Morgunblaðið - 08.07.2004, Síða 36
MENNING
36 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sumarkvöld við orgelið
í Hallgrímskirkju
8. júlí kl. 12.00:
Jörg Sondermann orgel
10. júlí kl. 12.00:
Christian Schmitt orgel
11. júlí kl. 20.00:
Þýski orgelsnillingurinn
Christian Schmitt leikur
verk m.a. eftir Bach,
Jón Ásgeirsson og Lizst.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008.
lau. 10. júlí kl. 16.30 upps.
fim. 15. júlí kl. 19.30
fim. 22. júlí kl. 19.30
Yfir 8000 miðar seldir
lau. 10. júlí kl. 19.30 upps.
fös. 16. júlí kl. 19.30
F im 08.07 20 :00 UPPSELT
Fös 09.07 20 :00 UPPSELT
Lau 10 .07 20 :00 UPPSELT
F im . 15 .07 20 :00 ÖRFÁ SÆTI
Fös . 16 .07 20 :00 LAUS SÆTI
Lau . 17 .07 20 :00
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Steinsteypt einbýlishús á einni hæð 136,5 fm auk þess tvöfaldur
bílskúr 80 fm. Í húsinu eru 4 svefnherbergi auk þess vinnuher-
bergi, rúmgóð stofa og eldhús o.fl. Vel skipulögð eign á góðum
stað sunnan megin á Arnarnesinu. Afhending gæti orðið í ágúst.
Verð kr. 37,0 millj.
BLIKANES - GARÐABÆ
Einbýlishús á einni hæð um 216 fm auk þess innbyggður bílskúr
um 26 fm. Vel staðsett hús á hornlóð og með mikilli útiaðstöðu.
Hús byggt 1993. Í húsinu eru 5 góð svefnherbergi, mjög stórar
stofur o.fl. Verð kr. 43,0 millj.
KÖGUNARHÆÐ - GARÐABÆ
Einbýlishús um 360 fm á tveimur hæðum með innbyggðum 57 fm
tvöföldum bílskúr. Mjög rúmgott hús með stórum stofum, 5
svefnherbergjum o.fl. Gott útsýni. Verð kr. 38,0 millj.
ESKIHOLT - GARÐABÆ
Sérlega fallegt og vandað fullbúið einbýlishús byggt 1998 um 172
fm á tveimur hæðum auk þess bílskúr um 33 fm. Mjög góð stað-
setning og glæsilega útfært hús. Lóð fullgerð og gott bílaplan
framan við húsið. Í húsinu eru 3 mjög stór svefnherbergi og auð-
velt að bæta við tveimur til viðbótar ef vill. Verð kr. 33,8 millj.
ASPARGRUND
- FOSSVOGSMEGIN Í KÓPAVOGI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
hleypir af stokkunum nýjung á
næsta starfsári. Tónsprotinn er
glæný fjögurra tónleika röð sem býð-
ur upp á barnvæna efnisskrá fyrir
alla fjölskylduna. Á fyrstu tónleik-
unum, sem eru fyrirhugaðir í októ-
ber, verður lagt upp í ferðalag um
heiminn og komið víða við á framandi
slóðum og leikin tónlist frá þeim
áfangastöðum.
Kvikmynda- og jólatónleikarnir
eru einnig partur af Tónsprotanum
en vinsældir þeirra hafa vaxið mikið
síðustu árin, að sögn Sváfnis Sigurð-
arsonar kynningarstjóra SÍ. Síðustu
tónleikar Tónsprotans á starfsárinu
eru á dagskrá 2. apríl, á 200 ára ártíð
H.C. Andersen. Af því tilefni verður
flutt tónverk eftir Bent Lorentzen,
eitt virtasta tónskáld Dana, en hann
hefur samið tónlist við ævintýrið
góða um Eldfærin.
„Undanfarin 10 ár hefur Sinfón-
íuhljómsveitin boðið leikskólabörn-
um á tónleika á hverju starsfári og
ljóst að þar hefur verið sáð fræjum
sem nú eru farin að spretta. Þetta
fræðslustarf SÍ hefur skilað sér í
auknum áhuga barna á sígildri tón-
list og jafnframt virðist áhugi for-
eldra á að kynna börnum sínum
klassískar tónbókmenntir fara vax-
andi,“ segir Sváfnir.
„Nú eru foreldrar, ömmur, afar og
forráðamenn allir, einnig boðnir sér-
staklega velkomnir í skemmtilega
upplifum í Háskólabíó næsta vetur.
