu dagana, enda höfðum
við þekkst í 40 ár og er það langur
tími.
Mér er það mjög minnisstætt
þegar ég kom fyrst til þín upp til
Hirtshals árið 1995, ég með Sigrúnu
Sif yngstu dóttur mína og frænku
hennar. Þið Vigdís tókuð svo vel á
móti okkur og áttum við góðar
stundir saman þarna á þínu heimili,
og fyrir það er ég þakklát.
Vil ég þakka þér, elsku Björn
minn, góða vináttu og að hafa fengið
að kynnast þér og fyrir alla þá hjálp
sem þú hefur veitt mér og mínum í
gegnum tíðina. Ég vil votta börnum
þínum og einnig Vigdísi mína
dýpstu samúð.
Hvíl þú í friði.
Theódóra Gunnarsdóttir.
BJÖRN ZOPHANÍAS
KETILSSON
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, sonur og bróðir,
JÓN ÞÓR BJARNASON,
Æsufelli 2,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
aðfaranótt miðvikudagsins 30. júní, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
9. júlí kl. 13.30.
Kristbjörg Jóhannesdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn,
Margrét Á. Jónsdóttir
og systkini.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR ÁRNADÓTTUR,
Tangagötu 15a,
Ísafirði.
Árný H. Oddsdóttir, Kristján Friðbjörnsson,
Sigurður Oddsson, Hrefna H. Hagalín,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og
vinarþel við andlát
GUÐRÚNAR VILBORGAR
GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrun-
ar- og dvalarheimilis Grundar við Hringbraut.
Afkomendur.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BERGÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstu-
daginn 9. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Sjúkrahús Akraness.
Sigríður Jónsdóttir, Björn Lárusson,
Halldóra Jónsdóttir, Valentínus Ólason,
Guðjón Jónsson, Sigurlaug Vilhelmsdóttir,
Eiríkur Jónsson, Sigrún Ragna Ólafsdóttir,
Þorbjörg Jónsdóttir, Símon Ólason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
SOFFÍA INGIBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR,
Hjallaseli 55,
áður til heimilis
í Akralandi 1,
Reykjavík,
lést í Seljahlíð, heimili aldraðra, Reykjavík,
þriðjudaginn 6. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hrefna Hjálmarsdóttir,
Hólmfríður Guðmundsdóttir,
Guðný Maren Hjálmarsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVEINBJÖRG HELGA KJARAN,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ aðfaranótt
miðvikudagsins 7. júlí.
Ólöf Kjaran, Hilmar Knudsen,
Soffía Kjaran, Pálmi Jóhannesson,
Helga Kjaran, Ólafur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
ARI BENEDIKT SIGURÐSSON,
Fagurhólsmýri,
Öræfum,
verður jarðsunginn frá Hofskirkju í Öræfum
laugardaginn 10. júlí kl. 14.00.
Nanna Sigurðardóttir,
Tryggvi Sigurðsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
LÁRUS BLÖNDAL GUÐMUNDSSON
bóksali,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu-
daginn 9. júlí 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítala Hringsins.
Þórunn Kjartansdóttir,
Kristín Lárusdóttir, Guðjón Hilmarsson,
Ragnheiður Lárusdóttir, Sigurður Dagsson,
Kjartan Lárusson, Anna Karlsdóttir,
Guðmundur Lárusson, Birna Smith,
Steinn Lárusson, Hrafnhildur Sigurbergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.