Morgunblaðið - 08.07.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 08.07.2004, Qupperneq 33
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 33 Útsala Gallabuxur 3.990 st. 26-48 Kvartbuxur 1.990 st. 36-44 Bolir frá 1.000 Laugavegi 54, sími 552 5201 Sumarið er tími skordýranna sem oft takasér bólfestu í görðum og híbýlummanna, fólki til mismikillar gleði eðaama. Erling Ólafsson skordýrafræð- ingur segir sumarið fara vel af stað með tilliti til skordýra og geitungar verði t.a.m. meira áber- andi í sumar en í fyrra ef að líkum lætur, sér- staklega holugeitungar sem ber að varast. Eru einhver skordýr sem hafa numið land í fyrsta sinn í sumar eða allra síðustu ár? „Já, sem dæmi þá er ein fluga, heiðgul á lit, sem fannst fyrir nokkrum árum á litlu svæði í Suðurhlíðum við Fossvogskirkjugarð og hefur síðan verið að breiðast út frá þeim punkti nokk- uð hratt. Það hefur smá stækkað útbreiðslu- svæðið á hverju ári þangað til núna að hún virð- ist vera sumstaðar orðin gríðarlega algeng í görðum á höfuðborgarsvæðinu.“ Er hún þá bundin við Reykjavík? „Já, Reykjavík og höfuðborgarsvæðið. Einna mest er að finna af henni í Fossvogshverfi en hún er víðar.“ Hvað er vitað um þessa tegund flugna? „Þetta er ekki áhyggjuefni. Lirfurnar alast upp í rotnandi laufblöðum, þetta er rotvera, og heldur sig gjarnan til í þéttu hekki. Með því að hrista limgerðið þá flýgur dágott ský af þessum flugum. Þær fljúga reyndar ekki mjög mikið, eru meira inni í laufþykkninu. Þetta er greini- lega nýliði, hvernig sem hann hefur borist, það er ekki gott að segja.“ Fer hún inn í híbýli manna? „Já, hún gerir það. Hún getur komið inn um glugga og það var meira að segja í einu tilfelli kallaður til meindýraeyðir út af kvikindum sem höfðu safnast fyrir í loftræstikerfi sem reyndust vera þetta.“ Hvað með geitunga og býflugur, eru þessi skordýr komin á stjá? „Já, það er mjög mikið af hunangsflugum. Það fór mjög vel af stað í vor og þær virðast pluma sig vel. Búin eru komin á það stig að þernur eru farnar að fljúga um. Það er fáliðað í búunum ennþá en þeim fjölgar með hverjum deginum.“ Þannig að meindýraeyðar eru farnir á stjá núna? „Ég ætla að vona að þeir láti hunangflug- urnar í friði. Það er enginn skaði af þeim á nokkurn hátt og ef eitthvað er bara gagn. Hér áður fyrr þegar þessar stóru flugur voru að nema land var ákveðin hræðsla í gangi en hún er að langmestu leyti liðin hjá, sem betur fer.“ En geitungarnir geta verið varasamir, ekki satt? „Menn þurfa að umgangast þá með varúð.“ Skordýr|Íslenskt skordýrasumar fer vel af stað Enginn skaði af hunangsflugum  Erling Ólafsson er fæddur 28. september 1949 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969 og BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1972. Erling lauk dokt- orsprófi í flokkunar- fræði dýra (skordýra) frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 1992. Hann hóf störf hjá Náttúrufræðstofnun Ís- lands 1. janúar 1978 og gegnir þar starfi sér- fræðings í skordýrafræði. Erling er kvæntur Margréti Sigurgeirsdóttur. Hægt að gera mikið fyrir lítið MATARVERÐ í Evrópu er hvað hæst á Íslandi, segir í skýrslu Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands. Ég byrjaði 1978 að hjálpa einu barni á Indlandi með því að borga 900 krónur á mánuði fyrir skólagöngu, eina heita máltíð á dag og lækn- ishjálp. Í dag er ég með fimm börn, en hér á Íslandi dugar mér þetta ekki einu sinni fyrir matvöru í eina viku. Fimm börn í heilan mánuð! Það er hægt að gera svo mikið fyrir svo lítið. Það væri auðvelt að bjarga millj- ónum af barna frá hungurdauða ef milljónir manna