Áskriftarverði og verði á lausamiðum
er stillt í hóf. Þannig kostar stakur
miði á tónleika í röðinni aðeins 1.000
krónur fyrir 16 ára og yngri. Áskrift-
arverð fyrir sama hóp er einungis
3.400 krónur. Fullorðnir greiða 1.500
krónur fyrir stakan miða en geta
keypt áskriftarkort á 5.100 krónur.“
Allir tónleikarnir eru á laugar-
dögum klukkan 15.
Tónlist| Ný tónleikaröð hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands
Boðið upp á barnvæna efnisskrá
ELÍN Huld Árnadóttir sópran söng
hlutverk Micaelu í óperunni Carmen
eftir Bizet hjá Harpenden Light
Operatic Society í Hertfordshire á
Englandi fyrir skemmstu. Upp-
færslan var sýnd fyrir fullu húsi og
fékk afar lofsamlega dóma. Um söng
Elínar sagði Lennie Self, gagnrýn-
andi National Operatic & Dramatic
Association, m.a. „Elín Árnadóttir
var yndisleg sem Micaela og það var
afar ánægjulegt að hlusta á fallega
rödd hennar sem hún hafði greini-
lega mikið vald á. Aría hennar í
þriðja þætti og dúettinn með Don
Jose í fyrsta þætti hljómuðu dásam-
lega.“
Að sögn Elínar er hlutverk Mic-
aelu fyrsta hlutverk hennar í breska
óperuheiminum, en Elín flutti til
Bretlands fyrir átta árum að loknu
námi hjá Söngskólanum í Reykjavík.
„Þó langt sé síðan ég lærði hlutverk
Micaelu þá hef ég aldrei sungið það
á sviði fyrr en nú. Í raun er þetta
mjög þakklátt hlutverk að því leyti
að Micaela kemur ekki inn á nema
þrisvar sinnum og fær þá tækifæri
til að syngja þessa fallegu tónlist
sem samin er fyrir hana.“
Aðspurð segir Elín óperubrans-
ann í Bretlandi afar harðan og
ótryggan, enda sé mun minna stutt
við óperustarfsemina í Bretlandi en
til að mynda í Þýskalandi. „Ég ætl-
aði raunar líka alltaf að fara til
Þýskalands í framhaldsnám, en áður
en af því varð skrapp ég í mína
fyrstu heimsókn til Bretlands og eft-
ir það varð ekki aftur snúið. Mér leið
einfaldlega svo vel hérna í Bretlandi,
leið bara eins og ég hefði alltaf átt
hér heima og nú er ég hreinlega búin
að festa hér rætur.“
Sigríði Ellu þakklát
Elín lauk námi frá Trinity College
of Music fyrir sex árum og segist
síðan hafa sótt einkatíma hjá hinum
ýmsu söngvurum. „Ég hef verið að
vinna mikið með röddina, slípa hana
til og það er í raun fyrst núna sem
mér finnst ég hafa náð réttum
þroska,“ segir Elín og þakkar það
ekki síst samvinnunni við Sigríði
Ellu Magnúsdóttur söngkonu sem
býr í Lundúnum.
„Á síðustu árum hef ég sótt tíma
hjá þekktum söngvurum á borð við
Graziella Sciutti og Lillian Watson,
en það var ekki fyrr en ég kom til
Sigríðar Ellu sem mér fleytti virki-
lega fram, enda er hún frábær söng-
kennari og stórkostlegur listamaður.
Á þessu síðasta eina og hálfa ári sem
ég hef verið hjá Sigríði Ellu hef ég
náð að opna röddina, hún hefur
stækkað mjög mikið og eflst. Mér
finnst loks að ég hafi fundið röddina
mína og það er mjög góð tilfinning.“
Spurð hvað sé framundan hjá sér
segist hún fljótlega fara að búa sig
undir haustið en í september fer að-
alfyrirsöngsvertíðin í Bretlandi fram
fyrir sýningar nk. vors og sumars. „Í
augnablikinu er ég aðallega að stíla
inn á Bretland, því ég vil vera ná-
lægt Sigríði Ellu alla vega næsta ár-
ið, en svo er aldrei að vita hvað ger-
ist í framtíðinni og hvert ég fer.“
Spurð hvort landinn fái bráðlega
tækifæri til að heyra í henni svarar
Elín því játandi. „Það eru að verða
fimm ár síðan ég hélt síðast tónleika
heima og því auðvitað löngu orðið
tímabært að skreppa heim til að
halda tónleika. Ætli ég reyni ekki að
stefna á tónleika heima með haust-
inu,“ segir Elín að lokum.
Ópera | Elín Huld Árnadóttir sögð yndisleg Micaela
Hef fundið röddina
Elín Huld Árnadóttir í hlutverki Micaelu ásamt Ian Priestley (Don Jose).