Morgunblaðið - 08.07.2004, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10. B.I. 16.
SV Mbl
www .borgarb io. is
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND
SUMARSINS!
Jenna fékk ósk sína
uppfyllta...og er allt í
einu þrítug!
Missið ekki af
svölustu mynd
sumarsins!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16 ára.
ÞEGAR KRAFTAVERK
VERÐUR AÐ MARTRÖÐ
ER EKKI AFTUR SNÚIÐI I
Frábær hasarmynd með
ofurtöffaranum The Rock
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15 .00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 16.
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 16 ára.
kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.40. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND SUMARSINS!
Missið ekki af
svölustu mynd
sumarsins!
Frábær hasarmynd með
ofurtöffaranum The Rock
Jenna fékk ósk sína uppfyllta...
og er allt í einu þrítug!
ÓHT Rás 2
SV Mbl
ETERNAL
SUNSHINE
SV Mbl
Forsa la ha f in – Frumsýnd 9. jú l í
SÍÐROKKSVEITIN Kimono hefur
nú verið starfrækt í u.þ.b. þrjú ár og
á að baki eina breiðskífu, Mineur
Aggressif. Kimono verður með tón-
leika í listsmiðjunni Klink og Bank,
Brautarholti, í kvöld en tilefnið er að
fagna væntanlegri utanför til
Bandaríkjanna. Það er Lokbrá sem
sér um upphitun en lag þeirra „Nos-
irrah Egroeg“ hefur notið nokkurra
vinsælda á öldum ljósvakans að und-
anförnu.
Alex MacNeil, söngvari og gít-
arleikari Kimono, staðfestir við
blaðamann að framundan séu sex
tónleikar á austurströnd Bandaríkj-
anna og verður flogið út þann 22.
júlí. Spilað verður í Philadelphiu,
Baltimore, Washington DC, New
Jersey og í New York, á hinum
þekkta stað Knitting Factory.
„Við ætlum að pússa rykið af lög-
um sem við höfum ekki spilað lengi,
í kvöld,“ segir Alex. „Við erum sem-
sagt að fara að þróa upp efniskrá
fyrir útlöndin. Þetta er í fyrsta
skipti sem Kimono spilar á erlendri
grundu og við erum satt að segja
mjög spenntir. Það verður óneit-
anlega dálítið þreytandi til lengdar
að spila trekk í trekk fyrir sama
fólkið. En ég veit auðvitað ekkert
um það hvernig þetta fer úti.
Kannski verður þetta eitthvað Spin-
al Tap. Það kemur bara í ljós. Við
erum hins vegar brattir og ætlum að
kynna okkur af krafti, tökum t.a.m.
með okkur boli og diska til að selja.“
Loftbrú
Með í för á flestum tónleikunum
verða bandarísku tilraunarokksveit-
irnar Snacktruck og Face & Lungs
en þær heimsóttu Ísland í maí síð-
astliðnum. Það er styrktarsjóðurinn
Reykjavík Loftbrú sem gerir ferð-
ina mögulega og segir Alex þann
stuðning ómetanlegan. Flugfarið
fær sveitin greitt að fullu auk þess
sem þeir félagar geta tekið með sér
þónokkuð af farangri, þ.e.a.s. magn-
ara, gítara og það græjuhavarí sem
fylgir rokklíferninu. Það verður
bara hljómsveitin sem fer út, en auk
Alexar er hún skipuð þeim Gylfa
Blöndal (gítar), Halldóri Ragn-
arssyni (bassi) og Kjartani Bjarna-
syni (trommur). Kimono ætlar þá
einnig að spila þarnæstu helgi á
Seyðisfirði en mánudaginn 12. júlí
hefst þar
Listahátíð ungs fólks á Austur-
landi sem ber yfirskriftina
„LungA“.
Tónlist | Kimono spilar í Klink og Bank í kvöld
Morgunblaðið/Jim SmartKimono: Alex, Halldór, Kjartan og Gylfi.
Á leið til Bandaríkjanna
Tónleikarnir hefjast stundvíslega
klukkan 22.00. Aðgangseyrir er
enginn.
BRESKA rokksveitin Placebo hélt
tónleika í Laugardalshöll í gær-
kvöldi fyrir fullu húsi. Þeir félagar;
Brian Molko, Stefan Olsdal og
Steve Hewitt halda af landi brott í
dag en þeir hafa verið hér á landi
síðan á mánudaginn. Blaðamaður
hitti Brian að máli nokkrum
klukkutímum áður en hann sté á
svið og innti hann álits á landi og
þjóð.