um allan heim myndu hugsa þannig. Það er senni- lega besta leiðin til að berjast við hungursneyð sem er alltaf að versna. Eigum við ekki að hugsa um okkar minnsta bróður? Eitthvað á þá leið syngur Björgvin Halldórsson. Hve- nær vill fólk vakna og taka við sér? Það gæti jafnvel skeð hér á Íslandi ef fiskistofnarnir halar áfram að hrynja. Hver veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér? S.R. Haralds, Bleikargróf 9, R. Hrós til sláttumanna íBreiðholti ÉG verð að þakka flokksstjóranum Gunnari Jónssyni og hans flokki fyrir almenna kurteisi og góðan garðslátt. Þannig var að ég hringdi inn á bækistöð 4 í Breiðholti og bað um að grasið upp við girðinguna í garðinum mínum yrði slegið. Samdægurs komu þessi prúðu og duglegu ungmenni og uppfylltu ósk mína og gott betur. Hér með er mínu þakklæti komið á fram- færi. Einn ánægður. Úlpa tekin í misgripum FÖSTUDAGINN 2. júlí fékk ég mér kaffi ásamt syni mínum á Kaffi krús á Selfossi. Sonur minn gleymdi þar blárri úlpu frá 66° N. Úlpan er í full- orðinsstærð og var vel merkt. Þeir sem kannast við að hafa tekið úlpuna eru beðnir að koma henni aftur á Kaffi krús eða hringja í síma 553 4366 eða 895 0266. Lóa týndist í Fellsmúla LÓA týndist úr fóstri í Fellsmúla þriðjudaginn 29. júní sl. Hún er grá og hvít, með rauða ól og er merkt með nafnspjaldi. Hennar er sárt saknað. Vinsamlegast látið vita í síma 897 6569 eða 564 4117 ef þið hafið séð Lóu. Hefur þú séð svartan kött? KISINN okkar, hann Jáum, týndist 15. mars sl. Hann er einlitur svartur fress, eyrnamerktur R0015 (eða R70015). Hann var með bláa ól þegar hann týndist og rautt nafnspjald. Ólin er þó líklega dottin af eftir allan þenn- an tíma. Við eigum heima í Árbæ, 110 Rvk., en hann hefur líklega álpast lengra í burtu. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar varðandi þetta, vinsam- legast hringdu í síma 587 1966 eða 866 0701. Sigrún. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is BELGÍSKI listamaðurinn Jeanine Cohen opnar sýningu í i8, Klapp- arstíg 33, kl. 17 í dag. Á sýningunni eru stór málverk ásamt minni verkum gerðum úr plasti og lituðum pappír. Þetta er fyrsta sýning Cohen á Íslandi en i8 hefur kynnt verk hennar á lista- messum undanfarin ár. Edith Doove segir m.a. í sýning- arskrá: „Það er engin tilviljun að málverk belgísku listakonunnar Jeanine Cohen skuli hafa ratað hingað til Íslands. Á einhvern hátt eiga þau vel heima hér. Þessi verk segja okkur á hljóðan og hæversk- an hátt sögur sem rétt eins og víð- fræg náttúra þessa lands einkenn- ast af sterkum andstæðum, og í verkunum má finna bæði að því er virðist óhlutbundna nálgun og geysinæmt auga fyrir smáatriðum. Þó hefur Cohen aldrei komið til Ís- lands. Verk hennar eru afrakstur annars konar og almennari, mjög nákvæmrar rannsóknarvinnu. Auk þess að vinna með liti og ljós stillir hún einnig saman af mikilli nákvæmni léreftsmálverkum af ýmsum stærðum og mismunandi þykkt. Minni málverkin sem hún stillir upp að ofan eru þykkari en þau stærri fyrir neðan, en með því nær hún fram áhugaverðri spennu. Þegar ég átti síðast leið til Reykja- víkur kom ég á Kjarvalsstaði og rak þar augun í tilvitnun í málarann þekkta, Jóhannes Kjarval, þar sem hann lýsir litbrigðum mosans. Þessi nýjustu verk Cohen, röð stórra mál- verka, virðist á einhvern hátt eiga samræðu við þessi orð Kjarvals.“ i8 er opið fimmtudaga og föstu- daga kl. 11–18, laugardaga kl. 13– 17 og eftir samkomulagi. Sýning- unni lýkur 21. ágúst. Tvö verka Jeanine Cohen. Án titils, 2004, akrýl á striga. Stór og minni verk í i8

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.