„Ég er með kvef,“ segir Brian.
„Þannig að þú fyrirgefur hversu
lágt ég tala.“
Ekkert mál. Hann segir blaða-
manni svo frá því að hljómsveitin
hafi tekið ferðamannapakkann
með trukki.
„Við fórum í Bláa lónið, að sjálf-
sögðu. Í gær fórum við upp á jökul,
skoðuðum fossa og fórum í Kerið í
Grímsnesi. Ég kannaðist strax við
það úr myndbandinu við
„Birthday“ með Sykurmolunum.“
Brian segist ekki hafa gert sér
neinar hugmyndir fyrir fram um
Ísland, hafi bara grunað að náttúr-
an hér væri engu lík og segir hann
að grunur sinn hafi verið stað-
festur. Það hafi hins vegar komið
honum á óvart hversu fáir búi á
landinu.
Brian segist hins vegar ekki hafa
getað farið neitt út á lífið vegna
slappleikans. Hann sé því búinn að
einbeita sér að því að vera „góður
strákur“ eins og hann orðar það.
Blaðamaður hughreystir hann með
því að segja að það sé nú hvort eð
er ekki mikið við að hafa á mánu-
dögum og þriðjudögum, burtséð
frá því hversu „heit“ Reykjavík sé
víst um þessar mundir.
Föst vinna er dauði
Brian segir að einn af stóru kost-
unum við það að vera í hljómsveit
séu ferðalögin þó að stundum geti
þau verið þreytandi. En að sjá ný
lönd og upplifa nýja menningu sé
stór plús í þessu starfi, sem hann
vill þó ekki kalla starf. Brian er
auðsýnilega hæstánægður með þá
stöðu sem hann er í og talar af
miklum hryllingi um „fasta“ vinnu,
segist fyllast þunglyndi ef hann
hugsar um það.
Brian staðhæfir að það að rokk-
sveitir og útlendingar almennt séu
orðnir áhugasamir um Ísland sé
fyrst og fremst Björk að þakka.
Hún sé tvímælalaust fremsti kynn-
ingarfulltrúi sem Ísland hefur átt
og hún ætti skilið orðu (sem hún
fékk svo árið 1997, er forsetinn
sæmdi hana Fálkaorðunni).
Samtalinu lýkur og Brian teygir
sig í samloku sem er á borðinu og
fær sér að snæða. Hann kinkar
kolli játandi, aðspurður hvort fleiri
viðtöl séu framundan.
„Þetta er það skemmtilegasta við
þessa vinnu,“ segir hann og brosir
hæðnislega. „Nei, nei, en svona er
þessi bransi bara. En öfugt við það
sem margir halda þá hafa ekki allir
popparar gaman af því að tala um
sjálfa sig allan daginn (hlær).“
Þótt undarlegt megi virðast fær Brian Molko ekki mikið út úr því að vera í
sviðsljósi fjölmiðla og vill sem minnst um sjálfan sig tala.
Rokktónleikar | Placebo á ferð og flugi
Bláa lónið,
að sjálfsögðu
arnart@mbl.is
BANDARÍSKA leikkonan Shannon
Elizabeth sýndi það í dvöl sinni á
Íslandi nýlega, að hún er ekki auð-
unnin við spilaborðið en hún spilaði
póker heila nótt við ferðafélaga
sína.
Shannon kom hingað til lands í
tengslum við golfmót sem haldið
var í lok júní. Bandaríska blaðið
New York Post segir frá því á mið-
vikudag að Shannon hafi tekið upp
spilastokk í anddyri Nordica Hót-
els, þar sem hún bjó, og boðið leik-
urunum Eric Szamanda og Tonya
Roberts, sem einnig voru hér
vegna golfmótsins, í póker.
Blaðið segir að leikkonan hafi
spilað töluvert á menntaskólaárum
sínum í Texas og hún hafi staðið
upp síðla nætur með vasana mun
þyngri en þegar sest var að spil-
unum. Segir blaðið að pókerveislan
hafi m.a. staðið svona lengi vegna
þess að sólin setjist ekki á Íslandi á
þessum tíma árs.
Shannon er þekktust fyrir hlut-
verk sitt sem skiptineminn Nadia í
American Pie myndunum.
Fólk | Leikkonan Shannon Elizabeth
Spilaði póker á Íslandi
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Shannon Elizabeth